Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.1998, Blaðsíða 66

Læknablaðið - 15.12.1998, Blaðsíða 66
966 LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 tíma sé það bundið af honum. Ráðið segir að reglugerð um ferliverk feli ekki í sér mis- munun í samkeppni en öðru máli gegni um leiðbeiningar ráðuneytisins og starfsemi sjúkrastofnana á grundvelli þeirra. Þar sé sjálfstætt starf- andi sérfræðingum gert að innheimta mun hærra gjald fyrir aðgerðir sínar en sjúkra- húsum og auk þess séu ekki færð nein rök fyrir því að rétt kostnaðarskipting milli sér- fræðings og sjúkrahúss sé 40%/60%. Slíka skiptingu þurfi að reikna út fyrir hverja aðgerð. Samkeppnisráð sér líka ástæðu til þess að gera athuga- semdir við málsmeðferð ráðu- neytisins. I úrskurðinum segir um það: „I öllum bréfaskrifum Sam- keppnisstofnunar og ráðu- neytisins og á fundum sömu aðila þau þrjú ár sem erindið hefur verið til afgreiðslu hjá stofnuninni hefur ráðuneytið hvorki lagt fram „Leiðbein- ingar vegna reglugerðar nr. 14/1993 ..." ... né bréf þess, dags. 13. október 1992, um ferliverk, sem einnig var gefið út af ráðuneytinu. Ráðuneytið minntist heldur ekki á að það hefði gefið slíkt út fyrr en á fundi þeim sem haldinn var 26. febrúar sl. Þessi málsmeð- ferð ráðuneytisins er ámælis- verð að mati Samkeppnisráðs og ber keim af því að vilji ráðuneytisins hafi staðið til þess að halda gögnum frá samkeppnisyfirvöldum. Ljósl má vera að vinnubrögð ráðu- neytisins hafa torveldað rann- sókn samkeppnisyfirvalda, auk þess sem dráttur og tregða ráðuneytisins til upplýsinga- gjafar fer þvert gegn 39. gr. samkeppnislaga og er ekki í samræmi við góða stjórn- sýsluhætti." Málarekstur Árna Eftir að þessi úrskurður lá fyrir og Ijóst var að ráðuneytið hyggðist ekki skjóta honum til dómstóla ákvað Árni að höfða skaðabótamál á hendur ríkis- sjóði vegna brota á samkeppn- islögum. Krafa hans hljóðaði upp á rúmlega 16,7 milljónir og lá til grundvallar henni út- reikningur endurskoðanda á áætluðu tekjutapi, söluvirði tækja og viðskiptavildar sem Árni gat ekki nýtt sér þegar hann hætti stofurekstrinum. Héraðsdómur féllst á flest rök Árna og dæmdi honunt 8,5 milljónir í bætur ásamt vöxtum og að auki var ríkis- sjóði gert að greiða honum 550.000 kr. í málskostnað. Ríkið áfrýjaði þessum dómi til Hæstaréttar sent staðfesti dóm héraðsdóms en lækkaði bæt- urnar sem Árni fær í 5,5 millj- ónir auk málskostnaðar sem nú er kominn í 750.000 kr. Afellisdómur um stjórnsýslu Heilbrigðisráðuneytisins - segir Sigurbjörn Magnússon hæstaréttarlögmaður um dóm Hæstaréttar Lögmaður Árna í þessum málarekstri var Sigurbjörn Magnússon og Læknablaðið spurði hann álits á niður- stöðu Hæstaréttar. „Það sem er athyglisverðast við þennan dóm er að Hæsti- réttur tekur mjög afdráttar- lausa og efnislega afstöðu til þess að atvinnustarfsemi í heilbrigðisþjónustu heyri undir samkeppnislög. Þó svo að orðalag í greinargerð með frumvarpinu hafi mátt skilja á annan veg er sjálfur lagatext- inn ótvíræður og Hæstiréttur hefur nú staðfest það. Raunar hafði áfrýjunarnefnd sam- keppnismála komist að þessari niðurstöðu árið 1994 en Heil- brigðisráðuneytið hafði ekki áhuga á að láta reyna á það fyrir dómi. Ráðuneytið hélt því fram í þessum málarekstri að heilbrigðisþjónusta væri undanþegin samkeppnislög- um en skilaði samt efnislegum athugasemdum sem Sam- keppnisstofnun bað um. En nú er Hæstiréttur búinn að eyða allri réttaróvissu hvað þetta varðar. I annan stað er dómur Hæstaréttar áfellisdómur yfir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.