Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.1998, Blaðsíða 56

Læknablaðið - 15.12.1998, Blaðsíða 56
956 LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 einkarekstri og hefur það að markmiði að gera rekstur skil- virkari og hagkvæmari en hugsunarháttinn má vel laga að heilbrigðisþjónustunni. Það þarf að leggja áherslu á aðra hluti en einkafyrirtæki gera við sína framleiðslu. Varan sem við framleiðum, ef svo má að orði komast, eru heil- brigðir einstaklingar og það verðum við að hafa hugfast. Að öðrum kosti er hættan sú að fólki finnist gæðastarfið vera eitthvað sem komi því ekki við heldur sé það einka- mál skrifstofu spítalans. Hér hefur verið farin sú leið að skipa á hverri deild svo- nefnda gæðaverði sem hafa eftirlit og umsjón með því sem er að gerast á þeirra deild, hvaða gæðaverkefni séu í gangi. Gæðastarfið byrjar gjarnan á því að menn ákveða að taka á einhverjum vanda sem fer í taugarnar á öllum. Við getum tekið sem dæmi illa skipulagðan stofugang þar sem fólki finnst það eyða öll- um tímanum í að bíða. Þá setj- ast menn niður og skipa um- bótahóp sem skilar af sér nið- urstöðu eða tillögu að kerfi þannig að stofugangurinn sé markvissari og starfsfólkið ánægðara. Um leið og verk- efnið er unnið býr hópurinn til spurningalista sem síðan er hægt að nota til að gera árang- ursmælingar. Þannig er hægt að kanna á skipulegan hátt hvort verkefnið hafi skilað til- ætluðum árangri eða hvort enn þurfi að betrumbæta það. Þannig hefur þetta verið á mörgum sviðum en vissulega eru deildirnar misvel undir það búnar að takast á við gæðastarfið. Sumar deildir eru komnar mjög langt og þess eru dæmi að búið sé að setja saman handbækur þar sem allt ferlið í samskiptum sjúklings við deildina er skráð niður. Nýr starfsmaður getur því ein- faldlega flett upp í bókinni og séð hvað hann á að gera hverju sinni."1 Stefnan þarf að vera skýr „En það sem kannski hefur vantað hér á spítalanum er að það komi skýr stefna ofan frá, að stjórn spítalans segi til hvernig hún vilji haga þessu starfi. Ég er nýkominn af ráð- stefnu um gæðamál í Noregi og þar voru allir sammála um að þetta væri lykilatriði í gæðaþróun. Svona starf getur ekki gengið til lengdar á eld- móði fárra manna sem sinna því til hliðar við sín eiginlegu störf. Ég er nýr í þessu starfi og sé það sem næsta verkefni spítalans að koma heildar- skipulagi á gæðamálin þannig að við getum sagt að svona viljum við hafa þau. En til þess að svo geti orðið þarf spítalinn að fá skýra stefnu í gæðamálum frá heilbrigðis- yfirvöldum, en mér vitanlega er enn sem komið er ekki til nein slík heildarstefna. Stóri munurinn á ástandinu hér og í nágrannalöndum okk- ar eins og Bretlandi, Hollandi og fleiri löndum er sá að þar er gæðastarf lögbundinn hluti af starfsemi sjúkrahúsa. Það er ekki lengur spurning um hvort rnenn vilji eða telji heppilegt að sinna gæðamál- um, það er einfaldlega lög- boðin skylda. Arið 2000 eiga allar heilbrigðisstofnanir í Noregi samkvæmt lögum að vera komnar með gæðastjórn- unarkerfi fyrir rekstur allra deilda þannig að þær geti á hverjum tíma sýnt hver skil- virknin er, hversu góður ár- angurinn af starfi þeirra er og svo framvegis og fjárfram- lögin til þeirra miðast við það sem þær hafa verið að gera. Við erum töluvert aftarlega á merinni hvað þetta snertir. Ég veit hins vegar að svona kerfi hér myndi auðvelda starf- semi spítalans verulega því í raun er þess sama krafist af okkur þótt lögin um það séu ekki til.“ Tregðulögmálin eru mörg - Hvernig hefur starfsfólkið tekið gæðastarfinu? „Það er upp og ofan. Það skal alveg viðurkennt að lækn- ar hafa ekki sinnt þessum þætti starfseminnar sem skyldi. Ósjaldan heyrir maður talað um gæðakjaftæði þegar gæða- starf ber á góma. En þegar far- ið er að vinna gæðastarfið kemur í ljós að það er í raun það sama og við erum alltaf að gera. Ég hef stundum sagt að út um allan spítala séu ótal gæðaverkefni í gangi, þau heiti bara eitthvað annað, regl- ur skurðdeildar eða eitthvað þess háttar. Gæðastarf er að temja sér öguð vinnubrögð eft- ir ákveðnum reglum. Þannig má samræma hinar ýmsu leið- beiningar og fyrirmæli spítal- ans þannig að þau verði að- gengileg og nýtist öllu starfs- fólki. Þar sem ég þekki til, á barnadeildinni, hefur gengið ágætlega að fá fólk til að vinna saman að gæðaverkefn- um. A barnaskurðdeildinni tókum við saman alla helstu sjúkdóma sem eru ástæða fyr- ir innlögn barna, fórum yfir þá og allar starfsstéttir komu með sín sjónarmið. Þessu verkefni er ekki lokið en þarna er verið að vinna að einskonar flæði-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.