Sagnir - 01.04.1988, Blaðsíða 51

Sagnir - 01.04.1988, Blaðsíða 51
Sagnfræði og fjölmiðlun Guðjón: Eins og til eru bæði góð- ir og vondir blaðamenn þá eru iíka til góðir og vondir sagnfræðingar og þetta er spurningin um að vera vandur að heimildum í báðum til- fellum og undirbyggja vel það sem kemur fram. Oðinn: Það má benda á að heim- ildamaður þarna var sagnfræðingur. Fréttir og blöð sem heimildir Guðjón: Ég hef nú verið að vinna töluvert með gömul biöð síðan um aldamót, fréttablöð. Ég held að margir hafi tilhneigingu til að taka því meira mark á slíkum heimildum eftir því sem þær eru eldri. Úr því að eitthvað stendur t.d. í Þjóðólfi og Isafold fyrir hundrað árum þá hlýtur það að vera rétt. Maður er alltaf að reka sig meira og meira á það að oft er þetta bara tóm vitleysa sem kem- ur fram í frétt í þessum blöðum, þegar maður fer að rýna í skjöl eða aðrar frumheimildir. Sp.: Hvað heldur þú að valdi því að það er tekið meira mark á þeim eftir því sem þau eru eidri. Er það kannski skortur á öðrum heimildum sem veidur þessu? Guðjón: Ekkert endilega. Menn rekast kannski á eitthvað í blaði og lyfta höndum til himins af fögnuði yfir að sjá það. Svo þegar þeir fara aánar út í aðrar heimildir, bréf og skjöl o.s.frv. þá kannski kemur í ljós að það er lítill fótur fyrir þessu. Einar: Ég lield að þú þurfir ekki einu sinni að fara svona langt aftur í tirnann. Það er nóg að fara svona 10-40 ár aftur í tímann. Það er inn- þyggð ákveðin virðing fyrir prentuðu ^áii, sérstaklega því sem er í þeim ^niðium sem gefa sig út fyrir að vera uPplýsingamiðlar. Viðhorfið til þessara miðla liefur breyst mjög mikið. Maður sér það t.d. á lestri Karakterinn í lesendahópi DV er mjög sérkennilegur. Það er óvenjuleg breidd í pólitískri skoðun 1 lesendahópnum. Þarna er fólk úr öllu pólitíska litrófinu sem kýs þetta þlað sem fréttamiðil. Það er greini- 'egt að fólk lítur þetta blað öðrum augum en fólk almennt leit press- una fyrir 40-50 árum síðan þegar hún var öll bundin mjög sterkt á pólitískan klafa. Þá trúðu menn sínu blaði og engu öðru. Ég held að mönnum sé í dag enn hættara við því að taka gamla prentmiðla hátíð- lega en var. Sp.: Munurinn á Þjóðólfi og ísa- fold og nýrri blöðunum er kannski sá að fólk er ekki lengur inni í þeim pólitísku átökum sem áttu sér stað þá og varar sig e.t.v. ekki eins á hneigðinni í þeim. En núna taka menn Þjóðviljann og Moggann með þeim fyrirvörum sem þeirra póli- tísku flokkum fylgja. Ef verið er að nota þau sem sagnfræðilegar heim- ildir þá er önnur notkun á nýrri blöðum en eldri. Menn skoða af- stöðu Þjóðviljans til ákveðins máls, afstöðu Moggans til annars máls, o.s.frv. Guðjón: Ef því er t.d. haldið fram í Þjóðviljaivim frá ’49 að Stefán Jóhann hafi verið í tengslum við CIA, þá taka menn því með fyrir- vara. Fréttaefni safnast upp. Sjáum við skóginn fyrir trjánum? Óðinn: Ég hugsa að það sé eitt sem verði sagnfræðingum framtíðarinn- ar áhyggjuefni: Nú lifum við á öld ljósvakamiðlanna sem fiytja frétta- efni á öllum tímum, í innskotum inni í dagskrám og í fréttatímum. Svo hefur maður verið að skoða hvernig varðveislunni er háttað á þessu, hugsa þetta svolítió út frá sjónarhóli sagnfræðingsins: Hvern- ig verður að nota þetta í framtíðinni við rannsóknir og í skrifum. Mér sýnist að það geti orðið ansi erfitt oft á tíðum, vægast sagt. Vissulega er megninu af pistlum sem skrifaðir eru stungið í plastpoka og það er geymt í einhverjum hirslum og merkt í tímaröð. Það er dálítið verk að vinna sig í gegnum það. Varð- veisla á tónböndunum er mjög svo tilviljanakennd og ekkert fræðilegt mat lagt á það hvað eigi að varð- veita. Guðjón: Það getur vel farið svo að eftir kannski 300 ár verði 20. öld- in jafn myrk fyrir þeim sem þá lifa og 15. öldin er fyrir okkur. Óðinn: Ég óttast það. Meira að segja sjónvarpið hefur brugðist þarna fullkomlega. Það held ég að sé alveg ábyggilega hægt að segja. Einar: Jú það er alveg klárt. Ég þekki það af eigin raun. Það er ótrúlegt að fikra sig i gegnum sumt í filmusafni sjónvarpsins. Það vita allir sem hafa unnið þar, að maður nánast ber það varla við að leita þar að gömlum myndum nema í undan- tekningartilvikum. Sp.: Hvað um fréttir, eru þær geymdar? Óðinn: Já, en hvernig á sagn- fræðingurinn að leita? Handrit eru oft geymd, en ég þekki fréttamenn, SAGNIR 47
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.