Sagnir - 01.04.1988, Blaðsíða 46
Sagnfræði
og
fjölmiðlun
Einar Sigurdsson
Hinn 24. nóvember 1987 fóru
fram hringborðsumræður á
vegum Sagna um sagnfræði
og fjölmiðla. Þátttakendur voru Ein-
ar Sigurðsson útvarpsstjóri Bylgj-
unnar, Gísli Kristjánsson sagnfræð-
ingur og blaðamaður á DV, Guðjón
Friðriksson sagnfræðingur, Óðinn
Jónsson sagnfræðingur og frétta-
maður hjá Ríkisútvarpinu. Egill
Ólafsson, Þórgunnur Torfadóttir,
Hrefna Róbertsdóttir og Magnús
Hauksson sagnfræðinemar sáu um
undirbúning og stýrðu umræðunum.
Sagnfræðin í
fjölmiðlum
Spyrill: Mig langar fyrst til að beina
umræðunni að því hvort fjölmiðlar
hafi einhverja stefnu gagnvart sagn-
fræði.
Einar: Ég hef unnið á 4, 5, 6, fjöl-
miðlum og hef hvergi orðið var við
að það væri úthugsuð stefna eða
afstaða til sagnfræðinnar sem
slíkrar. Fjölmiðlun eða frétta-
mennska, sem kannski fer næst
sagnfræðinni af því sem fjölmiðl-
Ódinn Júnsson
Gudjún Fridriksscn
Gísli Kristjánsson
arnir gera, hefur alveg sína eigin
hugmyndafræði og vinnuaðferðir.
Til að réttlæta þetta fag hefur það
skapað sínar eigin hugmyndir um
sjálft sig. Ég held að þær hugmyndir
tengist dálítið þeim sem sagnfræð-
ingar gera sér um sjálfa sig og sitt
starf. En í stuttu máli þá held ég
ekki að sagnfræðin sem fag sé
beinlínis talin þjóna ákveðnu hlut-
verki á fjölmiðlunum. Ég held ein-
mitt að það sé mjög mikið lagt upp
úr sjálfstæðri hugmyndafræði á fjöl-
miðlunum.
Guðjón: Já, ég vann lengi á blaði
sem löngum hefurverið talið ramm-
42 SAGNIR