Sagnir


Sagnir - 01.06.2006, Síða 71

Sagnir - 01.06.2006, Síða 71
(fjfroður erjuffi fetri hallinn af rangri gengisskráningu og útlánum umfram sparifjáraukningu. Þetta hafði þær afleiðingar að greiða þurfti útflutningsbætur í öllum greinum, hefta innflutning og greiða niður vörur og þjónustu innanlands. Viðreisnarstjómin vildi breyta þessu og eitt helsta markmið hennar var að leggja niður það bótakerfi sem útflutningsframleiðslan hafði búið við síðan 1951.3 Þá höfðu innflutningshöftin einnig slæm áhrif. Fyrir löngu höfðu allar þjóðir Vestur-Evrópu lagt niður haftakerfi, nema Islendingar sem enn bjuggu við það.4 Til þess að ná tökum á efiiahagslífinu, koma landinu á réttan kjöl og skapa jafnvægi í efnahagslífi með bættum lífskjörum og aukinni fjárfestingu, greip stjómin til mun yfirgripsmeiri aðgerða en verið hafði á íslandi svo áram skipti.5 Þessar aðgerðir náðu þó ekki til allra þátta atvinnulífsins því í landbúnaðarmálum var engu breytt heldur vora útflutningsbætur settar í lög og innflutningshöftum ekki aflétt. Ástandið í landbúnaði var þó síst betra en í öðram greinum efnahagslífsins haustið 1959. Starfað var eftir framleiðsluráðslögunum frá árinu 1947, eða lögum um framleiðsluráð landbúnaðarins, verðskráningu, verðmiðlun og sölu á landbúnaðarafurðum. Yfirstjóm landbúnaðarmála var sett í hendur níu manna ffamleiðsluráðs sem sá um alla skipulagningu framleiðslunnar og hafði gríðarleg völd í málaflokknum. Það veitti leyfi til að stofna sláturhús og mjólkurstöðvar, hélt skrár um framleiðslumagn á hverju ári og skipti landinu í framleiðslusvæði. Bændum var ekki frjálst að selja til afurðastöðva utan þeirra svæða sem býlin vora á samkvæmt skiptingu framleiðsluráðsins. Ráðið sá einnig um að reka verðmiðlunarkerfi sem var grandvallaratriði í skipulagningunni. Kerfið var þess eðlis að ákveðinn hluti af verði til bónda fyrir innlagðar vörar hans fóra í sameiginlegan sjóð á landsvísu. Ur þeim sjóði var mjólkurbúum og sláturhúsum greitt ef rekstur þeirra var óhagkvæmur t.d. vegna fjarlægðar frá markaði. Þá ákvað framleiðsluráð verð á afurðum í heildsölu og smásölu á öllu landinu. Verðlagning til bænda var þó ekki í höndum framleiðsluráðs heldur nefndar sem í sátu fulltrúar bænda og neytenda ásamt oddamanni. Þvi hlutverki gegndi hagstofustjórinn í Reykjavík. Þessi nefnd var í daglegu tali kölluð sexmannanefnd. Hún kom saman árlega til að semja um verðlag sem var reiknað út ffá ákveðnum verðlagsgrandvelli. Þegar lögin vora sett þótti þetta fyrirkomulag besta lausnin á kjaramálum bænda því samkvæmt lögum var nefndinni ætlað að reikna bændum tekjur í samræmi við aðrar stéttir þjóðfélagsins. Lögin vora sett á miklu umbrotatímabili á Islandi og var ekki síst ætlað að tryggja bændum sambærilegar tekjur við aðrar stéttir. Landbúnaðurinn var í mikilli lægð að heimsstyrjöldinni lokinni og framleiðsla landbúnaðarvara nægði tæplega fyrir neyslu innanlands. Laun bænda höfðu staðið í staö á meðan laun í þéttbýli hækkuðu gríðarlega og erfitt var að fá vinnuafl í sveitimar til að sinna helstu verkum. í eðli sínu vora lögin framleiðsluhvetjandi því bændur fengu greitt fyrir hvert kíló af kjöti eða lítra af mjólk, burtséð frá framleiðslukostnaði. Það var þeim því til hagsbóta að framleiða sem mest en ríkið niðurgreiddi svo vöramar til neytenda. Á fimmta áratugnum fóra brestir í kerfinu að koma í ljós. Framleiðsla varð svo mikil að flytja varð út tilfinnanlegt magn af landbúnaðarafurðunum og þar sem ffamleiðslukostnaður hér á landi °g flutningskostnaður á erlenda markaði var yfir heimsmarkaðsverði reyndist útflutningurinn dýr. Frá árinu 1955 fékk landbúnaðurinn útflutningsbætur ffá ríkinu í tengslum við bætur á sjávarafurðir6 en verðlagskerfið réði illa við þessar breyttu aðstæður. Útflutningurinn Var jafnan dýrari en svo að bætumar dygðu fyrir honum og annað hvort þurffi því að hækka verð afurðanna til neytenda eða lækka verð þeirra til bænda. Um þetta urðu mikil átök í sexmannanefhd. Eftir að framleiðsluráð tók þá ákvörðun árið 1958 að hækka verð til neytenda innanlands til að greiða halla af útflutningi töldu fulltrúar neytenda í sexmannanefnd of langt gengið og kærðu ákvörðunina til dómstóla. Uómur í málinu féll í Hæstarétti í september 1959. Niðurstaða dómsins var sú að ffamleiðsluráði væri heimilt að hækka verð á afúrðum 'nnanlands til að greiða tapið á útflutningi því kveðið væri á um það í iögunum að tekjur bænda skyldu vera í samræmi við tekjur annara stétta ú Islandi.7 Á þessum tíma vora niðurgreiðslur á landbúnaðarafurðir 'nnanlands einnig orðnar svo miklar að bændur fengu hærra verð fyrir vörumar óunnar í mjólkurbúum eða sláturhúsum en neytendur greiddu fyrir þær út úr búð.8 Því má segja að ástandið í landbúnaðarmálum hafi Verið orðið svo óhagstætt að raunhæft hefði verið að endurskoða stefnu stjómarinnar í málaflokknum. Fyrstu aðgerðir ríkisstjómarinnar beindust þó að því að viðhalda því skipulagi sem ríkti með því að leysa vandann við verðlagsákvarðanir í sexmannanefnd. Það var gert með því að banna framleiðsluráði að hækka verð á landbúnaðarafúrðum innanlands en taka í staðinn upp greiðslur úr ríkissjóði fyrir tapinu með meiri útfiutningsbótum en áður. Útflutningsbætumar máttu þó ekki vera hærri en sem næmi 10% verðmætis heildarframleiðslunnar en hið nýja lagaákvæði var á þessa leið: Tryggja skal greiðslu á þeim halla sem bændur kunna að verða fyrir af útflutningi landbúnaðarvara, en þó skal greiðslan vegna þessarar tryggingar ekki vera hærri en svarar 10% af heildarverðmæti landbúnaðarframleiðslunnar viðkomandi verðlagsár, miðað við það verð, sem framleiðendur fá greitt fyrir afúrðir sínar.9 Með þessu var komið til móts við báða samningsaðila. Tapinu af útflutningi var ekki velt beint yfir á neytendur sem borguðu eftirleiðis enn meira í gegnum skattkerfið en bændur þurftu hvorki að taka á of mikilli framleiðslu landbúnaðarafúrða né óhagstæðum útflutningnum. Uppbætur á landbúnaðarafúrðir vora þannig teknar inn í landbúnaðar- löggjöfina, slitnar úr tengslum við bætur á aðrar útfluttar afurðir frá landinu og landbúnaður einangraður frá öðram atvinnugreinum. Þessar fyrstu efnahagsaðgerðir Viðreisnarstjómarinnar í landbúnaðarmálum hljóta að teljast nokkuð sérstakar í ljósi þess að aðgerðir í öðram greinum atvinnulífs á íslandi gengu í þveröfuga átt. Lögbundinn réttur sjávarútvegs til bóta var felldur niður. Af og til þurfti hann aðstoð og við því var bragðist með sértækum aðgerðum en markmiðið með styrkjum var alltaf í og með að halda uppi atvinnu í landinu.10 Innflutningshöft vora afnumin að mestu en ekki á land- búnaðarvörar. Framleiðsluráð sem hafði fengið vald yfir ákvörðunum um innflutning búvara árið 195711 hélt því áfram og sexmannanefndar- fyrirkomulaginu var haldið við þótt samstarfið væri augljóslega orðið stirt. Meðal bændanna sjálfra hafði umræða farið af stað um framleiðslu- aukninguna þótt menn væra ekki sammála um hvort ofífamleiðslan stefndi í alvarlegt vandamál eða hyrfi af sjálfú sér með ijölgun landsmanna.12 Þessi umræða hvarf eftir að útflutningsuppbætumar vora teknar upp. Á sama tíma vora bændur orðnir ein tekjulægsta stétt landsins.13 Þrátt fyrir að illa gengi að fá hærra verð fyrir útflutninginn á næstu áram hélt framleiðslan áfram að aukast og þörfin fyrir útflutningsbætur jókst til samræmis við það. Greiddar útflutningsbætLr á lardbúnaöarafuráir 1359-1972 Ar Mynd 1 - Greiddar útflutningsbætur á landbúnaðarafurðir 1959-1972. (Hcimild: “Verðmæti landbúnaöarframleiðslunnar og greiðslur útflutningsbóta verðlagsárin 1959/60-1974/1975,” Árbók landbúnaðarins, XXVI. árg., (1975), bls. 198.) Þessi þróun var reyndar svo hröð að árin 1963-1964 vora bætumar, sem máttu samkvæmt lögum nema allt að 10% af heildarframleiðslu- verðmæti landbúnaðarafurða, ekki nægilega miklar til að greiða hallann lengur. Framleiðsluráð greip aftur til þess ráðs að velta aukakostnaðinum yfir á innanlandsmarkað en þá á bænduma sjálfa. Bændur fóra sem sagt að fá lægra verð fyrir afurðir sínar til að greiða útflutningshallann. Af L ^Saynír 2006 6y
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.