Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.12.2000, Blaðsíða 31

Sveitarstjórnarmál - 01.12.2000, Blaðsíða 31
MENNINGARMÁL Örnefnaskráning á vegum sveitarfélaga Svavar Sigmundsson, forstöðumaður Örnefnastofnunar í ein níutíu ár hefur örnefnum verið safnað hér á landi, fyrst að ífumkvæði Hins íslenska fomleifa- félags og síðar Þjóðminjasafns, en eftir 1970 á vegum Ömefhastofnun- ar, sem var deild í safninu. Frá árinu 1998 hefur starfað sérstök stofnun, Ömefnastofnun íslands, sem tók við safni því sem til var og er nú til bráðabirgða í sama húsnæði og Þjóðminjasafn Islands í Lyngási 7 í Garðabæ. Fjölmargir hafa lagt hönd að verki við ömefhasöfnun ffá byrjun. Fyrstur til þess að safna skipulega var Brynjúlfúr Jónsson frá Minna- núpi, sem var fornfræðinjgur og rannsakaði minjar víða. A þeim tima var stuðst við ömefnin í rann- sóknum á fomleifum og þau vom höfð til hliðsjónar við kannanir á sögustöðum. Hann skráði ömefnin án staðsetningar en gerði einungis skrár um þau bæ ffá bæ og gat að- eins um landamerkjaörnefni og eyðibýli. Síðar fóm menn að skrifa lýsingu jarða í samfelldu máli með ömefnin sem uppistöðu. Segja má að langmestur hluti örnefnaskráa þeirra sem Ömefnastofnun á í fór- um sínum sé af þeirri gerð. Stund- um vom gerðir lauslegir uppdrættir af landi hverrar jarðar með ömefn- unum, annars staðar hafa loftmyndir verið fengnar og númer örnefnis skrifað inn á myndina. Stundum hafa þær verið stækkaðar og ömefn- in þá skrifúð inn á sjálfa myndina. Sumir hafa dregið upp e.k. kort af landareign eftir loffmyndum og fært inn á þau. í sumum tilvikum hafa stækkuð landakort verið notuð sem gmnnur undir ömefnakort. Skortur á góðum kortum í þessu skyni hér á landi, í mælikvarðanum 1:10.000, veldur því að ekki er til samræmt kortasafn með ömefúum. Það er því tilviljun hvað til er af slíku efni í Ömefúastofúun. A undanförnum árum hafa þó bæst í safúið góðar loftmyndir með innfelldum ömefnum úr nokkmm sveitum. Þar er ekki síst að nefna Sigurgeir Skúlason landfræðing, sem hóf að skrá örnefni á slíkar myndir fyrir sveitarfélögin í Austur- Skaftafellssýslu 1990 og hefúr síðan skráð í Biskupstungum, í Grafúingi og víðar með sama hætti. (Sbr. grein hans í 6. tbl. Sveitarstjórnarmála 1994). Mikill fengur er að þessum ömefnamyndum. Einstaka félaga- samtök hafa einnig látið gera ör- nefnamyndir, stundum ljósmyndir, sem ömefúin hafa verið felld inn á með skýmm hætti svo að staðurinn, sem ömefúið á við, sést greinilega. Sem dæmi má nefúa ljósmynd með örnefnum sem Lionsklúbbur Nes- þinga hefúr látið gera af Hellissandi og nágrenni og sagt var frá i Mbl. 24. sept. sl. Einnig hafa þeir Páll Lýðsson í Litlu-Sandvík í Flóa og Oddur Hermannsson, landslagsarki- tekt á Selfossi, gert ömefúakort um fyrrum Sandvíkurhrepp í Flóa, nú í Sveitarfélaginu Árborg. Þar hefur verið skannað inn kort ameríska hersins í mælikvarðanum 1:50.000 og ömefnin færð inn á, fyrst með hendi en síðan i endanlegri gerð í tölvu. Ömefúaskrá Sandvíkurhrepps tók Páll saman í rituðu máli á ár- unum 1960-1965 en nú fyrst hafa þau verið staðsett á korti. Fleiri kort eru væntanleg úr Sveitarfélaginu Árborg með styrk sveitarstjómar. (Sjá næstu opnu.) Nú er verið að vinna að aðal- skipulagi í mörgum sveitarfélögum og fer þá jafnframt fram gagna- gmnnsvinna þar sem miðað er að því að gera stafrænt kort af viðkom- andi sveitarfélagi. Ein tegund gagna sem þar ættu hiklaust að vera með er örnefnin. Ýmsir aðilar mæla út staði og mannvirki og er nú hægt að gera það mun nákvæmar en áður hefur tiðkast. Þannig er hægt með staðsetningartækjum (GPS) að mæla staði og kennileiti með mikilli nákvæmni. Með því væri fúllnaðar- skráningu lokið, hver staður mældur í hnitum, nafn hans skráð og lýsing á honum í ömefnaskrá. Ýmsar aðferðir er hægt að við- hafa við þessa skráningu. Ein er sú að nota loftmyndir sem teknar em 285
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.