Fréttatíminn - 27.02.2015, Síða 2
BOSTON f rá
Tímabi l : mars - maí 2015
17.999 kr.
TAKMARKAÐ MAGN Í BOÐI
BÓKAÐU NÚNA Á WOWAIR.IS
2 milljarðar í skoðunarferðir
Nú hafa 47 umsagnir við frum-
varp um náttúrupassa borist
atvinnuveganefnd Alþingis.
Langflestar fagna því að skap-
aðar verði tekjur til uppbygg-
ingar ferðamannastaða en lýsa
yfir miklum efasemdum með
náttúrupassann og útfærslu
hans á meðan aðrir eru alfarið
á móti honum. Má þar helst
nefna Ferðafélag Íslands, Um-
hverfisstofnun, Landvernd,
menntavísindasvið og líf- og
umhverfisvísindadeild Háskóla
Íslands, Neytendasamtökin,
Rannsóknarmiðstöð ferðamála,
Samtök ferðaþjónustunnar og
Samtök atvinnulífsins.
Samtök ferðaþjónustunnar
segjast tilbúin til að skoða með
stjórnvöldum útfærslu á „val-
kvæðum“ náttúrupassa en
benda jafnframt á að samkvæmt
nýjum fjárlögum muni ferða-
þjónustan frá og með næstu ára-
mótum falla öll undir VSK-kerf-
ið. Það eitt muni skila miklum
tekjum í ríkissjóð af greininni.
Upphaflega hafi hugmynd um
náttúrupassa komið fram í kjöl-
far þess að frumvarp um hærra
VSK-þrep hótel og gististaða var
dregið til baka árið 2013. Því
telja samtökin eðlilegt að það sé
tryggt að hluti þeirra umtals-
verðu og ört vaxandi tekna sem
atvinnugreinin skilar til ríkisins
renni til uppbyggingar, viðhalds
og verndunar ferðamannastaða.
Í grunninn styður Viðskipta-
ráð hugmyndir um gjaldtöku
á ferðamannastöðum en efast
samt sem áður um árangur
gjaldtöku í gegnum ríkissjóð og
telur æskilegra að gjaldtakan
fari fram í gegnum sjálfseignar-
stofnun.
Samtök atvinnulífsins leggjast
alfarið gegn frumvarpi um nátt-
úrupassa þar sem alls óvíst sé
hvort tekjur af honum muni
skila sér til uppbyggingar inn-
viða ferðaþjónustunnar. Bent
er á að kostnaður við að koma
skattinum á og eftirlit með
honum sé að öllum líkindum
vanmetinn. Að auki sé óljóst
hvernig stjórnvaldssektir á er-
lenda ferðamenn muni skila sér í
ríkissjóð. -hh
Umsagnir skattlagning á ferðaþjónUstU
Andstaða við frumvarp um náttúrupassa
Sú grein ferðaþjónust-
unnar sem bar mest
úr býtum í janúar er sú
sem bauð skipulegar
skoðunarferðir. Þetta
sýna nýjar tölur frá
Rannsóknarsetri
verslunarinnar. Erlendir
ferðamenn greiddu með
kortum sínum liðlega
2 milljarða króna fyrir
slíkar ferðir sem er 71%
aukning frá janúar í
fyrra. Greiðslukortavelta
erlendra ferðamanna
hér á landi var alls 7,2
milljarðar króna í janúar
sem er 32,5% hærri upp-
hæð en í sama mánuði
í fyrra. Af einstökum
útgjaldaliðum má nefna
að um 50% aukning
var í veltu bílaleiga í
janúar frá því í fyrra og
yfir þriðjungsaukning
var í veltu hótela- og
gistihúsa. Þá naut menn-
ingarstarfsemi, eins og
söfn og viðburðir, góðs
af aukinni kortaveltu
útlendinga þar sem
aukningin nam næstum
30% frá janúar í fyrra.
800 milljónir í stærri
viðhaldsverkefni
fasteigna
Reykjavíkurborg mun innan tíðar bjóða út
ýmis stærri viðhaldsverkefni í fast-
eignum borgarinnar. Áætlunin var kynnt
í borgarráði í gær, fimmtudag. Verja á
800 milljónum króna til 355 verkefna í 170
fasteignum borgarinnar. Þetta er annað
árið í röð, segir í tilkynningu borgarinnar,
sem 800 milljónum er bætt við hefðbundið
viðhald með sérstakri fjárveitingu á fjár-
festingaáætlun.
Sameiginlegar kröfur
iðnaðarmanna
Landssambönd og félög iðnaðarmanna
með um 18.000 félagsmenn hafa gert með
sér samkomulag um samstarf í komandi
kjaraviðræðum. Samkomulagið tekur
meðal annars til framsetningar á kröfum
og markmiðum í aðalkjarasamningum
félaganna við SA, samstilltra verkfallsað-
gerða og samráðs á vettvangi ASÍ. Að sam-
komulaginu standa: Rafiðnaðarsamband
Íslands, Samiðn, Félag bókagerðarmanna,
Matvís, Félag hársnyrtisveina og VM -
Félag vélstjóra og málmtæknimanna.
Hús rýmd fyrir vestan
Íbúar á Patreksfirði og Tálknafirði sem
þurftu að rýma hús sín vegna snjóflóða-
hættu í vikunni fá að óbreyttu að snúa
aftur til sín heima í dag, föstudag. Á Pat-
reks firði þurftu 63 íbú ar að yfi r gefa heim ili
sín og átta íbú ar á Tálknafirði eða alls 71
manns. Um 40 manns
hafa gist á Foss-
hóteli á Patreks-
firði en aðrir
fengu inni
hjá vinum
og ætt-
ingj-
um.
g ötusala á fíkniefnum hefur í raun færst yfir á samfélagsmiðlana. Það sem kom okkur mest á óvart
er hvað þetta er mikið af síðum og hvað
það er mikið af fólki að selja,“ segir Aldís
Hilmarsdóttir, yfirmaður fíkniefnadeild-
ar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Á annan tug manna hefur verið hand-
tekinn á undanförnum vikum í tengslum
við sérstakt átak lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu gegn fíkniefnasölu á sam-
félagsmiðlum á borð við Facebook.
„Við höfum haft áhyggjur af þess-
ari þróun, fórum markvisst í að meta
umfangið og finna þær leiðir sem best
reynast til að vinna gegn þessu,“ segir
Aldís. Hún vill ekki gefa upp nákvæm-
lega hvaða aðferðir lögreglan hefur notað
en segir að stundum gefi fólk á sölusíð-
um jafnvel upp skráð símanúmer sem þá
er auðvelt að hafa uppi á, auk þess sem
lögreglan geti nýtt sér símhlustanir að
gengnum dómsúrskurði.
Við hús leit ir á höfuðborgarsvæðinu í
tengslum við átaksverkefnið tók lög regl-
an í sína vörslu kókaín, LSD og um 200
grömm af am feta míni, auk kanna bis efna
sem var að finna á all mörg um stöðum.
Enn frem ur var lagt hald á pen inga, sem
tald ir eru vera til komn ir vegna fíkni efna-
sölu. Í hópi hinna hand teknu eru aðal-
lega karl ar á þrítugs aldri, en ein kona
var hand tek in í aðgerðunum. Aldís segir
allan gang á hvort um hafi verið að ræða
fólk með sakaferil.
„Með aukinni fíkniefnasölu á sam-
félagsmiðlum verður auðveldara fyrir
unga krakka að sækja í þessi efni. Það
er bannað að auglýsa áfengi en þarna
hafa börn greiðan aðgang að fíkniefnum
í gegn um tölvuna sína. Við höfum beint
því til foreldra að þeir tali við börnin sín
og fylgist með netnotkun þeirra. Við
fáum fjölda ábendinga frá fólki en einnig
höfum við hvatt fólk til að tilkynna þess-
ar sölusíður til Facebook,“ segir hún.
Að mati lög reglu er um fang fíkni efna-
sölu á sam fé lags miðlum veru legt, en að-
gerðunum verður fram haldið. All nokkr-
um Face booksíðum þar sem hafa boðið
fíkni efni til sölu hef ur verið lokað.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
fíkniefnasala HópUr manna Handtekinn í sérstökU átaki
Götusala fíkniefna komin
á samfélagsmiðlana
Á annan tug
manna var
handtekinn í
sérstöku átaki
lögreglunnar á
höfuðborgar-
svæðinu gegn
fíkniefnasölu á
samfélagsmiðlum.
Aldís Hilmars-
dóttir, yfirmaður
fíkniefnadeildar,
segir lögreglu til
að mynda nýta
sér símhlustanir
vegna þessara
mála. Hún segir
götusöluna í raun
komna á sam-
félagsmiðlana
og því sérlega
auðvelt fyrir börn
að verða sér úti
um fíkniefni.
Með aukinni
fíkniefnasölu
á samfélags-
miðlum
verður auð-
veldara fyrir
unga krakka
að sækja í
þessi efni.
Aldís Hilmarsdóttir,
yfirmaður fíkniefna-
deildar lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu,
segir það hafa komið
á óvart hversu mikið
var af sölusíðum með
fíkniefni á samfélags-
miðlunum. Ljósmynd/Hari
2 fréttir Helgin 27. febrúar–1. mars 2015