Fréttatíminn - 27.02.2015, Síða 20
20 tónlist Helgin 27. febrúar–1. mars 2015
Aðflutt hæfileikAfólk
Óðalsostur hefur verið á borðum landsmanna frá
árinu 1972 þegar Mjólkursamlag KEA hóf framleiðslu
hans á Akureyri. Fyrirmynd hans er Jarlsberg,
frægasti ostur Norðmanna. Óðalsostur er mildur með
örlítinn möndlukeim og skarpa, sæta, grösuga tóna.
Frábær á morgunverðarborðið, hádegishlaðborð eða
bara einn og sér.
www.odalsostar.is
ÓÐALSOSTUR
TIGNARLEGUR
Mosfellsbær
nýtt höfuðvígi
tónlistarfólks
Sigur Maríu Ólafsdóttur í undankeppni Eurovision hefur
varpað ljósi á heimabæ hennar, Mosfellsbæ, sem hefur
fóstrað ógrynni af hæfileikafólki í tónlistargeiranum.
Ritstjóri bæjarblaðsins segir Mosfellsbæ vera að taka
við af Keflavík sem höfuðvígi poppara.
É g held að þetta sé ekki tilviljun. Það er mikill áhugi á tónlist og menningu í bænum,“ segir Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar.
Haraldur er ánægður með sigur Maríu Ólafsdóttir í undankeppni
Eurovision. Ekki síst þar sem hún verður annar fulltrúi Mosfellsbæjar
í lokakeppni Eurovision á skömmum tíma. Sem kunnugt er fór Greta
Salóme fyrir okkar hönd með lagið Mundu eftir mér árið 2012. „Þetta
er næstum því annað hvert ár sem við vinnum Eurovision,“ segir
bæjarstjórinn vígreifur.
Hæfileikafólk úr öllum geirum
Mikið af tónlistarfólki hefur komið fram í Mosfellsbæ að undanförnu.
Auk áðurnefndra Eurovision-söngkvenna má nefna strákana í hinni
vinsælu hljómsveit Kaleo sem nýverið sömdu við útgáfurisann War-
ner. Þá sigraði hljómsveitin Vio í Músíktilraunum í fyrra. Þegar horft
er yfir allt sviðið má nefna að stórsveitin Sigur Rós er úr Mosfellsbæn-
um, tveir meðlima rokksveitarinnar Mínuss komu þaðan og Gildran
er sömuleiðis þekkt Mosó-band.
Mosfellsbær hefur alið tónlistarfólk úr öllum geirum. Þar á
meðal eru rapparinn Dóri DNA, Íris Hólm, systurnar Þórunn
og Dísella Lárusdætur, grínistinn Steindi Jr. og Stefanía Svav-
arsdóttir sem einmitt tók þátt í undankeppni Eurovision á dög-
unum. Þá er ótalin hin geðþekka söngkona Diddú.
Ólafur Holm, trommuleikari Ný danskra, er og úr Mosfellsbæ rétt
eins og nafni hans Ólafur Arnalds sem hefur verið að gera það gott úti
í heimi að undanförnu og hlaut meðal annars Bafta-verðlaunin í fyrra.
Söng- og leikkonan Hreindís Ylva steig sín fyrstu skref í Mosó áður en
hún fluttist til London.
Heimsmet í fjölda kóra
Hilmar Gunnarsson, ritstjóri bæjarblaðsins Mosfellings, fylgist grannt
með tónlistarlífinu í bænum og segir það engu líkt. „Þetta byrjar allt í
lúðrasveitinni. Það er mjög öflugt starf í kringum hana. Krakkarnir fá
mjög gott tónlistaruppeldi hérna. Við erum smám saman að taka við
af Keflavík sem höfuðvígi popptónlistar á Íslandi.“
Um 9.400 manns búa í Mosfellsbæ, að sögn Haraldar bæjarstjóra.
Hann hefur búið alla sína tíð í bænum og segir menningarstarf þar
afar öflugt. „Það eru að minnsta kosti tíu kórar í bænum sem ég held
að sé Íslandsmet, ef ekki heimsmet. Skólahljómsveitin hefur verið
starfrækt í rúm 50 ár og við erum með mjög öflugt áhugamannaleik-
félag. Grasrótin er til staðar og það er hlúð að henni í skólunum. Við
höfum líka reynt að skapa ungum tónlistarmönnum aðstöðu eins
og hægt er. Svo er mikilvægt að Mosfellingar hafa verið duglegir að
sækja atburði í bænum og sýna samstöðu. Við reynum líka að velja
Mosfellinga til að koma fram á atburðum á vegum bæjarins.“
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Fjölmargir tónlistarmenn eru
búsettir í Mosfellsbæ þó þeir
hafi fengið tónlistaruppeldið
annars staðar. Má þar nefna
hinn færeyska Jógvan Hansen
og tónlistarkonuna Hafdísi Huld
Þrastardóttur, sem á hús í Mos-
fellsdalnum. Auk þeirra er Davíð
Þór Jónsson, hljómborðsleikari
með meiru, búsettur í Mosó rétt
eins og Jón Geir Jóhannsson,
trommuleikari Skálmaldar.
Tónlistarfólk úr Mosó
María Ólafs
Greta Salóme
Kaleo
Sigur Rós
Diddú
Gildran
Vio
Þórunn og Dísella Lárusdætur
Stefanía Svavars
Ólafur Arnalds
Ólafur Holm trommari
Bjarni og Bjössi úr Mínus
Dóri DNA
Steindi Jr.
Hreindís Ylva
Íris Hólm
Ólafur Arnalds
Sigur Rós
Kaleo
Greta Salóme María Ólafs
Dóri DNA
Vio
Stefanía
Svavars
Hafdís Huld