Fréttatíminn - 27.02.2015, Page 54
54 matur & vín Helgin 27. febrúar–1. mars 2015
Þ etta heppnaðist framar björt-ustu vonum. Það er viðbúið þegar menn eitthvað í fyrsta
skipti að það klikki eitthvað en það
klikkaði ekkert að þessu sinni,“
segir Ásgeir Már Björnsson, veit-
ingastjóri á Slippbarnum.
Ásgeir var einn skipuleggjenda
Reykjavík Bar Summit sem hald-
in var í fyrsta skipti í vikunni, frá
mánudegi til miðvikudags. Tugir
erlendra gesta sóttu hátíðina heim.
Þar af voru barþjónar frá fimmtán
börum í Evrópu og Ameríku sem
öttu kappi. Barirnir kepptu sín á
milli og svo kepptu heimsálfurnar
í Hafnarhúsinu.
Í keppni bara sigraði danski bar-
inn Ström í Kaupmannahöfn. „Það
gerðu allir tvo klassíska drykki út
frá sínum bar og sínum hugmynd-
um. Svo fengu þeir í hendurnar
hráefni frá Reykjavík Distillery og
Birkisíróp og áttu að gera drykk úr
því. Danirnir voru mjög sniðugir og
enduðu á því að fá alla upp á svið
til sín í partí. Þeir voru sniðugir og
tókst að sigra stóra bari. Það voru
alla vega þrír eða fjórir sem áttu
góða möguleika á sigri,“ segir Ási.
Á þriðjudagskvöldið kepptu Evr-
ópa og Ameríka sín á milli í Hafnar-
húsinu. Hvort lið reiddi fram fimm
kokteila og það lið sem afgreiddi
fleiri sigraði. „Eftir talningu kom
í ljós að þrátt fyrir að Evrópa hefði
sýnilega skemmt sér betur og sett
upp stærra „sjóv“ hafði Ameríka
haldið áfram að gera kokteila tölu-
vert lengur og þar af leiðandi unn-
ið,“ segir Ási léttur í bragði.
Hann segir að erlendu gestirnir
hafi verið afar ánægðir með heim-
sókn sína hingað. Auk þess að
kynnast matar- og drykkjarmenn-
ingu landsins fóru þeir meðal ann-
ars í norðurljósasiglingu og í heilsu-
lindina Laugarvatn Fontana. „Það
var ótrúleg ánægja með þetta og
menn sjá mikla möguleika í framtíð-
inni. Það er ekki spurning að þetta
verður haldið aftur á næsta ári. Nú
þarf bara að finna dagsetningu, við
erum farin að hlakka til.“
Reykjavík BaR Summit mikil ánægja geSt
Það var mikið stuð þegar Evrópa og Ameríka kepptu sín á milli í Hafnarhúsinu.
Ljósmyndir/Hari
Tugir erlendra gesta komu hingað til lands í byrjun vikunnar
vegna Reykjavík Bar Summit sem haldin var í fyrsta sinn.
Danski barinn Ström sigraði í keppni 15 erlendra bara. Hátíðin
er komin til vera, segir Ási á Slippbarnum sem skipulagði her-
legheitin.
Danski barinn
Ström sigraði
BjóR áRleg BjóRhátíð á kex hoStel um helgina og nýR BaR
Mikkeller og vinir hans komnir í bæinn
Það verður nóg um að vera fyrir
áhugafólk um góðan bjór í Reykja-
vík um helgina. Í gær, fimmtudag,
hófst hin árlega Icelandic Beer
Festival á Kex Hosteli. Hátíðin er nú
haldin í fjórða sinn og stendur fram
á sunnudag. Uppselt er á hátíðina.
Í dag klukkan 18 verður barinn
Mikkeller & Friends opnaður að
Hverfisgötu 12. Danski farand-
bruggarinn Mikkel Borg Bjergsø
er kominn til landsins af þessu til-
efni og verður viðstaddur opnunina.
Hann mun sömuleiðis kynna Mikk-
eller-bjóra á áðurnefndri bjórhátíð
á laugardag.
Á Mikkeller-barnum verða 20
bjórar á krana, frá Mikkeller sjálf-
um en einnig öðrum brugghúsum
á borð við To Øl. „Ég held að nú
sé rétti tíminn til að kynna Íslend-
ingum hvað handverksbjór (e. craft
beer) er og leyfa þeim að bragða á
þeim bestu í heimi,“ sagði Mikkel
Borg Bjergsø í viðtali við Fréttatím-
ann á dögunum.
Í því viðtali kom fram að hann er
mikill áhugamaður um hlaup. Mikkel
hefur vélað samstarfsmenn sína hér
á landi til að hlaupa með sér á laugar-
dagsmorgun. Hlaupið verður frá Kex
Hostel klukkan 11 fyrir hádegi.
Mikkel Borg
Bjergsø kemur
með alla sína bestu
bjóra til landsins
og býður þá á
Mikkeller-barnum á
Hverfisgötu.
Kipptu liðunum í lag með Omega 3 liðamíni
• Omega 3 liðamín vinnur gegn stífum liðum og viðheldur heilbrigði þeirra.
• Liðamín inniheldur Hyal-Joint® sem einnig má finna í liðvökva, seigfljótandi
vökva sem smyr og viðheldur mýkt í liðamótum.
• Það hjálpar líkamanum einnig að fyrirbyggja stirða liði, sem getur skipt
höfuðmáli í þjálfun og líkamsrækt.
SKJÓTARI EN
SKUGGINN
www.lidamin.is
PI
PA
R
\
TB
W
A
•
S
ÍA
Laugardagstilboð
– á völdum dúkum, servéttum og kertum
se
rv
ét
tú
r
ke
rt
i
dú
ka
r
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is
®
Ýmis servéttubrot
Sjá hér!
Verslun RV er opin virka daga kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-16
Rekstrarvörur
- vinna með þér