Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2008, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2008, Blaðsíða 2
Danska fyrirtækið Strandmöllen sér um sölu á súr- efni til íslensku spítalanna næstu árin. Samningurinn átti að spara tugi milljóna króna en síðan hefur gengi íslensku krónunn- ar hrunið. „Þarna er verið að nota gjaldeyri þegar við sem þjóð þurfum að spara hann,“ segir Sigurbjörg Sverrisdóttir hjá Ísaga. FÖSTUdagUr 24. OKTÓBEr 20082 Fréttir Þetta helst - þessar fréttir bar hæst í vikunni „Þeirra er algjörlega hin viðskiptalega og siðferði- lega ábyrgð. Ég skora á þá að standa reikningsskil gjörða sinna, losa allt til- tækt fé erlendis, koma með heim, greiða sínar skuldbind- ingar og taka þátt í uppbyggingu samfélagsins,“ sagði Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra í DV á fimmtudag. Þar hvatti hann þá sem hafa komið Íslandi í þá stöðu sem landið er í núna til að axla ábyrgð. „Það er morgunljóst að siðferðileg ábyrgð aðaleig- enda Landsbankans er gríðarlega mikil. Að mínu mati ber þeim afdráttarlaust að gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að standa skil á því sem kann að vanta upp á.“ Þegar blaðamaður náði í Björgólf Guðmundsson vildi hann ekkert segja. „Nei, nei, nei ..., ég bara ..., ég sit bara í öðrum málum, þakka þér bara fyrir að hringja í mig,“ sagði hann aðspurður hvort hann vildi segja eitthvað við þjóðina. auðmenn axli ábyrgð Fyrrverandi stjórnar- formaður Kaupþings, Sigurður Einarsson, lætur ekki sitt eftir liggja þegar það kemur að byggingu lúxushúsa í sveit- inni. Sigurður byggir nú tæplega níu hundruð fermetra sveita- setur við Norðurá í Borgarfirði og slær ekkert af í lúxusnum. Sveitasetrið hefur allt það sem milljarðamæringur þarf á að halda eins og tvær mismunandi sánur, vínkjallara og yfirdekkaða og upphitaða útiborðstofu með glæsilegu útsýni. Kostnaður við sveitasetrið hleypur á hundruð- um milljóna en Sigurður boraði meðal annars eftir heitu vatni á landi sínu og sér þannig sveitasetr- inu fyrir hita. Sigurður tryggði sér lóðina fyrir nokkrum árum en hún er á besta stað í Norðurárdalnum og því stutt í laxveiðar. bankamaður byggir 2 Tekjur fimm tekjuhæstu bankastjór- anna námu tæpum 2 milljörðum króna á síðasta ári. Hreiðar Már Sigurðs- son hjá Kaupþingi var tekjuhæstur með 800 milljónir. Tekjur forstjóranna í Kaup- höllinni voru mjög mismunandi á síð- asta ári. Þannig var Hreiðar Már með um 800 milljónir. Sá tekjulægsti hafði hins vegar 15 milljónir króna upp úr krafsinu. Bankastjórarnir vísuðu gjarnan til mikillar ábyrgðar sinnar og árangurs hér áður fyrr þegar rætt var um laun þeirra. Nú eru svörin önnur. „Ég vil ekki tala um þessa hluti,“ svaraði Sigurjón Þ. Árnason blaðamanni DV nýlega. Ofurlaun bankastjóranna 3 Ríkisstjórn Samfylk- ingar og Sjálfstæðis- flokks rær nú lífróður vegna efna- hagsins. Gjá er á milli stjórnarflokkanna og uppgjör nauðsynlegt. Samfylkingin vill út úr samstarfinu en er í pattstöðu. Stjórnar- andstaðan vill kosn- ingar í vetur eða vor. Hrun blasir við Sjálfstæðisflokknum og búist er við mikilli vinstrisveiflu. Ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðis- flokks heldur enn saman en kolsvartar blikur eru úti við sjóndeild- arhring. Fyrir liggur að þessi ríkisstjórn sem er með svo gríðarlegan þingmeirihluta að líkja má við þjóðstjórn á nánast ekkert sameigin- legt annað en að reyna í ofboði að ausa þjóðarskútuna og gera hana sjóklára að nýju. stjórnarkreppa 4 hitt málið MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 20088 Fréttir STJÓRNARKREPPA EFTIR HRUN Innan Samfylkingar gætir mikils óþols varðandi stjórnarsamstarfið. Flokkurinn hefur staðið einhuga að því að reka eigi bankastjórn Seðla- banka Íslands vegna stórfelldra af- glapa sem leitt hafi að miklu leyti til þeirrar stöðu sem Ísland er nú kom- ið í. Geir Haarde, formaður Sjálfstæð- isflokksins, hefur þvertekið fyrir að láta bankastjórnina fara og veitt Dav- íð Oddssyni aðalbankastjóra skjól. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formað- ur Samfylkingar, hefur sagt að banka- stjórn Seðlabankans eigi sjálf að hafa frumkvæði að því að hætta. Þá hef- ur Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, í tvígang snuprað Davíð opinberlega. Enginn viðmælenda DV kann skýringu á tryggð forsætisráðherrans við sinn gamla leiðtoga. Einhverjir skýra hana sem gamalkunna ákvarð- anafælni eða ótta við að flokkurinn klofni opinberlega ef til þess komi að Davíð verði niðurlægður með þeim hætti að hann verði rekinn úr starfi. Aðrir gera lítið með klofning þar sem sá hluti flokksins sem styðji Davíð að málum sé svo lítill og valdalaus í flokknum. Vandi Geirs Haarde er hins vegar sá að vörnin um Davíð er um það bil að sprengja stjórnarsamstarfið. Samfylk- ing kemst illa frá kröfunni um að víkja honum til hliðar og verður á endanum að stíga skrefið til stjórnarslita fremur en að sætta sig við óbreytt ástand. Annað mál, og í raun miklu stærra, sem skilur að flokkana er af- staða þeirra til Evrópusambandsins. Samfylking er með eindregna stefnu um að óska eftir aðild og eini flokk- urinn sem ekki er klofinn í málinu. Forysta Sjálfstæðisflokksins er al- gjörlega andvíg aðildarumsókn þótt Þorgerður Katrín, ljósmóðir stjórn- arinnar, hafi opnað á þá umræðu. Öfgarnar í Sjálfstæðisflokknum kristallast í heift Davíðs Oddssonar sem lýsti í viðtali á Stöð 2 fyrirlitn- ingu sinni á evrusinnum og vill um- fram allt halda krónunni. Það horfir til vandræða fyrir flokkinn, því kjöl- festan hans, atvinnurekendurnir, eru flestir á þeirri skoðun að þjóðin eigi að ganga í ESB. Hættan er sú að þess- ir aðilar muni missa þolinmæðina og ganga til liðs við annan flokk sem hefði það á stefnuskránni að hefja þegar í stað aðildarviðræður. Pattstaða Samfylkingar Ingibjörg Sólrún setti Evrópumálið skýrt á dagskrá með blaðagrein nýverið. Greinin var afdráttarlaus og olli titringi innan sam- starfsflokksins þótt hann brytist ekki upp á yfirborð- ið. Og Ingibjörg Sólrún er með sterkt bakland í málinu. Flokkurinn stendur ein- huga að baki henni og skoðana- kannanir undanfarið leiða í ljós að yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar vill fara í aðild- arviðræður. Þá er sú skoðun uppi innan Sam- fylkingar að Ísland eigi möguleika á því að semja af sér að hluta skuldakla- fann með aðild. Þetta fer ágætlega í almenning sem sér nú fram á ára- langan þrældóm til að niðurgreiða bankaskuldir í útlöndum. En þrátt fyrir sterka stöðu í ESB-málinu er Samfylking í einskonar pattstöðu í ríkisstjórninni. Þannig hafa oddvit- ar flokksins lengst af ekki treyst sér til að gera kröfuna um brottvikningu Davíðs að úrslitaatriði. Þeirri afstöðu ræður helst óttinn um að lenda utan stjórnar. Bæði vinstri-grænir og Framsókn- arflokkurinn eru taldir til þess vísir að ganga til stjórnarsamstarfs við Sjálf- stæðisflokkinn. Þar er þó ekki um neinar afdráttarlausar yfirlýsingar að ræða, heldur hafa forystu- menn flokkanna slegið úr og í. Innan Samfylking- ar hefur verið ræddur sá möguleiki að henda út samstarfsflokknum og að flokkurinn sitji í minnihlutastjórn og verði varinn vantrausti af stjórnarandstöðu- flokkunum tveimur. Þeir yrðu fengnir til þess gegn lof- orði um að efnt yrði til kosninga snemma á næsta ári og þjóðin fengi að gera upp hrunið. Steingrímur J. Sigfússon, formað- ur VG, tekur undir að rétt sé að efna til kosninga á útmánuðum en óljósara er um afstöðu Guðna Ágústssonar, for- manns Framsóknarflokksins. Hann lýsti því í umræðum um bankahrunið á Alþingi í síðustu viku að stjórnin yrði að sitja áfram vegna ástandsins en pól- itíkina mætti gera upp síðar. Hvað þessi orð þýða er óljóst. Hann virðist þó vera á sömu skoðun og Steingrímur J. varð- andi tímasetningu kosninga í vor. Vinstrisveifla Borðleggjandi þykir að mikil vinstri- bylgja komi fram í kosningum eftir hrunið. Rökin eru þau að Sjálfstæðis- flokkurinn, sem farið hefur með efna- hagsmál í 17 ár, hafi algjörlega brugðist þjóðinni. Flokkurinn hefur jafnan lagt á það áherslu fyrir kosningar að hann einn geti stjórnað efnahagsmálum svo vel fari. Vinstristjórnir með tilheyrandi efnahagsglundroða hafa verið grýlan sem notuð hefur verið. Augljóst er að margir trúðu þeirri kenn- ingu þar sem Sjálfstæðisflokkur- inn hefur lengi verið með um og yfir 40 prósenta fylgi. Nú er komið á daginn að Ís- land er á barmi gjaldþrots undir efnahagsstjórn þess sama flokks. Fyrir liggur að Sjálfstæðisflokk- urinn hefur haft á stefnuskrá sinni að hlúa að hag einstaklinga með skattalækkunum og minni ríkis- afskiptum. Nú blasir við að banka- kerfið er að mestu leyti komið í rík- iseigu og framundan eru gríðarlegar hækkanir á einstaklingssköttum. Þá er ljóst eftir langa valdatíð Sjálfstæðis- flokksins að ríkisbáknið hefur þanist út í miðri einstaklingshyggjunni. Fjöldi þeirra sem kosið hafa Sjálfstæðisflokk- inn mun leggja þessar staðreyndir til grundvallar þegar að kosningum kem- ur og beina atkvæðum sínum annað. Innan Sjálfstæðisflokksins eru til þær skoðanir að réttast væri að flokkur- inn tæki örlögum sínum, færi í stjórn- arandstöðu og skipti út forystu sinni. Menn yrðu að sætta sig við að blóma- skeiði flokksins væri lokið í bili og næstu kjörtímabil færu í að byggja upp traust við þjóðina að nýju og hefja til vegs gömul forsmáð gildi um einstakl- ingsframtak og ábyrga efnahagsstjórn. Sjálfstæðismenn hafa í gegnum tíð- ina, líkt og margir aðrir, mært útrásar- menn og talað um efnahagsundur. Nú reynir trauStaSon ritstjóri skrifar: rt@dv.is umdeildur seðlabankastjóri Davíð Oddsson situr sem fastast en í óþökk Samfylkingarinnar. Forsætisráðherrar Gordon Brown beitti hryðjuverkalögum á Íslendinga eftir þjóðnýtingu Landsbankans og í framhaldi þess að Davíð Oddsson sagði að Íslendingar myndu ekki greiða skuldir óreiðumanna í útlöndum. Þar með féll Kaupþing. Miðvikudagur 22. Október 2008 9 Fréttir kveður við annan tón og menn tala um óreiðumenn og ævintýragosa. Þetta er klárlega gert til að varpa ábyrgðinni yfir á auðmennina sem fóru svo geyst. Með því að benda á þá og búa til einskon- ar gyðinga norðursins halda stjórnvöld í þá von að sleppa frá því að hafa ekki sinnt lagasetningum og regluverki til að verja Ísland hruni. Þá er ótalinn eft- irlitsþátturinn sem er á ábyrgð stjórn- valda og hefur klárlega brugðist. Klofnir flokkar Samfylking, líkt og stjórnarand- stöðuflokkarnir, verður að leggja breytta stöðu Sjálfstæðisflokks- ins til grundvallar þegar tekin verð- ur ákvörðun um kosningar eða ekki. Klárlega á Sjálfstæðisflokkurinn mik- ið undir því að ekki verði kosið á næstunni. Ef flokknum tekst að þreyja þorrann út kjörtímabilið er sú von uppi að efnahagsástandið verði farið að lagast og flokkurinn lendi ekki í al- gjöru fylgishruni. Að Samfylkingunni frátaldri er eina von Sjálfstæðisflokksins við nú- verandi aðstæður að fá vinstri-græna til samstarfs út kjörtímabilið. For- menn beggja flokka eru sammála um andstöðuna við Evrópusambandið. Það er reyndar umhugsunarvert fyrir forystu VG að nýleg skoðanakönnun leiðir í ljós að um 70 prósent kjósenda VG vilja kjósa um aðildarumsókn. Reyndar er blágræna stjórnin einmitt það sem Davíð Oddsson og hans fylg- ismenn vildu eftir kosningarnar. Svæsnustu samsæriskenningar herma að Davíð hafi lagt upp í þjóð- nýtingarleiðangurinn með það fyr- ir augum að sprengja Samfylking- una út. Planið hafi verið að þjóðnýta Glitni að hluta en bjarga síðan eig- endum Landsbankans sem yrði til þess að samfylkingarmenn rykju út í fússi og vinstri-grænir kæmu inn. Þetta gekk ekki eftir þar sem Glitnis- leiðangurinn endaði með ríkisvæð- ingu þriggja banka og í framhaldinu stöðu sem jaðrar við þjóðargjaldþrot. Vinstri-grænir munu þurfa að hugsa sig vandlega um áður en þeir taka þann kost að fara þessa leið. Kosning- ar í vetur munu styrkja flokkinn gríð- arlega og færa þeim allt aðra stöðu en nú er. Yfirgnæfandi möguleikar eru á því að þeir ásamt Samfylkingu fengju meirihluta. Framsóknarflokkurinn einn dugir ekki til stjórnarsamstarfs með Sjálf- stæðisflokknum. Alltof tæpt er að vera einungis með eins þingmanns meiri- hluta í flokki sem að miklu leyti er ósamstiga og þá sérstaklega í Evrópu- málum. Molnað hefur undan Guðna Ágústssyni formanni sem upp á síð- kastið hefur talað sig í andstöðu við Evrópusambandið. Valgerður Sverr- isdóttir varaformaður er á öndverðri skoðun og er það skoðun margra að hún eigi að fara gegn formanninum á landsfundi í mars. Þar verði jafnframt skerpt á stefnu flokksins í Evrópumál- um. Fjögurra manna þingflokkur Frjálslynda flokksins er í svipuðum sporum og aðrir varðandi aðildina að ESB. Kristinn H. Gunnarsson, sem reyndar mætir ekki lengur á þing- flokksfundi, og Guðjón A. Kristjáns- son formaður eru andvígir Evrópu- sambandinu. Þingmennirnir Grétar Mar Jónsson og Jón Magnússon eru aftur á móti hallir undir aðildarum- sókn og flokkurinn þannig þverklof- inn, rétt eins og Framsókn. Hamfarirnar rannsakaðar Eitt virðast þó allir flokkarnir eiga sameiginlegt um þessar mundir; allir vilja þeir rannsaka aðdraganda banka- hrunsins og gera undanbragðalaust upp mestu efnahagshamfarir lýðveld- issögunnar, sem augljóslega eru af mannavöldum. Óhugsandi er að ríkis- stjórnin eigi þar hlut að máli þar sem þá blandast valdhafar inn í rannsókn þar sem þeir sjálfir kunna að verða dregnir til yfirheyrslu. Enginn er dóm- ari í eigin sök. Þótt löggjafarvaldið, Alþingi, kunni að bera einhverja ábyrgð á því hvernig komið er verður ekki fram hjá því horft að það eitt ræður yfir nauðsynlegum verkfærum til þess að koma á fót óvil- hallri rannsókn á vegum sannleiks- nefndar. Það getur hæglega virkjað 39. grein stjórnarskrárinnar sem kveður á um að Alþingi geti skipað nefndir til að rannsaka mikilvæg mál er almenn- ing varða. „Alþingi getur veitt nefnd- um þessum rétt til að heimta skýrslur, munnlegar og bréflegar, bæði af emb- ættismönnum og einstökum mönn- um,“ eins og segir orðrétt í stjórnar- skránni. Líklegt verður að telja að stjórnar- andstöðuflokkarnir samþykki slíka til- lögu verði hún fram borin, jafnvel þótt Framsóknarflokkurinn komi mjög við sögu í aðdraganda ófaranna eftir lang- vinnt stjórnarsamstarf með Sjálfstæð- isflokknum. Samfylkingin væri sjálfri sér samkvæm ef hún samþykkti rann- sókn á ábyrgð þingsins. Ekki er ljóst er hvort Sjálfstæðisflokkurinn gæti samþykkt slíka tillögu, en hann virðist þegar byrjaður að leita leiða til þess að rannsaka hugsanleg lögbrot útrásar- forkólfa og aðaleigenda bankanna og virkja til þess embætti ríkislögreglu- stjóra og ríkissaksóknara. Slíkt vekur grunsemdir um að flokkurinn hafi þeg- ar fundið sökudólga og reyni að koma valdhöfum undan slíkri rannsókn. Svarthol fylgishruns Það blasir við að eina leiðin til að ná fram skýrum pólitískum línum er að efna til kosninga um leið og landið er komið út úr mesta neyðarástand- inu. Þannig fái allir flokkar tækifæri til að gera upp við sig stefnu um aðild eða ekki að Evrópusambandinu. Þá er einnig frá sjónahóli almenn- ings nauðsynlegt að kjósendur fái tækifæri til að velja í kosningum þá sem leggja eiga grunninn að hinu nýja Íslandi. Það er þessi staða sem Samfylking stendur nú andspæn- is. Framundan er vinstribylgja sem flokkurinn gæti nýtt sér ef rétt er að málum staðið og orðið stærsti flokk- urinn. En gryfjurnar eru við hvert fót- mál. Þannig eru uppi áhyggjur um að Samfylking sogist niður í svarthol fylgishruns með Sjálfstæðisflokkn- um vegna sameiginlegrar ábyrgðar á hrikalegri stöðu lýðveldins sem nú stendur andspænis því í fyrsta sinn síðan 1944 að þurfa að gefa afslátt af sjálfstæði sínu. Engin leið er til að spá um fram- vinduna í íslenskum stjórnmálum á næstu vikum. Þingvallastjórnin svo- kallaða sem hóf göngu sína í gullregni útrásarinnar er nú nánast á líkbörun- um. Landið er á barmi gjaldþrots og allar lausnir eru bundnar við flótta- leiðir. Stjórnarsamstarfinu er líkt við hjónaband sem haldið er eingöngu saman vegna barnanna. Skilnaður Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks er að óbreyttu óumflýjanlegur. Það mun svo koma í ljós hvaða flokkar fá það tækifæri að móta samfélagið á Nýja-Ís- landi. Til eru þeir sem sjá ljósið í hrun- inu og ala með sér þá von að pólitískri spillingu verði útrýmt að mestu. Kosningar fyrir vorið „Það er óhugsandi að hægt sé að setja heilt land nærri því á haus- inn, án þess að neinn beri ábyrgð og án þess að það sé kosið,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, formað- ur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs. Hann vill hins vegar ekki að kosið verði nú. „Verkefn- ið er að sjálfsögðu ekki kosningar núna í augnablikinu, heldur þær björgunaraðgerðir sem þarf að vinna. Það þarf að koma aftur á einhverju eðlilegu ástandi í sam- félaginu.“ Aðspurður hvort hann treysti þá þeim flokkum sem nú stjórna til að leiða þjóðina út úr ógöngunum segir hann: „Nei, ég geri það nú reyndar ekki mjög vel. Ég hef talið að á árunum eigi að vera menn sem geta tekið eitt- hvað í þær. Hvað sem því líður þá finnst mér, bæði lýðræðislega og þingræðislega, óhugsandi annað en að kosið verði á nýjan leik,“ seg- ir Steingrímur en hann vill að það verði í síðasta lagi næsta vor. Steingrími finnst þjóðin eiga heimtingu á að reikningar verði gerðir upp. „Kosningar eru óum- flýjanlegur hluti af því að byggja aftur upp einhvern trúnað og traust í landinu.“ Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, vill líka kosningar þegar storminum slot- ar. „Ég álít að íslenska ríkisstjórn- in verði að sitja við þessar aðstæð- ur sem nú eru. En síðan þegar við komum út úr þessum sorta er al- veg sjálfsagður hlutur að gera þessi mál upp í kosningum. Ég segi að þegar kemur fram á veturinn eða vorið sé mjög eðlilegt að við höfum alþingiskosningar og gerum þetta upp í þjóð- félag- inu, hverja við viljum hafa við völd í landinu.“ Guðni vill ekki gefa upp hverjir séu óskakandídatar í stjórnarsamstarf. Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, vill líka hafa kosningar sem fyrst, en þó ekki of snemma. „Ég tel að við eigum að komast yfir þenn- an stóra hjalla sem við stöndum frammi fyrir núna, áður en kosið verður. Ég skal ekki segja hversu lengi á að bíða en við getum bara ekki boðið upp á alþingiskosning- ar akkúrat eins og ástandið er. Það er ekki hægt,“ segir Guðjón. Guðjón segir að stjórnmála- mennirnir verði að reyna að sam- einast um að finna lausn á þessum vanda. Aðspurður hvort stjórnin eigi að sitja út kjörtímabilið segir hann: „Ég er nú ekkert að halda því fram. Mér finnst hún ekkert hafa staðið sig. Það er sjálfsagt að kjósa þegar búið er að koma ástand- inu í einhvern farveg en það er ekki hægt að bjóða fólki upp á það núna, ofan í allt annað.“ Guðni Ágústsson kosningar í vetur eða vor. Guðjón A. Kristjánsson kosningar bíða um sinn. Steingrímur J. óhugsandi að enginn beri ábyrgð. Örlaganótt ríkisvæðing glitnis átti sér stað a ð undirlagi davíðs Oddssonar seðlabankastjóra og geirs H. Haarde sem h ér sjást yfirgefa Seðlabankann. Því er af mörgum haldið fram að þar með hafi hrun inu verið komið af stað. Hamingja geir Haarde og ingibjörg Sólrún gísladóttir lögðu upp með Þingvalla- stjórnina í miklum meðbyr. Nú er allt í rúst. F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð dv.is besta rannsóknarblaðamennska ár sinsmiðvikud agur 22. október 2008 dagblaðið vísi r 196. tbl. – 98. árg. – verð kr. 295 Sigurður EinarSSon reisir 900 fermetra sveitasetu r í Borgarfirði: fréttirfrank og Casper eru á landinu Stjórnarkreppa eftir hrunið uppgjör yfirvofandi og hrun blasir við Sjálfs tæðisflokki fréttir klovn býður íSlendingum í partí í dag VÍNKJALLARI Á STÆRÐ VIÐ ÍBÚÐ tvær Sánur og Salerni í hverju herb ergi keypti líka húS í london á tvo millja rða efnaðiSt á kaupþingi Sem fór á hliðin a fólk F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð dv.isbesta rannsóknarblaðamennska ársins fimmtudagur 23. október 2008 dagblaðið vísir 197. tbl. – 98. árg. – verð kr. 295 hundraða milljarða högg á almenning: Marsibil leitar að vinnu fréttir Borgaðu Björgólfur fÓlK Geir seGir banKana Óvart hafa orðið ofvaxna „við berum ekki ábyrgð“stendur vörð um Davíð rænD í rússlanDi - og áreitt af löggu F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð F I M M T u d a g u r 2 3 . o k T ó b e r 2 0 0 8 norðurland Kristján Þór júlíusson Hallgrímur Guðmundsson hefur stritað alla ævi en orðið fyrir barðinu á ósanngjörnu kvótakerfi KvótaKerfið hrundi með bönKunum Takmarkið að verða beTri maður m yn d P et ro m yn d ir /Þ ó rh a ll u r Landsbyggðin endurreisir velferðina „Þarf bara að setja sérlög um álver á Bakka“ staðarsKáli fLyTur af STað árleg rollu- lappaveisla haldin á húsavík Eftir áratugi í alfaraleið Sviðnar rollulappir og jafnvel súrsaðar Draslhyggja verður að þjóðarauði Gunnar Þórðarson bílabóndi í Stóragerði hefur safnað farartækj- um um árabil sérblaum norðurlan fritzl seGist fæDDur björgvin G. sigurðsson: „ég skora á þá að standa reikningsskil“ björgólfur Guðmundsson: „ég sit bara í öðrum málum“ björgólfur thor í london nauðGari fraMsÓKn Klofin Á súPer- launuM í eDinborG Gísli Marteinn með hálfa milljón í námi varaborgar- fulltrúi í kreppu þriðjudagur 21. október 20082 Fréttir Tekjur fimm bankastjóra á síðasta ári námu tæpum tveimur milljörðum króna, eða 1,7 milljörðum. Það voru hreinar tekjur samkvæmt tekjublaði Mannlífs sem gefið var út í ágúst. Þessir bankastjórar eru allir hætt- ir störfum núna eftir þjóðnýtingu bankanna. Launahæsti bankastjór- inn var Hreiðar Már Sigurðsson hjá Kaupþingi sem var með tæpar átta hundruð milljónir í tekjur á síðasta ári. Þess má geta að þetta eru tekjur bankastjóranna en ekki aðeins laun þeirra fyrir reglubundin störf. Þeg- ar rætt er um tekjur þeirra er átt við laun og fjármagnstekjur til viðbótar, til dæmis af kaupréttarsamningum og sölu hlutabréfa. Árslaun banka- stjóranna eru talsvert lægri. Sigurjón Þ. Árnason bankastjóri hjá Lands- bankanum var með tæpar 160 millj- ónir í árstekjur. Þá var Lárus Welding hjá Glitni með rúmar þrjú hundruð milljónir. Halldór J. Kristjánsson hjá Landsbankanum rekur lestina með tæpar 86 milljónir króna á ári. Tuttugu með milljarða Tuttugu forstjórar deildu með sér rúmlega tveimur milljörðum króna í launa- og árangurstengdar greiðslur á síðasta ári samkvæmt ársskýrslum. Sá sem var með hæstu launin er Frið- rik Jóhannsson, fyrrverandi forstjóri Straums-Burðaráss, en hann fékk alls 412 milljónir fyrir sinn snúð. Þess ber að geta að inni í launum Friðriks er starfslokasamningur sem hann gerði við bankann þegar hann lét af störfum. Fjórir bankastjórar stærstu viðskiptabankanna deildu með sér tæpum hálfum milljarði í launatekj- ur á síðasta ári. Þar af var Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, með rúmlega hundr- að og sextíu milljónir króna í laun. Milljónir fyrir að tapa Flest félög í Kauphöll Íslands skil- uðu af sér ársreikningi fyrir árið 2007 og voru laun forstjóra þeirra allt frá fimmtán milljónum króna fyrir árið til hundraða milljóna. Þá var nokkuð um að menn hættu störfum á árinu og fengu þeir því starfslokagreiðsl- ur. Mesta athygli vekur þó að þetta á einnig við hjá því fyrirtæki sem tap- aði um 67 milljörðum króna á árinu og setti Íslandsmet í tapi, það er FL Group. Þar fékk Hannes Smárason 90 milljóna króna starfslokasamn- ing að viðbættum þeim 50 milljón- um króna sem hann hafði hlotið í laun og árangurstengdar greiðslur á árinu. Hannes hætti í desember og tók Jón Sigurðsson aðstoðarforstjóri við af honum. Jón fékk um 32 millj- ónir króna í laun á síðasta ári. FL Group er nú Stoðir en fyrirtækið fór í greiðslustöðvun eftir að Glitnir var þjóðnýttur. Níu hundruð milljónir í stjóra-skipti Skýrasta dæmið um ríkidæmi for- stjóranna fyrir kreppu er væntanlega þrjú hundruð milljóna króna samn- ingurinn sem var gerður við Lárus Welding, fyrrverandi bankastjóra Glitnis. Þá upphæð fékk hann fyrir það eitt að taka til starfa hjá bankan- um. Sama ár hætti Bjarni Ármanns- son sem bankastjóri Glitnis en hann hafði rekið bankann í tíu ár. Hann fór þó ekki tómhentur heim, held- ur fékk hann 190 milljónir króna í launagreiðslur. Inni í því er starfs- lokasamningur. Bjarni hagnaðist enn fremur um 391 milljón króna á kaupréttarsamningum eftir að hann hætti. Það eitt að losa sig við einn bankastjóra og ráða annan kostaði Glitni því tæpar níu hundruð millj- ónir króna á síðasta ári. Tími ofurlauna liðinn „Besta samlíkingin er sennilega sú að þegar togaraskipstjórinn kom að landi með verðmætan farm sem var rétt um 200 milljónir í aflaverð- mæti var hann spurður hvort það væri ekki gaman að koma með svona mikið að landi. Hann svaraði því til að þetta væri ekki nema þriðjungur af launum tekjuhæstu bankamann- anna,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður vinstri-grænna, um ofur- laun forstjóra á Íslandi. Hann seg- ir þessi laun hafa verið hluta af því sjúka ástandi sem hér ríkti, og all- ir tóku þátt í. Þar sé enginn undan- skilinn. Hann segir það þó sárast að þessir menn borguðu ekki eðlilega skatta til samfélagsins, þökk sé fyrri ríkisstjórn sem afnam hátekjuskatt. „Ég held að tími ofurlauna sé lið- inn hér á landi,“ segir Steingrímur að lokum. Þjóðverjar hafna bónusum Bónusgreiðslur eru umdeildar víða um veröld. Til að mynda sagði Josef Ackerman, aðalbankastjóri Deutsche Bank, sem var sá launa- hæsti af forstjórum þrjátíu stærstu fyrirtækjanna í Þýskalandi, að hann ætlaði að fórna bónusgreiðslum þessa árs vegna þess að bankinn glímir nú við mesta fjármálavanda frá því í kreppunni miklu 1929. Þetta á líka við um bankastjóra nokkurra fjárfestingarbanka í Þýskalandi; þeir verða af bónusgreiðslum þessa árs vegna ástandsins. „Þessu fordæmi verða margir aðrir að fylgja,“ sagði Michael Glos, fjármálaráðherra Þýskalands, við þingmenn í Berlín fyrir nokkrum dögum. „Þetta eru fyrstu ánægjulegu merki þess að forstjórar hafi ákveðið að stinga ekki bónusgreiðslum í eig- in vasa.“ Afturkræfar bónus- greiðslur Mörg dæmi eru þess víða um lönd, til dæm- is í Banda- ríkjunum, að banka- stjórar af- þakki bón- usgreiðslur eða verði af þeim vegna ákvörðunar bankastjórna. Alessandro Profumo, aðalbanka- stjóri ítalska bankans UniCredit SpA, verður af árangurstengdum bónus- greiðslum á þessu ári þar sem bank- inn nær engan veginn markmiðum sínum um arðsemi. Á síðasta ári fékk hann liðlega 9 milljónir evra í sinn vasa, þar af 6 milljónir evra í bónus- greiðslur og aðrar árangurstengdar greiðslur, eða sem svarar 900 millj- ónum íslenskra króna sé miðað við núverandi gengi. Bandarísk yfirvöld hafa ákveð- ið að rannsaka gjaldþrot nokkurra banka. Athugaðar verða bónus- greiðslur til yfirmanna og gerð krafa um að þær verði afturkræfar 2 ár aft- ur í tímann. Vill ekki tala um þessa hluti Svör hafa ekki enn fengist um bónusgreiðsl- ur og laun for- stjóra á þessu ári Þeir fengu milljarða í ofurlaun Friðrik Jóhannsson Lárus Welding VALur greTTissoN blaðamaður skrifar: valur@dv.is Forstjórarnir í Kauphöllinni Forstjóri Árslaun í milljónum krónaSigurgeir brynjar kristgeirsson, Vinnslustöðin 5,0erlendur Hjaltason, exista 33,8jón karl ólafsson, icelandair 34,0þórður Sverrisson, Nýherji 34,7Sigurður Valtýsson, exista 40,5Hörður arnarson, Marel 45,0Hannes Smárason, FL group 50,0ari edwald, 365 54,0baldur guðnason, eimskip 61,0guðmundur Hauksson, SProN 61,0jón Sigurðsson, Össur 64,0Xavier govare, alfesca 68,0Árni Pétur jónsson, teymi 83,0William Fall, Straumur 94,0Hreiðar Már Sigurðsson, kaupþing 110,0Lárus Welding, glitnir 114,0Magnús jónsson, atorka 117,0Ágúst guðmundsson, bakkavör 130,0Sigurjón þ. Árnason, Landsbankinn 163,5Friðrik jóhannsson, Straumur-burðarás 412,0 inni í þessum tölum eru laun og árangurstengdar greiðslur. Laun þeirra Lárusar Welding og Williams Fall eru framreiknuð þar sem þeir hófu störf á þessu ári. Starfslokagreiðslur eru undanskildar í tilfellum þeirra sem hafa hætt störfum, líkt og jóns karls ólafssonar og Hannesar Smárasonar. þá ber að geta þess að laun Lárusar Welding eru miðuð við síðasta ár og koma þau til með að lækka um helming á þessu ári vegna ákvörðunar stjórnar glitnis. sigurður einarsson og Hreiðar Már sigurðsson Í ráðherrabústaðnum við hrun íslenska efnahagskerfisins. Lárus Welding Fékk þrjú hundruð milljónir fyrir að byrja að vinna. að auki fékk hann 114 milljónir í árslaun. sigurjón Þ. Árnason annar banka- stjóri Landsbankans vill ekki ræða meintar bónusgreiðslur sem ráðamenn fengu um síðustu mánaðamót. Hannes smárason milljónir fyrir að tapa rúmlega sextíu milljörðum hjá FL g Tíu tekjuhæstu bankamenn landsins1.Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri kaupþings 741,62. bjarni Ármannsson, fyrrverandi forstjóri glitnis 5163.Friðrik jóhannsson, fyrrverandi forstjóri Straums-burðaráss 373,24.Steinþór gunnarsson, forstöðumaður verðbréfamiðlunar Landsbankans 3545.Lárus Welding, forstjóri glitnis 3186. jón diðrik jónsson, fyrrverandi forstjóri glitnis á Íslandi 296,47. guðmundur Örn þórðarson, framkvæmdastjóri Property group í danmörku 268,88. jón kristinn oddleifsson, Landsbankanum 2589. tómas kristjánsson, fyrrverandi starfsmaður glitnis 256,810.Finnur reyr Stefánsson, fyrrverandi starfsmaður glitnis 242,4 tekjur í milljónum króna árið 2007 þriðjudagur 21. október 2008 3 Fréttir „Það hefur eng- in ákvörðun verið tekin en mér sjálf- um finnst eðlilegt að þessi mál séu uppi á borðinu,“ segir Ágúst Ólafur Ágústsson, varafor- maður Samfylk- ingarinnar. DV sagði frá því í gær að engin svör hafi enn bor- ist frá Fjármála- eftirlitinu við fyr- irspurn DV um launakjör bankastjóra nýju rík- isbankanna. Í þættinum Í bítið á Bylgjunni í gærmorgun sagð- ist Ágúst Ólafur vilja skoða það hvort launaleynd yrði aflétt. Ágúst sagði í samtali við DV í gær að á fundi með bankastjórum í gærmorgun hefði engin ákvörðun verið tekin um hvort og þá hvenær laun- in yrðu gefin upp. Hann sagði að almennt væru launakjör starfsmanna hlutafélaga í eigu ríkis- ins ekki uppi á borðinu en hann segist sjálfur vilja beita sér fyrir því að það verði endurskoðað. „Okkur gefst nú tæki- færi til að byrja á núlli og hafa þessi mál gegnsæ. Það tæki- færi eigum við að nýta okkur,“ seg- ir Ágúst en bendir þó á að útsvar allra launa sé aðgengilegt í álagn- ingarskrá hjá skattstjóra sem út kemur síðla sumars ár hvert. DV hefur einnig óskað eftir því að fá uppgefin kjör nefndarmanna í skilanefndum Nýja Glitn- is og Nýja Landsbank- ans. Svar við þeirri fyrir- spurn hefur heldur ekki borist en í dag er vika síðan fyrst var eftir því leitað. baldur@dv.is Vill launin upp á borðið mánudagur 20. október 20086 Fréttir InnlendarFréttIrritstjorn@dv.is Íhuga að stefna lögreglunni „Ef smygl hefði verið um borð hefði verið löngu búið að koma því frá borði þar sem skipið var búið að vera í höfninni í þrjá sólarhringa,“ segir Guðmundur Sigvaldason, verksmiðjustjóri Þörungaverk- smiðjunnar á Reykhólum. Í síðustu viku urðu starfsmenn verksmiðjunnar mjög óánægðir með störf lögreglunnar í sýslunni þegar hún fór um borð í danska skipið Hein sem hafði legið við höfn í þrjá daga. Guðmundur er mjög ósáttur við þessar aðgerð- ir lögreglunnar og íhugar að fara í mál vegna þeirra, þar sem gífurlegt tjón hafi orðið á vinnslu fyrirtækis- ins. „Ég veit ekki hvort við förum í mál, það er ekki búið að taka neina afstöðu í því. Menn voru mjög óánægðir því maður hefur ekki kynnst svona áður. Menn hafa komið hingað og farið í skip og við feng- ið að halda áfram en ekki með svona læti og dóna- skap.“ Hann segir að lög- reglumenn hafi verið með dónaskap við starfsmenn við höfnina. „Það var einn starfsmaður sem fór til þeirra en þeir voru bara með skæting við hann og sögðu að þetta væru verk- lagsreglur einhverj- ar,“ segir Guðmundur sem furðar sig á vinnubrögðum lögreglunnar. Önundur Jóns- son, yfirlögreglu- þjónn á Vest- fjörðum, segir að aðgerðin hafi ver- ið ósköp eðlileg tollavinna. „Það er mjög algengt að svona sér gert, þó að við séum búnir að fara um borð í skip, þá fylgjumst við með skipum þegar þau ferðast um,“ segir Ön- undur en enginn smyglvarning- ur fannst um borð í skipinu. Hann segir að tveir lögreglumenn hafi farið á staðinn til að kanna skipið. Aðspurður hvort vinnutap hafi orðið í verksmiðjunni segir hann ekki svo vera. „Lögreglan stöðvaði enga vinnu, það þurfti þess ekkert. Það er engin ástæða til að stöðva vinnu þegar lögreglan fer um borð nema það hafi verið einhver vand- ræði.“ bodi@dv.is Lögregla að störfum guðmundur er ósáttur við að starfsemi fyrirtækis hans hafi raskast vegna aðgerða lögreglu. DV hefur nú í sex daga árangurslaust óskað eftir upplýsingum um launa- kjör nýrra bankastjóra Landsbank- ans og Glitnis, sem og laun þeirra sem sitja í og leiða skilanefndir bank- anna þriggja sem þjóðnýttir voru á dögunum. Samkvæmt upplýsingum frá við- skiptaráðuneytinu hefur Fjármála- eftirlitið þessi mál á sinni könnu. Þar fengust einnig þær upplýsingar að þessar upplýsingar ættu ekki að vera leyndarmál. Frá Fjármálaeftirlitinu hafa eng- in svör borist önnur en þau að haft verði samband við blaðamann þegar svör við fyrirspurninni liggja fyrir. Ókunnugt um samninga Geir H. Haarde forsætisráðherra var spurður um launakjör nýrra bankastjóra og skilanefnda á blaða- mannafundi sem hann hélt í síð- ustu viku. Hann sagði að starfs- menn Fjár- málaeftir- litsins hefðu annað og þarfara við tímann að gera en að velta fyr- ir sér launum þessa fólks. Í því samhengi má benda á að eftir að ríkið tók rekst- ur bankanna yfir greiðast þau laun úr vösum almennings. Geir sagðist raunar ekki vita hvort búið væri að semja um launakjör við bankastjór- ana og skilanefndirnar. Í stað þess að ganga úr skugga um stöðu mála eftir fundinn sagði Geir: „Áfram Ísland!“ og brá sér á völlinn. Með á þriðju milljón í fyrra Bankastjórar Nýja Glitnis hf. og Nýja Landsbankans hf. eru þær Birna Einarsdóttir, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Glitnis, og Elín Sigfúsdóttir, fyrrver- andi forstöðumaður fyrirtækjasviðs hjá Landsbankanum. Samkvæmt tekjublaði Mannlífs var Birna með 2.587.442 krónur á mánuði að jafn- aði í fyrra. Tugir milljóna í laun Tekjur Elínar er ekki að finna í tekjublaðinu en þó er ljóst að fráfarandi banka- stjórar Lands- bankans áttu vel fyrir salti í grautinn. Sigurjón Þ. Árnason var með rúmar 13 milljónir á mán- uði og Halldór J. Kristjánsson var með rúmar 7 milljónir. Ekki er búið að ráða nýjan bankastjóra Kaupþings en fráfarandi forstjóri var skatta- kóngur Íslands í fyrra; hafði 64 millj- ónir á mánuði. Forstjóri Glitnis, Lár- us Welding, hafði 27 og hálfa milljón á mánuði. Tími ofurlauna liðinn Eins og fram hefur komið fór DV þess á leit við Fjármálaeftirlitið að fá veittar upplýsingar um launakjör þeirra sem eru í skilanefndum bank- anna. Það hefur enn ekki verið upp- lýst en í áðurnefndu tekjublaði kem- ur fram að Árni Tómasson, sá sem leiðir skilanefnd Glitnis, var með tæpar 1,4 milljónir í tekjur á mánuði í fyrra, örlítið minna en Jónas Fr. Jónsson, forstjóri Fjármála- eftirlitsins, sem hafði um eina og hálfa milljón í tekjur á mánuði í fyrra. Hafa ber í huga að forsætisráðherra hef- ur lýst því yfir að tími ofurlauna sé liðinn og því óvarlegt að ætla að mánaðartekjur hinna nýju bankastjóra, eða formanna skilanefnda, verði jafnháar og tekj- ur forvera þeirra. Eru launin lEyndarmál? Geir H. Haarde BALDUR GUÐMUNDSSON blaðamaður skrifar baldur@dv.is Launin lækka tími ofurlauna er liðinn, að sögn ríkisstjórnar- innar. ekki hefur fengist uppgefið hver laun nýs bankastjóra eru. Geir H. Haarde forsætisráð- herra Segist ekki vita hvort búið sé að semja við bankastjóra. Tugmilljónir á mánuði Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri glitnis, hafði 27 milljónir á mánuði í fyrra. Hvetja til jafnréttis „Jafnréttisráð telur að jafnrétt- issjónarmiða hafi ekki verið fylli- lega gætt við skipun í svokallaðar skilanefndir undanfarna daga og vikur. Ráðið hvetur stjórnvöld og öll þau sem nú hafa fjöregg lands og þjóðar í hendi sér til góðra verka og til að virða jafnréttislög í hvívetna.“ Þetta segir í álykt- un sem Jafnréttisráð sendi frá sér. Þar segir einnig að gríðar- legar efnahagshamfarir feli í sér tækifæri til breytinga og umbóta, kynjasjónarmið þurfi að hafa að leiðarljósi og að atvinnuleysi megi ekki bitna harðar á öðru kyninu. Ráðið fagnar því að fyrstu kvenbankastjórarnir hafi nú ver- ið ráðnir en segir að betur megi ef duga skuli. Tvöföldunin komin í gagnið Kristján L. Möller sam- gönguráðherra vígði í gær tvöfalda Reykjanesbraut frá Hafnarfirði að Njarðvík. Tvöföldun Reykjanes- brautar hefur tekið tæp sex ár. Framkvæmdir hófust í janúar 2003 og lauk fyrri hluta framkvæmdanna í október ári síðar. Tafir urðu hins vegar á seinni hluta tvöföldunarinnar vegna þess að Jarðvélar sögðu sig frá verkinu eftir að félagið komst í þrot. Nú er loks hægt að hleypa umferð á báðar ak- reinar, hálfum mánuði áður en menn gerðu ráð fyrir við síðustu áætlun. ásmundur hjálpar Geir Geir H. Haarde forsætisráð- herra hefur nú fengið Ásmund Stefánsson ríkissáttasemjara til liðs við sig. Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að áfallið á fjármálamarkaði kallaði á fjölþætt viðbrögð jafnt á vett- vangi ríkisstjórnarinnar sem hinna ýmsu stofna samfélagsins. Hlutverk Ásmundar verður að treysta yfirsýn, vera tengiliður og tryggja betur tengsl forsæt- isráðherra og ríkisstjórnar- innar og bæta samhæfingu þeirra mörgu sem að starfinu koma. 20 % afmælisafsláttur af öllum hefðbundnum myndatökum og stækkunum í október. Nú er um að gera að panta stax Mynd - ljósmyndastofa í 25 ár. MYND Bæjarhrauni 26, Hafnarfirði S: 565 4207 www.ljosmynd.is 20. o tóber 2008 Vill gegnsæi Ágúst ólafur Ágústsson segir ekki ljóst hvort laun nýju bankastjóranna verði gefin upp. Samkvæmt heimildum DV er talið fullvíst að Alþjóðagjaldeyris- sjóðurinn (IMF) leggi til verulegan niðurskurð ríkisútgjalda til þess að mæta fyrirsjáanlegum tekju- samdrætti ríkissjóðs eftir banka- hrunið og miklar skuldbindingar því samfara. Jafnframt er búist við að gripið verði til skattahækkana og þannig verði farin blönduð leið til þess að draga úr högginu og komast hjá fjöldauppsögnum opinberra starfsmanna, svo sem innan mennta- og heilbrigðis- kerfisins. IMF leggur til að stýri- vextir verði áfram háir til þess að draga úr útstreymi gjaldeyris sem IMF kann að lána íslenska ríkinu. Þá eru einnig mestar líkur á því að gengi krónunnar verði látið fljóta enn um sinn að ráði IMF. Sérfræðingar IMF fara nú yfir uppfærðar tölur um stöðu ís- lenska þjóðarbúsins. Fullvíst er talið að ríkisstjórnin taki ákvörð- un um það á ríkisstjórnarfundi fyrir hádegi í dag að sækja um aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins enda í fá önnur hús að venda. Tak- ist samkomulag um slíkt er eins víst að boðað verði til þingflokks- funda stjórnarflokkanna þar sem fjallað verður um neyðarástand íslenska efnahagslífsins og vænt- anlega aðstoð sjóðsins. Geir H.Haarde forsætisráð- herra segir að skilyrði þau sem IMF kunni að setja snerti fyrst og fremst efnahagsstefnuna sem þjóðin verði hvort sem er að gang- ast undir. Hann vill ekki staðfesta frétt Financial Times í gær um að þegar hafi tekist samkomulag um 6 milljarða dollara lán, þar af eins milljarðs dollara lán frá IMF, en seðlabankar Norðurlanda og Japans standi undir hinum hluta lánsins. Samkvæmt heimildum DV gætti andstöðu innan forystu Sjálfstæðisflokksins varðandi samstarf við IMF og lán frá sjóðn- um. Úr þeirri andstöðu hefur dregið eftir því sem næst verður komist enda brýnt talið að end- urreisa sem fyrst trúverðugleika gjaldeyrisviðskipta og íslenska fjármálakerfisins. Financial Times kveðst hafa upplýsingar frá fólki sem þekki vel til viðræðna IMF og íslenskra stjórnvalda. Tekið er fram að skil- yrði IMF fyrir lánveitingunni snúi fyrst og fremst að bankakerfinu og endurreisn þess, ríkisfjármál- um og gengismálum. „Engar kröfur eru gerðar um grundvall- arbreytingar á innviðum velferð- arkerfisins,“ hefur FT eftir einum viðmælanda sínum. Viðmælendur DV úr röðum stjórnarflokkanna segja óhugs- andi að gangast undir skilyrði sem felist í veðsetningu auðlinda eða skuldaskilum við aðrar þjóð- ir umfram það sem lög mæla fyr- ir um. johannh@dv.is Opinber störf í hættu og skattahækkanir Geir H. Haarde Forsætisráð- herra segir að skilyrði þau sem iMF kunni að setja snerti fyrst og fremst efnahagsstefnuna sem þjóðin verði hvort sem er að gangast undir. „Ég held að tími ofurlauna sé liðinn hér á landi.“ þrátt fyrir að DV hafi spurt banka- stjóra Landsbankans að því. Þeir vildu ekki tjá sig um meintar bónus- greiðslur upp á tíu milljarða á árinu. Þá vildu þeir ekki tjá sig um hvort ráðamönnum bankans hefðu verið borgaðar bónusgreiðslur um mán- aðamótin september/ október. „Ég vil ekki tala um þessa hluti,“ svaraði Sigur- jón Þ. Árnason við það tækifæri. Samkvæmt heim- ildum DV hafa skilanefndir bank- anna ráðið óháð skoðunarfyrirtæki til þess að fara yfir rekstur bankanna. Ársuppgjörs og niðurstöðu er að öll- um líkindum ekki að vænta fyrr en í byrjun næsta árs. S Fékk fimmtíu roup á síðasta ári. Sigurgeir Brynjar Kristgeirsso Forstjóri Vinnslustöðvarinnar, er fátækasti forstjórinn en hann fékk aðeins fimmtán milljónir í árslaun á síðasta ári. Hreiðar Már Sigurðsson bankastjóri kaupþings fékk 110 milljónir í árslaun. HÁÐ DÖNUM UM SÚREFNI „Þetta er öryggismál fyrst og fremst, við vitum ekkert hvað verður um innflutning á næstunni,“ segir Sig- urbjörg Sverrisdóttir, framkvæmda- stjóri Linde Gas Therapeutics sem er hluti af Ísaga ehf. Íslenska ríkið ákvað að bjóða út viðskipti með lyfjasúrefni og lyfjaglaðloft til loka árs 2007 og tók í kjölfarið tilboði frá danska fyrirtæk- inu Strandmöllen. Ísaga hefur í áratugi séð íslenska heilbrigðiskerfinu fyrir súrefni en á næstu misserum mun það breytast. Bjarni Arthúrsson, ábyrgðarmaður innkaupa í heilbrigðisráðuneytinu, segir verðtryggingarákvæðið í samn- ingnum sem gerður var við Strand- möllen vera í dönskum krónum. Fyr- irtæki fyrrverandi herraþjóðar okkar mun því á næstu misserum sjá Ís- lendingum fyrir súrefni. „Þarna er verið að nota gjaldeyri þegar við sem þjóð þurfum að spara hann,“ segir Sigurbjörg. Í bréfi sem Ísaga sendi frá sér til nefndarmanna í efnahags- og skattanefnd Alþing- is og fjárlaga- og heilbrigðisnefnd í seinustu viku kemur meðal annars fram að sá 40 milljóna króna sparn- aður, sem átti að nást með samn- ingi við Strandmöllen, standist ekki. „Opinberar fullyrðingar um að ríkið spari „að minnsta kosti 40 milljónir á ári“ með því að semja við Dani stóð- ust hins vegar ekki þegar tilboð voru opnuð og eru enn fjær því að standast nú þegar gengi íslenskrar krónu hefur þróast svo sem raun ber vitni.“ Sigur- björg segir það snúast fyrst og fremst um öryggi að láta íslenskt fyrirtæki sjá heilbrigðiskerfinu fyrir lyfjasúrefni, það sé slæmt að vera háð fyrirtæki í öðru landi um slíkt. „Sparnaðurinn er lágmark 40 milljónir miðað við þær upplýsingar sem lágu fyrir þegar tilboðum var tek- ið,“ segir Bjarni Arthúrsson, ábyrgð- armaður innkaupa í heilbrigðis- ráðuneytinu. Hann segir tilboð Ísaga einnig hafa verið háð breytingum samkvæmt verðtryggingarákvæði og því sé ekki ljóst hversu mikið það hefði hækkað á sama tíma. „Báðir bjóðendurnir voru með verðtrygg- ingarákvæði. Það er ekki hægt að fella dóm núna og segja að önnur hvor að- ferðin sé óhagstæðari fyrir samnings- tímabilið, sem er tvö ár,“ segir hann. Hann tekur fram að Strandmöllen og Fastus hafi stofnað íslenskt fyrirtæki saman hér á landi og því sé ekki um erlent fyrirtæki að ræða. Bjarni full- yrðir að samningurinn við Strand- möllen og Fastus sé ennþá hagkvæm- ari en Ísaga bauð. „Miðað við gengi íslenskrar krónu 14. október 2008 blasir við að það til- boð sem ríkið tók er orðið 22% hærra en tilboðið sem hafnað var. Við erum með öðrum orðum að tala um að borga hátt í tvo tugi milljóna króna á ári í viðbót fyrir dönsku lyfjaloftteg- undirnar og verja dýrmætum gjaldeyri fyrir um 100 milljónir króna á ári í inn- flutning á vöru sem í þokkabót er orðin mun dýrari en íslenska framleiðslan,“ segir einnig í bréfinu frá Ísaga og Linde Gas Therapeutics. Sigurbjörg bendir á að samningur heilbrigðisráðuneytis- ins við Strandmöllen fari þvert á yfir- lýsingar ráðamanna um að styðja þurfi við íslenska framleiðslu. JÓN BJARKI MAGNÚSSON blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is Súrefnisleysi Ágreiningur er um hvaða áhrif nýr samningur heilbrigðisráðuneytisins við danska fyrirtækið Strandmöllen um kaup á súrefni til spítalanna muni hafa.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.