Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2008, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2008, Blaðsíða 6
Sjóvá er eina tryggingafélagið sem býður staka ábyrgðar- og kaskótrygg- ingu fyrir venjulegan fólksbíl und- ir hundrað þúsund krónum á ári. Í það minnsta ef tekið er mið af þeim tilboðum sem blaðamaður DV fékk í vikunni. Blaðamaður hafði í eigin nafni samband við öll tryggingafélögin og leitaði tilboða á tryggingum í bíl sem hann hugðist festa kaup á. Tæpum 18 prósentum, eða 22 þúsund krón- um, munaði á hæsta og lægsta til- boði. Vörður bauð hæst: 125 þúsund krónur. Sjóvá bauð 99 þúsund krón- ur í ábyrgðar- og kaskótryggingu en innifalin er lögbundin slysatrygging ökumanns og eigenda. Fyrsti bíll tryggingataka Bíllinn sem blaðamaður hugð- ist kaupa var af Toyota Corolla gerð, skráður á götuna árið 2004. Verð á bílnum er rétt liðlega 1,2 milljónir og hann er ekinn 71 þúsund kílómetra. Vakin skal athygli á því að trygginga- takinn hefur ekki átt bíl áður, er tví- tugur að aldri, býr í Kópavogi og hef- ur engar aðrar tryggingar skráðar á sig. Hafa ber hugfast að í flestum eða öllum tilvikum sögðust félögin geta boðið hagstæðari kjör ef viðkomandi keypti fleiri tryggingar, til dæmis sjúkdóma- og slysatryggingar, eða ef aðrir fjölskyldumeðlimir væru í við- skiptum við tryggingafélagið. Loks ber að geta að þeir sem hafa verið lengi í viðskiptum við ákveðið trygg- ingafélag njóta þess í kjörum. Kynnið ykkur skilmála Eins og áður sagði bauð Sjóvá 99 þúsund krónur í tryggingu á fjögurra ára gömlum fólksbíl í eitt ár. Næst- best bauð Elísabet, eða 102 þúsund. Elísabet er vörumerki í eigu TM, Tryggingamiðstöðvarinnar. TM bauð 119 þúsund krónur og VÍS 121 þús- und. Hæst bauð Vörður tryggingafé- lag, eða 125 þúsund krónur. Rétt er að taka fram að trygginga- skilmálar fyrirtækjanna geta verið mismunandi. Þeir verða ekki raktir hér en þá ætti fólk að kynna sér ræki- lega áður en tryggingafélag er valið. Þá var sjálfsábyrgð ökumanns ekki sérstaklega tekin fram. Hún getur verið mishá og haft áhrif á tilboðin. Leitið tilboða Runólfur Ólafsson, fram- kvæmdastjóri FÍB, segir íhaldssemi oft hafa einkennt tryggingaviðskipti. Hann hvetur fólk til að leita tilboða í tryggingar sínar. „Sumir gera sér ekki einu sinni grein fyrir því hvort tryggingarnar hækka eða ekki, sér- staklega ef fólk er með trygging- arnar í greiðsludreifingu eða á vísa- korti. Það er grundvallaratriði að fylgjast grannt með verðþróuninni og leita, jafnvel á hverju ári, tilboða í tryggingarnar sínar. Þetta er mjög stór útgjaldaliður í rekstri heimilanna og það margborg- ar sig að vera alltaf á tánum. Þessi fyrirtæki þurfa sitt að- hald eins og önnur á markaði,“ segir Run- ólfur. Verðbólguhvetjandi Í samtölum við forsvarsmenn tryggingafélaganna eru hækkan- ir á tryggingum útskýrðar með því að vísitala neysluverðs hafi hækk- að. Tryggingafélögin tengja sín verð við vísitölu og því hafa tryggingar hækkað um á annan tug prósenta á einu ári. Runólfur segir að þetta geti virkað verðbólguhvetjandi. „Það eru ekki allir sem geta leyft sér að tengja gjald- skrána beint við vísitölu. Það er sér- staklega slæmt við nú- verandi ástand. Við erum í verð- bólgu- umhverfi og horfum upp á 16 til 17 prósenta verðhækk- anir á trygg- ingum á þessu ári,“ segir Runólfur og bendir á að fé- lögin hafi þó hækkað tryggingar sín- ar umfram það. Miklar hækkanir Í bréfi sem Vörður sendi viðskipta- vinum sínum í byrjun október seg- ir meðal annars að iðgjöld lögboð- inna ökutækjatrygginga hafi hækkað um 9,5 prósent þann 2. ágúst. Það sé meðal annars vegna aukins fjölda tjóna og alvarleika þeirra. Því sé afkoma ökutækjatrygginga mjög slæm. Svipaða sögu er að segja af öðrum trygginga- félögum. Hjá TM feng- ust þær upplýsingar að mikið tap hefði ver- ið á kaskótryggingum undanfarin ár. Því hafi þurft að hækka verðið á þeim tryggingum. Þó var bent á að hækkan- ir í þeim flokki miðuðu að því að þeir sem hefðu verið lengi í viðskiptum við félagið og ekið best fyndu lítið eða jafnvel ekk- ert fyrir hækkuninni. Þeir sem lent hafi oft í tjóni verði aftur á móti fyrir nokkuð mikl- um hækkunum. Að meðaltali nemi hækkanir á kaskótrygging- um um 7 þúsund krónum. FÖSTUdagUr 24. OKTÓBEr 20086 Fréttir Sandkorn n Fjöldi Íslendinga fylgist með þættinum Í bítið á Bylgjunni í morgunsárið þar sem Heimir Karlsson og Kolbrún Björnsdóttir fara hamför- um í sam- félagsrýni sinni. Svo er að sjá sem þátturinn njóti vax- andi vinsælda því hann hefur samkvæmt könnum Capacent slegið við samkeppnisaðilanum á Ríkisútvarpinu. Um 40 pró- sent landmanna stilla á Bylgj- una milli 7 og 9 á morgnana. Capacent hefur fundið út að 83 prósent landsmanna, 55 ára og yngri, stilla á Bylgjuna í hverri viku en 68 prósent á Rás 2. Sam- kvæmt því er Bylgjan nú vinsæl- asta útvarpsstöð landsins. n Dr. Gunni hefur efnt til alþing- iskosninga með netkönnun á heimasíðu sinni. Og þó slíkar kannan- ir séu jafn ómarktækar og hugs- ast getur er hún athygli verð, ekki síst vegna at- hugasemda sem Dokt- orinn setti við hvern valmögu- leika. Þannig mátti velja Fram- sókn og „Finnur Ingólfsson er æðislegur gaur“ og VG og „Net- löggu í hvert hús, takk“. Einnig nýjan æðislegan flokk „Sem myndi redda öllu“ og Frjáls- lynda flokkinn „Enga pólska surti í vinnu hér“. Einna vinsæl- ast var þó Skila auðu - „Allir eru jafn miklir fávitar og vilja bara moka undir eigið rassgat“. n Magnús Halldórsson, blaða- maður á Morgunblaðinu, fer mikinn í aðsendri grein í Frétta- blaðinu þar sem hann kvart- ar sáran undan því að Ríkisút- varpið, þar sem Páll Magnús- son ræður ríkjum, sé á aug- lýsinga- markaði og skaði þar með rekstur einkarekinna fjölmiðla. Þarna finnst honum ríkið frekt til fjörsins og segir meðal ann- ars: „Enginn atvinnuvegur í landinu býr við viðlíka hlutdeild ríkisins á samkeppnismarkaði og fjölmiðlamarkaður.“ Spurn- ing hvort Magnús hafi gleymt stöðunni á bankamarkaði þegar hann settist niður við að skrifa greinina. 20 % afmælisafsláttur af öllum hefðbundnum myndatökum og stækkunum í október. Nú er um að gera að panta stax Mynd - ljósmyndastofa í 25 ár. MYND Bæjarhrauni 26, Hafnarfirði S: 565 4207 www.ljosmynd.is Sjóvá 99.000 Elísabet 102.000 TM 119.000 VÍS 121.000 Vörður 125.000 Tilboð Trygg- ingafélaganna:BALDUR GUÐMUNDSSON blaðamaður skrifar baldur@dv.is Sjóvá bauð best tryggingafélaga í ábyrgðar- og kaskótryggingu ökutækis sem blaðamað- ur DV hugðist festa kaup á. Vörður var með hæsta boðið en 22 þúsund krónum munaði á hæsta og lægsta tilboði. Tryggingar ökutækja eru tengdar vísitölu neysluverðs og hafa því hækkað mikið undanfarin ár. Runólfur Ólafsson hjá FÍB segir tengingu við vísitölu neysluverðs verðbólguhvetjandi. Hann hvetur fólk til að leita tilboða í allar tryggingar sínar, jafnvel á hverju ári. Íhaldssemi sé of algeng þegar að tryggingum komi. Sjóvá bauð lægSt „Það eru ekki allir sem geta leyft sér að tengja gjaldskrána beint við vísitölu.“ Dýrara að gera við en áður Fleiri slys og dýrari viðgerðir eru sagðar ástæður hækkana á tryggingum. Hvetur fólk til að fylgjast með runólfur Ólafsson hjá FÍB segir íhaldssemi stundum einkenna kaupendur trygginga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.