Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2008, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2008, Blaðsíða 12
FÖSTUdagUr 24. OKTÓBEr 200812 Helgarblað Nú stendur fyrir dyrum skilnaður söngkonunnar Madonnu og leikstjórans Guys Ritchie. Ekki er langt síðan Paul McCartney skildi við Heather Mills og olli sá skilnaður miklu fjaðrafoki. Skilnaður Madonnu vekur kannski ekki eins mikla athygli en ljóst þykir að sú upphæð sem McCartney þurfti að inna af hendi til að sleppa úr hnappheldunni bliknar í samanburði við það sem Madonna er talin þurfa að greiða. Auðæfi hjón- anna eru metin á tæplega sextíu milljarða króna. Í desember 2000 kom söngkon- an heimsfræga, Madonna, fólki í skemmtanaiðnaðinum í opna skjöldu. Í sjálfu sér var það ekkert nýtt, því Madonna er þekkt fyrir að ganga fram af fólki og hefur oftar en ekki dansað línudans í verkum sín- um. En í desember var ekki um að ræða ljósbláa heimildarmynd um söngkonuna eða krossfestingu á tón- leikum heldur var um að ræða sam- runa einnar frægustu poppsöng- konu sögunnar og efnilegs bresks leikstjóra, Guys Ritchie. Að margra mati var fjölmiðlafárið sem umlék samband þeirra ávísun á skammtíma hamingju og á endan- um dauðadóm hjónabands þeirra. Nú hefur komið í ljós að mat á þeim fyrirboðum reyndist á rökum reist og lögfræðingar sem sérhæft sig hafa í fjölskyldumálum telja að fram undan sé einn dýrasti skilnaður breskrar sögu og muni skilnaðarsátt- málinn hljóða upp á litlar eitt hundr- að milljónir sterlingspunda, um tut- tugu milljarða íslenskra króna. Parið sendi frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem fram kom að enn á eftir að leysa úr ýmsum mál- um og fór þess á leit við fjölmiðla að þeir virtu friðhelgi einkalífsins. Í ljósi harðfylgis bresku slúðurblaðanna má álykta að það sé borin von. Lögfræðingur Pauls McCartney kallaður til Fregnir af erfiðleikum í hjóna- bandi turtildúfnanna hafa skotið upp kollinum í ár eða svo. Í júlí fór eiginkona eins hæstlaunaða hafna- boltaleikmanns Bandaríkjanna, Alex Rodrigues, fram á skilnað og kenndi Madonnu um skipbrot hjónabands- ins. Madonna sór af sér ávirðingar um að hún ætti í rómantísku sam- bandi við hinn höggfasta leikmann New York Yankees. Til að leysa úr flækjum hjóna- bands Madonnu og Ritchies duga engir venjulegir meðaljónar úr lög- mannastétt og ljóst að þungavigtar- menn úr stéttinni verða fengnir til starfans. Heyrst hefur að Madonna hafi ráðið Fionu Shackleton, lögfræð- inginn sem gætti hagsmuna Pauls McCartney í skilnaði hans og Heath- er Mills. Það skyldi engan undra því hjónakornin Madonna og Ritchie eru metin á um þrjú hundruð millj- ónir sterlingspunda, sem svarar til 57 milljarða íslenskra króna. Stærst- an hluta auðæfanna hafði Madonna reyndar aflað sér áður en hún gift- ist Ritchie, en reiknað er með því að auðnum verði skipt á milli þeirra. Það er ljóst að skipting eigna þeirra muni varpa skugga á sátt- málann sem Heather Mills gekk að, en hún fékk 24 milljónir sterlings- punda, um 4,5 milljarða króna. Fyrir utan persónulegar fjárfest- ingar eiga hjónin heimili í Lundún- um, Los Angeles og New York, og fimm hundruð hektara griðastað í Wiltshire á Englandi. Hlutur Ritchies metinn Spurningin snýst að miklu leyti um hvernig hlutverk Ritchies í hjóna- bandinu verður metinn fyrir dómi. Skilnaðarlögfræðingurinn Ayesha Vardag sagði að lögin mismunuðu ekki þeim sem vinnur fyrir matn- um og þeim sem vinnur heima. Hún sagði að þó ljóst væri að Madonna hefði aflað teknanna hefði Ritchie þurft að setja feril sinn á hakann til að styðja hana og sinna fjölskyld- unni. „Í flestum tilfellum skiptir ekki máli hvort aflaði teknanna ef við- komandi voru gift og þar af leiðandi lið. Þegar upp er staðið ætti þessum skilnaði að ljúka með háum greiðsl- um til Ritchies, ef rétt verður haldið á spöðunum,“ sagði Vardag. Á sama tíma og Madonnu gekk flest í haginn rembdist Ritchie eins og rjúpa við staur að endurheimta þá frægð sem hann uppskar vegna kvikmyndarinnar Lock, Stock And Two Smoking Barrels, 1998, og Snatch tveimur árum síðar. En allt kom fyrir ekki. Ekki er loku fyrir það skotið að sú gagnrýni sem verk hans fengu hafi lagt þungar byrðar á hjónabandið. Madonna lét Ritchie ekki skrifa undir kaupmála, og því er hún í svipaðri stöðu og Paul McCartney var á sínum tíma. En það kemur fleira til en fé og fasteignir í skilnaðarmáli af þess- ari stærðargráðu. Það þarf að huga að börnunum. Madonna á Lour- des, tólf ára dóttur frá fyrra sam- bandi, og saman eiga þau Rocco, átta ára, og David, tveggja ára, og einnig dreng sem þau ættleiddu árið 2006. Fjölmiðlar munu eflaust velta sér upp úr upphæð skilnaðarsátt- málans, en örlög barnanna munu einnig verða eitt af umhugsunarefn- um dómstólsins. Nokkuð víst verð- ur að telja að Lourdes fylgi móður sinni, en forræði og umgengnisrétt- ur vegna hinna brenna væntanlega jafnheitt á Madonnu og Ritchie og skipting veraldlegra gæða. KoLbeinn þoRsteinsson blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is Til að leysa úr flækjum hjónabands Madonnu og Guys Ritchie duga engir venjulegir meðalj- ónar úr lögmannastétt og ljóst að þungavigtar- menn úr stéttinni verða fengnir til starfans. Skilnaðir fræga fólkSinS Skilnaðir fræga fólksins eru eflaust ekki mikið öðruvísi en okkar, hinna dauðlegu. Tekist er á um eignir, fastar og lausar, og forræði barnanna verður oftar en ekki það sem mestum deilum veldur. Þó fjárhæðir þær sem nefndar eru til sögunnar í skilnaði hjóna á borð við Paul McCartney og Heather Mills, Madonnu og guy ritchie og Mick Jagger og Jerry Hall séu stjarnfræðilegar í huga venjulegs fólks eru hagsmunir ríkra og fátækra að stærstum hluta jafnmiklir þegar kemur að skilnaði. ALeC bALdwin oG KiM bAsinGeR Leikararnir alec Baldwin og Kim Basinger gengu í hjónaband 1993 og skildu 2002 vegna ósættanlegs ágreinings, ástæðu sem nýtur vinsælda í Hollywood þegar fólk vill halda ljótum leyndarmálum leyndum. Stærsta þrætueplið í skilnaði þeirra sneri að forræði yfir dóttur þeirra. Álitið er að forræðisdeilan hafi kostað alec Baldwin um eina milljón bandaríkjadala, sem samsvarar um eitt hundrað og tuttugu milljónum króna. JuAnitA oG MiCHAeL JoRdAn Juanita og Michael gengu í það heilaga árið 1989 fimm árum eftir að þau hittust. Juanita fór fram á skilnað, vegna ósættanlegs ágreinings. reyndar dró Juanita í land, en fjórum árum síðar var hjónabandið enn í viðjum ósættanlegs ágreinings og hjónin skildu. Juanita fékk 168 milljónir bandaríkjadala, um tuttugu milljarða króna, við skilnaðinn, sem var þá hæsta upphæð sem greidd hafði verið við skilnað frægs fólks. að auki fékk hún væna spildu í Chicago og forræði þriggja barna þeirra. bRitney sPeARs oG Kevin FedeRLine Þau giftust árið 2004 og skildu 2007 eftir að Britney „sagði honum upp“ með sms-skilaboðum. Britney samþykkti að borga Federline eina milljón bandaríkjadala, en forræðisdeilur urðu gnægtabrunnur fjölmiðla víða um heim í langan tíma. Á endanum fékk Federline forræðið og eina milljón, en hann hafði skrifað undir kaupmála. HARRison FoRd oG MeLissA MAtHison Leikarinn Ford og handritshöfundurinn Mathison voru gift frá 1983 til 2004, en þá sást til „Indiana Jones“ með hinni rýru leikkonu Calistu Flockhart. Melissa Mathison fór frá skilnaðinum með áttatíu og fimm milljónir bandaríkjadala, um tíu milljarða króna, og hluta af seldum dVd-myndum sem Ford hafði leikið í þau sautján ár sem þau voru gift. MiCK JAGGeR oG JeRRy HALL Eftir tíu ára samband og nokkur börn gengu „Steinninn“ og fyrirsætan Jerry Hall í hnapphelduna árið 1990 og fór athöfnin fram á strönd í Indónesíu. Þau skildu 1999 eftir að upp komst að Jagger hafði eignast barn með brasilískri ástkonu sinni. Mick greiddi Jerry um tíu milljónir sterlingspunda, tæpa tvo milljarða króna, og hafði upphæðin verið lækkuð vegna fullyrðinga Jaggers um að strandathöfnin 1990 væri ekki bindandi samkvæmt lögum. RoMAn oG iRiMA AbRAMoviCH roman giftist flugfreyjunni Irimu 1991 eftir að þau hittust í flugvél aeroflot. Árið 2006 kom í ljós að roman hafði verið að dandalast með hinni tuttugu og sex ára dariu Zukova og hjónin skildu. Leynd hvílir yfir lyktum skilnaðar þeirra, sem fór fram í rússneskum réttarsal, en það hefur verið talið að Irima hafi haft um þrjú hundruð milljónir bandaríkjadala, um þrjátíu og fimm milljarða króna, upp úr krafsinu auk húseigna í Bretlandi og Moskvu, snekkju og flugvélar. KARL PRins oG díAnA PRinsessA giftust 1981 fjórum árum eftir að þau kynntust er Karl var í tygjum við eldri systur díönu og skildu árið 1996. Þá var ljóst að ævintýrahjónabandið stóð ekki undir nafni. díana fékk sautján milljónir sterlingspunda, 3,2 milljarða íslenskra króna ásamt því sem henni var gert að lofa að viðra aldrei opinber- lega hvað gengið hafði á í hjónabandi hennar og prinsins. PAuL MCCARtney oG HeAtHeR MiLLs gengu í það heilaga þremur árum eftir að þau kynntust og skildu 2006 í skugga gagnkvæmra ásakana um allt milli himins og jarðar. Leiddar voru líkur að því að í uppsiglingu væri einn dýrasti skilnaður sögunnar, en þegar upp var staðið fékk Heather 24,3 milljónir sterlingspunda, tæpa 4,7 milljarða íslenskra króna, sem var brot af þeirri upphæð sem hún hafði upphaflega krafist, 125 milljóna punda, eða tæplega tuttugu og fjögurra milljarða króna. Guy Ritchie og Madonna Skilnaður þeirra getur orðið sá dýrasti í sögu Bretlands. Milljarðaskilnaður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.