Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2008, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2008, Blaðsíða 48
FÖSTUdagUr 24. OKTÓBEr 200848 Helgarblað DV Sakamál SmáSkilaboð bjarga lífi Hin fjórtán ára Elizabeth Shoaf hafði verið í prísund mannræningja í tíu daga. Í jarðhýsi í skógi í Suður-Karólínu hafði ræningi hennar nauðgað henni og svívirt og hinu unga fórnarlambi virtust allar bjargir bannaðar. En margt fer öðruvísi en ætlað er og hana brast ekki kjarkinn þegar tækifæri gafst. Mannræninginn var enginn nýgræð- ingur og þjálfun hans í að komast af í óbyggðum hafði bjargað honum frá því að verða handtekinn. Í jarðhýsi sínu hafði hann komið sér vel fyrir og ekki var hægt um vik að finna það. Hann missteig sig einu sinni og það varð honum að falli og Elizabeth til lífs. Lesið um málið í næsta helgarblaði dV.UMSjÓn: KOLBEinn ÞOrSTEinSSOn kolbeinn@dv.is Bonnie & Clyde Sá ævintýraljómi sem lék um bonnie og Clyde í upphafi sameiginlegrar sögu þeirra máðist skjótt. Róm- antíkin sem almenningur í Bandaríkjum kreppuáranna tengdi við þau fölnaði og eftir stóðu forhertir morðingjar. Það sem hófst sem ævintýri ungs ástfangins pars breyttist í flótta undan vörðum laganna og í kjölfarið hrúguðust líkin upp. Bonnie Parker og Clyde Barrow voru alræmdir útlagar og banka- ræningjar sem settu svip sinn á Bandaríkin upp úr 1930. Þau fóru vítt og breitt um miðfylki Bandaríkj- anna og náðu athygli allrar þjóðar- innar með verkum sínum. Fjölmiðl- ar og almenningur fylgdust náið með ferli þeirra og þau urðu þekkt fyrir að ræna banka, þótt þau hafi í meira mæli gert atlögu að bensín- stöðvum og smáverslunum. Almennt hefur verið álitið að Bonnie hafi verið fullgildur með- limur í glæpagengi Barrows og því meðsek í öllum glæpum sem það framdi. Tveir meðlima gengisins, W.D. Jones og Ralph Fults, báru á sínum tíma vitni um að þeir hefðu aldrei séð Bonnie skjóta af byssu. Skuggi kreppunnar miklu lá yfir því samfélagi sem Bonnie og Clyde spruttu upp úr. Atvinnuleysi var mikið og fjöldi atvinnu- og heim- ilslausra neyddist til að setjast að í hreysahverfum. Framtíðarvonir véku fyrir áhyggjum af næstu mál- tíð. Því var kannski ekki að undra að almenningur dáðist að Bonnie og Clyde og í einhvern tíma urðu þau að ímynd nútíma Hróa hattar og nærvera Bonnie Parker var ekki til að skemma ímyndina. Talið er að gengið hafi á ferli sínum banað að minnsta kosti níu lögregluþjónum og nokkrum öðrum að auki. aftur til upphafsins Bonnie Parker fæddist 1. okt- óber 1910 í Rowena í Texas og ekki er mikið vitað um bernsku henn- ar. Hún var ágætlega pennafær og, líkt og aðrir unglingar, átti hún sér drauma. Hún var falleg stúlka og er talið að hún hefði getað orðið leik- kona ef hún hefði viljað, en hún kastaði öllum draumum fyrir róða þegar hún giftist æskuástinni Roy Thornton. En Roy stóð ekki undir væntingum og átti það til að hverfa dögum saman og á endanum spark- aði Bonnie honum út, en hún skildi aldrei við hann. Átján ára og ein á báti vann Bonnie fyrir sér við framreiðslu- störf. Ekki hvarflaði að henni á þeim tíma að handan við hornið lægju breytingar sem myndu hafa áhrif á örlög hennar. Clyde Barrow fæddist 24. mars 1909 í Ellis-sýslu í Texas. Skólaganga Clydes var gloppótt og áður en hann náði tvítugsaldri hafði hann verið handtekinn fjórum sinnum, en vegna skorts á sönnunum slapp hann með skrekkinn. Í janúar 1930 hittust Bonnie og Clyde fyrir tilvilj- un í Vestur-Dallas þar sem Bonn- ie var í heimsókn hjá vini sínum. Í ljós kom að Clyde þekkti vininn líka og tilviljun ein réð því að þar hittust þau í fyrsta sinn. Hvort um var að ræða ást við fyrstu sýn eða ekki kom hjónaband aldrei til greina; Bonn- ie var gift kona. En þær taugar sem mynduðust á milli þeirra styrktust hratt, en fyrr en varði ráku lögin fleyg á milli þeirra. Clyde var handtekinn og á end- anum játaði hann á sig nokkur inn- brot og bílþjófnað og var dæmdur til tveggja ára fangelsisvistar. Bonn- ie var ástfangin og heimsótti Clyde í grjótið á nánast hverjum degi. Í einni slíkri heimsókn, að beiðni Clydes, kom hún með skammbyssu og næstu nótt flúði Clyde, klefafé- lagi hans og einn að auki. Clyde og klefafélaginn komust ekki langt og fyrir uppátækið hlaut Clyde fjórtán ára dóm. En Clyde eyddi ekki fjórtán árum á bak við lás og slá. Fyrir tilstilli móður sinnar gekk hann út frjáls maður 2. febrú- ar 1932. Clyde tókst að halda sér á mottunni í hálfan mánuð. Þá leit- aði hann Bonnie uppi og þau lögðu upp í ferðalag – á stolnum bíl. Arm- ur laganna er langur en í þetta skipti náði hann taki á Bonnie en Clyde komst undan. Bonnie eyddi nokkr- um mánuðum í fangelsi í Kaufman í Texas. krossgötur Á meðan Bonnie var í fangelsi komst Clyde á bragðið. Hann rændi Sims-olíufélagið í Dallas og síðan skartgripaverslun. Eigandi skart- gripabúðarinnar, John Bucher, dó þann dag. Clyde sagðist saklaus af því og sagði félaga sinn, Reymond Hamilton, vera ábyrgan. Sú yfirlýs- ing bar ekki árangur, og þaðan í frá var Clyde brennimerktur morðingi. Í kjölfar skartgriparánsins fylgdi röð bensínstöðvarána. Glæpaferill Cly- des Barrow var hafinn fyrir alvöru. Þegar Bonnie losnaði úr fang- elsi tók hún sess sinn við hlið Clyd- es. 5. ágúst skutu Clyde og Hamilton til bana tvo lögregluþjóna í Atoka í Oklahoma. Hvort það var af ásettu ráði eða tilviljun var Bonnie ekki með þeim í för þann örlagaríka dag. En almenningsálitið var að breytast. Bonnie og Clyde hættu að vera hetjur í augum almennings og rómantíkin sem hafði sveipað fer- il þeirra hvarf. Þau voru ekki leng- ur krakkar í uppreisn gegn kerfinu heldur kaldrifjaðir morðingjar. Þræðir tilveru Bonnie og Clyde byrjuðu að rakna upp og það sem í upphafi átti að verða ævintýraferð í gegnum miðvesturríkin hafði breyst í örvæntingarfullan flótta fyrir frelsi. Felustaðir þeirra og griðastaðir voru ekki lengur öruggir. Hamilton var handtekinn og dæmdur til 263 ára fangelsisvistar og lögreglan hafði tekið af sér silki- hanskana. Slíkt hið sama mátti segja um Clyde Barrow og enn einn lög- regluþjónninn lá í valnum. líkin hrannast upp Í mars 1933 losnaði Buck, bróðir Clydes, úr fangelsi og skömmu síðar slógust hann og Blanch, eiginkona hans, í hóp Clydes. Um skamma hríð tókst þeim að una í friði í Joplin í Missouri, en lögreglan gerði atlögu að húsi þeirra vegna misskilnings. Lögreglan hélt að þar væru til húsa bruggarar og í skotbardaganum féllu tveir lögregluþjónar. Við leit í húsinu fundust meðal annars film- ur og á einni þeirra mynd af Bonn- ie að reykja vindil. Sú mynd átti eftir að verða fræg. En lánið virtist hafa yfirgefið Bonnie og Clyde. Á stolnum bíl óku þau út af brú sem var í smíðum. Bonnie klemmdist undir bílnum og fékk þriðju gráðu brunasár. Geng- ið leigði kofa í Platte í Missouri, en Bonnie var sárþjáð og þurfti lækn- isaðstoð. Apótekarinn sem þau leituðu til hafði samband við lög- regluna og enn og aftur lenti Clyde- gengið í skotbardaga. Liðin var sú tíð að gengið kæmi óskaðað úr slíkum uppákomum. Buck og Clyde fengu báðir skot í sig og Blanch fékk gler í augun, en þrátt fyrir það tókst þeim að flýja. Þremur dögum síðar var lögregl- an komin á sporið, en gengið var í felum í skóglendi fyrir utan Dext- er í Iowa. Í óðagotinu sem fylgdi ók Clyde bílnum á tréstubb og lögregl- an hóf skothríð. Clyde fékk nokkur skot í sig, en tókst að bjarga sér og Bonnie og flýja í gegnum kornakur. Buck og Blanch áttu ekki slíku láni að fagna. Þau voru bæði hand- tekin en Buck var helsærður og lést þremur dögum síðar. Blanch var send í ríkisfangelsið í Missouri. Fram undan voru daprir mánuð- ir. Einn félaganna yfirgaf skötuhjúin og taldi sig hólpnari einan en í slag- togi með þeim. Gengið samanstóð af Bonnie, Clyde og Henry Methy- in. Bonnie og Clyde lentu í fyrirsát lögreglunnar þegar þau ætluðu að heimsækja foreldrana, en þrátt fyr- ir að vera skotin í fótleggina tókst þeim að komast undan. Þar sem þau voru bæði særð var ljóst að þau þyrftu liðsauka. Þau náðu sínum gamla félaga Reymond Hamilton og öðrum til úr fangelsi í Huntsville í Texas. Enn einn lögregluþjónn dó þann dag. Næstu mánuði var fjöldi banka rændur. Hvort sem það var með réttu eða röngu voru bankaránin skrifuð á gengi Clydes. Í mars 1934 yfirgaf Hamilton gengið, hann var síðar handtekinn og endaði í raf- magnsstólnum vegna morðs á fangaverði nóttina sem hann flúði frá Huntsville-fangelsinu. bonnie og vindlarnir Á páskasunnudag 1934 drápu Clyde og Methyun tvo lögreglu- þjóna sem höfðu stöðvað við bif- reið þeirra. Lögreglumennirnir ætluðu víst aðeins að bjóða aðstoð sína. Fimm dögum síðar myrtu þeir lögregluvarðstjóra, Cal Camp- ell, og rændu Commerce, lögreglu- stjóra Oklahoma,en slepptu honum nokkrum dögum síðar. Engu líkara var en Bonnie gæti ekki hugsað skýrt því hún lét Commerce lofa sér því að hann léti almenning vita að hún reykti ekki vindla. Frægasta myndin af henni fór greinilega meira fyrir brjóstið á henni en yfirvofandi dauði þeirra. Lögreglan neytti allra leiða til að hafa hendur í hári þeirra. Vin- ir og fjölskyldur voru áreittar í tíma og ótíma, og á endanum var leitað til Franks Hamer, liðsmanns U.S. Rangers. Hamer hlýtur að hafa haft lykt- arskyn sporhunds því hann komst fljótt á slóðina og tapaði henni aldrei. Alla jafna var hann einum degi á eftir þeim, en eftirförin kost- aði þrjá lögreglumenn lífið. Gengið leitaði hælis hjá Ivan, föður Henrys Methyin, og sagan segir að hann hafi sagt til þeirra í von um vægari dóm syni sínum til handa. Ivan sagði Hamer frá „póst- húsinu“ sem var í raun viðarplanki þar sem gengismeðlimir skildu eftir skilaboð sín á milli og til fjölskyldu- meðlima, og ef Bonnie og Clyde væru í nágrenninu myndu þau án efa reyna að nálgast póst sinn. fyrirsát Hamer kallaði nokkra vini sína til hjálpar og í skjóli nætur komu þeir sér fyrir og biðu parsins alræmda. Rúmlega níu næsta morgun óku Bonnie og Clyde inn í fyrirsát. Ekki er vitað hver félaga Hamers gekk í veg fyrir bílinn, neyddi þau til að stoppa og sagði þeim að gefast upp. Þegar Clyde teygði sig eftir byssu sinni hóf eftirreiðarsveitin skothríð og þegar upp var staðið hafði eitt hundrað sextíu og sjö skotum verið hleypt af og drungaleg þögn lagð- ist yfir. Dagurinn var 23. maí árið 1934 og staðurinn var vegur nálægt Bi- enville Parish í Louisiana. Eftirreið- arsveitin samanstóð af fjórum lög- reglumönnum frá Texas og þremur frá Louisiana og Bonnie og Clyde voru liðin lík. Margir eru þeirrar skoðunar að eina sök Bonnie hafi verið að falla fyrir röngum manni. Hún var Clyde trygg allt til enda og dauði lögreglu- þjóna varð lítilvægur í samanburði við samband þeirra. Ástin er vissu- lega blind. En saga og ferill Bonnie og Clyde eru vissulega fjarri sögunni um Hróa hött sem rændi ríka og gaf fátækum. En almenningsálitið var að breytast. Bonnie og Clyde hættu að vera hetjur í augum almennings og rómantíkin sem hafði sveipað feril þeirra hvarf. Þau voru ekki lengur krakkar í uppreisn gegn kerfinu heldur kaldrifjaðir morðingjar. Clyde og bonnie Áttu lítið sameiginlegt með Hróa hetti eins og almenningur komst fljótt að. bonnie Parker Hafði áhyggjur af því að fólk héldi að hún reykti vindla.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.