Jökull - 01.12.1983, Side 87
Rist, S. 1976: Grímsvatnahlaupið 1976 (The jökul-
hlaup from Grímsvötnin 1976). Jökull 26:80-90.
Sigvaldason, G.E. 1963: Iníluence of geothermal
activity on the chemistry of three glacier rivers in
southern Iceland. Jökull 13: 10-17.
Sigvaldason, G.E. 1964: Some geochemical and
hydrothermal aspects of the 1961 Askja erupt-
ion. Beitr. Mineral. Petrogr. 10: 263-274.
Sigvaldason, G. E. 1965: The Grimsvötn thermal
area. Chemical analysis of jökulhlaup water.
Jökull 15: 125-128.
Steinthórsson, S. 1972: Skýrsla um efnagreiningu
vatnssýna úr Skeiðará árin 1970-1972 (A report
of the analysis of water samples from River
Skeidará 1970-1972). Science Inst. Prof. Paper
RH-G-72-B3, 10 pp., Tables and Figures.
(Mineographed, in Icelandic).
Tómasson, H., H. Kristmannsdóttir, S. Pálsson, and P.
Ingólfsson 1974: Efnisflutningar í Skeiðarárhlaupi
1972 (Material transpórt in the jökulhlaup of
Skeidará 1972). Energy Authority Prof. Paper
OS-ROD 7407, 20 pp., Tables and Figures.
(Mimeographed, in Icelandic).
Tómasson, H., S. Pálsson, and P. Ingólfsson 1980: Com-
parison of sediment load transport in the Skeid-
ará jökulhlaups in 1972 and 1976. Jökull 30:
21-33.
Thorarinsson, S. 1974: Vötnin stríð. Saga Skeiðarár-
hlaupa og Grímsvatnagosa (The history ofjökul-
hlaups in the river Skeidará and eruptions in
Grímsvötn), 254 pp., Menningarsjóður, Reykja-
vík (in Icelandic).
Thorarinsson, S. 1975: Katla og annáll Kötlugosa
(Katla and its volcanic history). Arb. Ferðafél.
ísl. 1975, pp. 129-149 (in Icelandic).
UPPLEYST EFNI í HLAUPVATNI
SKEIÐARÁR OG JARÐHITASVÆÐIÐ í
GRÍMSVÖTNUM
Sigurbur Steinþórsson, Raunvísindastofnun Háskólans
Níels Óskarsson, Nornenu Eldfjallastöðinni
ÁGRIP
Um það bil mánuði fyrir eldgosið í Öskju 1961
myndaðist jarðhitasvæði þar sem gígurinn síðar
opnaðist. Þetta leiddi til þeirrar hugmyndar, að
hægt væri að segja fyrir um eldgos undir jökli með
því að fýlgjast með aukningu jarðhitavatns í jökul-
ám sem frá slíkum svæðum falla (Sigvaldason 1963,
1964, 1965). Var um árabil safnað reglulega sýnum
úr ýmsum ám, Jökulsá á Sólheimasandi, Múlakvísl
og Skálm, en auk þess voru tekin sýni daglega úr
6
Skeiðará árin 1971 og 1972, og náði sú söfnun yfir
jökulhlaupið 1972. Þessar efnagreiningar voru gefn-
ar út í skýrslu Raunvísindastofnunar háskólans
1972 (Steinthórsson 1972). Greinin lýsir frekari túlkun
þessara vatnsefnagreininga úr Skeiðará, og auk þess
fáeinum greiningum, sem gerðar hafa verið á vatni
úr Skaftá.
Mynd 4 sýnir styrk nokkurra uppleystra efna í
Skeiðará fyrir hlaupið og hina miklu aukningu, sem
varð í hlaupinu. Efnin eru af þrennum toga, úr
úrkomunni, úr seti sem áin ber með sér, og úr
jarðhitavatni og gufum. I ljós kemur, að einungis
efni í þriðja flokknum, af jarðhita-uppruna, aukast
að marki í hlaupinu, og þess vegna er hægt að
nálgast efnasamsetningu vatnsins úr Grímsvötn-
um með því að draga styrk hvers efnis í venjulegu
Skeiðarárvatni frá styrknum í hlaupvatninu. Þetta
er sýnt í Töflu 3, þar sem dálkar 5 og 6 gefa sam-
setningu Grímsvatnavatnsins.
Hinn mikli styrkur uppleystra efna í Grímsvatna-
lóninu sýnir að jarðhitavatn, en ekki gufa, streymir
inn í lónið, því gufa ber engin önnur efni með sér en
gös, kolsýru og brennisteinsgufu. Þess vegna er hægt
að nota aðferðir jarðhitafræðinnar til að meta hita-
stig jarðhitavatnsins, sem streymir inn í lónið:
1) Ut frá hlutfallinu Na/K í vatninu er hitastig
jarðhitavatnsins reiknað (sjá Töflu 4). Það reyn-
ist vera 104°C fyrir 1972-hlaupið, en 192°C fyrir
1982-hlaupið.
2) Styrkur kísils í vatninu við þessi hitastig er reikn-
aður, þar sem gert er ráð fyrir jafnvægi við kalse-
don við lægra hitastigið (1972), en kvars við hið
hærra (1982).
3) Með samanburði milli þess kísils, sem mældur er
í vatninu, og þess sem ætti að vera í því skv.
þessum reikningum, fæst þynningjarðhitavatns-
ins í lóninu vegna bræðsluvatns, sem er af tvenn-
um toga, annars vegar bráðnunar íshellunnar
yfir lóninu, hins vegar bráðnunar á yfirborði
jökulsins og annars staðar innan vatnasviðs
Grímsvatna.
4) Efgert er ráð fyrir því að Ca íjarðhitavatninu sé í
jafnvægi við kalkspat má reikna út styrk kolsýru
sem uppleyst er í jarðhitavatninu og einnig sýru-
stig þess - sú kolsýra, sem umfram er skv. efna-
greiningum var þá í formi gufubólna. I Töflu 3
(7. og 8. dálki) er skráð samsetning jarðhita-
vatnsins sem streymdi inn í Grímsvatnalónið
fyrir hlaupin 1972 og 1982. Hún minnir að veru-
legu leyti á samsetningu vatns frá Lýsuhóli á
Snæfellsnesi.
5) Frá þessum niðurstöðum er síðan reiknað út
JÖKULL 33. ÁR 85