Tölvumál - 01.06.2006, Síða 17
1 6 | T Ö LV U M Á L T Ö LV U M Á L | 1 7
Nýjar virðiskúrvur fyrir tónlistariðnaðinn drifinn áfram af framþróun í nettækni
100
80
60
40
20
0
Umbúðir Verð Geymslupláss Óumbeðin lög Hljómgæði Sveigjanleiki
Hefðbundnir geisladiskar
Kaup á tónlist á netinu
Frítt niðurhal á netinu
Warner og Disney hefja sölu á kvikmyndum á Netinu
Spurður um framtíð kvikmyndaiðnaðarins segir Hallgrímur að stafræn
kvikmyndahús séu loks að verða að veruleika með auknum myndgæðum
en að kvikmyndahúsaaðsókn muni væntanlega standa í stað. ,,Þó hefur
aðsókn kvikmyndahúsa farið minnkandi frá árinu 2002 en þá hafði aðsókn
farið hækkandi nánast sleitulaust frá árinu 1996. Það má þó benda á að
margvíslegir þættir geta haft áhrif á þetta (m.a. aukin heimabíótækni, úrval
mynda og ólögleg dreifing á myndum). Hvað DVD sölu varðar þá tel ég að
hún muni aukast samhliða aukningu á sölu mynda í gegnum Netið. Þannig
hafa Warner og Disney lýst því yfir að þeir ætli að hefja sölu á kvikmyndum
á Netinu á Norðurlöndum síðar á þessu ári. Universal er að hefja sölu á
myndum í Bretlandi í gegnum Netið þar sem þú færð eintak í tölvuna þína og
færð síðan ,,physical” eintak af myndinni sent heim til þín. Hins vegar mun
DVD leiga dragast saman til lengri tíma að mínu mati. Þó að útleiga kunni að
taka tímabundinn kipp þar sem myndir í háskerpugæðum eru væntanlegar
á markaðinn. Svo má ekki gleyma sjónvarpinu þar sem þú verður meira
þinn eigin dagskrárstjóri. Við erum byrjuð að sjá þá þróun hér með stafrænu
sjónvarpi, t.d. Skjárinn með Video on Demand, Visir.is og Rúv.is með því
fréttaefni sem þú vilt sjá þegar þér hentar og Stöð 2 með digital STB með PVR
þar sem þú getur tekið dagskrána upp á harðan disk og horft þegar þú vilt.”
Hallgrímur Kristinsson
Hvað segja sérfræðingarnir í afþreyingunni?