Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1997, Qupperneq 11

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1997, Qupperneq 11
gagnasöfnun og greining þeirra fram samtímis. Rannsakandi hélt dagbók þar sem hann lýsti hugrenningum sínum um það sem fram kom í viðtölunum og einnig hugrenningum varðandi rannsóknaferlið sjálft. Eiginleg rannsóknargögn voru hinn vélritaði texti viðtalanna og dagbók rannsakanda. Gagnagreining fór fram á ensku og hófst eftir fyrsta viðtal og var síðan endurtekin eftir hvert viðtal sem tekið var. Hún fól í sér kerfisbundna greiningu og túlkun á textanum sem heild, hlutum hans og samanburði á þeim. Skoðað var hvað var sameiginlegt og hvað ólíkt (Reason og Reason,1981; Benner, 1985; Leonard, 1989). Rannsakandi las viðtölin margsinnis með opnum huga og ígrundaði tímunum saman þá merkingu sem viðmælandi tjáði með orðum sínum og atferli. Setningar og orð í textanum, sem innihéldu mikilvægar upplýsingar fyrir og um þátttakandann, voru undirstrikuð og síðan endurtekin eða endursögð á ensku út á hægri spássfðu á handriti hvers viðtals. Þessar setningar og orð voru flokkuð saman í þemu og samfelld lýsing á þemanu skrifuð. Skrifað var ævisöguyfirlit (sleppt í niðurstöðum), þemu sett fram og lífsmunstur greint. Þema var skilgreint sem atburður/fyrirbæri sem endurtók sig. Aðalatriði ævisögunnar voru einnig sett upp í töflu (sleppt í niðurstöðum) þar sem lykilatburðir á hverju æviskeiði voru tilgreindir (Bramwell, 1984, Newman, 1987,1990; Helga Jónsdóttir, 1988). í öðru viðtali var túlkun rannsakanda á aðalatriðum fyrsta viðtals borin upp við þátttakandann, þ.e. taflan og lífsmunstrið, og hann beðinn um að segja til um réttmæti túlkunarinnar. Þátttakendur staðfestu allir túlkun rannsakanda í öllum tneginatriðum. Eftir annað viðtal voru þrjú viðtöl til viðbótar tekin þar sem þátttakanda var boðið að ræða frekar um mikil- væga atburði í lífi sínu, það sem lá honum á hjarta og sérstak- h'ga ef hann stæði frammi fyrir einhverjum breytingum sem hann vildi ræða. í sfðasta viðtalinu var fyrrgreind tafla og lífsmunstrið aftur rætt við þátttakanda til frekari áréttingar á réttmæti túlkunarinnar. Þegar öllum viðtölum var lokið var gagnagreining allra þátttakenda borin saman og skrifuð lýsing á lífsmunstri og þemum eins og þau komu fyrir hjá þátttak- endum í heild sinni (Benner, 1985; Newman, 1990). Þessi greining var síðan borin saman við sjúkdómsmunstur COPD. Gögnin voru að lokum greind samkvæmt lýsingu Newman á þroskaferlinu en sú greining svarar síðustu rannsóknar- spumingunni: Greina þátttakendur eigið lífsmunstur og hvernig tengist sá skilningur heilbrigði þeirra? NIÐURSTÖÐUR Þemu sem einkenndu reynslu þátttakenda Eftirfarandi þemu einkenndu frásögu þátttakenda: a) Að sætta sig við orðinn hlut - leið til að lifa af, b) lítt uppbyggjandi úrlausnir á erfiðum atburðum, c) erfiðleikar við að tjá sig og tengjast öðrum, d) togstreita á milli eigin þarfa og væntinga frá umhverfinu, e) skortur á orðum til að lýsa andþyngslum, f) skert virkni, g) samspil tilfinningalegs ástands og andþyngsla °g h) mikil áhersla á gildi atvinnu. Þemum er að vissu leyti raðað eftir mikilvægi þeirra í frásögu þátttakenda en þau hafa jafnframt innbyrðis tengsl og er því röðunin ekki fullkomlega einhlít. a) Að sœtta sig við orðinn hlut - Leið til að lifa af Þátttakendur lýstu mikilli óánægju með aðstæður sínar og sjúkdóm og vildu úrbætur. í sumum tilvikum greindu þeir leiðir til úrbóta og töluðu um þær en þegar til kom var þeim ókleift að framkvæma það sem til þurfti. Algengt var að þátttakendur töluðu um að auka líkamlegt þrek sitt og sumir hófu skipulega líkamsþjálfun á meðan á rannsókninni stóð. Þessi þjálfun skilaði hins vegar sjaldnast þeim árangri sem búist var við og stundum þurftu þátttakendur að hætta eða fresta þjálfun því ýmis vandamál skutu upp kollinum, s.s. endurteknar lungnasýkingar. Þó tókst einum að megra sig verulega á meðan á rannsókninni stóð og var það honum gífurlega mikilvægt en jafnframt nánast lífsnauðsyn. Á sama tíma og þátttakendur lýstu óánægju sinni með sjúkdóm sinn og aðstæður lögðu þeir áherslu á að framtíðin yrði þeim betri. Þrátt fyrir það var kvíði fyrir framtíðinni áberandi. Karl gerði sér grein fyrir ýmsum lausnum á vanda- málum sínum en sagði: „. . . Það er hægara sagt en gert. . . . Maður er skítóánægður með sjálfan sig, maður er vanur að vera hress og frískur og geta eiginlega farið svona nokkum veginn ferða sinna. En núna er ég bara allt í einu bundinn stól og ég er oft helvíti stressaður ... Ef ég fer að pæla í framtíðina get ég ekki annað en verið kvíðinn.“ Um viðhorf sitt til sjúkdómsins sagði Árni að honum fyndist mikilvægast að vera „jákvæður, spaugsamur og allt það. Ég held að léttast sé að bera sjúkdóminn þannig.“ Honum fannst einnig mikilvægt að vera ekki að velta sér upp úr veikindum sínum og fleiri tóku í sama streng. Segja má að um ákveðna þversögn í frásögu þátttakenda hafi verið að ræða. Þó svo að þátttakendur hafi lagt mikla áherslu á bjartari framtíð og að nauðsynlegt væri að bæta marga hluti í lífi þeirra, þá voru þeir í raun búnir að gera sér grein fyrir að þeir vom ekki aðeins með ólæknandi sjúkdóm heldur einnig að sjúkdómurinn færi versnandi og að fáu yrði breytt til hins betra. Hins vegar var þessi þversögn afar mikilvæg og í raun lífsnauðsynleg til þess að geta lifað við aðstæður sem stundum vom nánast óbærilegar. b) Lítt uppbyggjandi úrlausnir á erfiðum atburðum Flestir þátttakenda höfðu þolað erfiða atburði í lífinu, oft í barnæsku. Nokkur höfðu snemma misst annað foreldri, einn hafði fengið berkla á unga aldri, ein var lausaleiksbam og átti ekki fast heimili í barnæsku og fátækt var áberandi hjá allflestum. Einkennandi fyrir frásögn fólksins vom ekki atburðirnir í sjálfu sér heldur hversu neikvætt það leit á þessa liðnu atburði. Það var þolendur hörmunga sem höfðu fáa eða enga jákvæða fleti. A.m.k. gat það ekki skýrt frá slíkum lærdómi með eigin orðum. Dísa greindist með lungnasjúkdóm fyrir 12 ámm í tengslum við sýkingu sem hún fékk í lungun. Hún sagði: Það var ekkert gert. Ég fékk bara einhver hylki. Svo þegar það var nú gengið yíir, þá fann ég að ég var ekki sama manneskjan og ég hafði verið. Mér fannst ég einhvem veginn fara illa andlega. Ég treysti mér eiginlega ekki orðið í neitt. Ég var f vandræðum hvort ég gæti farið í vinnu. Faðir Jakobs yfirgaf móður hans og fjögur börn þegar Jakob var ungbam. Eldri bróðir hans dó skömmu síðar. Jakob taldi að strax í bamæsku hefði hann haft minnimáttarkennd og tengdi það basli og erfiðleikum heima fyrir. Hann sagði: „Það voru allir með sína foreldra heima og gekk allt betur bæði með að byggja og rækta. Þama [á bænum þeirra] var ekkert til neins og allt ónýtt. . . . Það er alltaf meira öryggi hjá þeim sem að hafa báða foreldrana.“ Foreldrar Bjöms vom drykkfelldir en um það talaði hann lítið. Sautján ára að aldri var honum TÍMARIT IIJÚKRUNARFRÆÐINGA 1. tbl. 73. árg. 1997
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.