Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1997, Síða 62
Gó&
Stykkishólmsheimsókn
Frá Vesturlandsdeild
Uni [njátíu félagar Vesturlands-
deildarinnar eyddu saman góðuin degi í
Stykkishólmi í október sl. Dagurinn var
blanda af fræðslu og skennntun sem
liófst á því að félagar af Akranesi og úr
Borgamesi fóru um hádegisbil með rútu
til Stykkishólms. Á St.
Fransiskusspítalanum í Stykkishólmi
hittu þær fyrir félaga úr Ólafsvík og
Stykkishólnú. Þar hófst starfið á
fyrirlestri um bakverkjameðferð þá sem
staiisfólk sjúkrahússins hefur sérhæft sig
í. Þann fróðlega og skennntilega
fyrirlestur flutti Jósepli Blöndal, læknir.
Eftir að hafa þegið kaffiveitingar
var spítalinn skoðaður. Nylega var haldið
upp á 60 ára afmæli hans og af því
tilefni var sett upp sýning á ýmsm
skennntilegum gömlum munum sem
þarna eru til og var sýningin skoðuð.
Einkar notalegt andrúmsloft er á
þessum spítala og þá sérstaklega í
kapellu þeirra St. Fransiskussystra.
Síðan var haldið í skoðunarferð um
bæinn og bar þá fyrir augu Norska húsið,
sem er hluti af byggðasafni Snæfellinga
og Hnappdæla, en það mun vera elsta
tvílyfta timburíbúðarhús á íslandi. Því
næst var haldið í „Hús andanna", þ.e. til
eins deildarfélaga þar sem boðið var upp
á fordrykk áður en snæddur var kvöld-
verður á hótelinu. Yfir borðuni fóm
félagar með spaugsögur og gamanmál.
Allir vom sammála um að þarna hefði
verið hinn ánægjulegasti dagur enda var
stjórnin sérlega ánægð með mætingu
sem fór fram úr villtustu vonum.
Halldóra Arnardóttir, fonnaður
Vesturlandsdeildar.
Fréttir af hjúkrunarfræðingum
Sendifulltrúar erlendis
1 ársskýrslu Rauða kross islands
1995-96 er að
finna margs
konar for-
vitnilegar
upplýsingar um
starfið heima og
heiman. Það
Björg Pálsdóttir (t.h.) vakti athygli
okkar að sjá þar nöi’n margra hjúkrunar-
fræðinga sem eru að starfa með Rauða
krossinum að margs konar verkefnum
lieima og heiman. Fram kemur að aldrei
hafi sendifulltrúar Rauða kross Islands
verið fleiri en á síðasta staiísári. Flestir
starfa að heilbrigðismálum en frá 1. júlí
1995 voru eftirtaldir hjúkrunarfræðingar
að störfum sem sendifulltrúar:
1 Afríku vom Elísabet Halldórs-
dóttir og Aslaug Arnoldsdóttir.
skurðhjúkmnarfræðingar, að störfum í
Súdan. Björg Pálsdóttir, yfirhjúkr-
unarfræðingur, í Kenía og Hildur
Maguúsdóttir í Sien a Leone.
Maríanna Csillag og Hólmfríður
Garðarsdóttir voru að störfum í
fyrrverandi Júgóslavíu og Sigurbjiirg
Söebecb í
Norður-
Kákasus.
Sigurbjörg
starfaði einnig í
Palestínu og
Valgerður
Gríinsdóttir, skurðhjúkrunarfræðingur,
var að störfum í Pakistan. Um þessar
mundir eru i 1 sendifulltrúar að störfum
og sá 12. fer utan innan skannns.
Stýrir athvarfi fyrir geðfatlaða
Í skýrslunni
er sagt frá
starfsemi Vinjar,
athvarfi fyrir
geðfatlaða, sem
Rauði krossinn
rekur en forstöðukona er Guðbjiirg
Sveinsdóttir, geðhjúkrunarfræðingur.
Upphaflega var Vin rekin til reynslu í
tvö ár en í ljósi aukinnar aðsóknar og
almenns ástands í geðheilbrigðismálum
tók stjórn félagsins þá ákvörðun í
desember 1995 að reka athvarfið áfram
og meta starfsemina á tveggja ára fresti.
Meginmarkmið Vinjar em að:
• Rjúfa félagslega einangmn geðfatlaðra
á höfuðborgarsvæðinu.
• Fyrirbyggja endurinnlagnir á
geðdeildir.
• Skapa umhverfi þar sem gagnkvæm
virðing og traust er ríkjandi og tekið er
tillit til hvers og eins.
Litið er á Vin sem heimili þangað
sem gestir koma á eigin forsendum í
hlýlegt andrúmsloft. Þar njóta þeir
nærveru og stuðnings, veitt er aðstoð og
fræðsla eftir óskum og boðið upp á mat í
hádeginu. þvotta- og baðaðstöðu, aðstöðu
til myndlistariðkunar. Farið er í göngu-
ferðir og ferðalög og margt fleira. Að
mati gesta og starfsfólks hefur tekist
mjög vel með það fyrirkomulag sem
skapast hefur í Vin.
Auk framantaldra hjúkrunarfræð-
inga em að störfum fyrir Rauða krossinn
innanlands þær Sigríður Guðinunds-
dóttir. skrifstofustjóri alþjóðaskrifstolu
og fyrrverandi sendifulltnii lil margra
ára, og Svanhildur Þeiigilsilóttir,
deildarstjóri sem hefur umsjón með
fræðslu í skyndihjálp og íleim.
Herdís og öryggi barna
Herdís Storgaard. hjúkmnar-
fræðingur, er löngu orðin landskunn fyrir
störf sin að öryggismálum barna.
Átakið Oryggi barna — okkar
dbyrgð - sem Rauði kross íslands,
Neytendasamtökin, Umferðanáð,
Foreldrasamtökin og embætti landlæknis
standa að — veitti Herdísi viðurkenningu
ársins 1996 fyrir að starfa af fagmennsku
og sérstökum áhuga og ötulleik að öryggi
barna í umhverfinu. Auk Herdísar hlutu
viðurkenningu Mótorsmiðjan fyrir að
starfa á vel heppnaðan og skipulagðan
hátt að forvarnastörfum fyrir böm og
unglinga og Einar Gunnlaugsson fyrir að
koma á
framfæri vel
útfærðri
hugmynd að
öryggisút-
búnaði fyrir
heita potta.
TlMARIT II.IÚKRUNARFRÆÐINGA 1. tbl. 73. árg. 1997