Litli Bergþór - 01.12.2013, Side 13
Vaskir réttabyggingarmenn í lok ágúst 2013: Ólafur Jónasson Reykholti, Hjalti í
Ásakoti, Helgi Kjartansson Reykholti, Trausti í Austurhlíð, Rúnar á Vatnsleysu,
Smári Þorsteinsson Hábrún, Sævar í Arnarholti, Egill í Hjarðarlandi, Þorsteinn
Þórarinsson Hábrún, Magnús í Austurhlíð, Guðmundur á Vatnsleysu, Brynjar
á Heiði, Loftur í Myrkholti og Egill á Vatnsleysu.
Litli-Bergþór 13
Vorið fór í að taka burt upprunalegu járngrindurnar
og toga upp gömlu sökkulstöplana. Gekk það vel eins
og vænta mátti og var því lokið í júní. Þá tók við biðin
langa eftir nýju grindunum, en þær þurfti að senda
í galvaniseringu að smíði lokinni. Grindurnar voru
smíðaðar hér í Tungunum af listasmiðnum Óskari
í Goðatúni (í landi Reykjavalla) og eru vandaðar að
allri gerð.
Í byrjun ágúst birtust svo grindurnar og stuðið hófst.
Byrjað var af fullum krafti helgina 10. og 11. ágúst.
Mættu hátt í tuttugu manns báða dagana og náðist
að setja upp þriðjunginn af grindunum þessa helgi.
Ákveðið var í framhaldinu að setja upp helminginn af
grindunum áður en sökkulstöplar yrðu steyptir. Allar
holur fyrir þá höfðu áður verið boraðar upp og gengu
nýju grindurnar upp í gamla kerfinu. Í hinum helmingi
réttanna þurfti hins vegar að grafa upp nýjar holur
til að grindurnar gengju upp. Steypuvinna við hvorn
Tungnaréttir
Seinni hluti réttauppbyggingar 2013
Búið að stilla nýju grindunum upp.
Magnús í Austurhlíð og Guðmundur á Vatnsleysu vinna
við réttasmíði á rigningarsumri.
helming tók eina kvöldstund og var vel mætt í bæði
skiptin. Að því loknu var sementssteypuglundri hellt
í uppistöðuprófílana og settur tappi á. Réttirnar voru
nánast fullkláraðar þann 6. september og var þá einnig
búið að skipta um hliðgrindur í safngerðinu en eftir
að setja nýtt hlið í hestagerðið. Var það gert í vikunni
fyrir réttir. Á réttadaginn má segja að allt hafi verið
tilbúið.
Fjáröflun var haldið áfram til að standa straum af
kostnaði við þennan seinni áfanga uppbyggingarinnar.
Diskur með heimildamynd Ólafar Hermannsdóttur,
Þjófadalafjöllin, hefur selst vel og fengið afar góðar
viðtökur. Blásið var til tónleika í október með Ljótu
Hálfvitunum og var vel mætt þó þeir hefðu mátt tala
minna og spila meira að mati sumra tónleikagesta.
Hagyrðingakvöld var haldið í Aratungu þann 8. mars.
Var það vel sótt og okkar góðu gestir, sem þar skemmtu
fyrir ekki neitt, máttu vel una við undirtektirnar. Komu
kvæðamenn að norðan og öttu kappi við snillinga af
Suðurlandi m.a. einn úr Tungunum. Vinir Tungnarétta
endurtóku leikinn frá í fyrra og
héldu ball í ágúst í tengslum við
Tvær úr Tungunum. Ágóðinn af því
rann í sjóð félagsins.
Þegar þetta er ritað liggur
lokauppgjör ekki fyrir en óþarfi
er að vera annað en bjartsýnn á
útkomuna.
Til stendur að vígja nýju réttirnar
við hátíðlega athöfn næsta sumar,
2014.
Oft er sagt að margar hendur
vinni létt verk. Það hefur sannast
við endurbyggingu Tungnarétta, en
einnig má segja að hér hafi samhentur
hópur manna lyft Grettistaki með
góðri aðstoð fjölmargra sem komu
að verkinu á einn eða annan hátt.
F.h. stjórnar Vina Tungnarétta
Sævar í Arnarholti, ritari.