Litli Bergþór - 01.12.2013, Blaðsíða 35
Litli-Bergþór 35
Á síðastliðnu ári hafa ungmenni stundað fjölbreyttar
æfingar á vegum ungmennafélagsins. Eins og oft
áður er það yngsta kynslóðin sem mætir hvað best
og sum börn mæta á allar þær æfingar sem í boði
eru fyrir þeirra aldurshóp. Í ár geta yngstu félagarnir
stundað fimleika, knattspyrnu og körfubolta og svo er
íþróttaskólinn alltaf mjög vinsæll. Hjá þeim eldri er
það knattspyrnan og glíman sem eru best sótt en í ár
buðum við einnig upp á „bland og fjör“ en það eru
íþróttatímar sem einkennast af leikjum og íþróttum að
vali iðkenda og reynum við að koma til móts við óskir
þeirra hverju sinni. Þar hefur badminton verið svolítið
spilað og kannski er að byggjast upp grundvöllur til
að fara að bjóða upp á að iðka badminton reglulega.
Því miður virðist íþróttaáhuginn hafa dalað hjá elstu
krökkunum og í dag eru einungis fimm börn í 8. bekk
sem æfa með félaginu. Þess ber þó að geta að mjög
fjölbreytt íþróttaval er í boði í grunnskólanum sem
nemendur nýta sér vel og má vera að þau fái sína
hreyfiútrás þar.
Í vor var í fyrsta sinn í langan tíma boðið upp á
leikjanámskeið. Var það afar vel sótt og voru börnin
mjög ánægð með námskeiðið í alla staði, þrátt fyrir
að sumarið hafi látið bíða eftir sér. Strax í framhaldinu
var svo boðið upp á sundnámskeið fyrir yngri
kynslóðina og sem fyrr var það Guðbjörg Bjarnadóttir
sundkennari, sem sá um það. Ég hvet foreldra
eindregið til að fara með börnin sín á sundnámskeið,
það skilar sér sannarlega, það er ódýrt að fara í sund
og heilsusamlegt.
Það er gott að sjá að „litli“ þreksalurinn okkar er
ágætlega nýttur en börn hafa ekki haft aðgang að honum
hingað til. Ég vil gjarnan hvetja alla Tungnamenn til
þess að koma í þreksalinn, laugina og í íþróttahúsið
og nýta sér þá aðstöðu sem í boði er. Hver veit nema
styttist í að við fáum stærri þreksal sem getur ef til vill
nýst betur til dæmis í skólaíþróttum.
Verum dugleg að hreyfa okkur í vetur og tökum börnin
með í salinn á laugardögum. Nú er opnunartíminn
orðinn mjög rúmur, eða frá kl. 10 - 18 og ættu allir að
geta fundið stund til að eiga góðan dag í húsinu, Pési
mun taka vel á móti öllum.
Agla Þyri Kristjánsdóttir.
Gleðileg jól
og farsælt komandi ár
upplýsingar og borðApantanir í 486 1110 eða 896 6450
Íþróttadeild
Ungmennafélags
Biskupstungna