Tíminn - 24.12.1948, Blaðsíða 24

Tíminn - 24.12.1948, Blaðsíða 24
24 JÓLABLAÐ TÍMANS 1948 EYÞÓR ERLENDSSDN, HELGASTÖÐUM UNDRAFJALLI Geislar júnisólarinnar flæða yfir landið, svo að fjallahringurinn sveipast fagurblárri móðu. Yfir gervallri náttúr- unni hvílir djúp kyrrð. — Þetta er að aflíðandi hádegi, þriðjudaginn 22. júní (1948). Ég er staddur austanmegin Þjórsár, andspænis Þjórsárholti. Þaöan hafði ég verið fluttur yfir ána. Og nú er hún að baki mér, þessi mikla elfur, skolgrá og ógnandi, en gróðurflákar Landsveitarinnar taka við. Ég er á leið til Heklu, undrafjallsins, sem athygli allra landsins barna hefir beinzt að síð- an eldgos hennar hið síðasta hófst fyrir tæpum fimmtán mánuðum. Því er nú að fullu lokið. Hekla sést ekki þaðan sem ég er, því að Skarösfjall byrgir fyrir allt útsýni til austurs, þótt lágkúrulegt sé. Það er allmikið ummáls og ég verð að leggja talsvert mikla lykkju á leið mína til að komast fyrir suðurenda þess. Undir Skarðsfjalli standa margir bæ- ir, vel hýstir og reisulegir bæir, þar sem íslenzk gestrisni er í hávegum höfð. Við flesta þeirra eru snotrir skrúðgarðar, til mikillar prýði og augnayndis. Þegar fyrir suðurenda fjallsins kemur opnast brátt tilkomu mikið og fagurt sjónarsvið til austurs, með Heklu sjálfa í öndvegi. Það sjónarsvið er mér að vísu ekki ókunnugt, en verkar þó á mig sem töfradrykkur. Framundan mér liggur geysimikil slétta, iðjagræn og fögur. Þessi slétta er meginhluti hinnar blómlegu Land- sveitar. Handan við hana í austri gnæfir Hekla við himinn, myrkblá frá rótum upp fyrir miðjar hlíðar, en með hvítu fannakögri þar fyrir ofan. Er hún tíguleg mjög í þessum búningi og sann- kölluð drottning í riki sínu. — Næsta dag er ætlun mín að ganga á hátind hennar, verði skilyrði til veðurs vegna. Nálega í beinni línu til suðurs frá Heklu eru tvö önnur fagurmynduð jök- ulbákn, Tindafjallajökull og Eyjafjalla- jökull. Auka þeir mjög við glæsileik út- sýnisins á þessum slóöum. Ég held nú förinni áfram og er brátt kominn á bílveginn, sem liggur upp að Galtalæk, en þar hefi ég hugsað mér að gista næstu nótt. Held ég svo eftir veginum rakleitt, að heita má, að und- anskildri skammri viðdvöl á tveimur bæjum, Skarði og Leirubakka. Að Galtalæk kem ég klukkan tæplega sjö. Hitti ég bóndann þar, Sigurjón Páls- son, skammt fyrir vestan bæinn, og fal- ast eftir gistingu hjá honum þá um nóttina, sem var auðsótt mál. Gisti ég þar síðan tvær nætur, við hinar ágæt- ustu móttökur og hjálpsemi af hálfu þeirra Galtalækjarhjóna, Sigurjóns og konu hans, Sigriðar Sveinsdóttur. Ég notaði kvöldið til að slcoða mig um bekki og litast um kringum bæinn. Veð- ur var bjart og kyrrlátt og á slíkum kvöldum er fagurt á Galtalæk. Útsýni þaðan er stórfenglegt og svipfagurt. Umhverfis hið víðáttumikla, grösuga flatlendi, sem þenur sig til suðurs frá bænum svo langt, er séð verður, rísa til- komumikil fjöll á þrjá vegu. Breiðist fjallahringur þessi eins og faðmur móti suðri og minnir hin sérkennilega lögun landsins þegar við fyrstu sýn á breiðan flóa. Enda er af jarðfræðingum talið víst, að í lok ísaldar, fyrir ca. 10 þúsund árum, hafi allt hið víðáttumikla svæði milli fjallanna þarna verið sævi hulið. Þá hafa öldur hafsins farið dansandi yfir þar sem bændabýlin standa nú og brimið svarrað á undirhlíðum fjallanna, hvarvetna um þessar slóðir. En hinir skapandi kraptar náttúrunnar eru vold- ug öfl. Og meðan aldir og árþúsundir Christensen sjálfur sagt, að Alberti kom til hans og bað hann mjög fyrirgefning- ar, og lagði þar mikið við. Og mína fyr- irgefningu fékk hann! sagði Christen- sen. Engan annan mun þessi harðsvír- aði maður hafa beðið fyrirgefningar á neinu. Alberti fékk þunga dóma, sem vonlegt var, því að hann gerði landi sínu og þjóð mikla smán og skaða. En svo var sem oft verður, að margir þeir sem djarf legast vógu að honum föllnum höfðu velt sér í veldi hans og dýrð meðan kost- ur var. Hefði Alberti verið meiri fjár- málamaður en hann var, má vera að hann hefði orðið auðugur maður á svik- um sínum, eins og hann ætlaðist til. Hefði hann í hentugan tíma grætt nokk- ur hundruð þús. sterlingspund, þá hefði hann getað fylgt I. C. Christensen allan valdaferil hans, áfallalaust fyrir báða, og fengið eigi lakara eftirmæli, aðeins með öðrum hætti, af því að mennirnir voru ólíkir. Enginn hefði þá vitað um innræti hans og syndasekt. Margir ágætustu menn Dana hafa skrifað um mál hans eftir hans dag og eitthvað á þessa leið: Það gerði minnst um þessar miljónir, og smánin út á við fyrnist — allt þetta má fyrirgefa. En það er eitt sem brennur í blóði okkar meðan við lifum og engin afplánun og engin fyrirgefning nær til: Það var að vita svo víst um hyldýpi spillingarinnar kringum þennan mann, vita svik hans og fals, en geta ekkert að gert, sjá hann hrokast fyrir augum vorum, hælast um í svívirðingunni, storka öllu réttlæti og allri dygð. Svo hörmulegt var að sjá slík- an mann safna að sér aðdáendum og fylgi og trúnaðartrausti góðra manna, að það bæti svipt mann allri getu til að vilja vel og gera vel. „Að sjá spillta menn og vera ekki fær um að vikja þeim úr embætti, þetta er þjáning og mikil smán“ — segir Kon- fúsíus, spámaður Kínverja. Sagan um Alberti er sem dæmisaga um það sem yfir gengur margt þjóðfélag og marga stétt og margan tíma — og jafnan kann að gerast í meira mæli eða minna fyrir augum vorum. Þar er lær- dómur þessarar reyfarasögu — sem reyndist sönn, þegar silkislæðunum var á burtu kippt. hann kominn? Líklega hálfnaður með leiðina sem Hákon fór. Vetrarvegurinn lá eftir ánni á löngum köflum. Og vakir voru margar. Það var ekki gott að sjá þær, þar sem snjór var allmikill. En svo kom Lars til hugar, að hríðin hefði brostið á áður en Hákon hefði lagt af stað frá selinu. En það var ótrúlegt. Lars nam staðar og lýsti umhverfis sig með ljós- kerinu. En hann sá ekkert. Svo sá hann eitthvað svart í snjónum framundan og staðnæmdist. Þetta hreyfðist. „Hákon!“ kallaði Lars. „Ertu þarna?“ Lars var spenntur. Ný von kviknaði í brjósti hans. Þá heyrði hann rödd. Hann þekkti að það var rödd Hákonar. Hákon nálgaðist, en mjög hægt. Hann hafði ekki skíði, en kafaði ófærðina. Var hann kominn að niðurfalli af þreytu. Skrefin, sem hann tók, voru ekki löng. Hann hneig niður annað slagið og hvíldi sig. Skór og sokkar voru gaddfreðnir. Þannig hafði Hákon staulast langan tíma. Það var blóðbragð í munni hans. Hann var dauðþreyttur. Lars tók Hákon á bakið. Þeir töluðu lítið saman. Þó sagði Hákon honum hver hefðu orðið afdrif hestsins. Hann fór í vök. Hákon hafði orðið blautur, en sloppið við að drukkna. Kvöldið var langt á Björk að þessu sinni. Bóndinn fór út við og við, og fólkið horfði út um gluggana. Út og inn. Inn og út. Hlusta, horfa, vona. En ekkert heyrðist annað en hvinurinn í storminum. Hríðin hafði völdin þetta kvöld, og hún minnti á dauðann. Tíminn leið. Og því lengra sem leið, þess vissari þóttust allir um, að óhamingja hefði dunið yfir. Angistin hertók fólkið. Hver vindhviða var eins og járnhönd gripi um hjartað. Svo heyrðist hark við útidyrnar. Var það vindurinn eða....? Bóndinn var á leið til dyra þegar hurðinni var hrundið upp og Lars reikaði inn, hvítur eins og hann væri úr eintómum snjó. Hann hneig niður á gólfið — svo örþreyttur var hann. Nú sáu menn að hann var ekki einn. Á baki hans var Hákon. Þá létti yfir öllum. Og fólkið sagði: „Guði sé lof.“ Vorið var að koma. Jörðin fór að anga. í Bjarkar- hlíðinni heyrðist að eitthvað var haft fyrir stafni. Lars var að smíða bæinn sinn. Hann hafði eignast landspilduna. Hákon hafði fengið lungnabólgu og legið nokkrar vikur, en var orðinn alheill fyrir löngu. Dag nokkurn hafði Bjarkarbóndinn gert orð fyrír Lars. Hann mælti: l „Þú hefir bjargað lífi einkasonar míns, og ég er í mikilli þakklætisskuld viðjrig eins og gefur að skilja. Og nú skaltu fá Bjarkarhlíðarspilduna án endur- gjalds. Ég treysti engum betur, en þér og Marit til þess að reisa nýbýli. Hest geturðu fengið lánaðan hjá mér þar til þú eignast hest. Ég er þá illa svikinn ef þess verður langt að bíða.“ Hann klappaöi Lars á öxlina. Lars gleymdi aldrei þessum degi. Þetta var eins og í ævintýri. Svo gott að það var ótrúlegt. Nú gátu þau Marit hafist handa á meðan fjörið ólgaði í æðum. Þegar Lars sagði unnustunni þessar fréttir tár- felldi hún af gleði. Hún mælti: „Það fór vel eins og ég vonaði. Ég var svo hrædd um að missa þig frá mér.“ Lars lagði mikið að sér fram eftir sumrinu. Hann gróf kjallara, sprengdi grjót og undirbjó ræktun. Hann vann langt fram á kvöld, og verkjaði í bakið. En hann gerði allt með glöðu geði. Stundum kom Marit tli hans, og þá hresstist Lars mjög. Þau sátu þá og horfðu á litla akurinn, sem hann hafði búið til, og annað það er hann var búinn að gera. Þarna var bjarkarilmur og fuglasöngur, þarna var indælt að dvelja. Fólk, sem átti leið þama um, sagði: „En hve hér verður geðugt að eiga heima. Og hversu imgu kærustupörin eru sæl."

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.