Tíminn - 24.12.1948, Blaðsíða 27
J Ó LAB LAÐ T í MAN S 1948
27
eftir prestinum. En hann hafði aðra skoðun á því máli.
Hann sagði, að helmingurinn af því, sem presturinn segði,
væri eitthvað, sem hann hefði lært af bókum, og það
væri gagnslaust fyrir sig, að hlýða á það. En það, sem
Hrólfur i Haga, ef til vill fengist til að segja í þessu
vandamáli, væru hans eigin skoðanir og árangur af eig-
in reynslu.
Hrólfur í Haga kom gangandi heim túnið síðar um
daginn. Hann var í stormtreyju og með buxurnar brotn-
ar niður í sokkana. Hann gekk álútur og fór sér hægt.
Það var eins og hann liti ekkert í kring um sig, en væri
þungt hugsandi.
Solveig tók vingjarnlega á móti Hrólfi. Hann tók
kveðju hennar hlýlega. Því næst var honum fylgt til
baðstofu.
Eftir að hafa heilsað Sigurði bónda, tyllti hann sér
á rúmstokkinn. Því næst sagði hann hægt og hlýlega:
„Örlagavöldin hafa sent þér stranga lexíu vinur minn.
Ég finn til með þér af hlýjum huga.“
„Já, mér hafa fundist þessir dagar verið strangir.“
„Það get ég vel skilið. En hvað finnst þér erfiðast?“
„Ég sendi eftir þér, af því að ég treysti þér til að
skýra mér í einlægni frá skoðun þinni á því, hvers
vegna þú álítur, að drengurinn minn sé tekinn frá mér,
og um leið öll gleði yfir lífinu. Mér finnst það svo misk-
unnarlaust að taka Jökul minn frá mér.“
„Verið getur að ég hafi mínar eigin skoðanir á því
máli, en ég tel vafasamt, að það komi þér að nokkru
liði, þótt ég segði þér þær, því að þær eru sprottnar af
reynslu minni, en ekki aðfengnar frá öðrum.“
„Þetta veit ég. Þess vegna sendi ég eftir þér. Þú átt
að vera sálusorgari minn í dag. Þess vegna vona ég,
að þú viljir opna huga þinn og segja mér skoðanir
þínar.“
„Aldrei hefir mér nú komið það í hug, að leitað yrði
til mín í þessu efni. En nú skal ég verða við ósk þinni
og opna hug minn fyrir þér, og segja þér skoðanir min-
ar á þessum og svipuðum atvikum daglegs lífs. En fyrst
verð ég þá að segja þér ofurlítinn kafla úr ævisögu
minni.
Ég er Vestfirðingur að ætt, fæddur þar og uppalinn.
Þegar ég varð fulltíða maður felldi ég hug til bónda-
dóttur þar í dalnum. Hún hafði flesta þá kosti, sem
konu má prýöa. Kún var fögur og myndarleg álitum,
gáfuð og hjartahlý. Ég var svo lánsamur, að henni
geðjaðist vel að mér líka, og við kunngerðum hjúskap-
arheit okkar að haustlagi. Ég átti þá talsverðan bú-
stofn, og ætluðum við að halda brúðkaup okkar um
vorið og hefja búskap.
Á sæludögum tilhugalífsins, fannst mér stundum þessi
gæfa mín vera óverðskulduð og gæti ekki varað lengi.
Mér fannst ég ekki verður þess að njóta ástar jafn
yndislegrar stúlku. Og einhver geigur var i mér um, að
ég mundi ekki njóta hennar lengi.
Um veturinn veiktist hún hættulega. Þaö var hvíti
dauðinn, sem hér var á ferðinni. Sumarið eftir dó hún.
Eftir lát hennar lá við að ég yrði sturlaður. Ég fór
einförum og var ekki mönnum sinnandi. Ég sökkti mér
niður í sorg og söknuð og fannst líf mitt eyðilagt og
sá hvergi bjartan blett.
Þá var það sem hjálpin kom. Hún kom á einkenni-
legan hátt. Og nú segi ég þér leyndarmál, sem ég hefi
engum sagt áður.
Mig dreymdi stúlkuna mína allar nætur fyrst eftir
að ég missti hana, og var það ekki undarlegt, þar sem
hugurinn snerist allur um hana á daginn. En svo fór
ég að finna nálægð hennar á daginn líka. Stundum
fann ég, að hún studdi hönd á öxlina á mér eða klapp-
aði mér þýðlega á kinnina eins og hún var vön aö.gera.
Fyrst hélt ég að þetta væri hugarburður. En þegar þetta
endurtók sig og ég íann hin mildu, friðandi áhrif, sem
fylgdú þessú stundum, þá sannfærðist ég um, að þess-
ar stnndir væri stúlkan mín hjá mér. Og svo kom
skyggnin og ég fór að sjá hana. Þessi reynsla mín dró
sárasta broddmn úr söknuðinum, og ég fór að ná mér
á ný og sinna störfum mínum.
Þessi áhrif fylgja mér enn. Og á þessum stundum
hefi ég öðlast skýringu á því, hvers vegna ástvina-
missir er oft nauðsynlegur, til að opna augu manna
fyrir hinu eilífa lífi.
Skýring mín er þessi: Þegar barn fæðist, tekur sér
bústað í líkama þess ódauðleg sál, sem hefir lifað áður.
Hún á ef til vill langa sögu að baki. En barnið fæðist
þess og bærinn riðar, svo að nærri ligg-
ur, að hann hrynji til grunna. En þetta
er aðeins forboði þeirra geigvænlegu við-
burða, sem nú eru að hefjast. Öllum
verður litið til Heklu, því að menn
grunar að af hennar völdum muni þetta
stafa. Og sjá! Upp af toppi hennar rís
ægilegur mökkur, er geysist með ofsa
hraða upp í liiminhvolfið og breiðist
þar ,/át, á . syip^undu... Pliminninp for-
myrk'.ast og á skömmum tíma leggst
niðamyrkur yfir Heklu og umhverfi
hennar. Næfurholtsbærinn hverfur i
það mikla myrkur, eins og dropi í haíið.
— Gnýrinn frá Heklu er nú orðinn aö
ógurlegum dunum og brestum, eins og
fjallið sé að molast í sundui'. Vikri
rignir niður og í sífellu þjóta leiftrandi
eldingar gegnum myrlcan geyminn, boð-
andi ógnir og tortímingu.
Sunnanvindurinn færist nú skyndi-
lega í aukana og hinn ferlegi voðamökk-
ur, sem brýzt án afláts upp úr eldfjall-
inu, sveigir til norðvcsturs. Landsveit-
inni er borgið frá yfirvofandi eyðingu.
•— En yfir byggðir og óbyggðir norðurs-
ins geysist gosmökkurinn, með dauðann
sjálfan fyrir förunaut.
Hér lýkur þessari furðusýn. Sjónar-
svið ímyndunaraflsins lokast og húsa-
rústirnar á Næfurholtstúninu blasa við
mér á ný, hjúpaðar huliðsblæju eilífrar
þagnar. Hugmyndaflug og staðreyndir
höfðu runnið hér saman í eitt, svo að
þar kann ég naumast nokkur skil á.
í fornum annálum er vitneskjan um
gos þetta geymd, sem hófst í júlímán-
uði árið 1300, og er talið eitt hið ógur-
legasta Heklugos, er sögur fara af. — Og
annálarnir greina frá mörgum öðrum
geigvænlegum Heklugosum frá liðnum
öldum, auk þess sem rúnaletur jarö-
laganna ber þeim vitni. Hékla hefir ver-
ið athafnasöm í meira lagi. Saga henn-
ar er saga stórfelldra náttúruafla, sem
skapa og tortíma í senn. Öld eftir öld
hefir hún ógnað byggðum þessa lands
með kynjamætti sínum. Hvert eldgosið
öðru ægilegra hefir brotizt upp úr iðr-
um hennar. Og einmitt fyrir áhrif þess-
ara kynjaafla er Hekla sjálf orðin til.
Á óralöngum tíma hefir hún smám
saman myndazt úr gosefnum þeim, sem
gígir hennar hafa spúð. Þannig er saga
Heklu, og þannig er saga landsins, sem
heild, ein órofin keðja stórkostlegra við-
burða af völdum geigvænlegra náttúru-
afla, sem hafa herjað á íslenzku þjóðina
frá fyrstu tíð.
Út frá þessum hugleiðingum labba ég
enn af staö og held nú niður að Rangá,
þangaö, sem ég óð yfir hana um morg-
uninn. Vatnið í henni er jafn nístandi
kalt og áður, þrátt fyrir hlýindi og yl
sólarlj óssins þá um daginn. Þegar yfir
ána kemur held ég beinustu leið að
Galtalæk.
Á túninu austan við bæinn staldra
ég við og litast um. Við austur gnæfir
Hekla, sveipuð grárri þoku ofan til. Á-
sýnd hennar er leyndardó.msfull. í
þokuhjúpnum leynist tindurinn, sem ég
hafði ætlað mér að klífa og njóta út-
sýnis af. Að þessu sinni átti ég ekki því
láni að fagna. En í fylgsnum hugans
vakir þrálát von um að einhverntíma
síðar muni sú hugmynd verða að veru-
leika.
Falleg orð.
Blað eitt í Daiirnörku spurðist fvrir meðal kvcnna
hvaða 20 orð væru fallegust að þeirra smekk og
clómi. Ekki varð þetla þó aiineim skoðauakönnun,
en niðurstaðan er þessi:
Ileilsa, hlátur, heima, ást, sólskin, barn, vinátta,
brúðkaup, heppni, peningar, elska, jafnvægi, Dan-
mörk, bros, frelsi, himinn, tunglsskin, öryggi, dans
og friður.
Noldcur uggur kom fram í blaðinu um það, að
síðasta orðið væri stundum haít með til uppfyll-
ingar aðeins.
Innst við hjarta ce ég geymi
undraljósið milda, sterka,
dís í mínum draumaheimi,
drottning minna hversdagsverka.
Ungri sál er dátt að dreyma,
dvelur þrá við óskalöndin,
blessun lifs við bœinn lieima
bíður þess að vinni höndin.
Þar á að gera varnarvígi
vonum þeim, er lífið fegra,
svo það verði stig af stigi
stöðugt betra og yndislegra.
Það er draumur þúsund ára,
þráin djúya og yndisbjarta,
brunnur sælu og sorgartára,
sólargeisli mannlegs hjarta.
Þeir, sem slíkum vonum vígja
vilja sinn og innstu hneigðir
fyrir betri framtíð drýgja
flestar dáðir, slitnir, beygðir.
Þegar atvik ýmiskonar
œgifarg á brjóstið leggja,
mildur bjarmi vœnstu vonar
verður til að styrkja og eggja.
Þó að nísti voðavetur
veitist skjól í heljargjósti
þeim, sem lifa látið getur
loga þann í sjálfs sin brjósti.
Ég á óskir öllum kunnar,
eins og grúi hversdagsmanna,
einn af sonum alþýðunnar,
einn í röðum þúsundanna.
Óska ég mér að mega vinna,
musteri lifs míns byggja i friði,
samfélagsins iðgjöld inna
ásamt minu skyldulíði.
Þótt ég leiti langt og viða
lifi ég bundinn kjörum hinna,
fyrir alla ég á að líða
eins og þúsund brœðra minna.
Aðrir mína gæfu gera,
gleði mín er fórnir hinna,
þeirra er dagsins þunga bera,
þola mest og dyggast vinna.
Sjá ég vildi yfirunnar
orsakir, sem farsœld banna,
oJckur, sonum alþýðunnar,
okkur, grúa hversdagsmanna.
Komdu hér að hlið mér kœra,
hlutverk mitt er athöfn dagsins,
rök og efndir fram skal fœra
fyrir liugsjón brœðralagsins.
Komdu og vef mig vonum þínum,
vektu og glœddu hugsun djarfa,
vertu dís í draumum mínum,
drottning minna beztu starfa.
Með þér vinna vildi ég mega,
vonum þínum maður reynast,
gœfu fjölaans í svo eiga
einhvern þátt við skilin seinast.
Draumsjón heilög laðar, lokkar,
Jausn og gœfa þúsundanna,
vakir yfir vonum okkar
verndarandi þjáðra manna.