Tíminn - 24.12.1957, Blaðsíða 15

Tíminn - 24.12.1957, Blaðsíða 15
★ JDLABLAÐ' TÍMANS 1957 * 15 Ástríðarkveðjan þar í landi. Og það vakti almennan fögnuö, þeg- ar litla döttir hennar löngu siðar heilsaði með Ástríðarkveðjunni. Tiunda nóvember fór fram kirkju brúðkaup þeirra Ástríðar og Leó- polds, sex dögum eftir borgaralega vigslu þeirra i Stokkhólmi. Brúð- urin var klædd glitofnum kjól, brúðarslæða hennar var tíu metra löng og borin uppi af fjórum, hvít- klæddum hirösveinum. Brúðkaups- dagurinn var gerður að þjóðlegum hátíðisdegi með blórnum og fán- um skrýddri höíuðborg, brúðhjón- in sýndu sig i opnum vagni og á svölum og voru hyllt af þjóðinni, sem virtist einhuga fagna þeim, og alveg sérstaklega sýndi hinni ungu brúði kærleika sinn. í nokkrar vikur fengu þau frið til að njóta hveitibrauðsdaganna í sumarhöll sinni í Ardenna fjöllun- um, síðan tóku við opinberar skyld- ur. Ástríður var kornung, þegar hún hækkaði upp í þá tign að verða krónprinsessa Belgíu með öllum þeim skyldum, sem slikri stöðu fylgdu. Foreldrum hennar og henni sjálfri, ef til vill einnig, var það umhugsunarefni, hvort hún yröi þeim vanda vaxin. Þó að hún væri af konunglegu bergi brotin hafði hún að mörgu leyti fengiö alþýð- legt uppeldi. Fööurfrændur henn- ar höfðu sýnt að þeir kusu skap- andi störf fremur en höfðinglega lifnaðarháttu. Eugen prins, föður- bróðir hennar gerðist listmálari, annar frændi hennar, Vilhelm prins, stundaöi ritstörf, faðir henn ar skrifaði bók er hann nefndi: Ég minnist. Hann var foringi í Sænska hernum, afburða vinsæll, og gekk undir gælunafninu blái prinsinn, hann starfaði mikið að líknarmálum og var lengi i stjórn Rauða krossins sænska. Yngri frændur hennar hafa hver af öðr- um afsalað sér ríkiserfðaréttind- um til þess aö geta gengið að eiga stúlkur af borgaralegum ættum og taka síðan að sér ýms borgara- leg störf. Sjálf hafði Ástríður sýnt það ótvirætt á uppvaxtarárum sínum, að hún kaus sér helzt að ganga að einföldum störfum, hafði nautn af erfiði og undi bezt ó- brotnu lifi. Nú átti hún að lifa dag hvern eins og konungselskandi þjóð kaus brúði rikiserfingjans, hina væntanlegu drottningu. Og ekki aðeins augu þjóðarinnar, held- ur einnig augu heimsins myndu vaka yfir framgöngu hennar og hversu vel henni tækist að sam- eina tign og Ijúflyndi. Að henni tókst þetta svo fágætlega vel átti sér margar orsakir, fyrst og fremst var það að þakka æskuþokka henn ar og hjartanlegu viðmóti, ást hennar á manni sínum, sem hún kunni ekki að leyna, en einnig átti hún nokkuö því að þakka, hví- likur ævintýrabragur var yfir komu hennar til Belgíu, Snæprins- essunnar frá Norðri, sem kom sigl- andi á hvítu skipi og var klædd hvítri flauelskápu með hvítrefs- skinni og hafði hvítan hatt með gimsteinaspennu. Hún lífgaði upp og vermdi, það var bjart og hlýtt í návist henn- ar, hún var hin rétta kona fyrir Leópold ríkisarfa og foreldrar hans elskuðu hana, sem sitt eigið fcarn. Ungu krónprinsessunni óx öryggi, þegar hún fann að henni var hvarvetna svo vel fagnað. Hún LEIKIR OG ÞRAUTIR VERÐLAUNAGETRA5JN Hvað á telpan margar krónur í spari- sjóðsbókinni sinni? Getur þú korr.iit tnn tii drengsins? Helmili Aldur Það er verið að úthluta jólagjöfum í skóginum. Sjö dýr horfa ánægð á það sem verið er aö taka upp handa þeim. Viljið þið nú ekki reyna að finna þau og segja okkúr hvað þau heita. Merkið við þau á myndinni og sendið blaðinu fyrir 20. jan- úar, merkt TÍMINN, Edduhúsi, Reykjavík. Ver.ðlaun eru sex og eru þsð bækur frá bókaútgáfunni Leiftri. Munið að skrifa greinilega nafn, heimilisfang og aldur. Nafn Laosnir á síðu 37 Nýja árið kemur þjótandi, en ef þið leitið vel, getiö þið fundið gamla árið felum. Getur þú hjálpað stúlkunni út úr hringn- um? Reynið athyglisgáfuna Finnið á næstu 5 mínútum í hvaða átta atriðum myndirnar eru frábrugðnar. Svar er á öörum stað í blaðinu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.