Tíminn - 24.12.1957, Blaðsíða 16

Tíminn - 24.12.1957, Blaðsíða 16
16 ★ JÓLAQLAÐ TÍMANS 1957 ★ HvaS eru pabb. ^ ..........na aö geraí — Þau eru að utaa ar og jólatréS. Lltlu stúlkurnar horta spenntar gegnum skráargatið á stofuhurSlnnl. var tign sinni fyllilega vaxin, enda þótt hún væri að upplagi hneigð- ari fyrir einfaldara og óbrotnara líf. Prjálslegt og eðlilegt viðmót hennar gerði það að verkum að öllum leið vel í návist hennar. Og belgíska fólkinu fannst, að ein- mitt svona vildi það hafa konu ríkisarfans, hina væntanlegu drofctningu sína. Krónprinshj ónin, ferðuðust um land sitt þvert og endilangt, því að öll belgíska þjóðin óskaði eftir að sjá og kynnast Snæprinsessunni frá Norðri. Þar á eftir ferðuðust þau til Ceylon, Singapor, Java, Bali, Borneo og Nýju Guineu. Nokkrum árum síðar voru þau um þriggja mánaða skeið i opinberri heimsókn í Belgísku Kongó. Þau voru. á þessum ferðalögum að kynna sér ríkið, sem þau áttu aö erfa, kjör væntanlegra þegna sinni. Ef Ástríður varð vör við bág- indt spurði hún ávallt: Hvað er hægt að gera?“ Sjálf lagði hún sig í líma til að finna ráð til úr- bóta. Hún byrjaði fljótlega eftir að hún kom til Belgíu að vinna að ýmiskonar hjálparstarfsemi og vann því nær stöðugt að fjársöfn- un til þess að bæta úr skorti og vandræöum. Krónprinshjónin belgisku bjuggu í yndislegri hvítri höll, skammt frá Brussel, hún líktist meira vinaleg- um herragarði en konunglegum bú- stað. og þarna sköpuðu þau sér indælt heimili eftir sinu eigin höfði. Þar var komið fyrir gyllt- um flosklæddum húsgögnum, eem áður höfðu verið á bernskuheimili Ástríðar, og þar voru húsgögn með ísaumuðu áklæði eftir móður henn ar, sem var víkingur dugleg við hannyrðir og lét sig ekki muna um að sauma út í heilar húsgagnasam- stæður fyrir dætur sínar. í skrif- stofu krónprinsessunnar voru einkalegustu kjörgripir hennar og myndir af ástvinum hennar, og þar safc hún á lágum, baklausum bekk við arininn, begar hún las sendibréf sín og blöð, en á arinhyll- unni rétt fyrir ofan sæti hennar var mynd af manni hennar í skrautlegum einkennisbúningi. Um alia höllina voru blóm og um- hverfis höllina blómagárður, sem krónprinsinn hafði sjálfur skipu- lagt, og þar höfð'u þau gróðurhús, þar sem þau ræktuðu vínþrúgur og önnur gómsæt, suðræn aldini. Bömin þeirra fengu lika lítið hús FQRSÍÐUMYND ForsfSumyndln: Hollgrímskirkja í Saur- b*. (Ljósm.: Guðni Þórðarson). í garðinum með leikvangi í kring- um eins og Ástríður hafði átt með systkinum sínum, þegar hún var lítil heima í Friðheim. Ástríður og Leópold eignuðust þrjú börn, Josephine-Charlotte, Baudouin, sem nú er konungur í Belgíu, og Albert. Ástríður var und- ursæl með börn sín og svo hreykin af þeim, að hún gat ekki við bað ráðið að varpa .iöulega fram bess- um spurningum: „Ó, eru þau ekki indæl? Eigum við ekki yndisleg börn?“ Um manninn sinn sagði hún: „Á ég ekki undursamlegan mann? Ó, horfðu nú vel á hann, svo að þú sjáir, hvað hann er dásamleg- ur.“ Þó að krónprinshjónin nytu heimilislífsins í ríkum mæli reyndu þau þó alltaf að eiga sér öðru hvoru stundir, sem þau væru aðeins tvö ein, þá fóru þau oft til fjalla, eða reru til fiskjar, og Ástríður matbjó þá stundum veið- ina, þegar heim kom, þangað sem þau létu fyrirberast. Þau áttu svo vel saman að öllu leyti og bæði undu þau óbrotnu lífi bezt, en tóku þó allar þær skyldur, er tign- arstöðu þeirra fylgdu með fullri alvöru og ábyrgðartilfinningu og áunnu sér hylli allrar belgísku þjóð arinnar með glæsibrag sínum, sam- vizkusemi og góðvild. Glæsibragur þeirra, ást þeirra og hamingja var hróður þegnanna, litlu börnin þeirra gleði og yndi þjóðarinnar. Það fyrirfundust varla mörg heim- ili í Belgíu á þeim árum, sem ekki höfðu uppi við myndir af Ástriði og börnum hennar. Á sumrin fór Ástríöur heim ■ til Svíþjóðar og var nokkrar vikur í Friðheim, sem var eftirlætisstað- ur fjölskyldu hennar. Þar skrif- aði faöir hénnar bók sína: Eg minnist, sem hann lauk með þess- um oröum: „Þess er óskandi, að sú stund sé ekki fjarri, þegar menn irnir hafa öðlast þau hyggindi, ó- sýngirni og sjálfstjórn, sem þarf til að skapa varanlegan frið, ekki einungis þjóða í millum, heldur einnig innbyrðis meðal þjóða, tími er til þess kominn.“ Leópold krónpríns fór einnig til Friöheim á sumrin, en var þar skemur en fjölskylda hans, mikil ríkisstjórnarstörf hvíldu þá þeg- ar á herðum hans og hann var skyldurækinn maður. Faðir hans, Albert konungur, fórst af slysförum 18. febrúar 1934, fáum dögum síðar kom Leópold til valda. Krýnmg fer ekki fram í Belgíu, en konungurinn sver þjóð sinni hollustueið. „Ég sver að fylgja sMómarskrá og lögum belgísku þjóðarinnar, að viðhalda sjálfstæði þjóðarinnar og vernda landamæri hennar." Þannig sór hann þá og hann bætti við: „Drottningin mun af öllu hjarta styrkja mig til aö upp- fylla skyldur mínar. Við munum ala börn okkar upp í áft til föður- landsins “ Þrátt fyrir sorgina yfir hinu svip lega og átakanlega fráfalli Alberts konungs var ungu konungshjónun- um innilega fagnað og Ástríður varð ógleymanleg, þegar hún fyrst var hyllt sem drottning. Fögur og tignarleg steig hún fram í sorgar- klæðum með síða, svar’a höfuð- blæju, en börnin sín hvítklædd fyrir framan sig. Baudouin krón- prins á fjóröa ári og Josepine- Chaiiotte á sjöunda ári. Albert fæddist nokkrum mánuðum siðar. Elísabet, ekkjudrottningin, varö svo buguð af sorg við fráfall manns síns að hún dró sig alveg í hlé, og unga drottningin varð því að taka á sig allar þær skyldur, sem stöðu hennar fylgdu jafnskjótt og hún haföi nokkurnveginn náð sér eftir fæðingu Alberts litla. Hún tók þetta ekki sem yfirborðsskyldur, sem hún í sýndarskyni gegndi, held ur gerði sér mikið far um að kynna sér hagi fólksins og finna ráð til úrbóta, þar sem hún sá að atvinnuleysi, skortur og sjúkdóm- ar suríu að. Það var ekki óvenju- legfc dagsverk, að Ástríður drottn- ing heimsækti um þrjátíu fjölskyld ur til þess að sjá með eigin aug- um við hvaða kjör fátæka fólkið byggi, og allsstaöar flutti hún með sér sólskin, gleði og von, af henni væntu sér allir góðs, og auk þess var þaö út af fyrir sig mikil ánægja bara það eitt að sjá hana og tala við hana, hún var svo mannlega hlý og auðveld til viðræðu, og þó um leið eins og fólkið hugsaði sér drottningu bezta, svo landsmóður- lega umhyggjusöm og umhjúpandi hvert barn, sem á vegi hennar varð, með sinum óvenjulegu barngæðum og áhuga fyrir hverju einstöku barni. Á heimili nokkru, sem ákveöið var að drottningin heimsækti var henni sagt, að börnin væru átta, faðirinn atvinnulaus og heimilis- ástæðurnar því mjög bágar, drottn ingin hafði í hyggju að hjálpa þessu fólki, svo að það þyrfti ekki að líða skort. Þegar hún hafði tal- að urn stund við móðurina sagði hún, að hvernig sem hún færi að teldust sér ekki fleiri en sex börn. „Tvö yngstu börnin mín eru uppi á lofti, til þess að komast þangað verður maður aö feta sig upp eftir þessúm slæma stiga.“ (Framh. á bls. 35.) Kalli fékk sög og myndavél í jólagjöf. Herra og frú Hansen kaupa jólagjafir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.