Tíminn - 24.12.1957, Blaðsíða 31
★ JÖLABLAÐ TÍMANS 1957 ★
31
Gróðurinn breytist
Framhald af síðu 18.
aðarmálastjóri, mikill trjáræktar-
frömuður. Margir einstaklingar
hafa einnig flutt inn þlöntur fyrr
og síðar, og svö auðvitað tilrauna-
stöðvarnar, skógræktin, sandgræðsl
an, garðyrkjufélagið, Atvinnudeild
Háskólans, garðyrkjustöðvar ýms-
ar, Garðyrkjuskólinn o. fl. aðilar.
Hver er svo árangurinn? Hann er
m.a. sá, að innfluttar blómjurtir
eru þegar orðnar mun fleiri en villi-
gróður landsins. Villtar blómjurtir
og byrkningar eru nú taldar tæpt
hálft fimmta hundrað á íslandi, að
meðtöldum ýmsum slæðingum sem
eru í landinu. En influttar trjá-
tegundir, runnar og garöa-skraut-
jurtir eru á sjötta hundrað.
(„Garðagróður"). AUar matfurtir,
sem ræktaðar eru í görðum og
gróðurhúsum hér á landi eru út-
lendar að uppruna (líkiega yfir
80 tegundir, sem reyndar hafa ver-
ið, en ekki getur nema helmingur
þeirra talist all-algengur). Svo eru
fóðurgrösin. Af 44 tegundum ís-
lenzkra grasa teljast aðeins fjór-
ar grastegundir algengar í ræktun.
Nokkrar eru beitarjurtir. Hafa ver-
ið reyndar hér margar erlendar
grastegundir og ennfremur smári
og fóðurflækjur o.fl. belgjurtir. Af
útlendu g r a s t e g u n cVun u m eru
a.m.k. 4 algengar í túnrræktinni.
Öll gróðurhúsabiómm og stofublóm
in eru erlend að uppruna, líklega
meir en 200 tegundir, auk fjölda
afbrigða. Ennfremur korntegund-
irnar. Munu vera rœktaðar á
íslandi úti og inni eitthvað um
þúsund tegundir (lauslega áætlað).
Er það geysi mikið í hlutfalli við
innlenda gróðurinn. Flestar eru
plönturnar fluttar inn frá norðan-
verðri Evrópu og Mið-Evrópu. En
einnig frá Alaska, Klettafjöllum og
víðar, jafnvel Himalajafjöllum,
austan frá Rússlandi, Síberíu, Jap-
an og Kína, sunnan frá Eidlandi,
Miðjarðarhafslöndum o.s.frv. og
innijurtirnar að kalla frá flestum
löndum heims. Stöðugt er flutt inn
og samt eru „mikil lönd“ ennþá
ónumin í þeim efnum. Er nú miklu
hægara en áður að ná til afskekktra
staða og fá þaöan fræ og plöntur
og sjálfsagt að nota tækifærið. —
Þekking á vaxtarskilyrðum og út-
breiðslu plantna hefur líka aukizt
mjög mikið, svo að nú er hægara
að velja og hafna en fyrr, og hægt
að starfa og leita skipulegar að
plöntum sem liklegt má telja að
geti þrifist við íslenzkt veðurfar og
jarðvegsskilyrði.
Grasgarðar — viðskipti.
Nú er m. a. talaö um aukinn inn-
flutning frá N-Noiægi, Alaska og
ýmsum útskögum cg fjall-lendum
þar sem veðurfarið er ekki ósvip-
að og hér. Hákon Bjarnason, skóg-
ræktarstjóri hefur látið safna miklu
af trjáfræi í Alaska, einkum fræi
sitkagrenis o. fl. barrtrjáa og flutt
inn Alaskaösp og nokkra runna og
fjölærar jurtir t.d. Alaskalúpinur
og melgresistegund. Hefur Hákon
ixnnið mikið að því að gera sarnan-
burð á loftslagi ýmissa staða og
loftslagi íslands, og notað þær
skýrslur til glöggvunar við innflutn
inginn, þ.e. hvert helzt væri að
leita til að fá plöntur sem líklegt
er að geti þrifist hér. Gróðurríki
margra norðlægra landa hefur ver-
ið mikið rannsakað á síðustu ára-
tugum og nú er ólíkt hægara um
vik að gera samanburð og áætlanir
um hagnýtan innflutning gróðurs
heldur en unnt var á dögum Einars
Helgasonar og samtíðarmanna
hans. Búnaðardeild Atvinnudeildar
Háskólans (Sturla Friðriksson),
hefur hin síðari ár flutt inn mikið
af grastegundum, matjurtum o.fl.
til reynslu, frá ýmsum löndum.
Sturla ferðaðist einnig til Eldlands
fyrir fáum árum og flutti þaðan
allmargar trjátegundir, runna og
jurtir sem afhent var Skógrækt rík
isins, er hefur einkaleyfi á trjám
og runnum. Eru Atvinnudeildin
og Skógræktin helztu plönt-uinn-
flutningsaðilar nú, hvað snertir
trjágróður, matjurtir, fóður- og
beitar j urtir.
Verkefnið er óþrjótandi. Auk teg-
unda eru til ógrynni afbrigða, sem
þarf aö reyna. Séu afbrigðin talin
með, verður tala gróðurtegunda,
sem þegar er búið að flytja til ís-
lands liklega yfir tvö þúsund. Og
afbrigðin geta verið næsta ólík að
eðlisfari þótt þau teljist til sömu
tegundar. í því liggur stundum
skýringin á því, hve ein jurta- eða
tr-játegund reynist misjafnlega. Er
það fagnaðarefni ef Búnaðarfélag-
ið, Búnaðardeild Atvinnudeildar
Háskólans, Skógrækt ríkisins, Sand
græðslan, Grænmetisverzlun land-
búnaðai’ins o.fl. aðilar fá aðstöðu til
að flytja inn og reyna nýjar tegund
ir nytjagróöurs. Fáeinar nýtar teg-
undir margborga fé og fyrirhöfn.
Auðvitað þarf að sýna varúð við
innflutninginn vegna hættu á því
að sjúkdómar geti borizt með plönt
unum. Og til eru tegundir sem hæg
lega gætu orðiö versta illgresi hér
á landi. Er því margs að gæta. Svo
er annað, sem sízt má gleymast.
Fjöldi tegunda, sem þegar hafa ver
ið fluttar inn, eru aðeins til á ein-
um eða fáeinum stöðum á landinu
og hvergi nærri reyndar til fulls.
Er einnig mikið starf framundan
að reyna skipulega plöntur, sem til
eru í landinu og fjölga tegundum,
sem eiga útbreiðslu skilið.
Þegar landnámsmenn komu hing
að fyrir nær 11 öldum, var landið
eflaust mikiu betur gróið en nú,
enda hafði það fengið að vera í
friði í þúsundir ára, fyrir ágangi
manna og búfénaðar. Skógar og
kjarr þakti holt og hlíðar og tals-
vert af núverandi mýrlendi. En
tegundir gróðursin-s voru þá mun
fœrri en nú. Steindór Steindórsson
og Lövehjónin telja að um 90—100
tegundir eða rúm 20—30% af
villtum blómjurtateg. iandsins hafi
flutzt inn með mönnum síðan byggð
hófst. Þessar tegundir vaxa enn,
einkum í kaupstöðum og nálægt
bæjurn, a. m. k. í byggðum að lang-
mestu leyti. Það eru hlaðvarpa-
jurtir, túnjurtir, illgresi o. s. frv.
En út um hagleiidi, mýrar, holt,
hlíðar, heiðar og fjöll, heldur upp-
runalegur gróður landsins velli og
hafa flestar tegundir hans lifað hér
af síðustu ísöld. Að frátöldum ýms-
um afbrigðum, t. d. fífla og unda-
fífla, er aðeins um örfáar einlend-
ar „íslenzkar“ tegundir að ræða,
því að sömu tegundir vaxa í austri
og vestri t.d. í Noregi og á Græn-
landi, á Skotlandi, í Alpafjöllum og
viðar.
Skógarnir og kjarrið hér á landi
eru ennþá aðallega „ísaldarbirki."
En þetta er að breytast með til-
komu barrtrjánna. Austur á Hall-
ormsstað er t.d. að vaxa upp lerki-
skógur, ættaður frá Síberíu, og lík-
legt er að t.d. sitkagreni frá Alaska
eigi eftir að mynda hér framtíðar-
skóga. Gróðursvipur landsins er
víða að breytast stórkostlega með
aukinni ræktun. Hið ræktaða gras
lendi færir út ríki sitt. Bæði inn-
lendar og erlendar grastegundir
nema þar með land í hinum gömlu
holtum, móum og mýrum.
Garðrækt hefur aukizt mjög
síðustu áratugi — og ncerfellt all-
ur garðagróðurinn er útlendur að
uppruna. í kaupstöðum og við mörg
bændabýli ber landið nú erlendan
gróðursvip. Og þetta mun fara i
vöxt í framtíðinni. ísland hefur
tekið miklum gróðurfarsbreyting-
um síðan á. landnámsöld og auðg-
ast mjög af tegundum. Víða hefur
gróðurlendi eyðst af uppblæstri. En
líklega hefur enginn tegund dáið
út með öllu, og horfið á þessum
tíu eða ellefu öldum. Hundruð teg-
unda hafa, með aðstoð mannanna,
numið land í görðum og á túnum
síðasta aldarfjórðunginn og aldrei
hafa fleiri borizt til landsins en
á síðasta áratugnum. E. t. v. verður
breytingin enn örari í náinni
framtíð. Og jurtir eru stórvaxnari
nú á dögum, heldur en þær voru
fyrir hálfri öld.
Ingólfur Davíðsson.
1
i
H
«
♦♦
♦♦
8
::
H
H
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦<
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦«.
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦•
Kaupfélag Hellissands
Sandi
H
::
xx
Senn líður að jólum
og þvi viljum við minna félagsmenn og aðra á, að við
höfum flest það, er þarf til jólanna.
Gagnlegar vörur til gjafa
Allt í jólabaksturinn
Jólaávextina
Hreinlætisvörur
Vefnaðarvörur og skófatnað
Kaupfélagið býður góðar vörur við hagstæðu verði.
Gleðileg jól! Gott og farsœlt nýtt ár!
Þökkmn viðskiptin á árinu.
Kaupfélag Hellissands
::
\x
4 >
::
♦ »
♦ ♦
8
e ♦
::
ixixxxiittxxxixiiiiixixiiixiiixiiiixiiiii
iiiitiiiiitittttiittttttti ■ ■■
XX
♦♦
♦♦
::
H
♦♦
♦♦
♦♦
::
it
::
::
::
♦♦
♦♦
♦♦
♦♦
♦♦
♦♦
♦♦
♦♦
♦♦
♦♦
ii
♦♦
♦♦
::
H
::
tt
H
Súgfirðingar!
Munið, að kaupfélagið býður ykkur flestar fáanlegar
nauðsynjar til jólanna s. s.
allt í jólabaksturinn,
hreinlætisvörur,
nýlenduvörur,
jólaávextina,
vefnaðarvöru,
skófatnað o. m. fl.
Ennfremur margs konar góðar vörur
til jólagjafa.
Gleðileg jól, farscelt komandi ár!
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
Kaupfélag
Suðureyri
::