Morgunblaðið - 28.10.1965, Blaðsíða 5
Fimmtuda§ur 2?. október 1965
MORGU N BLAÐIÐ
5
Svona á ekki að aka
Margí getur skrýtið og skemmtilegt skeð í umferðiiini í henn. Keykjavik, og ekki er sá atburður
leiðinlegastur, sem Sveinn l»ormóðsson myndaði hér á diigunum.
Fordbíllinn ók frá Vesturgötu sem leið lá suður Aöalstræti. En það er bannað, eins og flestir
bílstjórar vita. Lógregluþjónn skarst í leikinn, og í stað þess að láta manninn halda áfram undir
lögreglueftirliti og með áminningu, skipaði hann bílstjóranum að bakka, svo að hann gæti ekið
rétta ieið austur Hafnarstræti. En þá vildi svo illa tii, að Fordinn bakkaði undir lögreglueftirliti
beint í hlið á splúnkunýjum bíl. Nú er spurningin: Hver ber ábyrgðina? Lögreglan eða ökumaður-
inn? Niðurstaðan er dómstóla, en við á Mbl. segjum aðeins: Svona á ekki að aka!
BNGÓLFS-CAFÉ
DANSLETKUR í kvöld kl. 9.
Hinir landskunnu HLJÓMAR frá
Keflavík skemmta.
VlSUKORIM
HAUSXVÍSA
Bleik nú hnípa blóm í hlíð,
er blærinn hafði strokið.
Heyja nú sitt hinsta stríð
hinu er þegar lokið.
Markús i Borgareyrum.
Stork-
urinn
sagði
Storkurinn var manninum al-
veg sammála og með það flaug
hann upp á turninn á Keflavík-
urkirkju, en þar messar maður,
sem sannarlega lét til sín heyra,
'þegar ríkisvaldið sýndi Keflvík-
ingum baeði framan í tollheimtu
menn og farísea, hann setti haus
undir væng og sofna'ði værum
blundi.
Akranesferðir: Sérleyfisbifreiðir
Þ.þ.þ. Frá Reykjavík alla daga kl.
• :3i. frá BSÍ og kl. 6:30 frá BSR,
nema laugardaga kl. 2 frá BSR.
eunnudaga kl. 9 e.h'. frá BSR og 11:30
frá BSÍ. Frá Akranesi: kl. 8 og 12
•lla daga nema laugardaga kl. 8 og
eunnudaga kl. 3 og 6.
Hafskip hf.: Langá fór frá Vest-
mannaeyjum 27. þ.m. til Turku. Langá
er á' leið til Akureyrar. Selá er í Hull.
Hedvig Sonne fór frá Seyðiafirði 27.
þm. til Cuxhaven og Hamborgar.
Stockssund er í Rvík. Sigrid S er á
Jfiekifirði.
Hf. Jöklar: Drangajökull fór I gær-
kvöldi frá NY tii Le Havre, Rotter-
dam, London og Hamborgar. Hofs-
Jökull íestar i Rönne, Danmörku.
Langjökull fór 21. þ.m. frá Harborur-
grace til Bremerhaven. Vatnajökuil
lestar í Hafnarfirði. Morild fór frá
London 23. þ.m. til Rvikur.
Eimskipafélag íslands hf.: Bakka-
foss fer frá I>ondon 27. til HuH og
Rvíkur. Brúarfoss fer frá NY 27. til
Rvíkur. Dettifos® fer frá Hamborg 28.
til Rvíkur. Fjallfoss fer frá Hamborg
28. til Kristiansand og Rvíkur. Goða-
foss fer frá Kotka 27. til Ventspils,
Kaupmannahafnar og Nörresundby.
Gullfoss fór frá Kaupmannahöfn 27.
til Rostock og aftur til Kaupmanna-
hafnar. Lagafoss fer frá Vasa 28. til
Petersaari, Leningrad og Kotka, Vent-
epils, Gdynia, Mánafoss fór frá Borg-
arfirði eystra 25. til Antwerpen og
Hull. Reykjafoss kom til Rvíkur 23.
frá Hamborg. Selfoss fór frá Vest-
mannaeyjum 24. til Cambridge og
NY. Skógafoss fór frá Norðfirði 26.
til Lysekil, Rotterdam og Hamborgar. j
Tungufoss fer frá Reyðarfirði 27. til
Hamborgar, Antwerpen, London og
Hull. Polar ViVing fer frá Petersaari
27. fer þaðan til Klaipeda. Utan skrif- '
etofutíma eru skipafréttir lesnar i
ejálfvirkum símsvara 2-14-66.
Skipaútgerð rikisins: Hekla fer fré
Rvik í kvöld austur um land í hring-
ferð. Esja kom til Rvíkur í gærkvöldi
að vestan. Herjólfur fer frá Horna-
firði i dag til Vestmannaeyja. Skjald-
breið er á Húnaflóahöfnum á leið til
Akureyrar. Herðubreið er í Rvik.
Eimskipafélag Reykjavikur hf. —
Katla kemur til Liverpool í dag. Askja
er í Rvík.
Skipadeild S.Í.S.: Arnarfell fer í
dag frá Hvammstanga til Akureyrar
og Reyðarfjarðar. Jökulfell fór frá
London 25. þ.m. til Austfjarða. Díear-
fell er í Rvík. Litlafell væntanlegt til
Rvíkur í dag. HelgafeH væntanlegt til
Vopnafjarðar á morgun. Hamrafell
fór frá Aruba 24. þ.m. til Hafnarfjarð-
*r. Stapafeil er í olíuílutningum í
Faxaflóa. Mælifell er í Archangelsk.
Fiskö fer í dag frá Austfjörðum til
Færeyja og Lond(jp.
að hann hefði verið að fljúga í
kringum hið endurreista tollskýli
þarna hjá Straumi á Keflavíkur-
veginum, rétt í því, þegar fyrir
menn réttu fram peningana með
gleðiþros á vör. Mér fannst samt
ég sjá, örlitla vipru í andliti
þeirra, sem sagði með stórum
stöfum: ÞETTA EK SAMT OF
MIKIÐ. Og þannig líta flestir á
þetta. Skatturinn er sanngjarn,
en hann er of hár. Mætti ekki
afnema 2. grein reglugerðarinn-
ar, og hafa gjaldið helmingi
lægra? Ég er viss um, að jafnvel
Keflvíkingar, sem endilega eru
um þessar mundir að minna á
sína tilveru, myndu þakka guði
fyrir skattinn og greiða hann me’ð
bros á vör í lífsins ólgusjó.
Rétt hjá Hvassahrauni, þar
sem bóndirin á allt land undir
nýja veginum, hitti storkurinn
mann, sem sat þar á vegarbrún-
inni og var þungt hugsandi.
Storkurinn: Eitthvað ert þú
þungt hugsandi, maður minn?
Maðurinn í þungum þönkum:
Já, og ekki nema von. Þarna út
undan þér sér’ð þú bóndann í
Hvassahrauni, sem gefið hefur
land undir nýja veginn. Hann
ekur á að giska 4 km. eftir veg-
inum og verður að greiða fullt
gjald. Þeir á Ströndinni, hjá
Vatnsleysu, hjá Kálfatjöm og í
Vogunum, veFða að greiða fullt
gjald. Ætli það væri ekki ráð
hjá þeim háu herrum, sem sömdu
reglugerðina, að afnema tvöföld-
unina í 2. greininni?
Ég held, að þá yrðu allir
ánæg'ðir, og er þá ekki allt feng-
KAUPMANNASAMTÖK
ÍSLANDS
KVÖLDÞJÓN USTA
VERZLANA
Vikan 25. okt. tíl 2». okt.
Kjörbúðin Laugarás, Laugarásvegi
; 1. Verzlunin Rangá, Skipasund 56.
' Hverfisikjötbúðin, Hverfisgötu 50.
Kjötbúðin Bræðraborg, Bræðraborg-
arstíg 16. Birgisbúð, Ránargötu 15.
I Austurver h.f., Fálkagötu 2. Austur-
ver h.f., Háaleitisbraut 68. Verzlun
Jóhannesar B. Magnússonar, Háteigs-
i vegi 20. Verzlunih Varmá, Hverfis-
I götu 84. Laugabúðin, Laugateigi 37.
Sig Þ. Skjaldberg h.f., Laugavegi 49
Verzl. Lárus F. Björnsson, Freyjugötu
27. Kiddabúð, Bergstaðastræti 40.
Sólvallabúðin, Sólvallagötu 9. Magga-
búð, Framnesvegi 19. Silli & Valdi,
; Laugarnesvegi 114. Silli & Valdi,
Hringbraut 49. Verzlunin Kjalfell,
Gnoðarvogi 78. Verzlunin Þróttur,
! Samtúni 11. Kaupfélög Rvíkur og
nágremnis: Kron, Tunguvegi 19. og
Kron, Bræðraborgarstíg 47.
Skálholtssöinunina
GAIMALT og goti
Við skulum róa sjóinn á
að sækja okkur ýsu,
en ef hann krummi kemur þá
og kallar á hana Disu.
sá NÆST bezti
Sigmundur prentan vann jengi í ísafoldarprentsmiðju í tíð
Bjorns Jónssonar. Hann var gáíumaður og vel hagmæltur.
Auk ísafoldar voru önnur heiztu blöð, er þá komu út, þessi:
„Dagskrá“, sem Einar Benediktsson gaf út, „Þjóðólfur“, sem af
mórgum var kalla'ður ,,Stúfur“, „Fjallkonan" og „Kvennablaðið“,
sem þau hjónin Vaidirnar Ásmundsson og Bríet Bjarnhéðinsdóttir
gafu út.
Um þessi blöð gerði Sigmundur eftirfarandi vís» v
Einn í dagsins skröltir skrá,
skrimt.ir Stúfur þunni,
Kvennabiaðið baki á
bisar Fjallkonunni.
Fjörið verður í Ingólfs-Café í kvöld.
Fyrsti vetrarfundur félagsins „ANGLIA“ verður
haldinn í Sigtúni föstudaginn 29. okt.
Skemmtiskrá:
1. Savannah-tríó.
2. Bára Magnúsdóttir (ungfrú Reykja-
vik 1965) dansar.
3. Eyþór Þorláksson leikur á gítar.
4. Getraun.
5. Asadans — ný tegund.
6. Happdrætti o. fl.
7. Dans.
Fundurinn hefst kl. 8.45.
Aðgöngumiðar fást við innganginn.
STJÓRNIN.
Fugiaverndunaríélagið
heldur fund í 1. kennslustofu Háskólans, laugar-
daginn 30. okt. kl. 4 e.h.
I. Arnþór Bárðarson náttúrufræðingur segir
frá arnatalningu á sl. ári.
II. Agnar Ingólfsson náttúrufræðingur segir
og skýrir úrvals arnamyndir, teknar af
Birni Bjarnasyni frá Norðfirði.
III. Magnús Jóhannesson sýnir arnakvikmyndir.
Olium heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir.
BINGÓ
Kvennanefnd Barðstrendingafélagsins í
Reykjavík heldur Bingó í Sigtúni í kvöld
klukkan 9'.
MARGT GÓÐRA VINNINGA.
Félagar fjölmennið og takið með ykkur
gesti. — Allir velkomnir.
Kvennanef ndin.
Fiskverzlun til sölu
Af sérstökum ástæðum er til sölu fiskverzlun um
66 ferm. á jarðhæð í nýlegu húsi í Austurborginni.
Verzlunin er í fullum gangi og fylgja öll tæki með.
Upplýsingar ekki í síma.
Ný]a fasteignasalan
Laugavegj 12.