Morgunblaðið - 28.10.1965, Blaðsíða 12
19
MORGUN BLAÐIÐ
Fimmtudagur 28. október 1965
„Hvar eru fuglar þeir að sumri I
sungu?“ Og hvar eru verðlauna-
lóðir borgarinnar í ár? Eitt sinn'
var sú tíð, að fuglasöngur var
mikill í Fegrunarfélagi Reykja-
víkur þegar sumri tók að halla
og garðar voru' orðnir grænir
vel. En hljóðnaður er nú fagur
fuglakliður. Hvað veldur? Er
borgin orðin svo fögur að ekki
þarf meira að að vinna? Eða eru
Reykvíkingar orðnir svo miklir
garðyrkju- og snyrtimenn að
þeir þurfi ekki framar hvatning-
ar við í þeim efnum? Því miður
held ég nú að sú sé ekki raunin.
Opinberum görðum borgarinnar
hefur að vísu mjög fleygt fram
á síðustu árum, og allri hirðingu
um opinberar byggingar, en
einkalóðir og hús eru allt of
víða í skammfiilegri óhirðu, þó
ástandið fari heldur batnandi á
þeim vettvangi líka. Malbikið
leysir nú sem óðast af hólmi
rykmekki og drullupolla um alla
borg, en njólinn og arfinn halda
enn velli allt of víða, og virðast
vera augnayndi og eftirlæti
margra góðra borgara. „íbúðin
byrjar við garðshliðig en ekki
við útidyrnar“,_ segir gamalt er-
lent máltæki. Ég er anzi hrædd-
ur um að hér sé víða. allmikill
íburðarmunur á þessum tveim
hlutum íbúðarinnar, húsinu- og
lóðlnni.
Hér þarf áróður ^— lausnar-
orð vorrar aldar. Áróður fyrir
bættri umgengni, fyrir aukinni
ræktun og fegrun. Blaðaskrif og
myndir, útvarpserindi, fræðslu
og fyrirgreiðslu.
Hvernig væri nú að Fegrunar-
félag Reykjavíkur (sem lítið hef-
ur haft sig í frammi upp á síð-
kastið) og Garðyrkjufélag fs-
lands (sem ekki hefur verið
mikið borubrattara) tækju sig
nú til og hefðu samvinnu í þess-
um málum. Þau eru þó í verka-
hring beggja. Fleiri félög gætu
einnig tekið þátt í þessari sam-
vinnu, og svo er víða annars stað
ar.
Ekki held ég þó að hið gamla
fyrirkomulag Fegrunarfélagsins
sé heppilegt framvegis, enda
voru um það skiptar skoðanir.
En það var spor í rétta átt og
gerði mikið til að vekja áhuga
almennings á garðrækt og fegr-
un borgarinnar. Hér má þó ekki
láta staðar numið, heldur fylgja
fast eftir því sem unnizt hefur.
Opinberir aðilar, félög, blöð og
útvarp verða að leggjast á sömu
sveifina og snúa almenningsálit-
inu í þá átt að ekki sé nóg að
hafa fínt innanhúss, heldur verði
fínheitin einnig að ná út að garðs
hliðinu — og helzt svolítið útfyr-
ir það.
Það er sem sé alls ekki einka-
t.O.C.T.
St Freyja nr. 218.
Fundur í kvöld kl. 8.30 í
Góðtemplarahúsinu. Venjuleg
fundarstörf. Eftir fund verður
félagsvist. Góð verðlaun. —
Kaffi.
Æt.
T rúlof unarhringar
H A L L D Ó R
Skólavörðustíg 2.
mál manna hvernig útlits er á
þeirra eigin lóðum, þó mörgum
hætti til að líta svo á. Þétt sam-
býli í borgun leggur borgaranum
þær skyldur á herðar, að sýna
samiborgurum sínum tillitssemi
á ýmsan hátt — á því byggist
allt mannlegt samfélag.
Fínu húsi, á ljótri og illa hirtri
lóð, mætti líkja við mann, sem
kemur í samkvæmi í drullugall-
anum utan yfir sparifötunum.
Það væri þó meiri tillitssemi við
aðra samkvæmisgesti að vera i
gallanum innanundir. Það væri
að minnsta kosti frekar einkamál
gestsins.
Fegrun og skrautræktun i
sveit og við sæ, er mikilvægur
þáttur í uppbyggingu menningar-
þjóðfélags. Sú gamla tugga, að
við búum á mörkum hins byggi-
lega heims, hefur löngum verið
okkur íslendingum munntöm af-
sökun fyrir því að nenna ekki að
fást við skrautræktun. Baráttan
fyrir henni hefur líka reynst
þungur róður á landi hér, og
þurfti danska til að taka á árinni.
Sannleikurinn er sá, að enn veit
enginn hvað hér er hægt að
rækta. Árlega bætast við marg-
ar tegundir af trjám, runnum og
jurtum, sem mikill fengur er að
og dafna hér ágætlega, og eru
þó allar tilraunir með slíkt kák
eitt.
Og Jónas kvað:
.....veitt hefur Fróni mikið
' og margt
miskunnar faðir. En blindir
menn
meta það aldrei eins og ber,
unna því lítt, sem fagurt er
telja sér lítinn yndisarð
að annast blómgaðan
jurtagarð.
Nú eru tímar og tækifæri til
að bregða þeim Þyrnirósar-svefni
sem fagurkerinn Jónas skírskot-
ar til.
Þau samtök og þeir aðilar, sem
vinna vilja að þessum málum,
mega ekki láta söngnum linna.
Hvar eru fuglar..........
Ólafur Bjöm Guðmundsson.
Félagslíf
Vetraræfingar frjálsíþrótta-
deildar KB, veturinn 1965-66
Innanhúsæfingar hefjast
mánud. 25. október og verða
sem hér segir:
í íþrótt.ahúsi KR
við Kaplaskjólsveg
Miðvikudaga kl. 18.55—20.35:
Ýmsar tækniæfingar við
hlaup, stökk og köst. Ungling-
unn, sem hafa áhuga á að læra
t. d. hástökk, stangarstökk og
hlaupviðbragð, er ráðlagt að
koma og réyna getu sýna.
Valbjörn Þorláksson, einn
bezti stangarstökkvari Norð-
urlanda mun sýna stangar-
stökk.
t íþróttahúsi Háskólans
Mámidaga og miðvikudaga kl.
19.00—20.00: Þrekæfingar fyr-
ir unglinga á ýmsum aldri.
Aðrar æfingar verða eftir
samkomulagi við þjálfara.
Þá er ráðgert að Benedikt
Jakobsson haldi nokkra
kennslufyrirlestrá um hinar
ýmsu greinar frjálsíþrótta.
Mun hann einnig þá sýna
mjög fullkomnar kennslukvik
myndir, þar sem sýndir erU
ýmsir frægustu afreksmenn í
frjálsum íþróttum.
Þjálfarar deildarinnar í vet-
ur verða þeir Benedikt Jak-
obsson og hinn góðkunni
hlaupari og íþróttakennari
Þórarinn Ragnarsson.
KR-ingar, klippið út æf-
ingatöfluna og geymið. Mætið
vel frá byrjun og takið með
nýja félaga. Stjórnin.
Hvar eru fuglar?
Látið ekki dragast að athuga
bremsurnar, séu þær ekki í
lagi. — Fullkomin bremsu-
þjónusta.
Stilling
Skipholt 35. — Sími 31340.
Vagn E. Jónsson
Gunnar M. Guðmundsson
Hæstaréttarlögmenn
Austurstræti 9.
Símar 16766 og 21410.
Störnubíó sýnir um þessar m undir ensk-amerisku myndina
„Óskadraumar“ (Five Finger pxercise). Með aðalhlutverkin
fara Rjpsalind Russell, Jack H awkins, Maximilian Schell og
Richard Beymer. Myndin er með íslenzkum texta.
TRÉSMIÐJAN
Vlðir hf.
AUGLYSIR
Hann hefur farið sigurför um
Noreg og sama virðist vera hér.
Hann sameinar flesta kosti
svefnsófa, hægt er að fá stóla
með honum og þannig mynda
sófasett: sem sagt tvöfalt nota-
gUdi.
SWEFNSÓFINN
kostar aðe/ns
kr. 8.400-
Hvar gstsð þið gert
betri kaup?
Verzlið þar sem úrvalið er mest
og kjörin bezt.
Arkitekt: H. W. Klein.
Opið til kl. 10
í kvöld
Einkaleyfisframleiðsla:
5 Trésmiðjan
VÍÐIR HF.
Laugavegi 166.
Símar 22222 og 2^229.
Svefnsófasett
Verð kr. 16.100
Auðveldasta stœkkun
á svefnsófa sem völ er
á 1 - 2 - 3 - 4 - 5
Og þér getið lagst til hvílu. Það
er ótrúlega auðvelt að stækka
norska svefnsófann
„Söíland44 ,