Morgunblaðið - 28.10.1965, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 28. október 1961
Otgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvsemdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 90.00 á mánuði innanlands.
I lausasölu kr. 5.00 eintakið.
BÁTASMÍÐAR OG
VEIÐARFÆRA GERÐ
Á örfáum árum hefur fiski-
skipafloti okkar verið
endurnýjaður og hingað til
lands komið stór og velbúin
stálskip ,sem fyrst og fremst
eru byggð til síldveiða. Nær
öll þessara skipa hafa verið
byggð erlendis, sérstaklega í
Noregi. Samhliða hinum nýju
fiskiskipum hefur ný veiði-
tækni rutt sér til rúms, og ný
-veiðarfæri úr margvíslegum
gerviefnum komið til sögunn-
ar. Þau kaupum við víða um
heim ,en sérstaklega mun þó
innflutningur slíkra veiða-
færa frá Japan hafa aukizt
mjög mikið á síðustu árum.
Furðu gegnir, að mikil fisk-
veiðaþjóð, sem íslendingar,
verði að leita til annarra
þjóða um smíði fiskiskipa og
gerð nýtízku veiðarfæra. —
Skipasmíðar virðast hafa átt
nokkuð erfitt uppdráttar hér
á landi, en nú er stálskipa-
smíði smátt og smátt að auk-
ast, og þeir bátar, sem íslenzk
ar skipasmíðastöðvar byggja,
verða sífellt stærri .Ekki er
vitað annað, en að þeir bát-
ar, sem þégar hafa verið
byggðir hér innanlands, af
• svipaðri stærð og mörg hinna
nýju síldveiðiskipa okkar frá
Noregi, hafi staðizt fyllilega
samanburð við þau skip.
Það er því sérstök ástæða
. til, að hlúa svo sem kostur er,
að þeim skipasmíðaiðnaði,
sem hér hefur verið að vaxa
upp í landinu, og efla hann.
Við höfum mikla reynslu,
sem fiskveiðiþjóð og við eig-
um að hagnýta okkur þá
reynslu í smíði fiskiskipa,
fyrir okkur, og fyrir aðrar
þjóðir. Sú endurnýjun, sem
fram hefur farið á síldveiði-
flota okkar undanfarin ár, er
ekki sú síðasta, sem þar mun
verða. Eftir því sem tækni og
framþróun í fiskveiðum fleyg
ir fram, verða gerðar nýjar
kröfur og þá þurfum við að
sjá svo til, að næsta endur-
nýjun á bátaflota okkar verði
framkvæmd fyrst og fremst
hér innanlands.
Þá er einnig ástæðulaust,
að þjóð, sem notar jafnmikið
af veiðarfærum og við, fram-
leiði ekki hin nýju veiðar-
færi úr gerviefnum í landinu
-sjálfu, en eyði stórfé í kaup á
veiðarfærum í öðrum lönd-
um. Hér á landi eiga öll skil-
yrði að vera fvrir hendi til
veiðarfærafranfleiðslu úr
gerviefnum, sem standist fylli
lega samanburð við erlenda
framleiðslu, og sérstök ástæða
fyrir mikla fiskveiðiþjóð, að
framleiða slíkar vörur innan-
lands.
Hér hefur einungis verið
drepið á tvö atriði í sambandi
við sjávarútveg okkar, fiski-
skipasmíði cg veiðarfæra-
gerð, en vafalaust kemur hér
magrt fleira til greina. Það er
gömul saga og ný, að sá at-
vinnurekstur, sem rekinn er í
sambandi við sjávarútveginn
gengur vel, og þess vegna er
þess að vænta, að ungir og
framtakssamir menn beini
kröftum sínum að uppbygg-
ingu margvíslegs iðnaðar í
sambandi við hann.
HAFTASTEFNA
FRAMSÖKNAR-
FLOKKSINS
|7ftir heimsstyrjöldina síð-
ári bjuggu flestar þjóðir
Evrópu við ýmis konar höft,
skömmtun og hömlur á fram-
kvæmdum og viðskiptum, og
fóru íslendingar ekki var-
hluta af því. Hinsvegar er það
staðreynd, að íslenzk þjóð
bjó við þessa hafta- og
skömmtunarstefnu lengur en
nokkur önnur í Vestur-Evr-
ópu. Það var ekki fyrr en
Viðreisnarstjórnin var mynd-
uð, sem frelsi var gefið í við-
skipta- og atvinnulífi lands-
manna.
Á þeim sex árum, sem liðin
eru frá myndun Viðreisnar-
stjórnarinnar, hafa ótrúlegar
breytingar orðið hér á landi,
vöruúrval í verzlunum hefur
aukizt mikið, geysimiklar
framkvæmdir orðið í landinu,
myndarlegar byggingar reist-
ar, geysileg grózka orðið í
sjávarútveginum, og svo
mætti lengi telja. Þess vegna
hefði mátt ætla, að enginn
stjórnmálaflokkur hér á landi
teldi ástæðu til að flytja ís-
lendingum boðskap skömmt-
unar- og haftastefnu á ný.
En nú er það greinilega
komið í ljós, að Framsóknar-
flokkurinn, sem um margt er
sérstæður stjórnmálaflokkur,
unir ekki lengur því athafna-
og viðskiptafrelsi, sem ríkir i
landinu. Hafa Framsóknar-
menn hafið baráttu fyrir því,
að haftastefnan gamla verði
tekin upp á nýjan leik. Þessi
krafa Framsóknarmanna kem
ur fram í túlkun þeirra á
„hinni leið“ Eysteins Jónsson-
ar, sem þeir segja, að felizt
fyrst og fremst í „niðurröðun
verka“ í þjóðfélaginu. Eins
og bent hefur verið á hér í
Morgunblaðinu, er ekki hægt
að framkvæma þessa „niður-
röðun verka“, nema með nýj-
um höftum, skömmtun og
hömlum, eða stórfelldum
skattaálögum á þann atvinnu-
rekstur, sem Framsóknar-
Nýr rlsafugl
Bandarísk flugvel á að faka 750 far-
þega — Fargfald fram og til baka yffir
Atlantshafið aðeins þrju þús. kr.
Bandaríska risaflugvélin C-5A.
NÝLEGA hefur Bandaríkja-
stjóm samið við Lockheed
flugvélasmiðjurnar um smíði
á nýrri flutningaþotu fyrir
bandaríska herinn. Enn sem
komið er ber þessi nýja flug-
vél aðeins nafnið C-5A, og
er búizt við að fyrstu vélarnar
af þessari gerð verði tekn'ar
í notkun einhverntíma á árinu
1969.
Seinna, eða á árunum 1970
og 1971, má svo vænta þess
að fyrstu vélarnar af þessari
gerð verði teknar í notkun til
farþegaflutninga yfir Atlants-
hafið. Hafa nokkur flugfélög
í Bandaríkjunum þegar ákveð
ið að kaupa slíkar vélar, en
gert ráð fyrir að hver þeirra
_taki_um _750_ fjirþegæ Segja
VIÐ Marinás breiðgötu í
Moskvu stendur hús eittf sem
mikla athygli hefur vakið.
Þetta er fimm hæða fjölbýlis-
hús, aðeins fimm ára gamalt.
Það sem veldur því að athygl-
in beinist að húsinu er sést
m. a. á meðfylgjandi mynd.
Svoleiðis er nefnilega að á
einni hlið hússins eru átta
Washington, 22. okt. (NTB)
Utanríkisráðherra Pakist-
ans, Z. A. Bhutto, sagði í
Washington í gær að fyrirhug
aður væri fundur þeirra for-
setanna Ayubs Khans og
Johnsons fyrir næstu áramót.
Ákveðið hafði verið að bæði
Khan og Lal Bahadur Shastri,
forsætisráðherra Indlands,
kæmu í heimsóknir til Wash-
ington fyrr á þessu ári, en úr
því varð ekki.
talsmenn Pan American flug-
félagsins að unnt ætti að vera
að flytja farþega fram og til
baka yfir Atlantshafið milli
Bandaríkjanna og Evrópu fyr-
ir aðeins um þrjú þúsund ísl.
krónur.
Bandaríkjastjórn hefur sam
ið við Lockheed um smíði 58
flugvéla af gerðinni C-5A, en
hreyflarnir verða smíðaðir
hjá General Electric. Er gert
ráð fyrir að kostnaðarverð
vélanna allra verði um 85
þúsund milljónir ísl. króna.
Vélarnar eru 75 metra langar
og vænghafið um 70 metrar.
Getur hver véi flutt um 125
tonn.
svalir en engar dyr út á þær.
Lengi var þetta látið óátal-
ið, en svo kom skopblaðið
Krokodil með frásögn af hús-
inu nýlega, og síðan hafa
margir lagt leiðir sínar þang-
að. Sögumaður blaðsins he|ur
ekki- fengið neina skýringu á
dyraskortinum þótt hann hafi
spurt marga.
Embættismaður hjá borgar-
skipulaginu segir: Þetta mál
heyrir ekki undir okkur.
Byggingameistarinn svaraði:
Það er hvorf eð er nóg af
dyrum í húsinu, og slökkvi-
liðið kærir sig víst ekki um
dyr á þessari hlið.
Annar embættismaður svar-
aði: Ef til vill voru svalirnar
aðeins ætlaðar til skrauts.
Gizkað er á að búið hafi
verið að nota allan hurða-
skammtinn fyrir húsið áður
en svalaskammturinn rann út.
Vantar dyrnar.
Svalir, og engar dyr
menn telja, að ekki megi þríf-
ast.
Framsóknarflokkurinn hef-
ur kveðið upp úr um, hvaða
stefnu hann hefur fram að
færa. Hann hefúr valið að
boða á ný hina gömlu og úr-
eltu skatta- og skömmtunar-
stefnu. Almenningur man þá
daga, þegar þeir siðir ríktu
hér th landi, og hlýtur þess
vegna að furða sig á hinum
„nýju leiðum og nýju við-
horfum“ Eysteins Jónssonar.
Framsóknarmenn hafa lagt
spilin á borðið, þeirra boð-
skapur er höft, skömmtun,
hömlur.