Morgunblaðið - 28.10.1965, Page 19
Fimmtudagur 28. oMðber 1965
MORCU N BLAÐIÐ
19
Búnaðarbanki
T Sau'ðárkróki, 2Í7. okt.
HAFIN er hér bygging banka-
húss á vegum Búnaðarbanka ís-
lands. Frá því bankinn opnaði
útibú 'hér á Sauðárkróki hefir
starfsemi hans verið í húsnæði
því, er Sparisjóður Sauðárkróks
átti, en Búnaðarbankihn yfirtók
starfsemi hans á s.l. ári. Hið
Xiýja bankahús verður 370 ferm
að flatarmáli, tvær hæðir. Teikn
ingar ger’ði Gunnar Hansson arki
T ollbúðarbruninn
enn í rannsókn
3VTBL,. hafði í gær samband við
skrifstofu bæjarfógeta í Hafnar-
firði og spurðist fyrir um það,
hvað liði rannsókn á bruna toll-
Ibúðarinnar á Suðurnesjavegi, en
víst þykir, að í henni hafi verið
kveikt. Mlbl. var tjáð, að rann-
sókn málsins stæði enn yfir.
— Vínlandskortið
Framhald af bls. 11.
N
„Ex antiquitatibus . . . “
Á íslenzku kortunum hefur
upplýsingum þeim um Græn-
land sem var að hafa úr forn-
um heimildum verið bætt inn á
„grundvallarkort" þau sem við
lýði voru síðla á sextándu öld.
Á sumum þeirra er lega lands-
ins skökk og hafa sumir fyrir
satt, að það muni stafa af þeim
misskilningi, að menn hafi hald
ið Eystribyggð og Vestribyggð
liggja austan og vestan hvor
annarrar eins og nöfnin benda
til en ekki sunnan 0g norðan.
IÞannig er t.d. um kort Sigurðar
skólameistara Stefánssonar (c.
1590) og Hans Poulsons Resens
biskups (1605), sem bæði halla
vesturströnd Grænlands rang-
sælis, svo hún verður suðvest-
læg, þar sem aftur á mótí Guð-
brandur Þorláksson (1606) set-
ur Grænland niður í átt SV-NE
á sínu korti, og byggðir land-
námsmanna tvær í tvo djúpa
firði á suðurströndinni (mikið
breikkaða) en segir austur-
strönd landsins óbyggða með
öllu.
Fræðimenn þeir, er afrituðu
kort Sigurðar skólameistara á
sautjándu öld, töldu það byggt
á fornum íslenzkum heimildum
(„ex antiquitatibus Islandicis)
og Resen bisku,p minnist tví-
vegis á eldri — að því er virðist
miklu eldri — kort meðal sinna
heimilda. Það rennir nokkrum
stoðum undir frásögn Resens,
að íslenzku kortin eru töluvert
ólík og virðist öllu sennilegra,
að þau hafi verið gerð eftir
einni og sömu frummyndinni
en að þau sé afrit hvert af öðru.
Kortið forna, sem Resen nefnir,
var „nokkurra alda gamalt“ og
Ijóst er að það tók yfir allt
það svæði er norrænir menn
höfðu kannað á N-Atlantshafi
og vestanhafs. Ekkert slíkt kort
eða afrit af því, hefur komið
í leitirnar í skjalasöfnum á ís-
landi eða í Danmörku, og verða
þvi hvorki kort Clavusar né ís-
lenzku kortin sem áður gat
óyggilega rakin til frumkorts,
er sá er gerði Vínlandskortið
hefði getað sótt til teikningu
sína af Grænlandi.
Þó erfitt sé eða illmögulegt
að leiða að því nokkrum get-
um, hvaða heimildir liggi að
baki Grænlandskortinu, er hitt
ekki síður dularfyllra og erfið-
ara úrlausnar, hver það hafi
gert og hvenær og hvað hon-
um hafi gengið til þess. Telja
má víst, að höfundur frum-
kortsins hafi verið íslenzkur
maður eða að minnsta kosti
norrænn, því ekki er vitað til
þess að upplýsingar þær sem
hann hafði úr að moða um
siglingar norrænna manna í
vesturátt, hafi verið tiltækar
mönnum utan íslands (og ef til
vill Norðurlanda) fyrr en á 17.
öld. Tilvitnanir Resens bisk-
99
Efst á baugi“ fimm ára
í DAG eru liðin 5 ár siðan út-
varpsþátburinn „Efst á baugi“
hljóp fyrst af stokkunum í Rík-
isútvarpinu. Þáttur þessi hefur
fjallað um erlend málefni og
ætíð verið vikulega í útvarpinu.
Umsjónarmenn þáttarins voru í
fyrstu þeir Haraldur Hamar,
blaðamaður, og Heimir J. Hann-
esson, lögfræðingur. Höfðu þeir
stjórn þáttarins með höndum þar
til £ janúar, er þeir Björgvin Guð
mundsson og Tómas Karlsson
tóku við þættinum en þeir voru
þá báðir blaðamenn, Björgvin
fréttastjóri við Alþýðublaðið og
Tómas fréttastjóri við Tímann.
Þeir Björgvin og Tómas önnuð-
ust þáttinn óslitið þar til í haust,
er Tómas fór utan og hóf nám
við Lundúnaháskóla. Hefur
Björn Jóhannsson, blaðamaður
við Morgunblaðið nú tekið við
af Tómasi, sem annar umsjónar-
manna þáttarins „Efst á baugi'
og mun hann annast þáttinn
vetur ásamt Björgvin Guðmunds-
syni. Fyrsti þáttur þeirra félaga
síðan vetrardagskráin hófst var
í gærkveldi. Var það 225. þáttur-
inn af „Efst á baugi.“
Myndin var tekin við upþtöku
á þeim þætti.
Grínrseyingor minnnst sérn
i
Matthínsnr Eggertssonor og
konu hans í Miðgorðakirkja
AKUREYFI, 26. okt.
Um þessar mundir eru liðin
sjötíu ár siðan séra Matthías
Eggertsson kom fyrst til Gríms-
eyjar, þar sem hann var prestur
árin 1895 til 1937, eða 42 ár og
lengur en nokkur annar prestur,
sem þar hefur gegnt embætti.
í sumar, 15. júní, var aldaraf-
mæli séra Matthíasar.
Þessa hvors tveggja var minnzt
við prófastsvisitazíu i Miðgarðs-
kirkju sl. sunnudag. Við guðs-
þjónustu þann dag predikaði
prófastur, séra Benjamín Krist-
jánsson, rakti æviferil séra
Matthíasar og konu hans, Guðnýj
ar Guðmundsdóttur, og minnt-
lst þess, hve þau höfðu mikil
áhrif á líf og starf Grímseyinga
þessi ár, en þau áttu mikinn þátt
í flestum framfaramálum þar í
eynni á þessu langa tímabili.
Þá lýsti prófastur ánægju sinni
yfir stofnun minningarsjóðs, sem
börn þeirra hjóna stofnuðu á
aldarafmæli séra Matthíasar og
færðu kirkjunni áð gjöf, en til-
gangur sjóðsins er að efla safn-
aðar- og æskulýðsstarf í eynni.
Enn fremur hafa þau gefið kirkj-
unni stækkáða ljósmynd af for-
eldrum sínum. Myndin er í veg-
legri umgerð með áletruðum
silfurskildi, og var hún sett upp
í kirkjunni við þetta tækifæri.
Sjóðnum fylgir sérstök minning-
argjafabók, þar sem skráð eru
nöfn þeirra, sem færa sjó'ðnum
gjafir.
Kirkjukór Miðgarðakirkju
söng við guðsþjónustuna undir
stjórn organistans, frú Ragnhild-
ar Einarsdóttir, Básum, en fyrir
altari voru þjónandi sóknarprest
ur, séra Pétur Sigurgeirsson, og
Einar Einársson, djákni.
í lok messunnar var tilkynnt,
að kirkjan gæfi sjóðnum tíu þús-
und krónur, og frá Grímseyjar-
hreppi bárust áðrar tíu þúsundir.
Sóknarprestur þakkaði þessar
gjafir og allan vinarhug til hinna
látnu heiðurs'hjóna, og risu
kirkjugestir úr sætum í virðingar
skyni við minningu þeirra.
— Sv. P.
Aðalfundur
Heimdallar
n.k. sunnudag
AÐALFUNDUR Heimdallar FUS
verður að þessu sinni n.k. sunnu-
dag 31. okt. í Sjálfstæðishúsinu
og hefst hann kl. 15.00. Sérstök
athygli er vakin á að í auglýs-
ingum hefur fundardags verið
ranglega getið.
Á dagskrá þessa aðalfundar eru
skýrsla stjórnar, reikningar fé-
lagsins, lagabreytingar ef fram
koma, stjórnarkjör og önnur mál.
Tillaga kjörnefndar um stjórn
félagsins fyrir næsta starfsár
liggur frammi á skrifstofu fé-
lagsins en aðrar tillögur eiga að
hafa borizt tveimur sólarhring-
um fyrir aðalfund.
Heimdallarfélagar eru hvattir
til að fjölmenna á aðalfund fé-
lags síns.
Minningar-
athöfn við
El Alamein
E1 Alamein, 24. okt. (AP)
FORNIR fjandmenn stóðu hlið
við hlið við minnisvarða í E1
Alamein sl. sunnudag til að votta
virðingu þeim mönnum er féllu
þar í bárdögum fyrir 23 árúm.
Sendimenn frá Bretlandi,
Þýzkalandi, ítalíu og Samveldis-
löndunum voru saman komnir í
enska kirkj ugarðinum og lögðu
'blómsveiga við minnismerkið.
Sendiherra Breta, Sir George
Middleton, gekk í fararbroddi
sendimannanna frá Samveldis-
löndunum. Vestur-Þýzkaland hef
ur ekki stjórnmálasamband við
Arabiska sambandslýðveldið, en
fulltrúar þess við minningarat-
höfn þessa voru meðlimir úr við
skiptanefnd, sem nú er stödd I
Egyptalandi. Sendiherrar Ástra-
líu, Indlands og Pakistan tóku
einnig þátt í- athöfn þessari.
Blómsveigar voru einnig lagðir
að minnisvörðum þýzkra og
ítalskra hermanna er féllu í bar-
dögunum. í kirkjugarðinum hvíla
4.200 af þeim hermönnum er
börðust með Rommel.
Jalta
Ný sovézk bifreið-Jalta
ó Sauðóikróki
tekt. Pétur Pálmason, verkfræð-
ingur, Ákureyri hefir umsjón
með framkVæmdum f.h. Verk-
fræðiskrifstofu Sigurðar Thor-
oddsens. Verktaki er trésmiðjan
Hlynur h.f. á Saúðárkróki. Yfir
smiðir eru Björn Gústafsson og
Friðrik Jónsson. Um járnalagnir
sér Jóhann Guðjónsson. Áætlað
er að steypa grunninn í haust,
ef ve'ður leyfir. Útibússtjóri
Búnaðarbankans á Sauðárkróki
er Ragnar Pálsson. — KárL
Sauðárkróks-
höfn dýpkuð
Sauðárkróki, 27. okt.
DÝPKUNARSKIPIÐ Grettir hef-
ir nýlokið við uppmokstur úr
höfninni hér. Gekk það verk
ágætlega, endá tíðarfar hagstætt.
Skipstjóri á Gretti er Lárus Þor-
steinsson. — Kári.
ups benda einnig til þess, að á
miðöldum hafi verið gerð kort
á íslandi, þó ekki hafi komið
í leitirnar neitt slíkt kort er
fært geti sönnur á orð biskups.
Lengra getum við ekki leyft
okkur að geta í eyðurnar, en
þó má telja töluverðar líkur á
því að norrænn maður og þá
að öllum líkindum kirkjunnar
maður, hafi haft með sér suð-
ur í álfu frumrit af korti, sem
á sé byggð Grænlandsteikning-
in á Ýale-kortinu. Hefði þetta
kort ekki týnzt í ferðinni eða
farið forgörðum, er ekki frá-
leitt að ætla að það myndi hafa
haft mikil áhrif á landafræði
og kortagerð í Evrópu um
þessa daga.
Finun alda myrkur.
Ekki er vitað, hversu miklar
samgöngur voru við Grænland
né hversu þeim var háttað eft-
ir síðustu skráða ferð íslenzkra
manna þangað á árunum 1406
til 1410. Síðasti knörrinn frá
Björgvin sigldi til Grænlands ár
ið 1369 en kom aldrei fram og
enginn biskup sat í landinu
eftir 1377. Þó bendir sitthvað
til þess, að einhverjar sam-
göngur hafi verið við Græn-
land fram eftir fimmtándu öld-
inni, þó strjálar væru, s.s. graf-
ir norrænna manna við Her-
jólfsnes, þar sem fundizt hefur
evrópskur fatnaður frá fjórt-
ándu og fimmtándu öld, og í
páfabréfum um miðja fimmt-
ándu öld og aftur 1492 er að
finna upplýsingar, sem eflaust
hafa borizt suður um ísland,
um hagi kristinna manna á
Grænlandi.
Allt um það var svo komið
um miðja fimmtándu öld, að hin
ar nákvæmu og greinargóðu
upplýsingar er norrænir menn
höfðu viðað að sér um löndin
í vestri voru ekki almennt til-
tækar mönnum á meginland-
inu og könnunarferðir
evrópskra manna næstu þrjár
aldir í átt þangað byggðust á
röngum forsendum og það var
ekki fyrr en langt var liðið á
nítjándu öldina, að teiknað var
Grænlandskort, sem satnbæri-
legt má kalla teikningunni á
Yale-kortinu að nákvæmni.
Því er það, að Grænlandsteikn
ing Yale-kortsins „lýsir sem
leiftur um nótt“ gegnum fimm
alda myrkur og er okkur sem
hana lítum nú augum jafnvel
enn hugstæðari en sjálft Vín-
land, sem kortið er við kennt.
Og svo vel er teikningin gerð
og svo nákvæm, að ekki fer
hjá því að veki mönnum grun
um að eitthvað sé málum
blandið um tilvist hennar á
kortinu, hún eigi þar illa
heima. Sannanir þær sem fyrir
liggja eru þó það margar og
líkur svo sterkar, að fullvíst
má telja að allt sé með felldu
um þessa óvenjulegu Græn-
landsteikningu.
(Næsta grein um Vín-
landsbókina birtist í
blaðinu á sunnudag).
Erædd 150 þús. mál
og 19 þús. tunnur
VOPNAFIRÐI, 21. okt. — Síld-
arverksmiðjan hér er búin að
taka á móti 150 þús. málum, þar
með talinn úrgangur af söltunar-
bryggjunum.
Heildarsöltun stöðvanna, sem
eru 4, er þessi: Hafblik 5150 tunn
ur, Austurborg 3500, Auðbjörg
6450, Söltunarstö'ð Kristjáns Gísla
sonar 4275. Þetta er mjög nálægt
lagi, en getur munað nokkrum
tunnum.
f gær lauk hér slátrun. Slátrað
var um 16 þús. fjár. Stórgripa-
slátrun byrjar á morgun.
— Ragnar.
BIFREIÐAR & landbúnaðarvélar
h.f. hefur nýlega hafið innflutn-
ing á nýrri tegund sovézkra bif-
reiða, sem nefnist Jalta. Jalta
er lítil fjögurra manna fólksbif-
reið, sem líkist að útliti Fiat 600,
þó austrænn svipur sé á henni.
Bifreiðin er tveggja dyra og er
tiltölulega þægilegt að komast
inn í hana og út. Frágangur er
svipaður og á öðrum sovézkum
bifreiðum .
Vélin í Jalta er dálítið nýstár-
leg, en hún er fjögurra strokka
V-laga og loftkæld. Hún er
aftast í bifreiðinni. f bif-
reiðinni er benzínmiðstöð, sem
nota má í köldum veðrum til
þess að hita vélina áður en hún
| er ræst.
Fjöðrunin er sjálfstæð á öllum
hjólum, að framan fjaðurstengur
(torsion bars) og tvívirkir högg-
deyfarar, en að aftan gor-mar og
tvívirkir höggdeyfar.
Gírkassi er fjögurra gíra, sam-
hæfður í öllum nema fyrsta
gír. Skipting er í gólfi milli fram
sætanna. Hemlar eru vökvaheml
ar með borðum og sjálfvirkri úti
herzlu á öllum hjólum. Rafkerfi
er 12 volta.
Sætin í Jalta eru tiltölulega
þægileg og er ekki of lágt undir
loft að aftan. Til annarra kosta
bifreiðarinnar má telja, að hátt
er undir hana, 17 sm. undir
lægsta hluta.
Áætlað verð Jalta er kr. 100 þúa.
og er þá innifalin ryðvörn.