Morgunblaðið - 28.10.1965, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 28. október 1965
\
Langt yfir skammt
eftir Laurence Payne
3. kafli.
Ég sat í bílnum og horfði með
gremjusvip gegnum framrúð-
una, sem regnið buldi á. Það var
eins og allt umhverfið hefði
misst allan lit, himinninn og á-
in runnu saman í grámyglulegt
tjald. Ef aðeins hefði komið
einn sólargeisli til að lífga þetta
upp, hefði það kannski fekki ver-
ið svo hábölvað.
Heilinn í mér — það litla sem
eftir var af honum — virtist
alveg hafa gefið upp öndina og
sat nú eins og þreyttur hundur
og studdist fram á lappir sínar
og horfði á mig. Ég hvessti aug-
un á hann á móti, þagði hátíð-
lega og beið þess, að eitthvað
vildi ýta við honum, en jafnvei
skerandi hnerri, sem Saundery
gaf frá sér í þessu niður í vasa-
klútinn sinn með öllu ilmvatn-
inu í, var árangurlaust.
— >ú ættir að fara í bælið!
urraði ég að honum, önugur.
— Ég vildi óska, að ég væri
kominn þangað.
— Það var nú eina, sem á
skorti, eins og á stóð — að
ég fengi kvefið af honum. Ég
opnaði gluggann og stormurinn
var næstum búinn -að taka af
mér hattinn, svo að ég lokaði
aftur. Ég fékk sjálfsagt kvefið,
hvernig sem allt veltist.
Lögreglumaður þaut framhjá
á vélhjóli og heilsaði okkur
kurteislega um leið og hann fór
framhjá — Saunders veifaði til
hans vasaklútnum góða, svo að
gerlamir ruku út um allt.
— Hver var þetta? spurði ég,
enda þótt mér væri nákvæm-
lega sama.
— Herbert Rowntree.
— Hver er hann?
— Kunningi hennar dóttur
minnar. Þau eru að spásséra
saman.
— Ég leit snöggt við og upp
í fyrstu hæðar gluggana á hús-
inu, sem við vorum nýbúnir að
yfirgefa. Hammond Barker
flýtti sér að draga sig inn í
skuggann.
Heilinn í mér vaknaði skyndi-
lega og dinglaði skottinu vesæld
arlega.
Ef Barker var nokkuð viðrið-
in morðið í gærkvöldi, hví í
skrattanum hafði hann þá ekki
útvegað sér almermilega fjar-
verusönnun?
□---------------------------□
11
□---------------------------□
Þegar það er athugað, að ekk-
ert getur veitt lögreglumanni
meiri ánægju en það að geta
hrundið sniðuglegri fjarveru-
sönnun, þá þarf ekki að taka
það fram, að glæpamaður, sem
lætur ekki svo lítið að finna
sér slíka sönnun, er frá upphafi
fordæmdur. Ef hinsvegar Bark-
er hefði þarna hvergi nærri
komið, og vissi ekki um morð-
ið annað en það, sem stóð í
blöðunum, væri það sérlega ó-
líklegt, að það að sjá tvo fíl-
eflda lögreglumenn koma upp
tröppurnar hjá sér, gæfi honum
þegar í stað þá hugmynd, að
þeir ættu erindi í sambandi við
morðið.
En það brást ekki, að hann
var eitthvað við þetta riðinn: ég
hafði sönnun þess beint fyrir
augunum fyrir nokkrum mínút-
um! Hann hafði málað Úrsúlu
Twist í lifanda lífi hennar, en
aðeins sá, sem hafði séð hana
dauða, hefði getað bætt á mynd-
ina, síðustu sönnunirmi, sem sé
klessunni á regnfrakkanum. En
hvern skrattann var hann að
reyna að sanna með því að bæta
við slíku smáatriði?
í sama bili trufluðust þessar
hugleiðingar mínar af grönnum,
ólívugrænum Jaguarbíl, sem
hafði sýnilega í hyggju að taka
með sér brettið af okkar bíl, en
stanzaði svo ískrandi, svo sem
skrefi fyrir framan okkur. En
næstum áður en bíllinn hafði
stanzað, var dyrunum á honum
hrundið upp, og hafði næstum
náð til konu á hjóli, sem gat þó
heygt^við út á akbrautina, en
var þar næstum orðih undir öðr
um bíl. En það var eins og ungi
maðurinn geðvondi, sem kom
út úr bílnum sæi þetta ekki,
heldur skellti hann hurðinni
aftur, og gekk aftur fyxii' bíl-
inn og upp á gangstéttina.
En áður en konan á hjólinu
hafði til fulls bjargað lífi sínu,
hafði ég dregið rúðuna niður
og armur laganna náði í vas-
ann á unga manninum og hélt
honum föstum.
— Augnablik! sagði ég. —
Vitið þér hvað þér eruð að
gera?
Hann sneri að mér með reiði-
svip, eins og hann vildi mala
mig mélinu smærra.
— Hvern fjandann sjálfan
varðar yður -um það? hvæsti
hann, og gerði ýmsar tilraunir
til að sleppa úr klónum á mér.
En ég hélt sem fastast þangað
til ég sá Saunders koma að baki
mér og leysa mig af hólmi, þá
fór ég út úr bílnum og hall-
aði mér makindalega að hurð-
inni — eins og þeir gera í sjón-
varpinu.
— Hvað liggur yður svona
mikið á? spurði ég rólega, en þá
var hann búinn að koma auga á
Saunders og grettan var orðin
að glotti.
— Nú, á að fara svona að?
Ég bjóst við einhverju þvífiku,
en þið sleppið bara ekki með
það í þetta sinn. Ég skal fá
hvern skítugan lögga í nágrenn-
inu til að rífa kofann í tætlur!
Ég sýndi nafnspjaldið mitt ró
Iegur. — Já, þér getið strax
fengið tvo skítuga lögga til að
rífa yður sjálfan í tætlur, ef
þér verðið ekki þægur og hlust-
ið á mig, sagði ég rólegur.
Það var eins og öll andlits-
byggingin á manngarminum
hryndi saman og roðinn, sem
hafði verið í andiitinu varð nú
að heilsuleysislegum fölva.
Hann leit á okkur á víxL
— Lögregla .... ? Ég bið ykk
ur að afsaka .........
Hann leit út undan sér á bíl-
inn okkar og var sýnilega gram
ur okkur fyrir að aka ekki í ein-
um af þessum gljáfægðu trog-
um með loftnetjum og hvers-
kyns útbúnaði, sem gæfi til
kynna, að þarna væri lögreglan
á ferðinni.
Hann komst ekki lengra.
— Ég hélt, sem snöggvast....
Ég ákvað að hjálpa honum
dálítið.
— Þér hélduð sem snöggvast,
að við værum einhverjir dólg-
ar, sem ætluðu að fara með yð-
ur „út að keyra“, var það ekki?
Nú væri gaman að fá að vita,
hversvegna þér hélduð það?
Hann hristi ákaft höfuðið og
hló snöggt. — Nei, það var alls
ekki þannig, heldur hitt, að ...
— Áður en lengra er farið
vilduð þér kannski sýna mér
ökuskírteiriið yðar. Og eftir
langa leit, fann hann það loks-
ins í veski, sern var í brjóít-
vasa hans, en þar geymdi hann
það vitanlega alltaf.
Ég var að glápa á nafnið
„Jordan Barker“, þegar róleg
rödd að baki okkar sagði: —
Ertu nú kominn á kant við
réttvísina, Chuck? Og þarna
stóð listamaðurinp, kunningi
okkar, og brosti breitt til okk-
ar, rétt eins og prestskona í
safnaðar-garðveizlu.
Ég leit á hann, fúll á svip-
inn. — Það er rétt, hr. .Barker,
á kanti við réttvísina — það
virðist leggjast í ættir.
— Hann dró ekkert úr bros-
inu, sem á honum var ,en aug-
un urðu hörð.
— O, við erum bara óheppin
í fjölskyldunni. En hvað er að
núna?
— Það er ekki annað að en
það, að þessi yðar . ..
— ... bróðir, bætti hann við.
— ... var næstum orðinn vald
ur að hræðilegu slysi. En svo
var hann svo óheppinn, að við
sátum hérna, og horfðum á
það. Jæja, og hvað segið þér
svo um það, hr. Jordan Bark-
er?
Ungi maðurinn, sem bróðir
hans hafði kallað „Chuck“ og
líktist bróður sínum að engu
nema ofurlítið að málrómnum,
yppti öxlum og sveiflaði hand-
leggjunum.
— Ég bið afsökunar. Ég var-
aði mig ekki, af því að ég var
að flýta mér.
— Þér ættuð að endurtaka
það. Þér komuð þarna þjótandi
út úr bílnum eins og leðurblaka
út úr eldsvoða. Hvað hafði þér
ekið lengi?
Þrjóskusvipurinn kring um
munninn á honum gaf til kynna,
að það ætlaði hann ekki a3
segja mér.
— Og eigið þér þennan bíl?
Hann kvað svo vera, en röddin
gaf til kynna, að svo væri ekki.
— Það er númer á honum, svo
að það er enginn vandi að at-
huga það, sagði ég. Þá mundi
hann, að kunningi hans ætti
bílinn.
— Veit hann, að þér hafið
fengið hann að láni?
Nú var hann að verða vondur
aftur. — Vitanlega veit hann
það. Sjáið þér til, fulltrúi, ég
sagði, að mér þætti fyrir þessu.
Vitanlega hef ég enga afsökun.
Hversvegna skrifið þér mig
ekki bara upp og látið þar við
sitja?
Ég rétti Saunders ökuskírtéin
ið og skipaði honum að skrifa
upp það, sem máli skipti. Smám
saman var friður að komast á
aftur.
—Fulltrúinn er ekki að gera
annað en skyldu sína, Chuck,
var Hammond að segja. — Það
er engin ástæða til að vera að
þjóta upp.
Bróðirinn sneri snér snöggt að
honum. — Haltu þér saman!
Ég greip fast í handlegginn á
honum. — Svona, hr. Barker,
verið þér nú bara rólegur. Og
svo iðraðist ég þess að hafa
snert við honum ... Skapið,
sem hann vár í, hefði getað gef-
ið tilefni til margs konar stór-
yrða, en takið, sem ég hafði á
honum, dró úr því mesta. Hann
tautaði eitthvað óskiljanlegt í
hálfum hljóðum, sleit sig laus-
an og stóð nú eins og reið
skjaldbaka og teygði fram álk-
una, og ég vissi, að ég mundi
ekki fá meira upp úr honum —
að minnsta kosti ekkert að
gagni.
En ég reyndi nú samt.
— Hverjir hélduð þér, að við
værum þegar við stöðvuðum
yður áðan.
LONDON
ÐÖMUDEILD
Austurstræti 14.
Sími 14260.
HUOCi
vdbuxur
HELAICi
skíðabuxur
i ú r v a 1 i .
— PÓSTSENDUM —
--★-
LONDON, dömudeild