Morgunblaðið - 07.04.1966, Blaðsíða 2
MORGU NBLADID
Fimmtudagur 7. april 1966
*
LAND AUÐÆFA OG ANDSTÆÐNA
Á SÍÐUSTU árum hefur ferða-
mannastraumur frá íslandi til
Bandaríkjanna aukizt mjög.
Einkum hefur það verið í sam-
bandi við heimssýningarnar,
sem þar hafa verið haldnar. I
grein þessari verður gerð til-
raun til að færa væntanleg-
um ferðamönnum hagnýtan
fróðleik um verðlag og venj-
ur í Bandaríkjunum, svo og
sýnishorn af því, hvað þar er
að sjá.
Bandaríkin eru stórt land,
sem spannar tæplega 5 þús.
km. frá austri til vesturs. Land-
ið er byggt fólki alls staðar að
úr heiminum og er íbúafjöldi
iþess í dag tæpl. 200 milljón
manna. Fyrsta varanlega land-
námið í „nýja heiminum“, var
í St. Augustine í Florida árið
1565. Á fyrstu öldinni þar á
eftir, átti landnám sér einkum
stað á landssvæði því sem nefnt
er Nýja England, en það er
norðaustur hluti landsins. I>essi
nyrðri landsvæði voru í fyrstu
brezkar nýlendur, en á árunum
1754—63 háðu Bretar og Frakk
ar miklar styrjaldir út af land
inu, sem lyktaði með sigri
Breta. Sigur þeirra varð þó
skammvinnur, því landnemarn-
ir vildu sjálfstæði, og var því
lýst yfir árið 1776, eftir harða
bardaga. Á þessum tíma voru
13 fylki í ríkjasambandinu, en
í dag eru þau 50.
Ferðamaður, sem hug hefur
á að fara til Bandaríkjanna,
hefur um tvennskonar farar-
tæki að velja; skip eða flugvél.
Þeir sem kjósa flugvél, fara
venjulega til New York, en þó
er rétt að geta þess, að beinar
flugferðir eru frá ýmsum stöð-
um í Evrópu til annarra stór-
borga vestan hafs.
Þau flugfélög, sem annast
ferðir frá íslandi til Bandaríkj-
anna, eru Loftleiðir og Pan
American. Flugfargjöld til
Bandaríkjanna hafa lækkað
mjög á seinustu árum og hefur
það mjög aukið ferðamanna-
strauminn þangað. Miðað við
vegalengdina er í dag mun
ódýrara að fljúga til New York
en til Evrópu.
Hér verða birtar nýjustu töl-
ur yfir farmiðaverð flugfélag-
anna:
Vetrargjöld:
Loftleiðir
Pan American
Báðar leiðir
kr. 9491
kr. 12307
Sumargjöld:
Báðar leiðir
Loftleiðir kr. 13091
Pan American kr. 15988
21 dags gjöld:
Loftleiðir kr. 7613
Pan American kr. 8009
Hin svonefndu vetrargjöld
eru í gildi sem hér segir: Frá
Reykjavík til New York frá
28. sept. til 17. júlí. Frá New
York til Reykjavíkur 3. ágúst
til 22. maí. Rétt er að vekja
athygli á því, að ferðamaður,
sem fer til Bandaríkjanna í
fyrri hluta júlímánaðar á vetr-
arfargjaldi, getur farið heim
aftur eftir 3. ágúst, einnig á
vetrarfargjaldi. Eins og sézt á
gjaldskránni hér að ofan, eru
fargjöldin hjá Pan American
nokkuð hærri en hjá Loftleið-
um. Athygli skal vakin á því,
að Pan American notar
Douglas DC8 þotur. og er flug-
tími þeirra frá Reykjavík til
New York um 5 klst. Skrúfu-
þotur Loftleiða fljúga til New
York á 6% klst.
Það fyrsta, sem væntanlegur
ferðamaður þarf að gera, er að
hafa samband við bandaríska
sendiráðið hér og fá upplýsing-
ar um hvaða skjöl hann þarf að
útfylla og útvega í sambandi
við ferðaleyfi. Annað atriðið,
sem ekki er síður mikilvægt er
að gera eins nákvæma ferða-
áætlun og tök eru á. Eins og
áður er sagt eru Bandaríkin
stórt land, og þar sem ferðafólk
hefur venjulega takmarkaðan
tíma og fé. þá er hentugast að
gera ferðaáætlun.
Að sjálfsögðu eru margir sem
kjósa að gera ferðaáætlanir frá
degi til dags. Hvor leiðin sem
valin er, þá hefur ferðamaður-
inn um fjögur farartæki að
velja er hann kemur til New
York: Flugvélar, járnbrauta-
lestir, langferðaibifreiðir og
leigðar bifreiðir. Nákvæmar
upplýsingar um þessi ferðatæki
getur væntanlegur ferðamaður
fengið hjá ferðaskrifstofum
hér heima eða í New York.
Hagmýtar upplýsingar.
Rétt er að geta þess í sam-
bandi við stutt eða löng ferða-
lög innan Bandaríkjanna, að fé-
lög járnbrauta og langferða-
vagna bjóða erlendum ferða-
mönnum upp á 15% afslátt frá
venjulegu farmiðagjaldi. Hvar
Það var í Alamo virkinu í Xexas, sem hin fræga sögupersóna
David Crocket lét lífið.
sem ferðamaðurinn er staddur
í Bandaríkjunum, getur hann
tekið bifreið á leigu, ekið hvert
á land sem hann vill ög skilið
bifreiðina eftir hjá nálægustu
skrifstofu leigjandans. Meðal-
gjald fyrir bifreiðaleigu er 10
doliarar á dag plús 10 cent fyrir
hverja mílu sem ekin er. Banda
rísk yfirvöld virða ökuleyfi frá
allmörgum ríkjum, þ.á.m. frá
íslandi, en ökumaðurinn verður
þó að fá staðfestingu á ökuleyf
inu hjá bandaríska bifreiðaeftir
litinu.
Þar sem farmiðagjald hjá
járnbrautum og langferðavögn-
um er breytilegt, er heppileg-
ast fyrir væntanlegan ferða-
mann að kynna sér nýjustu
upplýsingar um þessi atriði hjá
ferðaskrifstofum áður en hann
gerir ferðaáætlun. Ódýrast er
að ferðast með langferðahif-
reiðum og meginkosturinn við
þessa leið er sú, hve hægt er
farið yfir, en það gerir ferða-
manninum kleyft að sjá meira
af landinu en ella. Þessi leið er
að sjálfsögðu óhentug fyrir
fólk sem hefur takmarkaðan
tíma.
Gistigjald í bandarískum hótel
um er mjög mismunandi; 5 til
20 dollarar fyrir nóttina. Fyrir
ferðamenn, sem ferðast í leigð-
Coloradofljótið var um 114 miljón ára að grafa Grand Canyon gljúfrið i Arizona. Glúfur þetta
telst eitt af undruin veraldar.
um bifreiðum eru hin svonefndu
mótel hagkvæmust. HPvar sem
ferðamaðurinn ekur, mun hann
finna mótel meðfram veginum.
Næturgisting á slíkum stöðum
er frá 5 til 10 dollarar og hafa
mörg mótelin upp á ýmsa auka-
þjónustu að bjóða, svo sem
sundlaugar, tómstundaherbergi
og leiksvæði fyrir börn. Fyrir
þá er ferðast í bifreiðum, er
hagkvæmast að leita að móteli
ekki síðar en kl. 7 að kvöldi,
því eftir þann tíma getur verið
erfitt að finna góð mótel, eða
á því verði sem hentar ferða-
fólkinu. Sú evrópska venja, að
setja skóna sína út fyrir her-
bergisdyrnar að kvöldi til að fá
þá burstaða, kemur ekki að
neinu gagni í hótelum eða mótel
um vestra, því þessi venja þekk
ist þar ekki.
Eins og ferðamanninum er
vafalaust kunnugt, eru Banda-
ríkin byggð fólki frá öllum lönd
um heims og því mun hann
fljótlega komast að raun um að
matur þar vestra er einstaklega
fjölbreyttur og eðlilega á mis-
munandi verði. Morgunverður
er snæddur milli 7,30 og 10,00
og samanstendur hann venju-
lega af bacon ,eggjum, ristuðu
brauði, ávaxtasafa og kaffi, sem
líklega má telja þjóðardrykk
landsmanna. Meðalverð á morg
unverði er frá 75 centum til
eins og hálfs dollars, en að sjálf
sögðu fer verðið allmikið eftir
matstaðnum. Góðan miðdegis-
verð getur ferðamaðurinn feng
ið fyrir $ 1,25 til $ 3,00. Aðal-
máltíðin í Bandaríkjunum er
kvöldverðurinn og er hægt að
fá ágæta máltíð fyrir 2 til 5
dollara. Að sjálfsögðu er hægt
að fá mun dýrari máltíðir en
þetta.
Þjónustufé eða þjórfé er föst
venja í Bandarikjunum, en hún
er mörgum Evrópubúum ekki
að skapi. Reikningur á mat-
sölustað eða kaffistofu er stíl-
aður upp á ákveðna upphæð og
venulega gefur neytandinn um
15% í þjónustufé. Enginn skyldi
þó ætla að þetta sé skylda.
Þjónustuféð er veitt sem viður-
kenning fyrir góða þjónustu og
er neytandanum í sjálfsvald
sett hve mikið hann gefur, ef
hann þá telur þjónustuna hafa
verið einhverrar umbunar
virði.
Þurfi ferðamaður á aðstoð að
halda við farangur sinn, annað
hvort á flugvelli eða á hóteli,
getur hann fengið burðarmann
sér til aðstoðar. Venja er að
greiða burðarmanninum 25 til
30 cent fyrir hverja tösku sem
hann ber, en að sjálfsögðu er
þetta ekki þjónustufé, heldur
vinnulaun. Rétt er fyrir ferða-
menn að hafa það í huga, að
föst vinnulaun þess fólks, sem
veitir honum þjónustu, eru mið
uð við að fólkið fái greitt þjón-
ustufé sérstaklega.
í Bandaríkjunum
er margt að sjá.
í öllum stærri borgum Banda
ríkjanna, gefst ferðamanninum
kostur á að sækja hljómleika,
leikhús kvikmyndahús, —
skemmtistaði og söfn ýmiskon-
ar. 1 stórborgunum er haldið
uppi sýningaferðum; ekið um
markverð hverfi í strætisvögn-
um og er leiðsögumaður ávallt
í förinni. Snætt er á forvitni-
legum matstöðum og einnig
gefst ferðamanninum kostur *
að kynnast næturlífi stórborl-
arinnar.
Landslag í Bandaríkjunum
býður ferðamanninum upp á
ótrúlegar andstæður. Gróður-
lausar sandauðnir í Arizona,
skógivaxnar hæðir. í Pennsyl-
vania og Wisconsin, víðáttu-
miklar sléttur í miðvesturfylkj-
unum og hrikalega fjallgarða í
Coloradofylki og víðar. Grand
Canyon gljúfrið í Arizona er
talið eitt stórfengtega.sta nátt-
úruundur á plánetu okkar.
Gljúfur þetta er 23 km. á
breidd og 1% km. á dýpt. Sá
sem einu sinni hefur komizt í
snertingu við þetta sérkenni-
lega fyrirbrigði, gleymir því
seint, eða aldrei.
í stuttri blaðagrein sem þess-
ari, verður að sjálfsögðu ómögu
legt að gera viðhlítandi greiu
fyrir þeim fjölda landfræði-
legra fyrirbrigða, sem er að
finna í þessu stóra landi. Verð-
ur hér því aðeins tekið eitt
sýnishom.
1 Miðvesturfylkjum Suður-
Dakota er að finna afar sér-
kennilegt landslag. Þar er stórt
landflæmi, sem á ensku er
nefnt „The Badlands". Þar er
ekki stingandi strá að sjá, en
nokkuð vestar eru sérkennileg
fjöll og hæðir, sem nefnast
„The Black Hills“ (Svörtu hæð-
ir). 1 eina tíð var mikið gull-
nám í þessum hæðum og enn
í dag er þar starfrækt stærsta
gullnáma landsins. Það er í eitt
af fjöllum þessa svæðis, Mt.
Rushmore, sem andlit fjögurra
forseta Bandaríkjanna hafa ver
ið höggvin út. Þarna skammt frá
er um þessar mundir verið að
umbreyta heilu fjalli í Indíána,
ríðandi á hesti. Fyrirmyndin að
þessu stórkostlega líkneski er
sögufrægur Indíáni, sem héb
„Crasy Horse“, (Tryllti hestur).
Hann kom mikið við sögu í átök
unum, sem á sínum tíma áttu
sér stað á þessum slóðum milli
Indíána og hvítra manna. Mik-
ið kapp hefur verið lagt á að
viðhalda gömlu námufaæjunum
eins og þeir voru á liðinni öld.
Heimsókn í gömlu vínkrárnar,
er l'íkt ög að hverfa 100 ár aftur
i tímann. Pistólur hinna al-
ræmdu fjárhættuspiiara og
vísundabana þess tíma skreyta
veggina, við hlið ljósmynda at
nafntoguðum Indíánahöfðingj-
um.
Þeim er áhuga hefur á að
fara til Bandaríkjanna og
ferðast þar um, er bent á, að
Pan American flugfélagið hefur
gefið út gagnmerka handbók
um Bandaríkin fyrir erlenda
ferðamenn. Bók þessi ber nafn-
ið „New Horizons U.S.A.“ og
eru í henni hagnýtar upplýsing
ar um hvaðeina, sem væntan-
legur ferðafnaður þarf á að
halda.
Hópferðabilar
allar stærðir
©55Mr-------------
e INfilllOH
Simi 37400 og 34307.