Morgunblaðið - 07.04.1966, Side 9
yimmtudagur 7. apríl 1966
MÖRGU NBLAÐIÐ
9
nema hvað Danir hafa náð
ýmsu í söfn sína, og þar er
Múrurin eða leifarnar af Magn-
úsardómkirkjunni miklu, sem
átti að verða dómkirkja Fær-
eyja. Erlendur'biskup hóf smíði
íhennar á 13. öld, en henni varð
'fekki lokið fyrir siðaskipti.
Hún var þó vígð, áðúr en hún
var fullbúin, og helguð Magnúsi
Eyjajarli í Orkneyjum. í múrn-
•um heitir á einum stað „gull-
skápið“, og þar eru geymdir sjö
helgidómar bak við mynd af
Kristi á krossinum og Maríu
Magdalenu. Latínuskrift er
klöppuð á steininn, og segir
þar, hvað í múrnum er varð-
veitt. Helgidómarnir eru í
blýeski, hver þeirra vafinn inn
í léreftsknýti, og viðfestir eru
kálfskinnsgeirar, þar sem á er
skrifað, hvað í hverju knýti er.
Þar eru m.a. bein úr Magnúsi
Orkneyjajarli og Þorláki helga
Skál'holtsbiskupi. Sýnir þetta
með öðru tengsl Færeyja við
hinn norræna heim á miðöld-
um, og hve Færeyjar voru mið-
svæðis. Þessi tengsl héldust
furðulengi, t.d. er ekki langt
síðan menn kölluðu til arfs
milli Hjaltlandseyja og Fær-
eyja.
• Stóra Dímun
Sunnan undan Straumey
er Sandey (Sandoy), sem er
óvenju greiðfær yfirferðar, en
annars ganga há björg víðast
hvar í sjó fram á Færeyjum, og
brött fjöll með djúpum og
hrikalegum giljum gera sam-
göngur á landi erfiðar. Sunn-
anhallt við Straumey er lítil
unglegt við hana nema lend-
ingin. Hún rís há og brött úr
sjó, lendingarstaður er lítill og
lélegur undir sextugu bjargi,
og uppgangan er bröít, löng og
hættuleg. Þegar upp er komið,
blasir við grasgefnasta ey Atl-
antshafsins, þar sem hross, kýr
og kindur eru á beit, en yfir
sveima milljónir fugla af mörg
um tegundum. Ekki skal loft-
hræddum manni ráðlagt að
ganga fram á bjargbrúnir á
Stóru Dímun, því að bjargið er
þverhnípt í sjó niður, og er
aðfluttur varningur eyjar-
skeggja dreginn upp á gálga-
tré, sem liggur út af brúninni
yfir lendingarstaðnum. Þarna
býr einangruð fjölskylda, en
menntuð og auðug talin, enda
er eyin gagnsöm og geysigóð
undir bú. Bærinn er ævagamall
og byggður sem virki, ef svo
ólíklega tækist til, að óvinir
kæmust upp á eyna, án þess að
varðmaðurinn við uppgöngu-
staðinn yrði þess var, eða gæti
stöðvað þá. Það kom þó fyrir til
forna. — Sagt er, að a.m.k. einn
karlmaður úr hverjum ættliði
farist af slysförum, — hrapi úr
bjargi eða fái stein i höfuðið á
leið upp eða niður frá lending-
unni. Þarna er minnsta kirkju-
sókn í veröld, því að sérstök
kirkja er fyrir fjölskylduna. Á
þessum stað á vel við að snæða
ýmsa færeyska rétti, svo sem
sýrða ritu (í mjólkursýru),
skerpikjöt (vindíþurrkað kinda-
ket) o. fl.
• Suðuroy
Litli Dímon er sunnar. Þar
Uppdráttur af Færeyjum.
Xölurnar tákna veiðivötn, sem ferðamenn geta fengið að renna í. 1. Sörvágsvatn eða Leitisvatn.
2. Fjallavatn. 3. Kviltkinnava tn. 4. Saxunnarvatn. 5. Mýruvötnini (fyrirstöðuvatn) 6. SEV-
hylurin (fyrirstöðuvatn). 7. Leynavatn. 8. Vatnið oman fyri Stígar. 9. Eiðisvatn 10. Vatnið
við bygdina. 11. Toftavatn. 12. Hálsavötnini. 13. Sandsvatn eða Traðarvatn 14. Stóravatn. 15.
Lítlavatn. 16. Vatnsdalsvatn. 17. Kirkjuvatn. 18. Vatnsnes og Bessavatn. 19. Miðvatn og
Ryskivatn (fyrirstöðuvatn).
Bezti veiðitíminn, eða sá eini í raun og veru, er í júlí og ágúst. Fyrir ferðamenn almennt er
bezti tíminn frá miðjum maí og fram í septemberbyrjun. Veðurlag er breytilegt í Færeyjum,
eins og hér, á sumrin skiptist á sólskin og skúraleiðingar. Þoka (mjörki) er nokkuð tíð á viss-
um stöðum. Þótt fremur hlýtt sé í Færeyjum á sumrin, er ráðlegt að taka með sér (eða
kaupa í Þórshöfn) uliarpeysu og regnfrakka, einkum ef eitthvað á að ferðast á sjó.
\ViÐoy
KUNOY
KAL30Y VjrölianQSj jðartlðl FUGLOY
Kunov\ \ \L l /V . KirJtja
fyrír norðan, enn frábrugðn
ari þeirri, sem töluð er á Norð
ey, Skúfey (Skúvoy). Þar er
geysibrattur gangur upp frá
lendingu, en uppi á eynni má
sjá gröf Sigmundar Brestisson-
ar. Fra Skúfey er farið suður
og út í Stóra Dímun, sem
kölluð hefur verið sérstakt
konungsríki, enda er allt kon-
Magnus-kirkjan í Kirkjubö.
er engin byggð, en góð beit
fyrir sauðfé. Syðsta byggða
eyin í Færeyjum er Suðurey
(Suðuroy). Þar eru margar
byggðir, hver með sínum hætti,
og skemmtilegar að heimsækja.
Mállýzkan þar er frábrugðin
þeirri, sem gengur um eyjamar
ureyjum. Suðureyingar þykja
sumir dansklundaðir, og var
haft á orði eftir heimsstyrjöld-
ina síðari, þegar Færeyingar
voru að hugsa um að rífa sig
lausa frá Danmörku og stofna
lýðveldi, að þeir mundu stofna
sérstakt ríki í konungssam-
/ <tSandv«i
C-\Hvalba
‘,e
SUDUROV
'’íjÁTvöroyri
»17.Ai
1 Fámjin \F
Vagurst^jýPorkerl
j^STÓRA DlMUN
Ol-ITLA Dl'MUM
.Sumba
Vaglið í Þórshöfn.
bandi („Personalunion") við
Danmörku með líkum hætti og
ísland var frá 1918 til 1944.
Aðrir Færeyingar kalla Suður-
ey stundum „Lille Danmark"
síðan. Syðst á Suðurey er
byggðin Sumba (Sunnbær),
þar sem fornir hættir hafa
varðveitzt betur en víðast ann-
ars staðar í Færeyjum. Allra
syðst er skerið Munkurin, og
þar suður af á að vera grótta-
kvörn mikil í hafi („mael-
ström“), sem sæfarar óttuðust,
enda er hún dregin upp með
hrikalegum hætti á gömlum
landabréfum.
■Ar
Frá Þórshöfn má fara í norð-
ur með bílum eða skipum.
Sjálfsagt er að koma í Götu á
Eysturoy (Austurey), þar sem
Þrándur bjó, en Klakksvík á
Borðey er full nýtízkuleg fyrir
smekk okkar. Sá bær stendur
í skugga hárra fjalla.
★
Hér hefur aðeins verið stikl-
að á örfáum atriðum, sem ætla
má, að íslendingar hafi gaman
af að skoða í Færeyjum, en
sannast sagna leiðist íslendingi
aldrei í Færeyjum. Landslagið,
fóikið og siðvenjur þess, sem
eru í ýmsu frábrugðnar okkur,
♦MUNKURIN
sjá um það. Svo mikið er víst,
að sá, sem þetta ritar, getur
ekki ráðlagt mönnum að njóta
sumarleyfis síns á skemmtilegri
stað.
7/7 sölu
TriUubátur, 3ja tonna í góðu
ástandi með 26 ha. Albin-vél,
er til sölu. Rauðmaganet geta
fylgt. Uppl. í síma 1890,
Akranesi.
Airwsck
lykteyðandi undraefni.
ÓLAFUR GÍSLASON
& Co h.f.
Ingólfsstræti 1 A