Morgunblaðið - 07.04.1966, Qupperneq 13
rimmtudagur T *prfl 1966
MORGUNBLAÐIÐ
13
Grænlands. Búa farþegar þá
um borð allan tímann, og geta
i farið í land í þeim höfnum, sem
skipið sækir heim.
j| f>á er einnig mögulegt að
, fljúga til Grænlands og not-
j; færa sér síðan skipaferðir inn-
anlands, eða þotuþyrlur Grön-
■ landsfly.
Vörur og verðlag
| Verzlanir eru í flestum græn-
lenzkum bæjum, og mun þar
fást flest sú vara, sem á boð-
stólum mundi vera t.d. í dönsku
sveitaþorpi. Grænlandsverzlun-
in rekur flestar verzlanirnar,
en auk þess eru einnig í Græn-
landi einkaverzlanir, sem eink-
um verzla með sérvarning.
Verðlag í Grænlandi er eilít-
ið hærra en í Danmörku. Ýms-
ar vörur, svo sem bjór, vín,
tóbak, súkkulaði og sykurvarn-
j ingur er töluvert dýrari en í
j Danmörku. Grænlandsverzlun-
j in hefur einkaleyfi á innflutn-
j ingi þessa varnings, en þó er
ferðamönnum leyft, samkvæmt
reglugerð, að hafa með sér inn
jj í landið % 1. af sterku áfengi, 1
j| 1. af léttu víni og eina lengju
af sígarettum.
Hvað kostar það?
( Hér á eftir skulu nefnd nokk-
ur dæmi um, hvað kostar að
ferðast til Grænlands, svo og
| innanlands í Grænlandi, sam-
i ikvæmt upplýsingum Konung-
, legu Grænlandsverzlunarinnar.
! Alls staðar er átt við danskar
krónur (100 kr. danskar jafn-
gilda 624,50 ísl. kr.)
Ý Með skipi frá Kaupmanna-
höfn til t.d.:
• Julianaháb
Godtháb
j Holsteinsborg
Egedesminde
j Jakobshavn
kr. 800,00
— 940,00
— 1020,00
— 1080,00
— 1100,00
* í verðinu er fæði innifalið,
drykkjarföng ekki. Venjulega
er komið við í 2—4 höfnum,
og hringferð kostar tvöfalt far-
gjald til nyrzta staðarins, sem
farið er til.
ll
Með flugvél frá Kaupmanna-
höfn um Syðri Straumfjörð
til t.d.:
kr. (báðar leiðir)
Godtháb 2541,00
j Hols'teinsborg 2231,00
' Hgedesminde 2491,00
<í Börn milli 2 og 11 ára greiða
I Ihálft fargjald. Börn innan 2
ára greiða 10% af fargjaldi. —.
Grænland. Kortið sýnir
ýmsa staði, sem ferðamenn
myndu e.t.v. helzt hafa liug
á að heimsækja.
Vera í S-Straumfirði kostar um
kr. 50 á dag.
Með strandferðaskipi milli ein-
| stakra grænlenzkra bæja:
kr.
Godtháb/Julianeháb 231,00
Godtháb/Holsteinsborg 144,00
Holsteinsborg/Egedes-
minde 102,00
Egedesminde/Umanak 144,00
Egedesminde/Upernavik 193,00
i
í Fæði er ekki innifalið í verð-
inu, en kostar um kr. 25,00 á
dag.
Flugleiðis milii ýmissa græn-
lenzkra bæja:
kr.
Godtháb/Julianeháb 480,00
Godtháb/Holsteinsborg 275,00
Holsteinsborg/Egedes-
minde 165,00
S-Straumf jörður/Godt-
háb 300,00
S-Straumsfjörður/
Holsteinsborg 145,00
S-Straumsfjörður/
Egedesminde 275,00
S-Straumsfjörður/
Jakobshavn 390,00
Ferðir Flufélags íslands
Hér hafa verið rakin far-
gjöld m.a. frá Kaupmannahöfn
til Grænlands svo og innanlands
iþar. Munu þó einkum far-
gjöldin innanlands í Græn-
landi eiga erindi til íslendinga,
sem fara vilja til Grænlands,
því eins og allir vita er óþarfi
að fara fyrst til Kaupmanna-
hafnar. Bæði er það, að flug-
vélar á leið til Grænlands hafa
hér oft viðkomu ,og er hægt að
tryggja sér far með þeim flug-
vélum hér. í gjaldskrá Konung-
legu Grænlandsverzlunarinnar
fyrir árið 1966 segir að það
kosti kr. 500,00 að fljúga
frá Reykjavík til Narssarssu-
aq, og tvöfalt það gjald báð-
ar leiðir. Sama fargjald er gef-
ið upp fyrir ferð til Kulusuk.
Ef menn æskja þess, geta þeir
ugglaust fengið nánari upplýs-
ingar um þessar ferðir með því
að skrifa Konunglegu Græn-
landsverzluninni í Kaupmanna-
höfn.
En raunar væri það að leita
langt yfir skammt, því Flug-
félag íslands hefur nokkur und
anfarin ár haldið uppi sumar-
ferðum til Grænlands. Hefur
hér einkum verið um tvenns
konar ferðir að ræða, svokall-
aðar fjögurra daga ferðir til
Narssarssuaq og eins dags ferð-
ir til Kulusuk á austurströnd
Grænlands. Hvort tveggja eru
ferðirnar stórskemmtilegar og
kostnaði öllum stillt í hóf.
í áætlun Flugfélags íslands
fyrir sumarið 1966 er gert ráð
fyrir sex fjögurra daga ferð-
um til Narssarssuaq í júlí og
ágúst. Verður fyrsta ferðin far-
in 17. júlí en hin siðasta 7.
ágúst.
f>á fjóra daga, sem ferða-
mennirnir dvelja í Narssarssu-
aq, eru skipulagðar nokkrar
mjög skemmtilegar og fróðleg-
ar ferðir. Nefna má bátsferð
yfir Eiríksfjörð til Brattahlíð-
ar, dagsferð eftir borgaris-
prýddum Eiríksfirði yfir til
bæjarins Narssaq, sem er næst
stærsti bærinn í S-Grænlandi
(1,000 íbúar). Höfuðatvinnuveg
ur Narssaqbúa eru rækjuveið-
ar og niðursuða. Á leiðinni til
baka frá Narssaq er komið við
í Itivdlek, en þaðan er aðeins
45 mín. gangur yfir til Igalike
(Garða), en þar sat biskup ís-
lendinga í Grænlandi og þar
var þing þeirra.
Þá er skipulögð gönguferð frá
Narssarssuaq að skriðjöklinum
fyrir innan flugvöllinn. Þar
er landslag mjög hrikalegt og
fagurt, og gefur góða hugmynd
um landshætti á Grænlandi.
Fjögurra daga ferð til Nars-
Æarssuaq með Flugfélagi ís-
lands kostar kr. 7.967 íslenzkar,
og er fæði og gisting að Hotel
Arctic innifalið í verðinu.
í>á efnir Flugfélagið til 12
einsdagsferða til Kulusuk á
austurströnd Grænlands. Verð-
ur fyrsta ferðin í sumar farin
12. júní, en hin síðasta 28. ágúst.
Þessar ferðir hafa verið ákaf-
lega vinsælar. Farið er frá
Reykjavík kl. 11:30 f.h. og flog
ið til Kulusukeyjar, en hún ">r
í mynni Angmagsalikfjarðar. Á
Kulusukeyju og við Angmagsa-
likfjörð eru helztu heimkynni
hinna svonefndu Angmagsalik-
eskimóa, sem Evrópumenn upp-
götvuðu ekki fyrr en 1884. Nú
búa um 2,000 Grænlendingar í
Angmagsalikhéraði.
Frá Flugvellinum í Kulusuk
er um klukkustundar gangur
til þorpsins Kap Dan, og þar
geta ferðamenn af eigin raun
kynnzt hinum frumstæðu lifn-
aðarháttum. Þessi staður var
Á SV-Grænlandi er Gósenland sportmanna og silungsgengd
víða mikil. Grænlendingar beita stundum allsérstæðum
veiðiaðferðum. T.d. er eitt helzta veiðarfæri þeirra tóm
pilsnerflaska, sem girnislínu er vafið um, og siðan kastað
fram af flöskunni. Er spónninn dreginn inn með því að vefja
inn á flöskuna. Kasta Grænlendingar furðu langt með
tækjum þessum. Myndin sýnir slíkar veiðar við Eiríksfjörð.
þar til fyrir fáum árum ein
afskekktasta byggð í heimi hér.
Til Reykjavíkur er haldið sam-
dægurs.
Ferð til Kulusuk kostar kr.
3.230 ísl.
Þá efnir Flugfélag íslands
ennfremur til viku veiðiferðar
til Narssarssuaq dagana 26. júlí
til 1. ágúst, en upppantað mun
vera í þá ferð fyrir löngu. Önn-
ur ferð mun ekki farin í sumar,
en e.t.v. að ári.
Örfá heilræði
Á SV-strönd Grænlands eru
veður oft ákaflega fögur að
sumarlagi, og dagar geta verið
mjög heitir. Staðviðri, logn og
blíða eru algeng ,en veðrið get-
ur breytzt skyndilega. Búast
mú við köldum vindum, er siglt
er um firðina.
Ferðamönnum er því ráðlagt
að taka með sér góðan skjól-
fatnað, t.d. hlýjar peysur, úlp-
ur og þessháttar. Skófatnaður
þarf að vera traustur, góður
og helzt vatnsheldur.
Loks er þess að geta að mý-
flugur geta verið hvimleiðar,
einkum i hinum skjólgóðu fjörð
um. Er ferðamönnum því ein-
dregið ráðlagt að hafa með sér
mýflugnaolíu til þess að bera
á hörund sitt. Slík olía kemur
að góðum notum, og heldur
mýinu frá. Olíuna má kaupa í
flestum lyfjaverzlunum í
Reykjavík, og einnig fæst hún
á Reykjavíkurflugvelli, svo og
í flugvélum Flugfélags íslands.
Þá hefur ágæt olía til skamms
tíma fengizt hjá Sölunefnd
varnarliðseigna.
Riviera norðursins
Enda þótt ferðamaðurinn
verði að búa við fremur frum-
stæð skilyrði í Grænlandi,
hverfur slíkt gjörsamlega í
skuggann fyrir náttúrutöfrum
landsins. Fæstir munu hafa
reynt algjöra þögn í ríki nátt-
úrunnar fyrr en þeir koma í
hina grænlenzku firði. í Eiríks-
firði og nærliggjandi fjörðvtm
er harla lítið fuglalíf, einstaka
máfar og hrafnar. Erni og fálka
má þó alloft sjá. Að þessu frá-
töldu er ekkert, sem truflar þar
kyrrðina, utan drunurnar, sem
einstaka sinnum 'heyrast, er
risastórir borgarísjakar steypa
sér kollhnís úti á firðinum.
Það er ekki úr vegi að ljúka
þessu greinarkorni með niður-
lagsorðum Svisslendingsins
Ernst Hofer, ljósmyndara og
höfundar fullfallegrar bókar
um NA-Grænland, „Arctic Rivi-
era“:
„Ég hef nú eytt fjórum
sumrum í Grænlandi. Þegar ég
nú lít yfir myndirnar í þessari
bók, og óteljandi aðrar mynd-
ir, sem ég kom með þaðan,
minna þær mig á dásamlegt og
fróðlegt tímabil, sem eytt var
í þágu leiðangra dr. Lauge
Koch. Þær minna mig einnig
á stað, sem ég mun ávallt þrá
að snúa aftur til — Rívíeru
norðursins."