Morgunblaðið - 07.04.1966, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 7. apríl 1968
Pardusdýrið er ósköp rólegt á að líta í þjóðgörðum Austur-
Afríku.
önnur stórdýr Austur-Afríku.
Slík Safariferð er auðvitað
enn tiil, en hinn hátturinn gerist
æ líðari, að „skjóta“ á dýrin
einungis með myndavélum,
ýmist með kvikmyndavélum
eða venjulegum ljósmyndavél-
um, og vafasamt er, hvort ger-
ir meiri lukku, þegar heim er
komið, höfuð af ljóni upp á
vegg í bókaherberginu með
arineld og öllum „græjum“
eða saga Ijónsfjölskyldu sögð
með kvikmyndavél.
Ef mögulegt er, er það talið
nauðsynlegt og æskilegt á Saf-
ariferðum, að eiga 2 daga fría
í Nairobi í Kenya, áður en lagt
er upp. Þá munu fylgdarmenn
þínir hitta þig að máli á hót-
elinu, og þið ræðið saman um
allt, sem viðkemur ferðinni.
Þið farið saman yfir matarlist-
ann, og listann yfir hluti þá,
sem nauðsynlegir eru í ferða-
lagið. í Nairobi og flestum
stöðum í Austur-Afríku, þaðan
sem lagt er af stað í Safariferð,
er hægt að kaupa filmur, jafn-
vel leigja sér dýrar myndavél-
ar, skotvopn og annað sem til-
heyrir.
Hafi menn sig ekki að heim-
an kunnað að búa, í viðeigandi
klæðnað, er 'hægt að fá úr því
bætt- hér, en stundum þarf, að
afla veiðileyfa og annars per-
sónulegs eðlis.
Það tekur ajlt að tveim sól-
arhringum að ná ti/1 veiðisvæð-
anna í hverju landinu sem er.
og hvort sem Safari er veiði-
ferð eingöngu eða einungis ferð
með myndavélar. Auðvitað
stytta flugferðir allar vega-
lengdir að mun.
Bifreiðarnar, sem notaðar
eru í Safariferðum er>u með
drifum á öllum hjólum. Hægt
er að leigja sér vana leiðsögu-
menn, afríska kokka og burðar-
menn, og jafnvel er hægt að
leigja sér ljósmyndara, sem tek
ur myndir á manns eigin film-
ur.
Þegar komið er í náttstað að
kveldi, setja hjálparmennirnir
okkar upp tjaldbúðir, svona
rétt eins og gerist hjá Guð-
mundi Jónassyni upp á Öræf-
um íslands.
Þeir slá utanum tjöldin tvö-
földu flugnaneti, og það eru
svalir skuggamegin, en bað-
klefi sólarmegin, þér til 'hag-
ræðis og þjónkunan
Allt er hérna fyrsta flokks,
eins og á (hóteli, og þó erum við
stödd í miðjum frumskóginum.
Við vöknum fyrir dögun. Fáum
okkar kröftugan morgunverð.
Morguninn er svalur, og villi-
dýrin stjákla óhrædd um í
næsta nágrenni
Þegar líður að hádegi, skín
sólin skært og hitinn er óþol-
andi, og sértu ekki að elta ein-
hverja fílaslóð eða á höttunum
eftir ein'hverri sjaldgæfri dýra-
tegund, þá farðu aftur til tjald
búðanna og snæddu miðdegis-
verð.
Klukkan 3 er aftur haidið af
stað, og veiðinni —, með byss-
unni eða myndavélinni er hald-
ið áfram fram í myrkur, en þá
setjast menn að í tjaldbúðun-
um, sefja veiðisögur, grobba,
fá sér einn gráan og horfa í
glæður eldsins, sem er kveikt-
ur til að stugga villidýrunum
frá.
Safari-bifreiðin svonefnda
ekur mönnum að heppilegum
veiðisvæðum. Þegar þangað er
náð, yfirgefa þeir bílinn, og
rölta fótgangandi að bráð sinni.
Engum er leyft að skjóta dýr
innan 200 metra fjarlægðar frá
bílnum,
( Svona gengur hið ljúfa líf
meðal villidýranna í Austur-
Afríku. Og hvað kostar nú
svona ferð?
Safariferðin, sem Lönd og
Leiðir, Aðalstræti 8, auglýstu
fyrir skömmu, er 18 daga ferð,
sem kostar frá kr. 24.000 fyrir
hvern einstakling.
Lönd og leiðir hafa samið
við þýzka ferðaskrifstofu, sem
hefur sérhæft sig í undirbún-
ingi slíkra ferða Flogið verður
frá Reykjavík til DússeldorjC
eða Frankfurt í Þýzkalandi, en
þaðan fara ferðamennirnir til
Mombasa í Kenya.
Þegar þangað er komið, er
um 5 leiðir að velja, og kostn-
aður misjafn. f þessum löndum
er enska mál, sem flestir skilja.
Venjulega myndi ferðalangur
semja við ferðaskrifstofuna um
kostnað í ferðum. Óþarfi sýn-
ist því að týna til verð á hótel-
herbergjum og einstökum mál-
tíðum. ísland er eitt þeirra
landa, sem ekki þarf vegabréfs
áritun fyrir þegna sina til ferða
laga til þessara landa.
Safariferð til Austur-Afríku
verður vafalaust ógleymanleg
fy.rir þann, sem hana fer.
Kostnaður skiptir í því máli
minnstu.
Aðeins er því eftir að óska
þeim, sem slíka draumaferð
fara — góðrar ferðar!
KEFLAVIK
NEW YORK
Engin ferð jafnast á við ferð með hin-
um glæsilegu þotum PAN AMERI-
CAN — hvort sem farið er á FYRSTA
FARRÝMI eða ,,Tourista“-farrými.
Flugtíminn til New York er 5Vz klst.
PAN AM—ÞÆGINDI PAN AM-WÓNUSTA PAN AM-HRADI
Allar nánari upplýiingar veifa:
PAK AMERICAM á íslandi og ferSaskrifstoíurnar.
AÐALUMBOÐ G.HELGASON &MELSTED HF HAFNARSTRÆT119 SiMAR 10275 11644
NORÐURLANDAFERÐ
9. júlí — 28. júlí 1966
Flogið út — Gullfoss heim
Verð frá kr.: 14.790,00.
FERÐASKRIFSTOFAN Hverfisgötu 12
Reykjavík
og
Skipagötu 13
Akureyri
H
*
O
P
F
E
R
Ð
I
R
N
A
R
ÍRLAND — SK0TLAND I
31. júlí — 11. ágúst 1966
Verð kr.: 12.950,00.
mmmmmmmmmmmmmm^mmmmmmmmmmmmmmmmm
12 DAGA FERÐ TIL
ÍRLANDS 0S SK0TLANDS
FERÐASKRIFSTOFAN Hverfisgötu 12
Reykjavík
og
Skipagötu 13
Akureyri