Morgunblaðið - 15.06.1966, Side 2
2
MORCUNBLADIÐ
Miðvikudagur 15. júní 1966
Sfunstaðn Sjólistæðisflokhs og
Alþýðuflokks á Akronesi
AKRANESI, 14. júní — Fyrsti
bæjarstjórnarfundur eftir kosn-
tngarnar var haldinn hér í dag,
þriðjudaginn 14. júní í Templara
húsinu og byrjaði kl. 16.
í upphafi fundarins las Jón
Árnason upp starfs- og málefna-
*amning, sem Sjálfstæðismenn-
trnir fjórir og Alþýðuflokksmenn
trnir tveir höfðu gert með sér
am Samstarf á næsta kjörtíma-
bili. Síðan hófust kosningar og
yar Jón Árnason (S) kjörinn
forseti bæjarstjórnar. Fyrsti vara
forseti bæjarstjórnar var kosinn
Hálfdán Sveinsson (A) og annar
yaraforseti Páll Gíslason (S).
Björgvin Sæmundsson, verkfræð
tngur, var kosinn bæjarstjóri til
næstu fjögurra ára með sex atk.
fjögurra Sjálfstæðismanna og
tveggja Aiþýðuflokksmanna.
Þrír 3kiluðu auðu (H-Lista-
menn), Framsóknarmennirnir
Daníel Ágústínusson og Ólafur
J. Þórðarson og Alþýðubandalags
maðurinn Ársæll Valdimarsson.
I bæjarráð voru kosnir Valdi-
mar Indriðason . (S), Hálfdán
Sveinsson (A) og Daníel Ágúst-
ínusson (F).
Loks var kosið í hinar ýmsu
fastanefndir.
Kæra Daníels Ágústínussonar
út af bæjarstjórnarkosningunum
var tekin fyrir og dæmd ógild
samkvæmt umsögn kjörstjórnar.
Bæjarritari var kosinn Jón Ben.
Ásmundsson. — Oddur.
Ráðstefnu fiski- og
haffræðinga lokið
NÝLOKIÐ er á Akureyri ráð-
stefnu norskra rússneskra og is-
lenzkra fiski- og haffræðinga.
Var þetta 10. ráðstefna þessara
þjóða um þessi mál. Bera þar
fiski- og haffræðingar þessara
þjóða saman bækur sínar um
rannsóknir á hafsvæðunum, sem
þær eiga hagsmuna að gæta.
Rannsóknirnar beinast einkum
að því að rannsaka hafsvæðin
með tilliti til ástands sjávar. —
Rannsakaður er hiti sjávar, nær-
ingarefnamagn hans og síldar-
göngur. Þátttaka íslands hófst
í vor með því að farið var í leið
angur í byrjun maí, sem stóð í
um hálfan mánuð. Var þessi leið
angur farinn á Ægi og lauk hon-
um, er ráðstefnan hófst og hitt-
ust þá akip frá öllum þjóðunum
á Akureyri. Frá Norðmönnum
kom þangað hafrannsóknarskipið
G. O. Sars, en frá Rússum haf-
rannsóknarskipið Akamenikian
Knipovitch.
Störfum ráðstefnunnar var
þannig háttað að innan hennar
störfuðu nefndir, sem fjölluðu
um hin ýmsu mál. Fjallaði. ein
um svif, önnur um síld, hin
þriðja um hafrannsóknir almennt
o.s.frv. Aðalstarf ráðstefnunnar
var síðan að skila sameiginlegu
áliti um störf þessara nefnda.
Álit þetta mun kunngert síðar,
að því er Hjálmar Vilhjálmsson
fiskifræðingur, fulltrúi íslands á
ráðstefnunni, tjáði blaðinu í gær.
Heiöraöir fyrir uppfinningar á
tækjum til hagræðingar við
síldarsöltun
Á AÐALFUNDI Félags síldar-
saltenda á Norður- og Austur-
landi, sem haldinn var nú um
helgina bar formaður félags-
ins, Sveinn Benediktsson,
fram eftirfarandi tillögu, sem
samþykkt var í einu hljóði:
„f tilefni af 10 ára afmæli
Félags síldarsaltenda á Norð-
ur- og Austurlandi samþykkir
aðalfundur félagsins að heiðra
þá Hjört Hjartar, Reykjavík,
sem fann upp einfalt flutn-
ingakerfi á síldarúrgangi,
hausum og slógi, með renn-
andi vatni, og Carl O. Tulini-
us, Akureyri, sem fann upp
síldarhringi til notkunar við
síldarsöltun til þess að koma
í veg fyrir að óeðlilega mikið
af síld færi forgörðum við
söltunina — me'ð því að veita
þeim sem heiðursgjöf kr. 30.-
000.00 hvorum fyrir hug-
kvæmni sína, sem sparað hef-
ur síldarútveginum mikið fé“.
Carl O. Tulinius fann upp
hina svokölluðu síldarhringi
árið 1935, en þá rak hann síld-
arsöltunarstöð með föður sín-
um, Ottó Tulinius, í Hrísey
í Eyjafirði.
Hringir þessir, sem erú ým-
ist úr krossviði eða plasti, eru
set'fir ofan á tunnurnar við
uppsöltun síldarinnar og
koma í veg fyrir, að efstu
síldarlögin í tunnunni hrynji
úr tunnunum við akstur
þeirra frá síldarkössunum út
á „planið“, þar sem tunnurn-
ar eru látnar standa upp á
endann í nokkra klukkutíma
þangað til. þær eru „slegnar
til“, þ.e. efri botninn settur í
tunnuna og henni lokað. Einn
ig hlífir hringurinn síldinni
nokkuð fyrir sólskini og regni
áður en lagáð er til ofan á
tunnunum og þær „slegnar
til“.
Hjörtur Hjartar fann upp
útbúnað til að flytja síldarúr-
ganginn frá síldarkössunum
sem síldarstúlkurnar standa
við, þegar þær hausskera
síldina, með því að setja renn-
Carl Tulinius
ur undir hausskurðarborðið
(fjölina). Rennur flaumur af
vatni eða sjó eftir rennunni
og ber með sér hausa, slóg og
úgangssíld að þró, sem úrgang
urinn er geymdur í þar til
hann er fluttur þaðan á bíl,
Hjörtur Hjartar
sem skilar honum til vinnslu
í síldarverksmiðjunum. Áður
stóðu síldarstúlkurnar í úr-
gangskösinni við vinnu sína
til mikilla tafa og óþæginda
við verkiö.
Báðar þessar uppfinningar
hafa aukið mjög hagræðingu
við síldarsöltun og sparað
mikið fé við verkun síldarinn-
ar. Hjörtur gerði uppfinningu
sína árið 1948, þegar hann rak
síldarsöltun. á Siglufirði á, veg-
um Kaupfélags Siglfirðinga,
sem hann veitti þá forstöðu.
Segja má með sanni, að þeir
Hjörtur. og Carl séu vel af
þessum heiðri komnir og að
það hafi verið vel til fallið að
þeir fengju þessa viðurkenn-
ingu fyrir hugvitssemi sina á
10 ára afmæli Félags síldar-
saltenda á Norður- og Austur-
landi.
Háskóla fslands slitiö
— 91 kandídat útskrifaðist ó
óiinu — Frósögn ai athöfninni
í GÆR kl. 14 var Háskóla Is-
lands slitið í hátíðasal skólans.
Athöfnin hófst með lúðraþyt og
var leikið lag eftir dr. Róbert
A. Ottósson. Þá gekk rektor há-
skólans í salinn og með honum
háskólaráð. Siðan flutti rektor,
Ármann Snævarr ræðu og sagði
hann í upphafi ræðu sinnar:
„Hæstvirti menntamálaráð-
herra herra borgarstjóri, kæru
samkennarar og prófdómendur,
kæru kandidatar, háttvirta sam-
koma.
Ég býð yður öll velkomin hing
að í hátíðasal háskólans í dag
til þessarar athafnar, sem stofn-
að er til í því skyni
að skapa formlega og
heilstæða umgerð um
afhendingu prófskírteina til
kandidata háskólans á vordög-
u'm 1966. Athöfn þessi er sam-
fagnaðarhátíð og kveðjuathöfn
og er nýmæli í sögu háskólans.
Væntir háskólaráð þess að þessi
nýbreytni muni mælast vel fyr-
ir og sé hún fallin til að efla
samstöðu og tengsl milli kandi-
datanna innbyrðis og svo milli
þeirra og háskóla þeirra. Dag-
urinn í dag er heilladagur í
sögu háskólans. Við prófloik í
morgun var það sýnt að mun
fleiri kandidatar hafa lokið
prófum sínum þetta háskólaár
en nokkru sinni áður. Hefur 91
kandidat lokið prófum á þessu
háskólaári: 20 í janúar og 71 í
maí og júní. Næstflestir hafa
kandidatar ella orðið 1955, 75,
og svo 74 síðastliðið ár. Þessi
árangur nú í vor er hákólaimönn
um fagnaðarefni, því að við telj
um að þjóðfélagi okkar ríði ekki
á öðru meir en að fá sem flesta
velmenntaða menn til starfa.
Gleggsti mælikvarðinn á starf-
semi skólans útá við er vissu-
lega sá, að hann brautskrái eins
marga kandidata og þjóðfélagið
þarfnast hverju sinni. Sá mæíi
kvarði er þó engan veginn ein-
hlítur. Starfsemi háskóla verð-
ur ekki réttilega virt nema að
kannað sé hvort þar sé starfað
af alúð og hver kostgæfni og
Kandídatar hlýða á ávarp rektors. I forgrunni gefur að lita tlr. Gylfa Þ. Gíslason, menntamala-
ráðherra og Geir Hallgrímsson, borgarstjóra. ^
í gær
elja sé lögð við kennslustörf og
rannsóknarstörf háskólans ættu
aðrir að dæma en við háskóla-
menn sjálfir. Hitt vildi ég gjarn-
an mega leggja áherzlu á, að
ég tel stúdenta háskólans
stunda nú nám sitt a£ meira
kappi og einbeyttni en var á ár-
um fyrr. Og virðist mér vinnu-
brögð þeirra svipuð og gerist
við þá háskóla er ég hef átt
kost á að kynnast erlendis.
Nám við lítinn háskóla þar
sem tengslin milli stúdenta og
kennara og milli stúdentanna
innbyrðis eru stórum nánari en
við stóra háskóla veitir marga
þroska kosti. Fræðileg leiðsögn
ætti þar að verða fyllri og matin-
leg tengsl öll dýpri og varan-
legri. Háskólaráð telur þó, að
þörf sé á að bæta hina fræði-
legu og persónulegu leiðsögn cg
Framhald á bls. 8
BLÍÐASTA vorveður var^urn
allt land í gær, úrkomulaust
og víða sólskin. Hitinn var
víðast 10—12 stig og komst
víða í 14—15 stig í innsveii-
um.
Um 1300 km suður af land-
inu er að sjá lægð á kortinu.
Hún mun valda vaxandi A-
átt í dag og viða rigningu
sunnanlands með kvöldinu.
Lægð er um 1200 km suður
af Vestmannaeyjum á hægri
hreyfingu norður. Veðurhorf-
ur næsta sólarhring:
Suðvesturland, Faxaflói og
------
síðar kaldi, úrkomulaust að
mestu.
Breiðafjörður til Norður-
lands, Breiðaf j arðarmið til
Norðurmiða: Hægviðri, skýj-
að með köflum.
Norðausturland og Aust-
firðir, Norðausturmið og Aust
fjarðarmið: Austan eða norð
austan gola, þokuloft á mið-
um og annesjum.
Suðausturland og suðaust-
urmið: Austan gola, skýjað.
Austurdjúp- Suðaustan eða
austan gola og þokuloft.