Morgunblaðið - 15.06.1966, Page 4
4
MORGUNBLADID
Miðvikudagur 15. júní 1964.
BÍLALEIGAN
FERD
Daggjald kr. 400.
Kr. 3,50 per km.
SÍMI 34406
SENDUM
S,MI 3 Í1-B0
mmm/fí
Volkswagen 1965 og '66.
LITLA
bíloleigon
Ingólfsstræti 11.
Volkswagen 1200 og 1300.
Sími 14970
BITREIÐALEIGAK
VEGFERÐ
Grettisgötu 10.
Sími 14113.
bila
LEIGA
IViAGNUSAR
SKIPHOLTI21 símar21190
eftir lokun símt 40381
Fjölvirkar skurögröfur I
J ö
v ■*■■■
I R íé
K
I ÁVALT N N TIL REIÐU.
Sími: 40450
Ingi Ingimundarson
hæstaréttarlömaSur
Klapparstig 26 IV hæS
Simi 24753.
B O S C H
ÞOKULVKXIR
BRÆÐURNIR ORMSSON
Lágmuia 9. — Sinu 38820.
Nýstárleg fræðsla
um ferðamál
Útvarpshlustandi skrifar-
Landslýður heyrSi nýstárleg
an fréttaauka í útvarpinu á
sunnudagskvöldið. Einn frétta-
manna hafði þegið boð SAS og
F.í. og fór snögga ferð til
Moskvu með nýrri þotu hins.
norræna flugfélags. Fréttamað-
urinn sá brosandi fólk, veit-
ingahúsagestir sungu yfir borð
um, einn lék á balalaika, börn
köstuðu boltum á milli sín og
þolinmóðir gestir við grafhýsi
Leníns hreyfðu engum mót-
maelum er fréttamanninum var
hleypt fram fyrir þá. En síðan
komu ályktanirnar eftir þessa
nokkurra klukkutíma dvöl.
Miklu hefði verið logið um
Rússland hér heima á íslandi
— sér í lagi eftir að þjóðin —
eins og það var kallað — tók
sig saman um það snemma a
öldinni að skapa fyrirmyndar-
þjóðfélag og allt fram á þenn-
an dag. Eftir þesa lífsreynslu
tók fréttamaðurinn það að sér
að leggja dóm á rússnesku bylt
inguna og þróun hennar, sem
eins og menn vita, mótaðist
að verulegu leyti á stjórnar-
háttum Stalíns frá því að sá
mannvinur náði völdum og þar
til hann lézt fyrir nokkrum
árum. Þeim stjórnarháttum
þarf ekki að lýsa frekar eða
hafa um þá fleiri orð. Um þá
eru nú flestir sammála og þeir
sem hæst töluðu á þeim árum
kjósa nú að hafa um Þá sem
fæst orð. Þeir sem fyrst og
fremst hafa látið blekkjast um
Sovétríkin um þetta tímabil
eru þeir, sem án afláts sungu
þessu blóðveldi lof og dýrð og
aí því meiri krafti, sem ógn-
arstjórnin fór vaxandi.
Fréttamaðurinn hefði varið
þessum minútum eystra betur,
ef hann hefði aflað upplýsinga
fyrir þá, sem e.t.v. hyggja á
Rússlandsferð á næstunni með
hinu ágæta norræna flugtélagi
í stað þess að taka að sér að
breyta sögulegum staðreynd-
um. Fróðlegt væri að vita,
hvort Flugfélagið og SAS hafa
i hyggju að fela þessum frétta-
manni í sameiningu fleiri svip-
uð verkefni á næstunni.
— Hlustandi.M
-Ár Stutt svar
Meiraprófsbílstjóri skrif-
ar:
„Kæri Velvakandi.
Það er mikið af kvenrétt-
indakonum að skrifa þér núna.
Og mig langar að svara með ör
fáum orðum, þeirri sem kal’.ar
sig D.K. Hún segir orðrétt:
„Þriðja dæmið sem skeði
sama dag og hin tvö. Ég er að
aka upp brekkuna við Elliðaár
(það er ekki von að hún viti
að brekkan heitir Ártúns-
brekka), og búin að gefa
stefnuljós til hægri, fyrir fram
úrkeyrslu og er komin hálf
yfir á hægri akrein, þá sé ég
að það er bíll við hliðina á
mínum en eins og hálfa bíl-
lengd fyrir aftan og ég efa það
að ég hefði setið hér og skrifað
þessa ágætu og róðlegu grein
(fyrir karlmennina), ef ég
hefði ekki verið nógu fljót að
sveigja aftur til vinstri. Enn
karlmaður við stýrið.“
Þarna er þessi engill við stýr
ið einmitt að þverbrjóta um-
ferðarreglurnar svo freklega að
jafnvel mánaðarbílstjórinn sem
hóf þessi skrif, tók svo skýrt
fram, að konur, jafnvel með
fullan bílinn af börnum gerðu
sig sekar um.
Stefnuljósin gefa þessum
konum engan rétt til að þver-
beygja fyrir bila. En maður
verður víst að reyna að fyrir-
gefa þetta því þetta eru bara
fávísar konur.
— Meiraprófsbílstjóri.',
Það var kominn tími til að
karlmennirnir létu heyra til
sín. Áfram með smjörið.
-jf Taugaóstyrkar
Og hér kemur reyndar
annað bréf frá karlmanni —
um akstur kvenfólksins:
Kæri Velvakandi.
Ég hef fylgst með berserks-
gangi, sem konur hafa „geng-
ið“ í dálkunum þínum síðan
maður nokkur skrifaði 4. þ.m.
um ökuhæfni þess. Finnst mér
kominn tími til að svara þeim
nokkrum orðum.
Þetta deiluefni er ekki nýtt
af nálinni og þekkist víða. Þeg-
ar það ber á góma rís kven-
fólkið upp á afturfæturna
(bæði hér og erlendis) — og
fiaustrið og taugaæsingurinn
einkennir það sem fyrri dag-
inn. Þannig eru þær yfirleitt
— og skiptir ekki máli hvert
deiluefnið er.
í löngum ritgerðum telja þær
upp „mýmörg" dæmi um
„ruddaskap" karlmanna. Það
er talin sjálfsögð kurteisi að
karlmenn bókstaflega þjóni
kvenfólkinu — og það ætlast
til þess að þeir kitli hégóma-
girnd þess með alls konar
„kurteisi". Þessi hégómagirnd
er ákaflega rík í kvenfólkinu
— og birtist í mörgum mynd-
um. Og snúist karlmennirnir
ekki í kringum konurnar eins
og skopparakringlur — þá
telst það „ókurteisi" og „rudda
skapur".
Sannleikurinn er sá, að í um
ferðinni einkennist akstur
kvenfólks mest af taugaóstyrk
leika og viðvaningshætti, sem
ég hef margoft orðið vitni að.
Þótt flest umferðarslys séu af.
völdum karlmanna er það eng-
in sönnun þess, að karlmenn
séu óhæfari. til aksturs. Skýr-
ingin er einfaldlega sú, að
miklu fleiri karlmenn en kon-
ur sitja við stýri, eins og Vel-
vakandi hefur bent á.
— G.H.E.*
ýF Þakkir fyrir
morgunbænir
Rangæingur skrifar:
„Kæri Velvakandi.
Ekki kemur maður svo í hús,
að ekki sé minnst á kartöflurn
ar, sem á boðstólum eru í
borginni. Eins og Vel'vakanui
hefur sjálfsagt sjálfur komizt
að raun um eru þær heldur lé-
legar að margra dómi óætar.
Mest af þessum kartöflum mun
vera útlent eða þá 3. flokks
kartöflur, sem þeir ryðja út á
1. flokki, það eru einhverjar
kláðakartöflur.
íslenzkir bændur hafa nú
komið upp myndarlegu Veit-
inga- og svefnhúsi, Hótel Sögu.
og heyrst hefur, að sumir vildu
selja það, því bændur notuðu
það víst lítið sjálfir. Væri nú
svo vitlaust fyrir þá að losa
sig við ósköpin á Hótel Sögu
og reyna að leggja prósentin,
sem af afurðum þeirra eru tek-
in til framfærslu Hótel Sögu,
1 byggingu á geymslu i félagi
við Grænmetisverzl. Ríkisins.
Yrðu það geymslur fyrir kart-
öflur og rófur, sem bændur hér
rækta betur en útlendir og yrði
reynt að láta ísilendinga búa
að sínu í þessum efnum. Land-
rými er nóg. Ekki veit ég bet-
ur en að Sölufélag garðyrkju-
manna standi vel vörð um sína
afkomu og reyni að hafa sem
bezta vöru.
Gott er að fá blessað smjör-
ið á þessu lága verði og vona
ég að þeim þyki vérðið hag-
stætt fyrir sig líka, bændun-
um. Gott og gaman væri að fá
nógar og góðar íslenzkar kart-
öflur allt næsta árið eða ánn.
Hefur Velvakandi borðað kart-
öflur undan Eyjafjöllum?
Með beztu óskum og vonum
um góðar og farsælar tiðir fyr-
ir alla á árinu.
— Rangæingur."
Kartöflur
Eftirfarandi hefur Vel-
vakanda borizt:
„Velvakanda hafa borizt
mörg bréf, þar sem Ríkisút-
varpinu er þakkað fyrir nýlega
afstaðnar morgunbænir, senv
séra Páll Pálsson flutti. Að
sjálfsögðu er ekkert rúm hér
til að birta öll þessi bréf, en
efni þeirra er í fáum orðum
þetta, að séra Pál/I hafi í morg-
unhugvekjum sínum fjallað af
hreinskilni og einurð um mörg
þjóðfélagsmál, svo sem réttar-
far, æskulýðsmál, uppeldismáL
skólamál, upplausn og spill-
ingu og seinast en ekki sízt um
ættjarðarást og kristna trú.
Um þetta hafi presturinn talað
af meira raunsæi en almennt
gerist og flutt mál sitt með
prýði og á vönduðu máli. Einn-
ig hafa sjúklingar á sjúkrahús-
um beðið fyrir sérstakar þakk-
ir vegna hins bjartsýna boð-
skapar og uppörfunar í þessum
morgunbænum.
Sjálfsagt er að láta þetta
koma fram og að lokum skulu
birt þrjú kvæði, sem orkt hafa
verið með þaktolæti til séra
Páls.
Útsýn hans var há og víð,
hljómsterk ræða af munni,
hressandi’ eins og austan-hríð,
upp úr lognmollunni.
Blessun Guðs á brautir yðar
birtu veitir lífs við störf,
kærleikans í krafti’ og friðar
kenning hljómi sterk og djörf.
Hvert sem liggur leiðin vönd
leiði Drottins máttug hönd.
Boðskapur hins bjarta mála,
börnum lands mun duga,
því prédikunin séra Páls
prýðir þjóðar huga.“
VANTAR VANA
Afgreiðslustúlku
í vefnaðarvöruverzlun í miðborginni. — Uppl. um
aldur og fyrri störf sendist á afgr. blaðsins fyrir
2ð. þ.m. merkt: „9727“.
Hljómsveit óskast
til að leika fyrir gömlu dönsunum á þjóðhátíð
Vestmannaeyja 5.—7. ágúst. Spila þar 2 kvöld.
Tilboðum sé skilað í pósthólf 188 Vestmannaeyjum
fyrir 5 .júlí njc.
íþróttafélagið Þór, Vestmannaeyjum.
Kópavogsbúar
Sumarskór, sandalar,
telpnaskór, hvítir, svartir
drengjaskór, karlmannaskór,
strigaskór.
Eitthvað fyrir alla
Skóverzlun Kópavogs
Álfhólsvegi 7 — Sími 41754.