Morgunblaðið - 15.06.1966, Page 5
Miðvikuctagur 15. júni 1966
MORGUNBLADID
5
ÚR
ÖLLUM
ÁTTUM
ÞEGAR við komum suður f
gömlu aldamótagarðana í gær
skein sólin glatt á kollana á
hundruðum barna — og ung-
linga, sem þar voru að byrja
sinn fyrsta starfsdag í Skóla-
görðum Reykjavíkur. Fyrr
hefur ekki verið hægt að
vinna garðana, ýmist vegna
bleytu eða klaka. En nú virt-
ist allt skaplegra, og börnin
kepptust við vinnu sína.
Görðunum er skipt niður í
aðalbrautir og síðan allstórar
skákir, sem börnin hugsa um
ein, hver um sinn reit.
Við hittum íyrst að máli
aðalverkstjórann þarna sem
tjáði okkur, að 280 börn væru
þama að störfum nær allan
daginn, þannig að hvert barn
ynni í tvo tíma.
J>au fyrstu byrjuðu kl. 8 og
væru til 10, síðan önnur frá
kl. 10 — 12, 1 — 3 og 3 — 5.
Fyrstan hittum við að máli
11 ára dreng, Sigurjón Kára-
son, sem á reit 32. Þetta er
stæðilegur strákur, sem aug-
sýnilega veit, hvað hann vill.
„Ég var hér í fyrra, og mér
líkar hér bara vel, sagði Sig-
urjón og studdist fram á garð-
hrífuna. „Það er svolítið erfið
ara að vinna þessar skákir hér
V/ð komum heim i haust með fullan
kartöflupoka og heilmikið af rófum
og káli"
Dóra Þorvarðardóttir 11 ára og Dagmar Sigríður Lúðvíks-
dóttir 9 ára.
í köntunum, en við fáum I
staðinn líklega eitthvað meiri
átourð.
Ekki veit ég hvað ég fæ upp
úr þessu í haust. Við borgum
300 krónur í upphafi, fáum
fyrir það allt útsæði, kálplönt
ur og fræ, og svo megum við
eiga við þetta í sól“ segir
nokkuð grýtt hérna í útjaðr-
inum, en þetta er skemmti-
legt starf, þótt betra sé að
eiga við þetta í sól, segir
Sigurjón að lokum.
Og síðan gengum við áfram
um garðana og sáum tvær
stöllur í skrautlegum peysum
og beindum tali okkar * til
þeirra. Sú eldri hét Dóra Þor-
varðardóttir 11 ára, og þetta
var í þriðja skiptið, sem hún
vann í Skólagörðunum.
„Við fáum ekkert kaup, en
við megum eiga alla uppsker-
una, og það er nú ekki svo
lítill búhnykkur, ég fékk rúm
an poka af kartöflum í fyrra,
og svo heilmikið af káli, róf-
um, næpum og gulrófum.í'
sagði Dóra hin búkonuleg-
asta.
„Já, og svo fáum við svolítið
af rabbabara líka,“ sagði sú
yngri, 9 ára hnáta, Dagmar
Sigríður Dúðvrksdóttir.
„Ég er hér í fyrsta skipti,
og við erum hér kl. 1 — 3, svo
að það tekur ekki að hafa
með sér nesti.
Mér fellur "þetta ágætlega,
það er gott að vinna svona
úti í góða veðrinu.“
Svo kvöddum við þennan
glaða hóp garðyrkjumanna,
og við sáum að nýir hópar
voru að koma og taka við af
þessum, svo að við brugðum
undir okkur betri löppinni í
gerfi jeppans hans Sveins
Þormóðssonar, en Sveinn tók
myndirnar, sem þessu fylgja,
og héldum sem leið lá inn í
Laugardal, en þar eru einnig
stórir hópar barna að vinnu í
Skólagörðunum. Við rétt lit-
Sigurjón Kárason 11 ára
barna, sem getur komið heim
með mikið magn af kartöfl-
um, rófum og káli í haust til
pabba og mömmu.
Að rækta jörðina er holl og
góð iðja, og þarf snemma að
temja börnum og unglingum
hana, því að bún gerir alla að
betri mönnum. — Fr. S.
um yfir hinn prúða hóp þar,
og spurðum forstöðukonuna,
hve mörg böm væru á henn-
ar snærum í ár.
„Rúmlega 300“, svaraði hún,
og er þetta þá álitlegur fjöldi
Telpnakápur
þola þvott.
Nýjar gerðir — Ný efni.
Staerðir: 2 — 14.
Mdyv
ö búdin
Aðalstræti 9 — Sími 18860
Laugavegi 31 — Sími 12815.
3ja herb ibúð
Til sölu er vönduð 3ja herbergja íbúð í sambýlis-
húsi við Hátún. íbúðin er í bezta standi. Teppi á
skála og stofu.
ÁRNf STEFÁNSSON, HRL.
Málflutningur — Fasteignasala
Suðurgötu 4 — Sími 14314.
Aðalfundur IViál-
arameistarafél.
AÐALFUNDI Málarameistarafé-
lags Reykjavíkur, lauk með
framhaldsaðalfundi 25. apríl.
Formaður félagsins, Ólafur
Jónsson, flutti skýrslu félagsins
frá liðnu starfsári, sem var 38.
starfsár félagsins. Á árinu flutti
félagið starfsemi sína í nýtt hús-
næði, að Skipholti 70, er félagið
byggði ásamt öðrum meistara-
félögum innan Meistarasam-
bands byggingamanna. Með til-
komu þessa nýja húsnæðis hefur
aðstaða félagsins verulega batn-
að til aukinnar þjónustu við fé-
lagsmenn og almenning, um
hverskonar upplýsingar er
varða féiagið og málefni þess.
Ólafur Jónsson baðst undan
endurkosningu sem formaður
félagsins, og voru honum þökkuð
frábær störf fyrir félagið á
undanförnum árum.
Stjórn félagsins skipa nú eftir-
taldir menn:
Formaður Kjartan Gíslason,
Varaformaður Óskar Jóhanns-
son, Ritari Ástvaldur Stefáns-
son, Gjaldkeri Einar Gunnars-
son, Meðstjórnandi Sigurður A.
Björnsson.
5 herb íbúð
Til sölu er vönduð, nýleg 5 herbergja íbúð á 3. hæð
í sambýlishúsi við Álftamýri. Er í ágætu standi.
Sameign öll frágengin. Sér hitaveita. Sér þvottahús
á hæðinni.
ÁRNI STEFÁNSSON, HRL.
Málflutningur — Fasteignasala.
Suðurgötu 4. — Sími 14314.
Síldarstúlkur
Síldarstúlkur
Óskum að ráða fleiri stúlkur til síldarsöltunar á
Raufarhöfn og Seyðisfirði. Ágæt aðstaða og hús-
næði. Mötuneyti á stöðvunum, fríar ferðir kaup-
trygging. Upplýsingar veita Valtýr Þorsteinsson
sími 20055 Reykjavík og Hreiðar Valtýsson sími
51126 Raufarhöfn.