Morgunblaðið - 15.06.1966, Qupperneq 7
Miðvikuðagur 15. J'finí 1966
MORCU NBLAÐIÐ
7
Vestur-íslendingar
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra leggur DÍómaskreytingu að
minnisvarða Stephans G. Stepha nssonar í Markerville í Alebrta.
Yfir heim eða himin,
hvort sem hugar þín önd,
skreyta fossar og fjallshlíð
öll þií. framtíðarlönd.
Fjarst í eilífðarútsæ
vakir eylendan þín,
nóttlaus voraldarveröld.
þar sem víðsýnið skín.
Þannig hugsaði Klettafjallaskáldið heim í ræðu á íslend-
ingadegi vestanhafs 1904.
Athygli Vestur-lslendinga, sem hér eru staddir, skal vakin á
Gestamóti því, sem Þjóðræknisfélagið heldur að Hótel Borg í
kvöld kl. 8.
Allir Vestur-íslendingar sem staddir eru hér á landi eru boðnir
til mótsins, og þeir hvattir til að koma. Heimamönnum frjáls að-
gangur meðan húsrúm leyfir. Miðar fást við innganginn. Sameig-
inleg kaffidrykkja, ávörp, kvikmyndasýning. Fjölmennið.
ÍRETTIR
Stúdentar MR 1963. Mætið
öll (með maka eða makalaus)
í Átthagasal Hótel Sögu mið-
vikudaginn 15. júní kl. 9.
STÚDENTAR FRÁ M.R.
1964
Stúdentadansleikur verður
haldinn í Tjarnarbúð (niðri)
16. júní og hefst kl. 21.00.
AHir stúdentar velkomnir
meðan húsrúm leyfir
Stúdentar M.R. 1964
Konur í kvenfélaginu Aldan.
Farið verður í Þórsmörk þriðju-
dagínn 21. júní. Þátttaka til-
kynnist í símum 33937, Sigríður,
31262, Fjóla, 158&5, Friðrikka.
Ferðanefndin.
Frá Kvenfélagasambandi ís-
lands. Leiðbeiningarstöð hús-
mæðra verður lokuð frá 14. júní
til 15. ágúst. Skrifstofa Kven-
félagasambands fslands verður
lokuð á sama tíma, og eru kon-
ur vinsamlegast beðnar að snúa
eér tíl formanna sambandains
Helgu Magnúsdóttur á Blikastöð
um, þennan tíma.
Kvenfélagið Bylgjan. Félaigs-
konur, munið skemmtiferðina
miðvikudaginn 22. júní. Upplýs-
ingar í síma 22919.
Bústaðakirkja: Okkur vantar
ejálfboðaliða á fimmtudaginn og
fimmtudagskvöldið. Hafið ham
•r með ykkur. Byggingarnefnd.
Kristileg samkoma verður í
•amkomusalnum Mjóuhlíð 16 í
kvöid kl. 8. Allt fólk hjartanlega
velkomið.
Kvenfélag Keflavíkur. Efnt
▼erður tíl Þingvallaferðar félags
kvenna sunnudaginn 19. júni
(kvennréttindadaginn) Þátttaka
tilkynnist í síma 1657 og 1439
fyrir 16. júní. Nefndin.
Kvenréttindafélag íslands fer
■kemmtiferð sunnudaginn 19,
júní til Strandarkirkju um Krísu
vík. Félagskonur tilkynni þátt-
töku fyrir fimmtudagskvöld í
síma 13076 (Ásta Björnsdóttir)
og 20435 (Guðrún Heiðberg).
Aðalfundur í Bræðrafélagi Frí
kirkjunnar verður haldinn mið-
vikudaginn 15. júní kl. 20.30 í
Fríkirkjunni. Venjuleg aðalfund
arstörf. önnur mál. Stjórnin.
Kvennadeild Skagfirðingafé-
lagsins í Reykjavík minnir á
skemmtiferðina á sögustaði Njálu
26. júní. Öllum Skagfirðingum i
Reykjavík og nágrenni heimil
þátttaka. Látið vita í símum
32853 og 41279 fyrir 22. júní.
Bústaðaprestakall: Sumarferð-
in verður farin sunnudaginn 19.
júní á Suðurnes. Nánar í Dóka-
búðinni Hólmgarði 34.
Frá 1. júlí gefur húsmæðraskól
inn að Löngumýri, Skagafirði,
ferðafólki kost á að dveljast
í skólanum með eigin ferðaútbún
að, gegn vægu gjaldi. Einnig
verða herbergi til leigu. Fram-
reiddur verður morgunverður,
eftirmiðdags- og kvöldkaffi, auk
þþss máltíðir fyrir hópferðafólk
ef beðið er um með fyrirvara.
Vænst er þess, að þessi tilhögun
njóti sömu vinsælda og síðasthð
ið sumar.
Frá Orlofsnefnd húsmæðra í
Kópavogi. I sumar verður dval-
izt í Laugagerðisskóla á Snæfells
nesi dagana 1. — 10. ágúst. Um-
sóknum veita mótttöku og gefa
nánari upplýsingar Eygló Jóns-
dóttir, Vighólastíg 20, sími 41382,
Helga Þorsteinsdóttir, Kastala-
gerði 5, sími 41129, og Guðrún
Einarsdóttir, Kópavogsbraut 9,
sími 41002.
Frá Orlofsnefnd húsmæðra í
Reykjavik. Skrifstofa nefndar-
innar verður opin frá 1/6 kl.
3:30—5 alla virka daga nema
laugardaga sími 17366. Þar verða
veittar allar upplýsingar varð-
andi orlofsdvalirnar, sem verði
, að þessu sinni að Laugagerðis-
skóla á Snæfellsnesi.
Kvennadeild Borgfirðingafél.:
Konur munið skemmtiferðina
19. júní. Upplýsingar í simum
16293 — 30372 og 41979, látið
vita fyrir 16. júní.
Sumarferð kvenfélagsins
Sunnu í Hafnarfirði verður far-
in sunnudaginn 26. júní Nánar
auglýst síðar.
að hann hefði vaknað við sól-
ardans í gærmorgun, og fjöll og
hálsar titruðu í tíbránni,
og mikið var að stytti upp. Ég
heyrði fólk orða það í rigning-
unni að • smíða sér örk eins og
Nói gamli eða jafnvel kajak,
eins og þann sem hvolfdi sunnan
við Örfisey á dögunum. Allt er
hey í harðindum, segir þar.
En nú er sólin semsagt farin
að hella geislum sínum jafnt á
kolla réttlátra og ranglátra, og
enn þarf engan skatt að greiða
af sólskili.
Ég labbaði mér framhjá Skatt-
stofunni í gær, og mér heyrðist
ekki betur, en ískraði í skýrslu-
vélunum, þar sem þær voru
kófsveittar að leggja á skattana
þá vinsælu, sem kvu eiga að
lækka eins og smjörið, þegar líð
ur á sumarið, til þess að lækka
Skattfjallið. En þá sögu sel ég
ekki dýrara, en ég keypti hana.
Þarna hitti ég snyrtilegan
mann, ættaðan að vestan, þar
sem galdramenn grasseruðu hér
áður og fyrr meir. Hann var í
sólskinsskapi og hélt á einni
stórkók í hendinni.
Storkurinn: Þú Ijómar allur,
maður minn?
Maðurinn hjá Skattstofunni:
Já, og mér finnst ástæða til í
allri þessari sól. Sumir eru með
þær hrakspár, að þetta sumar
verði sífellt rigningasumar, en
hver getur sagt um það eftir að
fólk hætti að trúa á gömlu veð-
urspárnar?
Þá var þetta allt svo auðvelt
og þurfti engin gerfitungl til
spádóma á veðri langt fram í tím
ann. Þá var miðað við veðrið á
einum sérstökum degi, venju-
lega einhvern messudaginn eða
hátíðisdag annan, og svo átti
veður að vera eins næstu 40
daga. Þá var gaman að lifa og
ef þetta gekk ekki aftur,
þá mundu elztu menn ekki
annað eins veður, og alltaf komu
fyrir undantekningar.
Mér finnst þú vera spakur i
dag, maður minn, og ég er sam-
mála þér um það, að fólk á eski
að vera með þennan barlóm út
af sumarveðrinu. Ef hann rignir
einhvern daginn, þá er bara að
bíða, eins og Amerikaninn sagði
hér á stríðsárunum, og áður en
maður veit, af er komið gott veð
ur aftur. Og með það flaug stork
urinn upp á flaggstöngina á Al-
þýðuhúsinu, þar sem Skattstofan
er til búsa, og reyndi að hlusta á
söng skýrsluvélanna, ef ske
kynni, að hann heyrði, hvort
skattamir færu lækkandi í ár.
Það skaðar ekki að vera bjart-
sýnn á veður og skatta.
VÍ8LKORIM
Vertu góður fyrst og fremst
frjáls og hreinn sem lindin
aðra leið þú ekki kemst
upp á hæsta tindinn.
Gunnlaugur P. Sigurbjörnsson
Minningarspjöld
Minningarspjöld Kristskirkju,
Landakoti fást á eftirtöldum
stöðum: Skrifstofu Landakots-
spitala .Jónskjör, Sólheimum 35,
verzlun Halla Þórarins, Ve*tur-
2j» til 3ja herb. íbúð
óskast til leigu fyrir skozk
hón. Glit h.f., Óðinsgötu
13 B. Sími 24105.
Tapast hefur
myndavél s.l. föstudags-
morgun, frá N.F.L.-búð að
stoppistöð Landleiða, Lækj
argötu. Finnandi er beðinn
að hringja í simá 30552.
Ráðskona óskast
norðúr í land. Upplýsingar
í dag og á morgun í síma
50543.
Iðnaðarhúsnæði
Vil taka á leigu 60—100
ferm. húsnæði. Stór bílskúr
kemur til greina. Upplýs-
ingar í síma 12159, eftir
kl. 7.
Herbergi
Ungan mann vantar her-
bergi á leigu í Reykjavík.
Upplýsingar í síma 40490
eftir kl. 7 á kvöldin.
Ráðskona óskast
við lítið mötuneyti úti á
landi. Uppl. í síma 35879.
Atvinna óskast
Ungur reglusamur maður
óskar eftir atvinnu, helzt
við útkeyrslu. Er vanur. —
Uppl. í síma 24535.
Ný, hvít. ensk dömukápa
til sölu. Tækifærisverð. —
Laugateig 33.
Til leigu
Eitt herb. og aðgangur að
eldhúsi. Hjón koma ekki
til greina. Tilboð sendist
af.gr. Mbl. merkt: „reglu-
semi — 9363“.
Barnavagnar
Tveir góðir barnavagnar
til sölu. Sími 41785.
Keflavík
Nokkrar notaðar snurvoðar
og önnur veiðarfæri, til
sölu strax. Upplýsingar í
símum 2037 og 2516.
Stúlka óskast
á gott heimili í London.
Upplýsingar í síma 37634.
Loftpressa
til leigu í stór og smá verk.
Uppl. í sima 33544.
Barnakerra
til sölu. Upplýsingar i
síma 37774.
3ja til 4ra herb. íbúð
óskast til leigu, fyrir fá-
menna fjölskyldu. Fullörð-
ið fólk í heimili. Góð um-
gengni og reglusemi. —
Sími 32156.
Til sölu
Skoda station, árg. ’58, ný
skoðaður. Til sýnis Hafnar
stræti 1, kl. 8—6 daglega.
Stórar kápur
Stór karlmannaföt og mik-
ið úrval af öðrum fatnaði.
Notað og Nýtt, Vesturg. 16.
Land Rover ’64
— benzín-bíU, til sölu. —
Skipti á Vol'kswagen 1964
—’65 koma til greina. Upp-
lýsingar í síma 30585 í dag
og næstu daga.
Volkswagen
Óska eftir að kaupa Volks-
wagen, ekki eldri en árg.
’64. Uppl. í sima 32945.
Volkswagen ’64—’65
Vel með farinn, óskast.
Staðgreiðsla. Upplýsingar í
símum 12319, 12393 og eftir
kl. 7 í sírna 16537.
Hjónarúm
með náttborðum, til sölu.
Sími 15453.
Ensk 15 ára stúlka,
sem talar íslenzku, óskar
eftir einhvers konar at-
vinnu. Langar til að vinna
á barnaheimili eða leik-
velli. Upplýsingar í síma
51768.
ATHUGIÐ
Þegar miðað er við útbreiðslu.
er langtum ódýrara að auglýsa
í Morgunblaðinu en öðrum
blöðum.
A T H U G I Ð
Þegar miðað er við útbreiðslu,
ei langtum ódýrara að auglýsa
S Morgunblaðinu en öðrum
blöðum.
Trommusett
Ársgamalt Premier trommusett, sérlega vel með
farið til sölu og sýnis í hljóðfæraverzl. Poul
Bernburg, Vitastíg 9. Fjórar trommur, WFL Hi-hat
og snare-strommustatif. 14 tommu Super-Zyn
Cymballar og 20 tommu Super-Zyn Cymballi ásamt
16 tommu amerískum Zyldjan cymballa. Töskur
utan um allt settið fylgja ókeypis og ýmsir auka-
hlvitir.
ZODIAC
FORD ZODIAC, árgangur 1957, er til sölu, ef við-
unandi verðtilboð fæst. — Bíllinn hefir jafnan
verið í einkaeign og vel með farinn. — Nánari upp-
lýsingar í síma 13635.