Morgunblaðið - 30.03.1967, Síða 2

Morgunblaðið - 30.03.1967, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1907. Formaður Búnaðarfélags ísl- ands felldur úr miðstjórn Fram- sóknarflokksins — Framsóknarflokkurinn hafði ekki rúm fyrir Þorstein Sigurðsson frá Vatnsleysu í miðstjórn sinni — Tveir þingmenn flokksins andvigir „efnahagsstefnu“ hans ÞAU tíðindl gerðust á flokks- þingi Framsóknarflokksins, sem haldið vai fyrir skön mu, að formaður Búnaðarfélags fslands, Þorsteinn Sigurðsson, bóndi á Vatnsleysu, var feiid- ur úr miðstjórn flokksins þar sem hann hefur átt sæti. Framsóknarflokkurinn. sem jafnan hefur talið sig sérstak- an málsvara bænda hefur því ekki lengur rúm fynr einn helzta forustumann bænda á iandinu í æðstu stjórn smn'. Þessi atburður er vafalaust einstæður í sinni röð a? sýn- ir glögglega, að Framsóknar- flokkurinn hefur gjörsamlega misst íengslin við fortíð sína, honum stjóma nú einungis tækifærissinnar. sem telja enga ástæðu til þess að sýna formanni Búnaðarfélags fs- iands það traust að kj tsa hann áfram tii setu í mið- stjórn. Þó lék enginn vafi á því á flokksþinginu, að Þor- steinn Sigurðsson hafði fuli- an hug á að sitja áfram í miðstjórn flokksins, en þing- fulltrúar hafa greinilega kom izt að þeirri niðurstöðu, að Framsóknarflokkurinn þyrfti fremur á öðrum að halda í æðstu stjórn sína, en þeim manni. sem bændur landsins hafa sýnt þann mesta trúnað sem á þeirra valdi er. En það var ekki aðeins við miðstjórnarkjör, sem óróa- samt var á flokksþinginu. Þegar atkvæði voru greidd um „efnahagsstefnu" flokks- ins, sem Tíminn hefur básún- að út sem „nýja", lýstu tveir þingmenn Framsóknarflokks- ins sig algjörlega andvíga þeirri Eysteinsku, sem þar kemur fram og greiddu at- kvæði gegn henni ásamt fjöl- mörgum öðrum fulltrúum. Þorsteinn Sigurðsson, bóndi á Vatnsleysu, formaður Búnað- arfélags lslands. „Flokkur bænda“ hafði ekki rúm fyrir hann í miðstjórninni. Farsóttir í S-Kína llla gengur að berja niður andstöðuna gegn Mao í Tíbet Tókíó, 29. marz, AP MOSKVU-UTVARPIÐ staðhæfði í dag, miðvikudag, að farsótir geisuðu nú í þremur suðurfylkj- um Kína. Var frá þessu skýrt í frétta- sendingu útvarpsins á japönsku og sagði þar að kínversk yfir- völd hefðu viðurkennt að farsótt ir geisuðu nú víða í fylkjunum Kwangtung, Chiangsi og Hunan í Suður-Kína, en ekki var skýrt frá því, hverjar farsóttir þess- ar væru. Ekki tilgreindi Moskvu- útvarpið embættismenn þá kín- verska, sem bornir voru fyrir fréttinni. | Þá sagði Moskvu-útvarpið, að útvarpið í Peking hefði sagt að farsóttir þessar hömluðu nú vor- verkum í mikilvægum landbún- aðarhéruðum, en í Tókió segj- ast menn ekkert slíkt hafa heyrt frá Peking-útvarpinu. Enn sagði Moskvu-útvarpið að frétzt hefði að menningarbyltingin hefði sem næst stöðvað alla dreifingu lyfja og tefði úr hófi aðgerðir allar til varnar gegn farsóttum. Ekki tilgreindi Moskvu-útvarpið heim ild sína að þessarri frétt. Moskvu-útvarpið hermdi enn- fremur, að andstæðingar Mao Tse Tung í Lhasa höfuðborg Tíbets, væru nú sem óðast að handtaka menn og réttað væri í höfuðborginni dag hvern. Herlið sem sent var til Lhasa úr Kína- her er sagt mega sín lítils sem einskis gegn andstæðingum Maos og fimm háttsettir embætt ismenn úr Peking eru sagðir hafa týnt lífinu í Lhasa. Loks bætti Moskvu-útvarpið því við ofan- greindar fréttir frá Tíbet, sem það nefndi ekki heimildir sínar að, að matvælaskortur gerði nú illilega vart við sig þar Og væri dvöl herliðsins aðsenda í Lhasa og nágrenni sízt til úrbóta í þeim efnum. Hollywood, AP. Kvikmyndin „Hver er hræddur vig Virginíu Woolf? hefur hlotið verðlaun Rithöfundasamtaka Banda- ríkjanna sem bezt skrifaða bandaríska kvikmynd ársins 1966. ■ •^Js Kappræðufundur Heimdallar og F.U.J. næstkomsndi þriðjudag KAPPRÆÐUFUNDUR Heim- dallar og F.U.J. í Reykjavík um „Þjóðnýtingu, opinberan rekst- ur og verðgæziu“ verður haldin í Sigtúni þriðjudaginn 4. apríl og hefst kl. 20,30. Ræðumenn af Heimdallar ar hálfu verða Birgir ísl. Gunn- arsson, borgarfulltrúi, Hörður Einarsson, hdi., og Sigfinnur Sigurðsson, hagfræðingur. Fund arstjórar verða Kristján Krist- jánsson, trésmiður, af hálfu Heimdallar og Óttar Yngvason, lögfræðingur fyrir F.U.J. Segir að USA og Kína hafi gert leynisamning Moskvu, 29. marz — AP SOVÉZKA vikublaðið „Literna- turnaya Gazeta“ birti í dag grein þar sem staðhæft er að Banda- ríkin og Kína hafi gert með sér leynilega samninga um hernaðar og efnahugsmál. Grein þessi er að iíkindum viðamest og ítar- legust þeirra sem ritaðar hafa verið til stuðnings kenningunni um meinta samvinnu ríkisstjórna Bandaríkjanna og Kína og er greinilega til þess gerð gð vega á móti ásökunum Kínastjórnar um samvinnu Sovétríkjanna og Bandaríkjanna, segir í fréttinni frá AP. Meðal annarra staShæfinga i greininni eru eftirfarandi: 1. Bandarískar herflugvélar og herskip rjúfa stöðugt loft- helgi og landhelgi Kína, að því er kínverska fréttaþjónustan hermir, en Pekingstjórnin lætur sér nægja að senda Bandaríkja- stjórn „harðorð mótmæli". 2. Sendifulltrúar Bandar'kj- anna og Kína hittast að máli i Varsjá og öðrum borgum að því er ætlað er til samninga um styrjöldina í Vietnam. 3. Bandaríkin hafa afnot af höfninni í Hong Kong úti fyrir meginlandi Kína til stuðnings hernaðaraðgerðum sínum i Viet- nam, en Pekingstjórnin lætur það afskiptalaust. Ekki lætur hún sig heldur skipta það neinu þótt bandarískir hermenn fari í Háshólo fyrir lestur PRÓFESSOR Bjarni Jónsson frá Minnesotaháskóla flytur fyrir- lestur í boði Háskóla íslands fimmtudaginn 30. marz kl. 5.30 e.h. í 1. kennslustofu. Fyrirlest- urinn er fyrír stærðfræðinga og verkfræðinga og fjalar um mengi með núll-máli. leyfum frá herþjónustu til portú gölsku nýlendunnar Macao á sjálfri Kínaströnd. 4. Bandaríkin eru, að ætla má, stærsti viðskiptavinur Kína er- lendis og hafa Bándaríkin fest kaup á miklu magni matvæla og stáls í Kína handa herafla sínum í Vietnam. Þá greinir Liternaturnaya Gazeta einnig frá því að Banda- ríkin og Kína hafi gert með sér sérstaka samninga um Vietnam og hefur það eftir franska blað- inu „Paris Jour“ Segir þar að Kínverjar hafi samþykkt að hefja ekki neinar beinar hernað- araðgerðir í Vietnam en Banda- ríkin lofað á móti að ráðast ekki á Kína. Lcgreglan bjargaði róðrinum í FYRRADAG, er Norðfjarðar- báturinn Þráinn var nýfarinn i róður frá Vestmannaeyjum gerðu tveir af áhöfn bátsins verkfall, svo að skipstjórinn var neyddur til að fara í land aftur. Auk þess höfðu þeir félagar lumbr- agð á kokki skipsins. Þegar í land kom var settur sjóréttur yfir þeim félögum, sem stóð í fimm klukkustundir, að því er lögreglan í Vestmanna- eyjum tjáði Mbl. Þráinn hefði ekki getað farið í róður í cær hefðu ekki tveir lögregluþjónar í Vestmanna- eyjum hlaupið undir bagga og mannað skipsrúm uppreisnar- manna frá deginum áður. Komu þeir í land í gærkvöldi, en ekki hafði Mbl. í þá haft fréttir af þvf hversu fengsælir lögreglu- þjónarnir voru. Benedikt Jakobsscn látinn BENEDIKT Jakobsson, íþrótta- kennari, varð bráðkvaddur í gær. Hann var 61 árs að aldri. Bene- dikt var löngu þjóðkunnur fyrir mikið starf á sviði íþróttamála, en hann var einn af bezt mennt- uðu íþróttakennurum á Islandi. Hann var íþróttakenari við Háskóla íslands frá því 1932, auk þess sem hann kenndi um tíma við Gagnfræðaskóla Vesturbæj- ar og Samvinnuskólann. Þá var hann einnig þjálfari hjá mörgum íþróttafélögum, m.a. ÍR og KR. Hann var landsliðsþjálfari FRÍ frá 1949—52, Ólympiuþjálfari í þrjú skipti, og Evrópumeistara- mótsþjálfari í fjögur skipti. Hann var prófdómari í leikfimi við framhaldsskóla í Reykjavík frá 1941, og frumkvöðull hér á sviði þrekrannsókna á íþróttafólkL Harin var formaður eða átti sæti í stjórn í fjölmörgum íþróttar samtökum, og var hann sæmdur heiðursmerkjum ÍSÍ, ÍBR og FRÍ. Eftir hann liegur mikið af ritum um íþróttamál.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.