Morgunblaðið - 30.03.1967, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 30.03.1967, Blaðsíða 10
; ío MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1967. Frá hádegisverðarboði Sambands ísl. sveitarf. Fyrir borðsenda sitja Magnús. E. Guðjónsson, Gunnlaugur Pétursson, Hjálmar Ólafsson, Páll Líndal, Jónas Haralz og Geir Hallgrímsson. Ráðstefna um framkvæmdaáætl- anir sveitarfélaga hófst í gær — Kaldin að tilhlutan Sambands ísl. sveitarfélaga RÁÐSXEFNA Sambands ísl. sveitarfélaga um áætlanagerð sveitarfélaga hófst í gærmorg- un með erindi Jónasar Haralz forstjóra Efnahagsstofnunarinn- ar. Ráðstefnan er haldin í sam- vinnu við Efnahagsstofnunina til að kynna sveitarstjórnum BRIDGE NÝLEGA er lokið sveitakeppni Reykjavíkurmótiins og urðu 2 srveitir efstar og jafnar að stig- um, þ.e. sveitir Halls Símonar- sonar og Jóns Ásbjörnssonar. Munu sveitir þessar heyja 80 spila keppni um Reykjavíkur- meistaratitilinn. Röð sveitanna varð þessi: 1-2 s. Halls Símonarsonar 34 stig 1-2 s. Jóns Ásbjörnss. 34 — 3-4 s. Ásmundar Pálsson. 31 — 3-4 s. Hilmars Guðm. 31 — 5 s. Stemþórs Ásgeirss 13 — 6 s. Ingibjarga; Halld. 13 — 7 s. Ólafs Þorsteinssonar 9 — 8 s. Eggrúnar Arnórsd. 3 — 1 1 flokki urðu eftirtaldar sveit ir efstar: 1. s. Dagbjarts Grímss. 36 sttg 2. s. Benedikt Jóhannss. 34 — 3. s. Aðalsteins Snæbj. 32 — 4 s. Jón Stefánssonar 22 — Tvær neðstu sveitirnar í meistararflokki flytjast niður í L fL og 2 efstu sveitirnar í 1. »pila i meistaraflokki næsta ár. Á vegum Tafl- og Bridge- klúbbsins og Bridgesambands ís- lands hefur að undanförnu stað- ið yfir bridgenámskeið. Nám- skeið þetta hefur farið fram að Tjarnargötu 26 og verið vel sótt, en þátttakendur hafa verið milli 60 og 70. Þá'tttakendurnir munu taka þátt í keppni, sem fram fer f læknahúsinu að Egilsgötu 3 og hefst 6. apríl n.k. Ein umferð er eftir í sveita- keppni Tafl- og Bridgeklúbbs- ins og er staðan þessi: A-riðill: 1. sveit Jóns Magnússonar 47 st. 2. sveit Ingólfs Ðöðvarss. 36 st. 3. sveit Ingólfs Ólafssonar 28 st. B-riðiII: 1. sveit Zóphaníasar Benedikts. 44 st. 2. sveit Jónis Ásbjörnss. 44 st. 3. sveit Eddu Svavarsd. 28 st. Næst verður spilað hjá Tafl- og Bridgeklúbbnum fimmtudag- inn 30. marz. gagn og hag af áætlanagerð. Sækja ráðstefnuna fulltrúar frá flestöllum stærri sveitarfélög- um. Ráðstefnunni líkur á föstu- dag. Páll Líndal varaformaður Samb. ísl. sveitarfélaga tjáði blaðinu að þetta væri fjórða ráðstefnan er Sambandið geng- ist fyrir til fræðslu fyrir aðild- arfélög sín. Hefði verið leitað til Efnahags stofnunarinnar um samvinnu við undirhúning ráðstefnunnar og hefðu allir framsögumenn á ráðstefnunni starfað meira eða minna að undirbúningi fram- kvæmdaáætlana ríkisins. Slíkar framkvæandaáætlianflr og hér um ræddi væru ekki öllum sveitarfélögum að gagni, aðeins þeim stærri og hefði ver- ið bent á það í tilkynningu um ráðstefnuna. Þó væru þátttak- endur nokkuð fleiri en gert var ráð fyrir eða um 35 til 40. Páll sagði, að Reykjavík og Kópavogur hefðu þegar gert framkvæmdaáætlanir en Akra- nes, ísafjörður, Sauðárkrókur og Akureyri hefðu hafið undirhún- ing að gerð slíkra áætlana. Sagði Páll, að áætlanagerð væri mik- ils virði fyrir sveitarfélögin, enda gæf hún mjög góða yfir- sýn yfir það, er gera þyrfti í framkvæmdum sveitarfélaga. Vonaðist hann til, að ráðstefn- an yrði til að herða á áætlana- gerð sveitarfélaganna og hvetti þau til að taka slíkar gerðir upp, enda yrði þá um að ræða skynsamlegri hagnýtingu fjár- magnsins að ræða. Benti Páll í því sambandi á, að meira fé væri varið til fjárfestingar hér- lendis en víða erlendis, en minna yrði úr því, en eðlilegt gæti tal- izt. Eins og fyrr segir flutti Jónas Haralz erindi í morgun og fjall- aði það um „Markmið ríkis og sveitarfélaga og gildi fram- kvæmdaáætlana til samræming- ar á þeim“. Að loknu erindi svaraði Jónas fyrirspurnum. Þá bauð stjóra sambandsins til miðdegisverðar að Hótel Borg. Síðan fluttu erindi Sigfinnur Sigurðsson, hagfræðingur, um „Framkvæmdaáætlanir til langs tíma og samband þeirra við ár- legar fjárhagsáætlanir", Jón Sig urðsson, hagsýslustjóri, um „Und irbúning að ákvörðunum um opinberar farmkvæmdir“ ag Guðmundur Ágústsson, hagfræð ingur, um „Framkvæmdaáætlun Kópavogs". Svöruðu ræðumenn fyrirspurnum að loknum erind- um. í dag flytja erindi og svara fyrirspurnum Pétur Eiríksson, hagfræðingur, um Áætlanir um tekju- og lánsfjáröflun sveitar- félaga og Bjarni Einarsson, bæj- arstjóri, um „Landshlutaáætlan- ir sem umgerð um áætlanir sveitarfélaga". Á morgun mun Torfi Ásgeirs- son skrifstofustjóri flytja erindi um „Fræðsluáætlanir“ og svara fyrirspurnum. Þá mun bprgar- stjóri bjóða þátttakendum til hiádegisverðar. Ráðstefnunni líkur með almennum umræðu- fundi þátttakenda og framsögu- manna með stjórn sambands um viðfangsefni ráðstefnunnar. Ráðstefnan er haldin í Tjarn- arbúð. SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM ÞAÐ vekur mig ævinlega til umhugsunar, þegar mér kemur í hug, að Kristur sagði ríka, unga manninum að selja allar eigur sínar og skipta þeim meðal fá- tækra og koma síðan og fylgja sér. Gildir þetta um alla? Mér þætti vænt um að fá að vita þetta, því að svo vUl til, að ég á talsvert af eignum. EF EIGNIR yðar hindra yður í að fylgja Kristi, gæti það orðið nauðsynilegt fyrir yður að „yfirgefa allt og fylgja honum“. Að minnsta kosti hlýtur það að vera nauðsynlegt fyrir yður að endurskoða afstöðu yðar til veraldlegra verðmæta. Það er greinilegt, að ríki ungl- ingurinn hafði hugann svo bundinn við auðæfi sín, að honum var ókleift að láta Krist og ríki hans sitja fyrir öllu öðru. Þess vegna sagði Kristur honum að selja „allar eigur sínar og skipta þeim meðal fátækra“. Þar sem hann er sá eini af þeim, sem Jesús kallaði til fylgdar við sig, sem hann sagði þetta við, verðum við að álíta, að hann hafi leyft auðæfum sínum að standa í vegi fyrir því að gerast heilshugar lærisveinn. Allt bendir til þess, að þetta sé rétt, því að hann gat ekki, þegar hann horfðist í augu við þessa ákvörðun, yfir- gefið auðæfi sín, og þess vegna gat hann ekki fylgt Kristi, heldur fór burt „mjög hryggur“. Réttlæti Krists, kærleikur hans og kröfur eru öllu öðru ofar, krefjast forréttar. Ef nokkuð kemst upp á milli yðar og hans, hvað svo sem það er, þá verður þetta „nokk- uð“ að víkja og komast á sinn rétta og eiginlega stað. Sumir hinna guðhræddu kristinna manna, sem ég þekki, eru vel efnum búnir. En fjármálasjónairmið þeirra hafa lægri sess hjá þeim en Kristur og ríki hans. í raun og veru hugsa þeir um f jármuni sína sem tæki til þjónustu, og á þann hátt má segja, að þeir hafi selt „allar eigur sínar“ og fylgi Kristi. Gísli Magnússon Stefán Edelstein Róbert A. Ottósson Reformation-sinfónía Mendels- sohns frumflutt hér 13. tónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar j kvöld 13. TÓNLEIKAR Sinfóníuhljóm- sveitar íslands á þessu starfsári verffa haldnir í Háskólabíói fimmtudaginn 30. marz. Fluttur verffur konsert fyrir tvö píanó og hljómsveit í Es-dúr K. 365 eftir Mozart. Er þetta í fyrsta sinn, sem konsert þessi er fluttur hérlendis. Einleikarar eru Stefán Edelstein og Gisli Magnússon. Stjórnandi Róbert A. Ottósson. Þá verffur einnig frumflutt hér á landi 5. sinfónian eftir Mend- elssohn, „Reformation sinfónian", effa „Siffbótarsinfónían". Stefán Edelstein, skólastjóri Barnamúsíkskólans, leikur nú í fyrsta sinn með Sinfóníuihljóm- sveitinnL en hann hefur áður látið til sín heyra sem einleikari í útvarpi. Gísli Magnússon leikur nú aftur einleik á tónleikum eftir þriggja ára hlé, en síðast lék hann píanókonsert eftir Haydn. í tilefni af 450 ára afmæli sið- bótarinnar verður Siðbótarsinfón ía Mendelssohns nú flutt hér. Er lokaþáttur þeirrar sinfóníu reist- ur á sálmalaginu við „Vor Guð er bórg á bjargi traust“. Lokaverk tónleikanna verður Chavonne eftir Pál ísólfsson. Samdi hann það verk upphaf- lega fyrir orgel, og er það nú flutt í fyrsta sinn í hljómsveitar- búningL Asfraliumenn vilja kaupa Queen Mary MELBGURNE, 29. marz, AP. — Hópur ástralskra fésýslumanna á nú í samningum viff Cunard- línuna um kaup á einu stærsta farþegaskipi heims, Queen Mary. Talsmenn fésýslumannanna segja aff þeir hafi í hyggju aff nota skipiff til flutninga á brezkum innflytjendum til Ástralíu og einnig til hnattferffa meff ástr- alska farþega. Talið er að kaupverð skipsins muni nema 8 millj. sterings- punda. 1 verðinu yrði innifaldar árs endurbætur á skipinu, en vél ar þess eru í fullkomnu ástandi, að því er talsmennirnir sögðu. Queen Mary hefur nú siglt um heimshöfin í 15 ár.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.