Morgunblaðið - 30.03.1967, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 30.03.1967, Blaðsíða 17
MORStJNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MARZ lftOT. M- Búnaðarskóli byrjaði á Hólum 1882 sumarið þegar ekkert sumar kom" // ÞAÐ var nokkuð önnur mynd sem við blasti, er ekið var inn Hjaltadalinn nú á þorranum en í sumar, þegar landsmót hestamanna var þar og dalurinn íullur af lífi, hestum og fól'ki. Nú hvíldi kyrrð og heiðríkja yf- ir staðnum, því yfir öliLu lá snjó- breiða, sem mildaði formin, að- eins grámaði í hamrabeltin í fjöllunum, þar sem skafið hafði. Heima á Hólastað var þó mik- il önn þennan laugardagsmorg- un í skólahúsinu. Síðustu kennslutímar vikunnar í fullum gangi hjá báðum deildum bænda skólans, sem er fullsetinn 34 nem Fyrri grein endum. Við heilsuðum upp á Hauk Jörundsson, skólastjóra, lit um inn í kennslustofurnar til bændaefnanna, en trufluðum svo ekki kennsluna meir, heldur sett umst inn til Hólmjárns J. Hólm- járns kennara, sem er manna fróðastur um staðinn, enda er hann uppalinn þar sjálfur. son- ur fyrsta skólastjóra bændaskól- ans Jósefs J. Björnssonar, bú- fræðingur þaðan á sínum tíma og kennari þar í mörg ár. Og Hólmjárn hefur sínar sjálfstæðu skoðanir á fornum hlutum og nýjum. — Allt vitleysa sem um land- námið er sagt í Landnámu, segir hann. Og þar með hafði samtal- ið byrjað á upphafinu, fyrstu byggð á þessum slóðum og staðn- um. — Hjaltadalur er einn af þessum mörgu dölum, sem íiggja inn í fjallgarðinn milli Skagafjarðar og Eyjafjarðar. Þessir dalir hafa til orðið á ís- öld. Þeir éru sérkennilegir, því fjöllin eru geysihá og brött, lag- skipt klettafjöll og lítið ísnúin austan megin, svo sem Hóla- byrða. — Af hverju heitir það annars Hólabyrða? — ÞafS er kistan uppi á fjall- inu, birgðakistan. Þarna eru líka fleiri nöfn, sem eru merkileg. Raftahlíð heitir hlíðin hér inn með. Hún hefur verið skógi vax- in. Fleira bendir til þess. Árið 1912 fundu strákar héðan t.d. gul víðihríslur í grjóturð, sem er framhlaup úr fjallinu. neðan við Gvendarskál. Þeir gróðursettu hríslurnar og girtu utan um þær og nú eru þær tveggja mann- hæða háar. Þama hafa verið hríslur, sem féð gekk í. Við vor- um annars að tala um Landnámu. Þar segir að Hjalti Þórðarson skálps, hafi komið til fslands og numið Hjaltadal að ráði Kol- beins og búið að Hofi. Þetta er ekki rétt. Þeir leyfa sér að láta fjóra menn fara og nema sama landið, auk hans, Sléttu-Björn. öndótt og Kolbein Sigmunds- son. Hjalti bjó at Hofi, stendur þar. En þetta getur ekki verið rétt. Maður sem kemur hér, nemur ekki land á Hofi. Hann kemur frá Noregi og vill sjá út á sjóinn. Hér er miklu betra bæj arstæði. En hann er trúaður maður og reisir sér hof. Það hef- ur hann ekki við bæinn, heldur framfrá. Það er ekki óalgengt og almennt viðurkennt að ýms- ir landnámsmenn byggðu hofin fjær bænum, eins og t.d. Ingólf- ur Arnarson, og gæti ég nefnt mörg dæimi. Það er fyrst afkom- andi Hjalta, sem býr á Hofi. í Melabók stendur líka berum orð um að hann hafi búið á Hólum. Um 1050 er sagt í Kirkjusögu að hér búi Oxi Hjaltason og reisti hann stærstu kirkju, sem hér var byggð. Þá var öldin orð- in önnur en þegar langafi hans, Hjalti landnámsmaður, kom. Kirkjan þurfti ekki að vera langt frá bænum. Það hefur ruglað Sturlu Þórðarson, að þegar hann segir frá Hjaltasonum, þá kallar hann þá Hofverja. Hann heldur að þeir hafi búið á Hofi. Þegar erfið mikla er haldið yfir Hjalta með 1200 manna veizlu, þá er það eðlilega haldið á Hofi. Hann var heyrgður á Hofi, á helgum stað og þar fór erfið fram. Ætt háns hefur verið mjög trúhneigð, sem sést á afkomend- um hans. Þegar enginn vildi standa upp af sinni jörð í því skyni norðanlands, þá gaf 111- ugi Bjarnason eign sína Hóla fyrir biskupssetur og skóla árið 1106. Gaf hana sér til sáluihjálp- ar. Og fyrsti prestur, sem gerð- ur er biskup, er Jón Ögmunds- son. Þá strax er sett samtímis upp biskupssetur og skóli á Hól- um og er svo til 1800. Þá verð- ur það úr að Hólaj? eru seldir og allar stóljarðirnar. Skóla- meistari var hér Páll Hjálms- son og konrektor var Gísli Jóns- son. Þeir kaupa jörðina fljótlega. Þeir eru ekki efnaðir menn, en til að standa undir þessu rifu þeir beztu byggingarnar árið 1810 og seldu viðina. >á fór hin fræga Auðunarstofa, sem var frá því snemma á 14. öld, bezt búin stofa á landinu, og talið að þar hafi fyrsti steinofn verið byggð- ur. Þeir voru svo hér til 1814. Þá var búið að rífa margar merk ar byggingar. Bogi frá Hrappsey keypti jörðina um 1820 og átti hana í nokkur ár. Þá tekur við búi presturinn Benedikt Jónsson, sem síðan ánafnaði sonarsyni sínum og nafna jörðina. Eftir það verður úr að komið er upp bændaskóla á Hólum. Á sýslu- fundi árið 1881 bar Gunnlaugur Briem fram tillögu um að sýsl- an kaupi Hóla og setji þar upp búnaðarskóla. en Gunnlaugur, sonur Eggerts Briem sýslumanns á Reynistað, var sá sem mest beitti sér í þessu máli. Það verð- i.i.iyiiiiiinii'in'iDgi/ll - m. ■ x f - > - S$l * ••• ‘ x. ' <»$' **’ ......... ......... Séð heim að Hólum að vetrarlagi. ur úr að Skagfirðingar einir kaupa Hólastað fyrir 13.500 kr. Skagfirðingar eiga hrós fyrir það — Skagfirðingar skrifuðu Eyfirðingum, Þingeyingum svo og & & * 5 >&< H. J. Hólmjárn, kennari að Hólum. Húnvetningum og báðu þá um að koma á fund og ræða málið, hieldur Hólmjárn áfram. Hún- vetningar einir komu. Þeir gengu inn í kaupin og ákveðið var að reistur yrði búnaðarskóli á Hólum. Skagfirðingar komu aftur á móti Húnvetningum um að reisa kvennaskólann á Ytri Ey. Skólinn byrjaði svo 14. maí 1882, og hefur verið rekinn óslit- ið síðan. Er aldrei hægt að hrósa Skagfirðingum nóg fyrir þessa ........... Hólasveinar — og meyjar — ternja. ~>. v •><..> >» A > > framgöngu. Sýslurnar tvær, Húnavatnssýsla og Skagafjarðar- sýsla, ráku skólann á Hólum til 1887. Þá komu Eyfirðingar og Þingeyingar inn í, en þeir fyrr- nefndu höfðu áður styrkt skól- ann með 500 kr. — Og faðir þinn, Jósef J. Björnsson, var fyrsti skólastjór- inn? — Já, pabbi hafði verið í Noregi við búnaðarnám og einn- ig í Danmörku hjá Heiðafélag- inu. Hann byrjaði um vorið 1882, en Hólaskóli hófst með tveggja vetra námi, kennsla verkleg og bókleg, en itemend- ur unnu um sumarið fyrir vetr- ardvölinni, jafnframt því sem þá átti að vera verkleg kennsla. Aðstaðan var ekkert glæsileg fyrsta árið. Sumarið var kallað ,.sumarið þegar ekkert sumar kam“. Bóndi nokkur, sem hélt dagbók, skrifaði þetta: „Þetta sumar var það mesta hörmung- arsumar, sem elztu menn mundu. >á lá hafís fyrir Norðurlandi fram á ’höfuðdag, 29. september. Var ótíð fram úr öllu hófL Það sumar fékk ég ekki nema 78 hesta af útheyi. Það sumar gekk líka mislingaveiki, svo allt hjálp- aðist til að eyðileggja menn“. Og 14. maí, þegar skólinn byrjaðL gengu ísbirnir á land. Þeir sáust á gangi fyrir sunnan Bárðardal og fóru út og niður að fljóti, að því er þessi sami maður skrifar. Þennan dag komu fyrstu skólapiltarnir hingað, 8 talsins, meðal þeirra Guðmundur Guð- mundsson á Þúfnavöllum og Hermann Jónasson, sem seinna varð skólastjórL Þá var eina húsið gamli torfbærinn. Þar bjuggu allir og þar fór kennsla líka fram. Voru það raunar að- eins tvær stofur og svefnloft yfir, en notazt var við það fyrstu 9—10 árin. Fyrsta stanf föður míns var að fá sér þrjá færa hesta undir reiðing og hann og Guðmundur á Þúfnavöllum fóru með þá gangandi norður Hjalta- dalsheiði til Akureyrar, til að sækja lífsbjörg handa þessu fólki, sem hingað var komið. í júlímánuði bárust svo misling- arnir. Þá dó kona pabba og son- ur þeirra á öðru ári. Pabbi sagði, að það sumar hefði aldrei séð sól allan ágústmánuð út. Oft þurfti að fara heim af engjum, því svo mikið krap var, að ekki var hægt að slá fram úr. Engu heyi var náð fyrr en 20, september. Harðindin voru slík að af öllu Hólatúni og engjunum fengust ekki nema 375 hestar með öll- um þessum mannskap. f upphafi var fjárhagur skólans mjög þröngur. Nauðsynlegt var að byggja upp, en sýslurnar tvær höfðu ekki fjármagn til þess. Árið 1888 segir pabbi svo upp skólastjórastarfinu og bendir á Hermann Jónasson sem eftir- marm sinn. Þá komu hinar sýsl- urnar tvær með, Eyjafjarðar- sýsla og Þingeyjarsýsla, og hægt að fara að gera það sem þurftL að byggja upp. Stórt og voldugt timburhús var keypt og flutt hingað og var það fullkiáirað árið 1892. Þetta hús brann svo síðar. Allir aðdrættir á hestum — Manst þú sjálfur eftir þess- um árum á Hólum? — Ekki fyrri skólastjóraárum pabba. Bftir það flutti hann að Bjarnastöðum í Kolbeinsstaða- hreppi og bjó þar. En árið 1896 tók hann aftur við skólanum og ég man vel eftir því. Þá var ég fimm ára gamall. Þetta var þá enn tveggja ára skóli. Einn kennari var þar auk pabba, sem einnig hafði búið, en kennara- starfið var illa borgað, svo ekki gekk vel að halda þeirn. — Á þessum árum var enginn vegur í Skagafirði, sem hægt var að aka eftir kerru. Því urðu all- ir að- og fráflutningar að fara fram á áburðarhestum og allt var farið ríðandi. Þegar pabbi kom aftur að skólanum, fékk hann sérstakan mann til að sjá um hestana og alla flutninga til og frá staðnum. Þetta var Guð- mundur Guðmundsson, faðir Áma G. Eylands. Ég fór að vera með honurn 7 ára gamall, stóð undir böggunum og var með 1 ferðum. Guðmundur vandi hest- ana svo vel, að hann rak þá beizlislausa í strollu. Þeir röð- uðu sér í lestina. Ullarlestirnar voru t.d. 12—15 hestar og var farið með ullina í Hofsós, 26 km leið. Þar var tekið af þeim og svo farið að taka út og láta upp á aftur. Hestarnir röltu af stað jafnóðum sem iþeir fengu baggana. Heim af túninu var líka allt flutt á klökkum. Búið var að handslétta nokkuð mik- ið, en kringum hvern sléttan hó4 var þúfnakargi. Sléttuðu spild- urnar voru á að gizka 6 m á breidd og 50 á lengd og allt hand unnið, rist ofan af, plægt ef hægt var, herfað og keyrt til með skóflu og stundum sett steinhol- ræsi milli sléttanna. Þegar pabbi fór árið 1902, var Hólatúnið um 30 ha og talið stærsta tún á landinu. — Árið 1902 yfirtekur Norð- uramtið skólann af sýslunum. >á var öllu breytt. Nú var kennt 6 mánuði í tvo vetur og engin námsskylda eða próf. Þá tekur Sigurður Sigurðsson við skóla- stjórn, en pabbi verður kenn- ari og flytur að Vatnsleysu, jörð Framhald á bls. 18.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.