Morgunblaðið - 30.03.1967, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 30.03.1967, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1967. I Kjörgarði Nýkomin ullerefni í kjóla og dragtir. Svört og hvít efni í stúdínudragtir. Kjörgarður vefnaðarvörudeild. 5 herbergja íbúð Til sölu er 5 herb. endaíbúð á 2. hæð í nýlegu sambýlishúsi við Álfheima. Tvö- falt gler, teppalögð, hagkvæmt verð og greiðsluskilmálar. Skipa- og fasteignasalan Sjúkrasokkar Getum boðið yður mjög gott úrval af sjúkrasokkum af eftirtöldum tegundum: Dr. Scholls vitality lycra, kr. 429.—, Gold- en lady, litur bronze kr. 205.— Yales sup- erflex, kr. 385.— Opal, litur kork kr. 379.— Domus Medica, Egilsgötu 3. - HOLAR PVamhald af bls. 17. sem móðir mín átti. En hann hélt áfram að vera kennari á Hólum til 1934. Sigurður var skólastjóri í 18 ár og gerðist síð- an forstjóri Búnaðarfélags ís- lands. Þá tók við Páll Zophonias- son og gegndi skólastjórastarfi frá 1920 til 1928. Steingrímur Steinþórsson tók við af honum til 1935, síðan Kristján Karls- son til 1960, Gunanr Bjarnason í 1 ár, Árni Pétursson settur í eitt ár og Haukur Jörundsson hef ur stýrt skólanum síðan 1963. Mest um vert að meta skepnurnar — Þú ert sem sagt alinn upp hér á Hólum og hefur svo komið aftur seinna á sefinni sem kenn- ari. Hvaða greinar kennir þú, Hólmjárn? — Ég hef kennt búfjárræktar- fræði, og í upphafi einnig jarð- fræði og jarðræktunarfræði. En nú er ég farinn að létta af mér kennslunni. Námið_ er bæði verk- legt og bóklegt. Ég legg mesta rækt við að kenna mönnum að meta skepnurnar. Ég vil ekki að nemendur mínir fari fram hjá skepnu, án þess að sjá hvern ig hún er. Ef þeir ætla að kaupa kú, er ekki nóg að þeir sjái að hún hefur 4 lappir og haus. Þeir verða að sjá hvernig skepna þetta er, hvort hún hefur bygg- ingu til að mjólka, standi rétt og vel á fótunum o.s.frv. Sama máli gegnir um hesta og kindur, þarna kemur mikið við sögu arf- gengisfræði. Þetta fer eftir viss- um lögmálum. Við höfum 130 klst. í búfjárdómum. Sama hátt hafði ég um jarðræktarfræðina, meðan ég kenndi hana. — Annað sem við leggjum á- herzlu á við nemendur hér í skól anum, er að gengið sé veL um húsið verið á hreinum inniskóm, ekki reykt og ekki haft vín um hönd. Það er menningarlegt at- riði að kenna fólki að ganga hreinlega um, bera virðingu fyr- ir umhverfinu og þar af leiðandi fyrir sjálfu sér. Sá maður, sem ekki ber virðingu fyrir sjálfum sér og vill stuðla að því að bæta umhverfið, hann þarf umbóta við. Og við hjálpum nemendum TIL FERMINGAGJAFA FYRIR TELPUNA! FYRIR DRENGINN SAUMABORÐ SNYRTIBORÐ KOMMÓÐUR SVEFNBEKKIR SKRIFBORD STÓLAR HANSAHILLUR O. FL. O. FL. ALDREl MEIRA ÚRVAL SKEIFAN Kjörgarði Símar 18580 og 16975 til þess eftir beztu getu, sagði Hólmjárn er við gengum með honum um húsið, litum inn í vistarverur nemenda, sem þeir hirða sjálfir. Það mátti vissulega sjá að fyrirhöfn kennara og skólastjóra á þessu sviði ber árangur. Svo snyrtilegt sem allt var þar og nemendum til sóma. Hólafélag eflir Hóla kirkjulega og menningarlega Sr. Björn Björnsson, sóknar- prestur á Hólum kennir einnig í skólanum, íslenzku og dönsku. Hann hefur þjónað prestakallinu í 27 ár, en var fyrstu 12 árin á Vatnsleysu og á Sauð'árkróki í eitt ár, meðan prestsihúsið var byggt árið 1953 — Hér hafði ekki verið prestsetux síðan rr. Benedikt Vigfússon var hér, fað ir Jóns Benediktssonar, segir sr. Björn, er við tókum hann ta'.i. En Jón pessi rar tengdasonar Þóru Gunnarsdóttur. er Jónas Hallgrímsson orti um, sem frægt er orðið. Þóra er jarðsett hér um 1870 að mig minnir. Moð Þóru flutti hingað stúlka. sem kölluð var Sigga Tóta. Hana jarðsetti ég hér árið 1949. Sigga Tóta mundi vel eftir Þóru. — Hér er gott að vera, segir sr. Björn Sambúð kirkju og skóla er prýðileg. Þetta er kirkjulega sögufrægur staður. Hér hefur staðið kirkja síðar, 1050, er Oxi Hjaltason reisti þá fyrstu, og hafa pær allar staðið á sama stað. Sú sem nú er, það er sú sjöunda röðinni. Dóm- kirkjurnar eru fimm, þá fyrstu byggði Jón Ögmundsson helgi árið 1106 Hann stofnsetti elzta skóla á Hólum, en það var laMnu skóli. Þegar biskupar hættu að vera hér. lagðist skóli niður og búnaðarskóli kom svo ekki fyrr en 1882. — Já, þessi kirkja sem nú stendur, var vígð 20. nóvember 1763 af Gísla Magnússyni biskupi, segir sr. Björn. Hún er hlaðin úr rauðum sandstemi, sem tekinr, var úr Hólabyrðunni. Þýzkur maður byggði hana og var hún í 6 ár í smíðum. Kirkj- an er mjög falleg og henni hefur verið haldið mjög vel við. Við geymum þar gamla muni, aitaris tö'flu frá dögum Jóns Arasonar, kristslíkneski frá kaþólskam tíma, að minnsta kosti á 5. hundr að ára gamalt, skírnarfont frá 1674 o.fl. Kannski hafa þessir munir bjargast af því kirkjan hefur ekki verið hituð upp fyrr en síðustu árin. í henni eru líka nýir munir, svo sem pípuorgel frá 1958. og turninn var reblur til minmngar um Jón Arason árið 1950 Þess má geta að ki-kj an fékk höfðinglega gjöf í fy.-ra vetur frá burtfluttri skagfirskrí konu. Það er flóðlýsing, 6 Ijój, sem lýsa kirkjuna og turninn upp að utan á kvöldin. Stofnað hefur verið Hólafélag, sem á að vinna að eflingu Hóla- staðar, í menningarlegum og kirkjulegum efnum. Sr. Þórir Stephensen er formaður nú, en skipt er um stjórn á tveggja ára fresti Markmiðið er að efla Hóla sem skólasetur og kirkju- setur. Ög sr. Björn kveðgt vera skólastjóranum, Hauki Jörunds- syni, alveg sammá:la um að á Hólum eigi að rísa skólasetur með fleiri skólum auk bænda- skóla. En viðtalið við Hauk birt- ist í seinni grein. — E. Pá. Tilboð óskast í vélbátinn Fróða HR 33 í því ástandi sem báturinn er í við bryggju á Stokkseyri. Tilboðum sé skilað til Samábyrgðar ís- lands, í Reykjavík, fyrir 4. apríl næstkom- andi. Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er, eða hafna öllum. Skrifstofustúlka Skrifstofu í Reykjavík vantar stúlku til starfa nú þegar, eða ekki seinna en í júní- lok. Vélritunarkunnátta nauðsynleg. Nokkur aukavinna fylgir starfinu. Eitt- hvert sumarleyfi á launum í sumar kem- ur til greina þrátt fyrir stuttan vinnu- tíma. Upplýsingar um nafn, heimili, síma aldur, menntun og fyrri störf sendist af- gr. Mbl. merkt „Reykjavík 2342“ ||| ÚTBOÐ Tilboð óskast í sölu á 38 strætisvögnum fyrir Strætisvagna Reykjavíkur. Útboðsskilmálar eru afhentir í skrifstofu vorri. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðju- daginn 30. maí n.k. kl. 14.00. INNKAUPASTOFNUN REYKIAVÍKURBORGAR YONARSIRÆTl 8 - SÍMI 18800

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.