Morgunblaðið - 30.03.1967, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 30.03.1967, Blaðsíða 13
TÍÖRGÍÍNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1967. 13 BIFREIÐAR OG BIFREIÐAiÆKN! Nú þegar daginn er tekið að lengja og vorið nálgast fcemur að venju líf og hreyf- ing í tvennt, sem viðvíkur bílum. Það er bílasala og öku kennsla. Bílasíðunni þótti ekki úr vegi að bregða sér á kreik og hitta að máli nokkra aðila, sem hafa áður- nefnt að starfi og fá hjá þeim upplýsingar, sem gætu orðið almenningi að gagni. Laganemi við ökukennslu Við flettum Mbl. og rák- umst á auglýsingu frá Guð- mundi Karli Jónssyni, sem auglýsti ökukennslu á Volks- wagen, hringdum í hann og báðum um stutt rabb. Hann tók því vel og bauð okkur að heimsækja sig. Guðmund ur stundar nám við lagadeild Háskólans og er þetta auka- starf hjá honum, en hugmynd ina fékk hann er hann vann í Bifreiðaeftirlitinu sl. sum- ar sem prófdómari. Guðmundur segir okkur að mikil hreyfing sé nú komin í ökukennslu, enda vilji fólk fremur læra á bíl þegar dag inn fer að lengja en í svart- asta skammdeginu. Aðspurð- ur um hvernig fólk, sem lær ir að aka bíl yfir bjartasta tímann í góðri færð bregði við þegar snjóa tekur á haust in og hálkan tekur við, seg- Frú Unnur Björnsdóttir og Þórir Hersveinsson. Það styttist i prófið. sjálfa. Standist nemandi það próf hefur hann öðlast réttindi til að aka bifreið. Jon Friðsteinsson i Bilakaup og viðskiptavinur. ir Guðmundur að það sé yfir- leitt búið að fá það mikla reynslu í akstri að það bregð ist rétt og með varkárni við hálkunni. — Hvernig fer ökukennsla fram? — Sá sem ætlar að læra á bíl byrjar á því að leita til ökukennara. Þegar að fyrsta tímanum kemur byrjar kenn ari að skýra út íyrir nemand anum helztu atriði viðvíkj- andi bifreiðinni og hvernig eigi að aka henni. Flestir þekkja þessi atriði, sérstak- lega unga fólkið, sem ef til vill hefur ekið einhverju far artæki áður t.d. dráttarvél eða jeppa í sveitinni. Nú síð- an tekur við sjálf kennslan, þ.e.a.s. akstur hér um borg- ina og jafnframt fræðsla um umferðarreglur, hin ýmsu um ferðármerki og annað í því sambandi. í upphafi kennslu fær ökukennari nemenda bæk ur, sem hann þarf að lesa fyrir próf, er tekið er í bif- reiðaeftirlitinu, áður en í verk lega prófið er farið. í þessum bókum er að finna allar upp- lýsingar um umferðarlög, um ferðarreglur og reglugerðir bifreiðaeftirlitsins. Til þess að standast prófið þarf nemandi að svara 26 af 30 spurníng- um hárrétt. Standist nemandi fræðilega prófið tekur það verklega við, en það er akstur, spurn- ingar um vélina og bifreiðina — Hvað tekur að jafnaði marga tíma fyrir viðvaning að læra á bíl? — Það er auðvitað mjög misjafnt og margt sem þar ræður. Unga fólkið er yfir- leit fljótara og öruggara að ná valdi yfir bifreiðinni, enda hefur það í mörgum tilfell- um tekið í ökutæki, eins og ég sagði áðan. En ég myndi segja að 10—15 tímar væru lágmark og allt upp í 50 tíma eftir aldri. Hræðilegt að spyrja Á horni Laufásvegar og Bragagötu er næsta öruggt að flestir þeir, sem tekið hafa ökupróf í Reykjavík á síðari áratugum, hafa æft sig í að bakka. A þessu horni hittum við Þóri Hersveinsson lög- regluþjón og kennara, þar sem hann er að segja nem- anda sínum, frú Unni Björns- dóttur, til. Við fáum leyfi til að setjast uppí hjá þeim augnablik og ræða stuttlega við þau. Við snúum okkur fyrst að frúnni og spyrjum hana hvað hún hafi tekið marga tíma. — Þetta er 16. tíminn minn. 4-r Hvernig fannst yður að byrja að aka hér í allri um ferðinni? — Það var alveg hræðilegt í fyrsta tímanum, en eftir sem maður ekur meira vex sjálfs traustið og áður en varir finnst manni þetta ofur auð- velt — Mynduð þér treysta yð ur í prófið í dag? Nú lítur Unnur á kennar- ann og hann svarar því til að það sé farið að styttast í það. Þórir segir okkur að helztu erfiðleikarnir við að kenrta á bíl yfir veturínn sé að þá sé ekki gott að kenna akreina akstur því að akreinar sjá- ist yfirleitt ekki. Hann er einnig sammála Guðmundi um að auðveldara sé að kenna ungu fólki, það hafi yfirleitt ekið áður, „þó að það sé auð- vitað ekki löglegt". Aðspurður um hvort hann telji menn þurfa sér tilsögn þegar hægri handar akstur- inn taki gildi segist Þórir ekki telja að svo verði al- mennt, en . eflaust verði það allmargir, sem leiti til öku- kennara eftir aðstoð til að átta sig á hlutunum fyrst í stað. — Hvað álítur þú að fólk þurfi marga tíma fyrir öku- prófið? — Það er nú æði misjafnt, en algengast er þetta frá 17— 20 tímar. Eftirspum meiri en framboð Á sl. ári var metinnflutn- ingur á bifreiðum til íslands, er fluttar voru inn milli 7 og 8 þúsund bifreiðir. Á bílasölu Guðmundar hittum við þá feðga Guðmund J. Guðmunds son og Baldur Guðmundsson og spyrjum þá hvort þessi mikli innflutningur hafi ekki haft áhrif á bílasölu. Guðmundur verður fyrir svörum og segjir framboðið ekki vera meira og eftirspurn- in meiri en þeir geti fullnægt á sumum tegundum. — Um hvað gerðir er mest spurt? — Volkswagen er án efa vinsælastur Því veldur aðal- lega lítil breyting á bílunum ár frá ári, mjög góð vara- hlutaþjónusta og lipurð bíls- ins og mjög hátt endursölu- verð. Annars má segja að all ir evrópsku smábílarnir séu mjög vinsælir og góðir sölu- bílar. — Er ekki vertíðin að byrja hjá bílasölum þessa dag ana. Jú, segir Baldur hún byrjar venjulega í marz eða apríl, en fer mikið eftir veð- urfari og aðstæðum. Það má segja nær untantekningarlítið að ef snjór er og kalt er I veðri þá dettur salan mikið niður. —• í hverju er starf ykkar fólgið? — Starf okkkar er í því fólgið að leiða saman kaup- anda og seljanda og leiðbeina báðum aðilum án þess að hafa sérstök áhrif á þá. Þegar mað ur kemur til okkar og vill kaupa bíl þá byrjum við á því að kanna greiðslugetu hans og leiðbeina honum síð- an í samræmi við hana. Einn ig leggjum við áherzlu á það ef um lán er að ræða í sam bandi við kaupin, að kaup- andi lofi ekki meiru en hann getur staðið við, enda hefur verið um undantekningu að ræða ef greiðsla hefur brugð ist. Þá verða báðir aðilar að vera myndugir eða hafá um boð frá forráðamönnum. — Tökum sem dæmi að maður komi til ykkar til að kaupa sinn fyrsta bíl, hvaða ráð mynduð þið gefa hon- um? — Við spyrjum manninn fyrst hvort hann hafi ein- hverja þekkingu á bílum. Ef svo er ekki ráðleggjum við honum að hafa samband við fagmann oð láta hann athuga bílinn. — Er ekki mannþekking mikilvæg í þessu starfi? — Það má nú nærri geta segir Guðmundur og hlær við. Ég er nú búinn að fást við bílasölu í 13 ár og þeir eru ekki fáir viðskiptavinirnir, sem ég hef haft á þeim tíma. Það tekur ekki orðið lang- an tíma að sjá nokkurn veg- inn hvernig maður er að inn ræti. — Kaupið þið bíla stjálf- ir? — Nei, það gerum við aldreL Hinsvegar höfum við söluumboð fyrir Trabant, 6- dýrasta bílinn á markaðinum, og það máttu gjarnan láta fara. Eingöngu þjónusta f Bilakaup, Skúlagötu 55 hittum við Jón Friðsteinsson sölumann þar sem hann er að sýna viðskiptavini glæsilegan Willys Wagon, sem hann segi- ir okkur að eigi að kosta upp undir 300 þús kr., enda sé hér um bíl í sérflokki að ræða. Hann segir okkur að hjá þeim sé mest spurt um Volks wagen og allar gerðir jeppa, svo og smábíla almennt. — Hvað er það helzt sem menn athuga og legja áherzlu Framhald á bls. 20. Feðgarnir Guðmundur Guðmundsson og Baldur Guðmundsson. Bátslíkanið á veggnum er af tólfæring, sem Guðmundur réri á í æsku.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.