Morgunblaðið - 30.03.1967, Side 8
8
MORGtTNBLiAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1967.
Dúfnaveizlan eftir Halldór Laxness hefur nú verið sýnd í tæpt ár i Iðnó við óvenjn mikla að-
sókn og afbragðs undirtektir. Sýningum er nú að ljúka, 54 sýning leiksins verður í kvöld og
eru auglýstar fáar sýningar eftir á leiknum. Myndin sýnir atriði úr 1. þætti Dúfnaveizlunnar
og sjást þar á meðal pressarakonan (Anna Guðmundsdóttir), pressarinn (Þorsteinn Ö. Stephen-
sen) og Gvendó (Gísli Halldórsson).
Fréttasyrpa
f rá Moskvu
28. marz — AP
VTKTOR Bakajev, siglinga-
málaráðherra Sovétrikjanna,
upplýsti í dag, þriðjudag, að
Sovétmenn muni á næstunni
gera ýmisskonar ráðstafanir
til þess að auka kaupsk'pa-
flota sinn og gerast þar með
sjálfstæðari og óháðari öðram
á sviði alþjóðavíðskipta, Upn-
lýsti ráðtherrann á fundi með
fréttamönnum. að kaupskipa-
íloti Sovétríkjanna hefði num
ið 9.5 milljónum lestum á sl.
ári en á næstu þremur árum
yrði hann aukinn í 13 milijón
ir lesta. Ekk, kvað Bakajef
Sovétimenn hafa sérstakan
áhuga á því að verða mesfa
siglingaþjóð heims — heidur
væri hér einungis um að
ræða nauðsyn þess, að þeir
yrðu sjálfum sér nógir í vö u
flutningum. Á síðasta árl
fluttu erlend skip 54 milljón-
ir lesta af varningi til sov-
ézkra hafna — en sovézk skip
131 milljón lesta.
Gromyko til Kairo
Andrei Gromyko, utanríkis
ráðherra Sovétríkjanna, fer á
morgun, miðvikudag, flugl.iið
is til Kairo, þar sem hann
mun dveljast í þrjá daga. Er
rætt um það í Kairo, að
erindi hans sé að ræða um
Aden-deiluna og þá reyna að
koma i veg fyrir að til átaka
komi milli Austurs og Vest-
urs vegna þess máls.
Fimm daga vinnuvika
Uppiýst var í Moskvu i
dag, þriðjudag, að á þessu og
næsta ári muni 80% verka-
manna í Sovétríkjunum taka
upp fimm daga vinnuviku i
stað sex daga eins og nú tlðk
ast. Er þá ekki átt við verka-
fólk i landbúnaðinum, sem
telur um 28 milljónir, — en
að sögn Viktors V. Grishins,
yfirmanns sovézka verkalýðs
sambandsins mun hin nýja lil
skipan ná til 66 milljóna
manna af þeim 79.7 milljón-
um, sem starfa í öðrum grein-
um atvinnulífsíns.
Undirbúa geimferð?
í síðustu viku sendu Rúss-
ar tvö ómönnuð geimför á
loft og eru þær tilraunir taid-
ar undirbúningur þess að
senda mönnuð geimför út í
geim innan skamms.
Sovétmenn hafa ekki sent
mann út í geiminn frá því
Alexei A. Leonov fór í fyrstu
geimgönguna * marz 1965.
Krúsjeff gagnrýndur
Nýlega kom út í Sovétríkj-
unum bók eftir einn helzía
flugvélaverkfræðing og teikn
ara Sovétríkjanna, Alexander
S. Yakovlev. Hér er um að
ræða sjálfsævisögu Yakov-
levs, sem nefnist „Tilgangur
lífsins“ og er þar dregin upp
af mikilli gagnrýni mynd af
Krúsjeff, fyrrum forsætis-
ráðherra, sem leiðtoga, m a.
segir frá deilu, er hann og
Yakovlev áttu með sér í
Baikonur, geimstöð Sovét-
manna. Hafði Krúsjeff gagn-
rýnt verkfræðinginn fyrir rit
störf hans.
Bandarískt hafrannsóknarskip
til Odessa
Fyrirhugað er, að banda-
rískt hafrannsóknarskip komi
til Odessa við Svarta'hafið í
maí n.k. Vekur þessi fregn
athygli fyrir það fyrst og
fremst, að nú er liðið rétt ár
frá því sovézk yfirvöld neit-
uðu slíku skipi um að k >ma
til Leningrad. Að vísu var
það skip frá hernum, en eskí
það, sem nú heimsækir
Odessa.
Samningur við Tyrki
Sovétstjórnin hefur nýlega
undirskrifað samvinnusa.mn-
ing við tyrknesku stjórnina,
sem miðar að því að efla efna
hag Tyrklands. Munu Sovér-
menn veita aðstoð við að
reisa sjö framleiðslufyrirtæki,
þar á meðal stáiiðju, alumini-
um-verksmiðju og olíuihreíns-
unarstöð.
Hagnaðarkerfið
í landbúnaðinum
Á mánudag var birt 1
Moskvu áætlun um að taka
upp í landbúnaðarrekstrinum
hagnaðarkerfi svipað því,
sem þegar hefur verið tek-
ið upp í mörgum verksmiðj-
um og fyrirtækjum í öðrum
greinum. Samkvæmt áætlun
þessari verða fyrst gerðar til
raunir í nokkur hundruð rik-
isbúum og stefna að því að
reka þau með hagnaði, sem
síðan verði notaður til að
verulegu leyti til að efla starf
semina og hag þeirra, sem
að henni staxfa. Ennfremur
munu stjórnendur ríkisbú-
anna fá frjálsari hendur en
áður um framleiðslu og sölu
afurðanna þannig, að afkoma
búanna verði sem bezt.
Landbúnaðurinn 1 Sovét-
ríkjunum er nú rekinn með
tvennum hætti, — annarsveg-
ar á ríkisbúum, sem eru rek-
in eins og hver önnur ríkis-
fyrirtæki — hinsvegar í sam-
yrkjubúum, þar sem starfs-
menn deila með sér ágóða og
ábyrgð Á ríkisbúunxxm starfa
um átta milliónir manna og
fá þeir að jafnaði ákveðin
mánaðarlaun. Á samyrkjubú-
unum fara launin eftir þvi
hvernig framleiðslan gengur.
Ríkið hefur ákveðið hvað sé
framleitt á hverjum stað og
haft veruleg afskipti af sölu
afurðanna.
Sovézkur foguri tekinn
að veiðum við Aluska
innan 12 míína fiskveiðilögsögunnar nýju
Washington og Juneau
(Alaska), 28. marz, AP, NTB.
Á MIÐVTKUDAG í fyrri viku
var sovézkur togari tekinn að
veiðum við Shumagin-eyjar úti
fyrir Alaska, fimm og hálfa
mílu innan við nýju 12-mílna
fiskveiðitakmörkin sem Banda-
ríkin hafa nú sett. Var skipstjór-
inn færður til hafnar á skipi
sínu, sekur fundinn um fisk-
veiðar innan fikveiðitakmark-
anna og gert að greiða 10 þús-
und dollara sekt, sem sovézka
stjórnin innti af hendi tveimur
dögum síðar fyrir milligöngu
sendiráðs síns í Washington.
Fyrr í marzmánuði var annar
sovézkur togari tekinn að veið-
um innan fiskveiðitakmarkanna
við Alaska og þá innan þriggja
milna markanna. Var hann sekt
aður um 5 þúsund dali og féð
greitt fram refjalauat.
Til sölu m. cl
Risíbúð
4ra herb. í Laugameshverfi,
um 100 ferm. og lítið undir
súð.
Við Rauðalæk
litið niðurgrafin, 93 ferm„
3ja herb. kjallaraíbúð. Sér-
inng., sérhitaveita, tv. gler,
harðviðarhurðir og teppi.
Ný 2ja herbergja
íbúð á 2. hæð við Hraunbæ.
Suðursvalir, harðviðarinnrétt-
ingar, tv. gler, parket á eld-
húsi og svefnherbergi, stofa
og forstofa teppalögð. Sam-
eign fulifrágengin.
2ia herbergja
kjallaraibúð við Ásvallagötu.
tbúðin er nýleg með tv. gleri
og teppum, sérinng. og sér-
hitaveitu.
Við Skipasund
2ja herb. kjallaraibúð með
sérinng. og sérhita, verð 600
þús., útb. 300 þús.
Skipa- & fasteignasalan
KIRKJUHVOLI
Símar: 14916 o? 13842
íbúðir óskast
Vandað einbýlishús óskast til
kaups. Má vera í smíðum.
2ja—3ja herb. nýlegar íbúðir
óskast. Mega vera í smíðum.
Ennfremur höfum við fjöl-
marga kaupendur að 2ja—
3ja og 4ra herb. góðum ris-
og kjallaraíbúðum.
Til sölu
Giæsilegt parhús á einum feg-
ursta stað í Kópavogi. Eld-
hús stofur og WC á neðri
hæð, 4 herbergi, bað og
svalir á efri hæð. Gólfteppi,
vandaðar innréttingar, —
falleg lóð, frágengin gata.
Efri hæð með 4ra herb. rúm-
góðri íbúð í NorðurmýrL
Suðursvalir, fallegur garð-
xrr, bílskúr. Nánari upplýs-
ingar á skrifstofunni.
2ja herh. nýleg kjallaraíbúð
í Hvassaleiti. Vandaðar
harðviðarinnréttingar. Útb.
kr. 200—250 þús.
3ja herb. góð jarðhæð í suð-
urhluta borgarinnar. Sér-
inngangur, sérhitav. Útb.
aðeins kr. 250—275 þús.
3ja herb. góð hæð í timbur-
húsi í Laugardal. Erfða-
festulóð, góð kjör.
3ja herb. kjallaraíbúð við Ás-
vallagötu.
3ja herb. stór og mjög gúð
kjallaraíbúð í Sundunum.
Sérinngangur, góð kjör.
4ra herb. endaíbúð við Eski-
hlíð, góð kjör.
5 herb. góð rishæð í Kópa-
vogi, með bílskúr. Útb. að-
eins kr. 550 þús.
Ný og stórglæsileg 130 ferm.
hæð á fögrum stað í Kópa-
vogi. Allt sér.
Lítil bókaverziun með mjög
sanngjarnri útborgun.
ALMENNA
fASTEIGNASAlAH
LINDARGATA 9 SlMI 21150
BJARNI BEINTEINSSON
LÖSFRXÐINOUR
AUSTURSTRÆTI 17 (IILLI * VALD«
SlMI 135 36
ðrvals vinnuföt
fyrir
MATSVEINA
BAKARA
ÞJÓNA
MJÓLKURBÚSMENN
Hvítir JAKKAR tvihnepptir
Hvítir JAKKAR einhnepptir
Hvítar BUXUR
Köflóttar BUXUR
Hvítar HÚFUR
nýkomið.
VE RZLUNIN
GEísm
Fatadeildin.
Hijfum kaupanda
að 2ja herb. íbúð á 1.—2.
hæð í Austurborginni. —
Mikil útb.
Höfum kaupanda að 2ja—3ja
herb. íbúð, 70—80 ferm.,
helzt með bílskúr.
Höfum kaupanda að 3ja herb.
íbúð sem mest sér.
Höfum kaupanda að 4ra—5
herb. íbúð á hæð, mætti
vera í saihbýlishúsi.
Höfum kaupanda að einbýlis-
húsi 6—7 herbergja á góð-
um stað.
Skip og fasteignir
Austurstræti 18. Simi 21735.
Eftir lokun 36329
Heimasími 40960.
- I.O.G.T. -
Stúkan Freyja nr. 218
Fundur í kvöld kl. 8.30 i
Góðtemplarahúsinu. Kosning
fulltrúa til bingstúku. Hag-
nefndaratriði. — Kaffi eftir
fund.
Æt.
FÉIAGSiÍF
K.F.U.M.
Aðalfundur félagsins er 1
kvöld kl. 8.30 í húsi félagsins
við Amtmannsstig. Venjuleg
aðalfundarstörf.
Stjórnin.
SAMKOMUR
Samkomuhúsið Síon,
Óðinsgötu 6A
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.30. Allir velkomnir.
Heimatrúboðið.