Morgunblaðið - 30.03.1967, Síða 11
WCmGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1967.
11
Páii V. Par;slsson:
Vilja Hafnfirðingar
opna brunninn?
1 HAFNARFIRÐI hefur að undan
förnu talsvert verið rætt um
opnun áfengisútsölu í bænum,
en tildrög þeirra umræðna eru
þau, að tveir athafnasamir menn
vilja fá að reka vínbar í húsi,
sem þeir eru að byggja og ætla
til veitingareksturs. Fyrrnefndir
aðilar hafa skrifað bæjarstjórn
um málið og óskað eftir því að
fram fari almenn atkvæða-
greiðsla meðal Hafnfirðinga í
sambandi við næstu alþingis-
kosningar um opnun áfengis-
útsölu í Hafnarfirði. Jafnframt
hefur, að þeirra tilstuðlan, ver-
ið hafin undirskriftasöfnun í
bænum um að slík atkvæða-
greiðsla sé látin fara fram.
Hafnfirðingar hafa um langt
érabil verið lausir við áfengis-
útsölu í bænum og þann leið-
indasvip, sem slikri útsölu fylg-
ir og munu fáir hafa saknað
þess.
En fólk má ekki láta blekkj-
ast í sambandi við undirskrifta-
söfnun þessa. Sumir telja að hún
sé ekki um áfengisútsölu, heldur
um það eitt að Hafnfirðingar fái
að njóta þess lýðræðis að greiða
atkvæði um, hvort þeir vilji hafa
áfengisútsölu í bænum eða ekki.
En tilgangurinn er hinsvegar sá
einn að fá áfengisútsölu í Hafn-
arfjörð. Og fólk hefur látið
blekkjast í máli þessu o gskrif-
að í hugsunarleysi undir óskir
um atkvæðagreiðslu, enda þótt
það mundi alls ekki greiða at-
kvæði með opnun vínbúðar. En
þeir, sem ekki vilja opnun vín-
verzlunar í Hafnarfirði þurfa
engar undirskriftir um atkvæða-
greiðslu, heldur aðeins þeir, sem
vilía fá áfengisútsölu í bæinn.
Það er ávallt mikið alvöru-
mál að taka þátt í undirskrift-
um og það ætti fólk aldrei að
gera án umhugsunar. En venju-
lega fara undirskriftir þannig
fram að komið er til fólks, beitt
einhliða áróóri og ætlazt til þess,
að það skrifi undir án þess að
tefja smalann of mikið. Þess
vegria hefur margur orðið fyrir
því að láta nafn sitt á plagg,
sem hann aldrei hefði látið sér
fil hugar koma, ef hann hefði
vitað hinn raunverulega tilgang
undirskriftaplaggsins eða hann
hefði tekið sér umhusunarfrest
og kynnt sér málið.
Ég efa það ekki, að ýmsir
hafa ritað undir fyrrnefnt plagg
um áfengisútsölu í Hafnarfirði,
«em sumir hveriir sjá eftir þvi
nú þegar og aðrir síðar — En
ennþá er tími til að stinga við
fótum. Þeir sem ekki hafa skrif-
eð undir gæti sín, taki sér um-
■hugsunarfrest og gefi málefninu
gaum áður en þeir styðja það
með undirskrift sinni og þeir,
sem þegar hafa skrifað undir
og sjá eftir því fái að strika
nöfn sín út, en bað ætti fólk að
vera ófeimið við.
Framanrituð orð eru af gefnu
tilefni. — En fyrst ég er far-
inn að skrifa um þessi mál vil
ég láta falla nokkur orð um mál-
ið sjálft.
Þeir, sem vilja viðhalda veldi
Bakkusar konungs, en þeir eru
margir, sem hafa af því hagn-
•ð, halda þvi fram, að bezta
leiðin til að leysa áfengisvanda-
málið sé að skapa það, sem þeir
kalla „áfengismenningu". Hins-
vegar hefur það orð ekki reynzt
nema hugtak eitt sem engum
stoðum, sem hald er £, hefur ver
ið rennt undir. Og til þess að
skapa þessa „áfengismenningu“
á vín að vera á boðstóíum hvar
sem er og hvenær sem er. Höml
um eigi að létta af meðferð á-
fengis þá læri menn að umgang-
ast það og þá muni það ekki
valda tjóni. Þrátt fyrir það, er
reynsla liðinna aldra hafi sann-
að að skoðum þessi er óraun-
hæf er henni haldið fram í full-
kominni blindni og einstreng-
ingshætti. — I sjónvarpsþætti
fyrir nokkru komst talsmaður
þessarar kenningar í talsverðan
vanda út af þeim mönnum, sem
af einhverjum ástæðum drykkju
nú of mikið eftir fengið frelsi
í áfengismálum. Og hvert var þá
ráð þessa manns? Það átti að
setja vínbann á þá, sem ekki
kynnu hóf í drykkjunni. Aðra
leið fann hann ekki út úr vand-
anum.
En sé það sannfæring manna,
að hömlur á sölu og dreifingu
áfengis séu til ills eins gildir
þá ekki sama um hverskonar
hömlur á sölu og dreifingu ann-
arra eiturlyfja? Og hversvegna
allar þessar hömlur í þjóðfélag-
inu, bæði siðferðislegar og aðr-
ar? Hversvegna ekki að láta
fólk alast upp við hætturnar,
venjast þeim og umgangast þær
í stað þess að byrgja brunninn?
En .hvaða brunnur hefur fleirum
grandað, menningarlega, efna-
lega, andlega og líkamlega en
áfengisbrunnurinn?
Sjálfsagt verður því haldið
fram, að opnun áfengisútsölu í
Hafnarfirði ásamt vínbar eða
vínbörum auki ekki áfengisneyzl
una, heldur geri hana menning-
arlegri. En trúir fólk því? Halda
menn að eingöngu eigi að auka
við kostnaðarhlið veitingarekst-
ursins í heild en ekki vil tekju-
hliðina? Sama er að segja varð
andi áfengisverzlun ríkisins. Nei,
vissulega ekki. Hvorttveggja er
bygt á aukinni áfengissölu, sem
af sér leiðir aukna neyzlu á-
fengis hjá körlum og konum já
og unglingum og afleiðingin verð
ur upplausn fleiri heimila, fleiri
afbrot, fleiri slys, fleiri váleg
dauðsföll, fleiri umkomulaus
börn og unglingar, fleiri sár,
meira böl.
E. t. v. gerir fólk sér ekki
grein fyrir því, hve alvarlegt á-
fengisbölið er og á það sé bæt-
andi með aukinni vínsölu. En
til að geta nokkuð upplýst fólk
um þau mál hér í borg er
Áfengisvarnarnefnd Hafnarfjarð-
ar með ráðagerð um að afla
gagna þar um. Það er því ráð-
legt fyrir fólk að flýta sér með
hægð og rasa ekki um ráð fram
í því að ljá áfengisútsölu lið
með undirskrift sinni. Fólk þarf
þá síður að hafa samvizkubit,
ef það hefur ekki skráð sig sem
hirðmenn Bakkusar konungs,
þegar það sér hafnfirzk heimili
eða hafnfirzka unglinga verða
áufengisnautninni að bráð.
Fáll V. Danielsson
Ráðskona óskast
Dugleg ráðskona óskast við verksmiðju-
mötuneyti í nágrenni Reykjavíkur. íbúð
á staðnum, má hafa með sér barn. Tilboð
með upplýsingum um fyrri störf sendist
Mbl. fyrir hádegi á mánudag merkt:
„Gott eldhús 2010“
TÍZKUSKÓLI ANDREU
SKOLAVÖR-ÐUSTÍG 23 SÍMI 19395
Til fermingargjafa
RADIONETTE ÚTVÖRP OG ÚTVARPSFÓNAR.
AIWA SEGULBANDSTÆKI, margar gerðir
fyrir 220 volta straum og rafhlöður.
Verð frá 3.129.00.
TRANSISTOR ÚTVÖRP: Norsk, japönsk, frönsk
og ítöslk. Verð frá 1.150.00.
PLÖTUSPILARAR: Monarch, Aiwa og Denon.
Verð frá 1.700.00.
AIWA PLÖTUSPILARAR með útvörpum,
gerðir fyrir 220 volta straum og rafhlöður.
Verð frá 5.083.00.
RONSON — ISMET — A.D.A.X. og A.B.C.
HÁRÞURRKUR.
PAYER — LUX — REMINGTON — ARVIN og
OXFORD RAFMAGNSRAKVÉLAR.
PÓSTSENDUM.
Rafsjá hf.
Laugavegi 47, Reykjavik — Simi 11575.
1
--------------------------y
Kvöídvaka
Félags íslenxkra leikara
verður flutt í síðasta sinn í Þjóðleikhús-
inu næstkomandi mánudagskvöld kl. 20.
Yfir 40 leikarar, söngvarar og fjöllistar-
menn taka þátt í svningunni.
Síðasta sinn.
Látið ekki frost og kulda tefja störfin.
Bjargið verðmætum með MASTER-hita.
G. ÞORSTEINSSON 8 JOHNSON H.F
Ármúla 1 - Grjótagötu 7
Simi 2 - 42 - 50
Fulltrúa —
og sölustörf
HANDBÆKUR HF. óska að ráða til starfa
í byrjun aprílmánaðar nokra unga menn
til fulltrúa- og sölustarfa í Reykjavík og
nágrenni.
Æskilegur aldur umsækjenda er frá 21—
35 ára og nauðsynlegt er að nokkur
enskukunnátta sé fyrir hendi.
Þeir sem ráðnir verða munu sitja í upp-
hafi námskeið í sölufræði og markaðs-
fræði til undirbúnings þessu starfi.
Hér er um að ræða starf er býður upp á
góða tekjumöguleika fyrir þá menn sem
opnir eru fyrir nýjungum varðandi sölu-
fræði og sölutækni og hafa áhuga á að
starfa. að sjálfstæðu kynningar- og sölu-
starfi. Einnig er þetta góð reynsla og und-
irbúningur þeim, er hyggjast halda áfram
að kynna sér sölufræði.
Upplýsingar um þessi störf verða veittar
í síma 19-400 í dag og næstu daga frá kl.
13—18.
Handbœkur hf.
Blaða- og bókaútgáfa — Bóksala.
Tjamargötu 14 — Reykjavík.
P.O. Box 268 — Sími 19-400.