Morgunblaðið - 30.03.1967, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1967.
15
Janus Guðmundsson
verkstj. — Minning
ÞANN 28. þ.m. var fierð frá
Fossvogskirkju útför Janusar
Guðmundssonar, verkstjóra, frá
Flateyri.
Hann var fæddur að Fremri-
Breiðadai í Önundarfirði 14. jan.
191.5. Foreldrar hans voru hjón-
in Jóhanna Guðmundsdóttir og
Guðmundur Guðmundsson.
Með foreldrum sínum flutti
Janus ungur að Selabóli í Önund
arfirði og var þar með þeim unz
þau hættu búskap og fluttu til
Flateyrar árið 1932.
í uppvexti sínum vandist Jan-
us sveitastörfum eins og þau
tíðkuðust þá, en eftir að til Flat-
eyrar kom, beindist hugur hans
að sjómennsku, sem hann stund-
aði um tveggja áratuga skeið.
Var hann hin síðari sjómannsár
sin jafnan vélstjóri á fiskiskip-
um.
Eftir að Janus hætti sjó-
mennsku og hóf störf í landi,
vann hann tíðast við fiskverkun
i frystihúsum, sem fiskimatsmað
ur og síðar sem verkstjóri.
Árið 1942 kvæntist hann eftir-
lifandi konu sinni Jóhönnu Ás-
geirsdóttur, ættaðri úr Arnar-
firði. Reistu þau bú á Flateyri
Flaug 6 ferðu
að Núpi
Þingejrri, 28 marz.
ILLT veður hefur verið hér und
anfarna daga, en í dag er veður
orðið ágætt.
Hér kom vél frá Flugþjónustu
Björns Pálssonar í dag með far-
þega og póst. Var þá gripið tæki
færið og óskað eítir því, að vél-
in flytti nemendur úr Núpsskóla
yfir fjörðinn, þar sem vegurinn
er algjörlega ófær.
Flugvélin fór 6 ferðir að Núpi,
en þar er lítill flugvöllur
skammt frá. Fói vélin með 3
nemendur í einu eða 18 alls.
— Magnús.
og bjuggu lengst af þar. Þau
eignuðust tvær dætur, Jensínu
og Guðrúnu Ágústu.
Heimili þeirra var rómað fyrir
gestrisni og áttu þau hjón þar
bæði sammerkt.
Um árabil átti ég og fjöl-
skylda mín því láni að fagna að
eiga sem vini Janus og hans
fólk. Metum við öll mikils þá
vináttu. Árið 1961 fluttist Janus
til Súgandafjarðar og bjuggu þau
þar til ársins 1964 er þau fluttu
til Reykjavíkur.
Það mun vera einróma álit
allra þeirra, sem Janus vann fyr-
ir að störf hans hafi fyrst og
fremst mótazt af þeirri sérstöku
samvizkusemi og skyldurækni,
sem honum var i blóð borin. Vin-
áttu hlaut hann og þeirra sem
með honum störfuðu.
Vélstjórn á fiskiskipi og verk-
stjórn eru hvorttveggja störf,
sem nauðsynlegt er að vel og
samvizkusamlega séu af hendi
leyst, og má þar helzt ekki í
neinu skeika. Eiu því til þeirra
starfa valdir þeir menn, sem
óhætt er að treysta og mun Jan-
us ekki í neinu h*fa brugðizt því
trausti. Hann var starfsmaður
mikill og-drengur hinn beztL
Á sl. sumri hermsótti Janus í
hinzta sinn átthaga sína fyrir
vestan. Var þá öllum Ijóst að
hann gekk ekki neill til skógar.
Enda lagðist hann skömmu síð-
ar á sjúkrahús og átti þaðan ekki
afturkvæmt. f erfiðri sjúkdóms-
legu annaðist kona hans hann af
einstakri alúð. Það er átakan-
legra, en orð fá lýst, að sjá menn
í blóma lífsins heltekna sjúk-
dómi sem enginn fær varizt.
Sýndi Janus í þessum erfiðleik-
um fádæma þrek, og reyndi
jafnan að létta ástvinum sínum
þá byrði, sem þeim var bundin.
Þann 17. marz sl. andaðist Jan-
us á Borgarsjúkrahúsinu í
Reykjavík. Nú er þjáningum
hans lokið og honum verður
umbunað, fyrir vel unnin störf,
góðmennsku og drenglund af
honum sem sagði: „Komið til
Vélstjórar
Óskum að ráða 1. og 2. vélstjóra, á togar-
ann Gylfa, sem breyta á í síldveiðiskip.
Annan vélstjórann vantar strax, hinn
seinna. Þeir sem vildu saekja um þessi
störf, vinsamlegast sendið umsóknir, með
upplýsingum um réttindi og fyrri störf
sem vélstjórar, til Morgunblaðsins merkt:
„Gylfi 2380“
mín, allir þér, sem erfiði og
þunga eruð hlaðnir og ég mun
veita yður hvíld“.
Við vottum eftirlifandi eigin-
konu, dætrum og öðrum vanda-
mönnum okkar dýpstu samúð og
biðjum Guð að blessa þau öll.
B.S.
Bílaklæðning, Smárahvammi Kóp.
Við klæðum alla bíla
Ekið Fífuhvammsveg, skilti til hægri. Sími 13896.
Heimasímar 35180 —- 33869.
Staða aðstoðarlæknis
við röntgendeild Borgarspítalans er laus til um-
sóknar. Staðan veitist frá 1. júní eða eftir sam-
komulagi. Laun samkvæmt samningi Reykjavíkur-
borgar og Læknafélags Reykjavíkur. Upplýsing-
ar varðandi stöðuna veitir yfirlæknir deildarinn-
ar. Umsóknir, ásamt upplýsingum um námsferil
og fyrri störf sendist Sjúkrahúsnefnd Reykjavík-
ur Heilsuverndarstöðinni fyrir 1. maí n.k.
Reykjavík, 28. marz 1967.
* Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur.
fermingagjafa
SVEFNPOKAR
íslenzkir og erlendir teppapok-
ar og dúnpokar.
TJÖLD
2-3-4-5 og 6 manna.
VINDSÆN GUR.
BAKPOKAR.
POTTASETT — PRÍMUSAR.
FERÐADÝNUR
sem hægt er að setja í tösku.
Margar stærðir.
Kaupið vöruna hjá
þeim sem hafa reynslu
í notkun hennar.
siýaABöÐiN
Suðuraies^antðnn GM ESiLEGT STO Suðurnes’antenn ÍRBINGÖ
í FÉLAGSBÍÓI í KEFLAVÍK í kvöld fimmtudag kl. 9. * * • •
UKtUIIP UI I StVÖLI) "k 16 daga ferð til Mallorca og London. Sjálfvirk þvottavél. ★ Frystikista 265 1. Grundig útvarpsfónn. Húsgögn fyrirT5 þús. krónur. Auk þess fram- haldsvinningur- inn sem er 10 vinningar f kvöld verða spslaBar 15 umferðir Aðgöngu~niðasala hefst kl. 6 í Félagsbíó. Sími 1960. C..1K.