Morgunblaðið - 30.03.1967, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MARZ 19«7;
L
Útgefandi:
Framkvæmdast j óri:
Ritstjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Auglýsingar:
Ritstjórn:
Auglýsingar og afgreiðsla:
í lausasölu kr.
Áskriftargjald kr. 105.00
Hf. Árvakur, Reykjavík.
.Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6.
Aðalstræti 6. Sími 22480.
7.00 eintakið.
á mánuði innanlands.
NYJAR TILLÖGUR
U THANTS
1T Thant, aðalritari Samein-
^ uðu þjóðanna, hefur nú
Lagt fram frekari tillögur til
lausnar Vietnamstríðinu og
er meginefni þeirra það, að
gert verði vopnahlé í Víet-
nam, síðan hefjist undirbún-
ingsviðræður styrjaldaraðila
og loks verði kölluð saman ný
Genfarráðstefna. Þegar eftir
að aðaliritarinn hafði kunn
gert tillögur sínar á blaða-
mannafundi í aðalstöðvum
Sameinuðu þjóðanna lýsti
sendinefnd Bandaríkjanna
yfir því, að Bandaríkjastjórn
hefði fallizt á tillögur aðalrit-
arans. Ennfremur hafa fleiri
þjóðir, sem hlut eiga að máli
fagnað þessum tiliögum og
fall'izt á þær fyrir sitt leyti.
Kommúnistastjórnin i
Hanoi hefur hins vegar skv.
fregnum fréttastofu Norður-
Víetnam, hafnað þessum ti'l-
Lögum og skv. frétt „Þjóð-
viljans" í gær hefur Norður-
Víetnam lýst því yfir, að Sam
einuðu þjóðirnar „hafi enga
heimild til þess að hlutast til
um málefni Víetnam“.
Með þessum viðbrögðum
ríkisstjórnarinnar í Hanoi
við tillögum U Thants
er enn undirstrikuð sú
staðreynd, sem Mbl. hef-
ur hvað eftir annað vakið at-
hygli á, að al'lar friðarumleit-
anir í Víetnam hafa fram til
þessa strandað á kommúnist-
um, sem augljóslega vilja
ekki að friður komizt á í
Víetnam. Höfnun þeirra á til-
lögum U Thants nú er enn
ein sönnun þess.
Um þessar mundir eru
kommúnistar, Framsóknar-
menn og ungir jafnaðarmenn
að setja á stofn svonefnda
„Víetnamnefnd“ og hefur því
verið lýst yfir, að þessir aðil-
ar styðji fyrri tillögur U
Thants um lausn Víetnam-
stríðsins. Ljóst er að þær tdl-
lögur, sem hann hefur nú sett
fram, eru einungis frekari út-
færsla á fyrri tillögum hans
og raunar ítarlegri og ganga
lengra en fyrri til'lögurnar,
þar sem aðalritarinn leggur
nú áherzlu á, að fyrsta skref-
ið í friðarátt verði vopnahlé.
Nú reynir því á heilindi
þeirra manna, sem sett hafa á
stofn hina svonefndu „Víet-
namnefnd'*-og virðist eðlilegt
að nefnd þessi láti það verða
sitt fyrsta verk að styðja hin-
ar nýju tillögur U Thants og
hvetji jafnframt Hanoistjórn-
irta til þess að breyta afstöðu
sinni til þeirra og fallast á
þær.
Kommúnistaflokkurinn hef
ur einnig lagt fram þings-
ályktunartillögu á Alþingi um
stuðning við fyrri tillögur U
Thants og verður fróðlegt að
sjá hvort kommúnistar lýsa
jafnframt yfir stuðningi við
hinar nýju tiliögur hans.
Víetnamstríðið er hörmu-
legur atburður, sem hefur
þegar valdið ólýsanlegu tjóni.
Fjölmargir aðilar um heim atM
an hafa gert ítrekaðar till-
raunir til þess að koma á frið
arumleitunum í þessari styrj-
öld. U Thant hefur frá upp-
hafi verið í forustu fyrir þeim
öflum, en Bandaríkjastjórn
hefur gert Hanoistjórninni
ítrekuð tiilboð um friðarsamn
inga. Öllum þessum tMraun-
um hefur verið hafnað af
hálfu kommúnista í Víetnam.
Það er því enn Ijóst,. að þeir
bera ábyrgðina á áframhald-
andi hörmungum í Víetnam
vegna styrjaldarinnar þar.
Þessi deila verður ekki leyst
nema báðir aðilar sýni í verki
friðarvilja sinn. Það hafa
kommúnistar í Norður-Víet-
nam ekki gert til þessa.
TOGARAR TIL
SÍLDVEIÐA
Á komandi sumri verða at-
hyglisverðar ti'lraunir
gerðar tM þess að nýta gömlu
togarana okkar til síldveiða.
Hinn landskunni aflamaður
Þorsteinn Gíslason hef ur
ásamt öðrum fest kaup á tog-
aranum Sigurey og hyggst
gera hann út á síldveiðar í
sumar.
í gær skýrði Mbl. frá því
að hMutafélagið Sjávarborg í
Siglufirði hefði fest kaup á
togaranum Gylfa í sama
skyni og hyggst það gera
hann út til síldveiða frá Siglu
firði. Verður Gylfi þá stærsta
síldveiðiskip flotans um 700
tonn.
Hér er um hinar merkustu
tilraunir að ræða. Ef reynsl-
an leiðir í ljós, að hægt er að
nýta gömlu togarana til síld-
veiða er hvort tveggja í senn
fundin leið til þess að nýta
enn um skeið þessi myndar-
legu fiskiskip og jafnframt
efla sildveiðiflotann með stór
um og afkastamiklum skip-
um.
Það þarf mikla djörfung og
hugrekki ti'l þess að leggja
út í slíkar tiiraunir og hætta
til þeirra miklu fé. En þann-
ig hefur íslenzkur sjávarút-
vegur jafnan verið byggður
upp af framsýnum útgerðar-
mönnum og sjómönnum, sem
haft hafa kjark og dug til
þess að kanna nýjar leiðir.
Það skiptir og einnig miklu
fyrir Siglufjörð, þennan
gamla og sögufræga síldar-
UHYi
Krabbamein og „sveppasúpa"
Frá krabbameinsrannsóknuin í Skotlandi og imdarlegri til-
viljun sem kann að reynast lykillinn að gátu þessa
torráðna sjúkdóms
H Ó P U R brezkra og
skozkra lækna hefur nú
fyrir hreina tilviljun — og
eftirfarandi ítarlegar rann-
sóknir — fundið nýtt lyf,
sem al'lt virðist benda tM
að valda muni byltingu
í krabbameinsrannsóknum
og jafnvel færa mannkyni
lykilinn að gátu þessa tor-
iáða sjúkdóms.
Þeir er að rannsóknun-
um standa eru þó mjög orð
varir og vilja sem fæst um
þær segja, telja ekki tíma-
bært að greina frá þeim að
ráði fyrr en seinna, er lyf-
ið nýja hefur verið þraut-
reynt. Þó má ráða nokkuð
í hvað hér er á seyði með
því að svo virðist sem
nokkrir krabbameinssjúkl-
ingar sem ekki var hugað
líf hafi hlotið fulla bót
meina sinna fyrir tilstil'li
lyfsíns.
Brezka blaðið „News of fhe
World“ segir frá þessum rann
sóknum 26. febrúar sl. og læt-
ur það fylgja að þær muni
kosta um 10.000 sterlingspund
á ári næstu þrjú árin. Skozk-
ur kaupsýslumaður hefur nú
forgöngu um sjóðstofnun rann
sóknunum til styrktar og hef-
ur blaðið heitið 1000 sterlings-
punda framlagi til sjóðsins ár-
lega. Margir aðilar aðrir hafa
og heitið liðsinni sínu svo
tryggt verði að ekkert geti
tafið rannsóknirnar.
Blaðið sagði frá því hvernig
uppvíst varð um þetta nýja
lyf í skozka sjúkrahúsinu
Aberdeen Royal Infirmary og
verður það nú rakið lauslega.
Það er upphaf sögunnar að
sjúkrahúsinu barst fyrir fimm
árum lyfjasending. f sendingu
þessa komst svo sveppur —
hvernig, hvar eða af hvaða
völdum veit enginn. Lyf þetta
var síðan notað í sjúkrahúsum
og vissi þá enginn um tilkomu
sveppsins. Þá bar það við að
sjúklingar sem það fengu
brugðust við lyfjagjöfinni á
annan veg en ætlað var. Dauð
vona sjúklingar með illkynj-
uð æxli hresstust allir og æxl-
in tóku að minnka jafnt og
þétt og hurfu í sumum tilvik-
um jafnvel með öllu.
Læknar í sjúkrahúsinu báru
saman bækur sínar og voru
furðu lostnir. Ekki datt þeim
þó í hug að neitt samband
væri milli lyfjagjafa þessara
og hins skyndilega bata sjúkl-
inganna, enda vissu þeir ekk-
ert um sveppinn, sem öllum
að óvörum hafði komizt í lyf-
ið og breytt eiginleikum þess.
Það sem þeir sáu var að
krabbameinsæxli sjúkling-
anna tóku að minnka að sama
skapi og þau höfðu áður auk-
izt og líðan sjúklinganna varð
æ betri.
Við nánari eftirgrennslan
kom í ljós að myndazt hafði
þykkur trefjavefur utan um
æxlin. Þetta var einmitt það
sem oftast á sér stað í heil-
brigðum líkama þegar aðskota
sýkil eða meinsemd ber að
garði. Læknar telja það jafn-
an góðs viði þegar trefjavef-
ur er utan um æxli, því þá
eru minni líkur á að það dreifi
sér og meiri fyrir því að hægt
sé að nema það burtu. En það
var ekki einasta að trefjavef-
urinn myndaðist heldur var
líka svo að sjá sem æxlin
hreint og beint vesluðust upp
innan hans. Svo, allt í einu,
snerist þessi s'furðulegi bati
um sjálfan sig og sjúklingarn-
ir urðu aftur mjög veikir.
Læknar vissu ekki hvaðan
á þá stóð veðrið. Engar breyt-
ingar á lyfjagjöfum fóru á
undan þessum ósköpum og nú
lögðu þeir nótt við dag að
reyna að komast fyrir um
hvað valdið hefði hvoru-
tveggju, hinum skyndilega og
óvænta bata sjúklinganna og
svo því að þeim skyldi þá allt
í einu hraka aftur. Er farið
var yfir sjúkdómsbækur sjúkl
inganna kom í ljós að þeir
áttu allir eitt sammerkt og
aðeins það eitt: þeir höfðu
allir fengið lyfið er áður sagði
úr sendingunni sem minnzt
var á í upphafi þann tíma sem
þeim batnaði og er þeim svo
tók að hraka höfðu þeir feng-
ið sama lyfið en úr annarri
sendingu.
Lyfið var nákvæmlega hið
sama í báðum tilvikum, svo
ljóst var að þessi tiltekna send
ing hlaut að vera eitthvað frá
brugðin öðrum sendingum
þessa sama lyfs. Til allrar
hamingju átti sjúkrahúsið dá-
lítið eftir af henni og var það
óðara sent í efnagreiningu og
nákvæma rannsókn. Þá var
það sem uppvíst varð um
sveppinn í lyfinu. Þetta var
afbrigði af mjög algengum
svepp, sem vex alls staðar og
hefði hæglega getað borizt í
lyfið inn um glugga eða eftir
ámóta leiðum.
Næst var tekið til við að
reyna að rækta sveppinn. Það
var erfitt verk en tókst að
lokum eftir 18 mánaða strit
og er kom fram á árið
1964 ræktaði rannsóknadeild
sjúkrahússins heilar ekrur af
þessum sveppi. Lyfið góða er
síðan gert þannig að þegar
sveppurinn nær réttu þroska-
stigi er hann settur í upp-
lausn á rannsóknarstofunni og
látinn eiga sig unz hann hefur
myndað hvíta loðna hnoðra.
Hnoðrarnir eru síðan látnir
„ráðast á“ lyfið sem upphaf-
lega varð fyrir hinni óvæntu
„innrás" sveppsins áður og
brjóta þeir það niður og
breyta allri samsetningu þess
og eiginleikum. Úr þessu fæst
svo ákaflega bragðvondur
vökvi, sem einn læknanna er
að rannsóknunum hafa unnið
bæ, að þessi tilraun takizt
vel og að stærsta síldveiði-
skip flotans flytji síldina á
ný til Siglufjarðar, sem síð-
ustu árin hefur að verulegu
leyti orðið afskiptur af hin-
um mikla síldarafla. Er það
raunar ekki vanzalaust og
ful'l ástæða tii þess að stuðla
að því með síldarflutningum,
kallar í gamni „sveppasúp-
una“.
Það er skoðun margra rann
sóknalæknanna að „sveppasúp
an“ komi í staðinn fyrir eða
bæti upp illa statt varnar-
kerfi líkama krabbameins-
sjúklinganna. Heilbrigt fólk
sem býr að góðu varnarkerfi
og traustu getur sem bezt
haft krabbameinsfrumur í
líkama sínum um árabil án
þess að hafa hugmynd um
það, því varnarkerfi likamans
einangrar þessar frumur og
hefur hemil á útbréiðslu
þeirra. Ef svo ber við að varn
arkerfið bilar allt í einu af
einhverjum sökum byrjar
krabbameinið að breiðast út.
„Sveppasúpan" bætir upp
þessa bilun og kemur aftur á
að því er virðist, eðlilegu varn
arjafnvægi líkamans.
Til þessa hefur lyfið aðeins
verið reynt á dauðvona sjúkl-
ingum og allar tilraunir með
það hafa verið gerðar í sam-
ráði við krabbameinsskurð-
lækni og krabbameinsgeisla-
lækni sjúkrahússins. Árangur
tilraunanna hefur verið mjög
góður — sumir myndu reynd-
ar taka dýpra í árinni, en ekki
rannsóknarlæknarnir við Ab-
erdeen Royal Infirmary. —
Nokkrir sjúklinganna sem
fyrstir fengu lyfið dóu að
vísu — en ekki af völdum
krabbameins — krufning
leiddi í ljós að ekkert var
eftir af krabbameini þeirra
annað en ör. Síðan hafa tveir
sjúklingar, sem skammt áttu
eftir ólifað að talið var, feng-
ið fullan bata eftir því sem
bezt verður séð og að minnsta
kosti tylft annarra hefur feng-
ið töluverðan bata. Annar
sjúklinganna dauðvona var
ung kona, sem allar líkur
bentu til að myndi deyja ein-
hvern tíma á árinu 1965. Hún
hafði fengið krabbamein í
nýra og var skorin upp en þá
kom í ljós að krabbameinið
hafði breiðzt út og henni var
sagt að hún gæti ekki búizt
við að lifa nema nokkra mán-
uði til viðbótar. Sex mánuð-
um eftir „sveppasúpu“-lyfja-
tökuna var hún aftur skorin
upp og var þá ekkert krabba-
mein sjáanlegt í líkama henn-
ar, aðeins heilbrigður líkams-
vefur. Hún er nú við beztu
heilsu.
Læknar þeir sem fengizt
hafa við þessar rannsóknir og
þeir aðrir sem kost hafa átt
að kynna sér þær telja að hér
sé um ámóta uppgötvun að
ræða og fyrir ámóta tilviljun
og þegar Sir Alexander Flem-
ing uppgötvaði penisilínið á
sínum tíma. Allt um það,
segja þeir, er rétt að hafa alla
■gát unz rannsóknunum er bet-
ur á veg komið og frekari nið-
urstöður liggja fyrir. Enn er
langt í land að sagt verði að
sigur hafi unnizt í baráttunni
við krabbamein, einn skæð-
asta mannfelli okkar ald-
ar — en þessar rannsóknir
ættu að geta lagt drjúgan
skerf til þess.
að atvinnutækin á Siglufirði
-og sá mannafli, sem þar er og
kann bezt til síldarverkunar,
nýtist á ný við þennan at-
vinnuveg.