Morgunblaðið - 30.03.1967, Page 32
Pierpont-úr
Hermann
Jónsson
úrsmiður
Lækjargötu 2.
FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1967
Helmingi útbreiddara
en nokkurt annað
íslenzkt blað
ís víða landfastur
fyrir Norðurlandi
SIF, flugvél Landhelgisgæzlunn-
ar fór í gær um kl. 16.22 í ís-
könnunarflug fyrir Norðurlandi.
Var flugvélin ókomin úr könnun
arfluginu um kl. 20.30 í gær-
kvöldi, en þá var hún nokkru
norðar en vaninn er og ætlaði
að kanna meginísinn.
Fyrsta ísinn hitti flugvélin
fyrir 232°. fjórar sjómílur frá
Látrabjargi og var þaðan mjög
dreift jakahrafl allt niður í
þrjár mílur frá landi að Kóp.
Frá Kóp að Barða voru dreifðir
ísjakar.
Frá Barða að Straumnesi voru
mjóar ísspangir. Þéttleiki þeirra
var 1 — 3/10, en á milli þeirra
voru stakir jakar. Isspöng var
landföst við Sauðanes og Gölt.
íshröngl var landfast við Grænu
hlið og ísspöng landföst við
Straumnes. Siglingarleið var
fær i björtu.
Frá Straumnesi að Rauðu-
núpum voru dreifðar ísspangir,
þéttleiki 1 — 3/10 og ná þær að
landi á Hornströndum, Strönd-
um ug allt aS Gjögri, 9 milur út
af Skaga og þaðan 4 mílur af
Sauðanesi. þrjár mílur af Siglu-
nesi, 5 milur af Gjögrum, Vz
míiu af Flatey og 5 mílur af
Tjöroesi.
Gerðu tunclur-
dufl óvirkt
VARÐSKIPIÐ Óðinn fór i gær
til Norðurfjarðar til þess að gera
óvirkt tundurdufl, sem þar hafði
rekið. Frá Landhelgisgæzlunni
fór Sigurður Sigurðsson, sem er
sérfræðingur í eyðileggingu
dufla á staðinn sem er skammt
fyrir neðan Finnbogastaði.
A svæðinu Skjálfandi — Axar
fjörður, út af Skaga og Húna-
flóa voru dreifðir ísjakar allt að
lanJi. Siglingaleið er þó fær
í björtu, en mjög varhugaverð
eftir að dimma tekur austur af
Siglunesi að Rauðunúpum.
Isspangir og íseyjar eru áfram
frá Rauðunúpum að Svínalækj-
artanga, en gisna og eru orðnar
mjög dreifðar við Langanes.
Siglingaleið er greiðfær í björtu,
en einkum varhugaverð, vestan
við Svínalækjartanga.
Norðanátt var í gær en sam-
kvæmt upplýsingum Veðurstof-
unnar á að bregða til suðaustan-
áttar í kvöld. Er því óvíst um
hvort breytt veður getur ekki
bægt ísnum frá.
■0» Bjarmi II kominn á flot og hefur nú för sína gegnum skerjagarðinn. (Ljósm. Tómas Jónss.)
Bjarma náð af strandstað
— Tók fjórum sinnum niðri, en skemmdist ekki meira en orðið var
— Þetta virðist allt svo einfalt, þegar
því er lokið — sagði Kristinn Cuð-
brandsson, sem sigldi Bjarma út
BJARMI n frá Dalvík komst
fyrir eigin vélarafli út fyrir
skerjagarðinn við Baugstaða-
fjöru í gær um kl. 7. Sigldi skip
ið út um rennu í garðinum og
varð að beygja þvi í vinkil tvisv
ar á leið þess. Skipið tók f jórum
sinnum niðri, en blæjalogn var á
og örlítil undiralda. Leiðin út
úr skerjagarðinum var merkt
með flotduflum. Eftirfarandi
frétt símaði Steingrímur Jóns-
son fréttaritari Mbl. á Stokks-
Þýzki pilturinn kom-
inn til meðvitundar
EINS og getið var í Mbl. í gær I Öræfum um hádegisbil á páska-
fannst þýzkur piltur meðvitund- dag. Fréttaritari Mbl. í Kefla-
arlaus skammt frá Skaftafelli í | vík, Helgi S. Jónsson, var stadd-
ur austur við Skaftafell og tókst
honum með aðstoð fleira fólks
að halda lífi í manninum, þar
til komið var með hann í húsa-
skjól að Skaftafelli. Helga sagð-
ist svo frá:
Síldveiðor
bonnaðor
sunnnnlands
Sjávarútvegsmálaráðuneytið
hefur bannað síldveiðar fyrir
Suðurlandi á svæðinu frá
Hornafirði vestur um að Rit.
Bann þetta gildir til 15 mai
og er sett á þeim forsendum,
að íslenzki sildarstofninn. af
vorgots og sumargotssíld sé
veikur fyrir og hann hafi far-
ið hratt minnkandi undan-
farin ár.
Hafrannsóknarstofnunin og
Fiskifélag íslands hafa lagt
til að reynt verði að vernda
stofnin ofveiði og hefur ver-
ið rætt um ýmsar ráðstafanir
sem enn eru í athugun og
ekki hefur verið tekin ákvörð
un um, samkvæmt upplýsing
um Daviðs Ólafssonar fiski-
málastjóra.
— Ungi pilturinn fór út
snemma á páskadagsmorgun og
gekk frá Skaftafelli. Þegar farið
var að óttast um hann var ferða
fólk, sem beðið hafði fyrir neð-
an Skaftafell, beðið um pff-
stoða við leit. Fóru all’’-
ferðalanganna að leita og dreifði
fólkið sér á svæðið. sem álitið
var að maðurinn gæti verið á.
Laust fyrir hádegi fann Árni
Ólafsson frá Keflavík síðan mann
inn en gat hanr. lítið sem ekkert
gert einn og náði í aðstoð og fór
einn Xeflavíkurbílanna yfir móa
og hraun eins langt og hann
komst að manninum. Maðurinn lá
í hrauninu og hafði tjóðrað sig
við vörðu. Var hann meðvitund-
arlaus og var andardráttur og
hjartsláttur frekar daufur.
Keflvíkingarnir tóku hann
þegar upp og skáru af honum
tjóðurböndin. Fluttu þeir hann
að Skaftafelli, þar sem fólkið
tók við honum. Tók heimilisfólk
á Skaftafelli mjög vel á móti
Framh. á bls. 31
eyri í gærkvöldi, en hann er
jafnframt formaður björgunar-
sveitarinnar þar-
„Á flóðinu í kvöld kl. 7 sigldi
Bjarmi II fyrir eigin vélarafli
út úr skerjagarðinum austan víð
Baugstaði. en ems og flestum
er kunnugt hefur vérið unnið að
björgun hans síðastliðinn háif-
an mánuð. Björgun h.f., sem
unnið hefur að björgun bátsins
undir stjórn Kristins Guðbrands
sonar tókst að lokum, það sem
margir höfðu talið vonlaust. að
bjarga bátnum, þótt oft hafi iit-
ið illa út um að það myndi tak-
ast. Margt fólk fylgdist með þeg
ar bátnum var siglt út og hafa
án efa fylgt honum margar
blessunaróskir áhorfenda.
Um leið og við kveðjum
Bjarma þykir mér tilhlýðilegt,
að þakka Jóni Stefánssyni og
útgerðarfélagi hans á Dalvík fyr
ir þá stórhöfðinglegu peninga-
gjöf, sem hann sendi slysavarna-
deildinni á Stokkseyri og óska
Stokkseyringar honum og félög-
um hans gæfu og gengis í fram-
tíðinni."
Þegar tekizt hafði að ná
Bjarma II út fyrir skerjagarð-
inn sigldi hann fil Þorlákshafn-
ar og kom þangað um kl. 20.30.
Mbl. náði I gærkvöldi tali af
Kristni Guðbrandssyni, forstjóra
Björgunar h.f., en hann var skip
stjóri á Bjarma, þegar honum
var siglt i gegnum skerjagarð-
inn. Kristinn sagði:
— Þetta virðist allt svo ein-
falt, þegar það er búið. Skipið
tók fjórum sinnum niðri, en
ekki harkalega. Við urðum að
renna honum yfir þessi ávölu
sker og krækja sundið.
Erfitt var að ná skipinu úr
sandinum, því að aUar festing-
ar biluðu og á botninum var
úfið hraun.
— Nei hann hefur ekki
skemmst neitt við björgunina.
Ég held ég megi segja að hann
sé eins og þegar við tókum
við honum strönduðum. Hann
hefur kannski hruflast eitthvað
í dag, en enginn leki hefur kom
ið að honum og allar vélar eru
í lagi. Nú bíð ég hér einungis
eftir því að einhverjir frá Sam-
vinnutryggingum komi og taki
við honum. Okkar hlutverki er
lokið.
— Ég veit ekki hvað gert
verður við skipið nú, hvort far-
ið verður með það til Reykjavík-
ur eða eitthvað annað. Satt að
Framh. á bls. 31
Gamalt timburhús
brennur á Vopnafirði
Mikið tjón í brunanum, m.a. brann mikið
af skjölum og reikningum hreppsins
V OPNAFIRÐI, 29. marz. —
Eldur kom upp i gamla læknis-
bústaðnum hér um kl. 4 sl. nótt.
Sveitarstjórinn, Guðjón Ingi Sig-
urðsson, bjó i húsinu ásamt konu
sinni, Jónu Haraldsdóttur, frá
Reykjavík, og tveim börnum.
FÆRÐ GREIÐIST
nema á Austurlandi
SAMKVÆMT upplýsingum
Vegagerðar ríkisins er færð
sunnanlands nú góð og er fært
austur í Vík um Þrengslin. Þá
er fært stórum bílum fyrir aust-
ar, Vík.
Góð færð er upp í Borgarfjörð
og um héraðið, sömuleiðis stærri
bílum um Snæfellsnes, um
Bröttubrekku og í Dalasýslu.
Ekki hafði í gær tekizt að opna
veginn í Gilsfirði.
Stórum bílum var í gær fært
norður Holtavörðuheiði, alla leið
í Skagafjörð. Stórir bílar voru
í gær aðstoðaðir norður Strand-
ir til Hólmavíkur.
Yfirleitt var í gær greiðfært
stórum bílum um Húnavatns-
sýslur og Skagafjörð, en vegur-
inn yfir öxnadalsheiði var lok-
aður og var ekki gert ráð fyrir
að hann yrði opnaður í bráð.
í Eyjafirði var mikil ófærð,
en fært var tsórum bílum um ná-
grenni Akureyrar. Frá Akur-
eyri og austur í Þingeyjarsýslur
er með öllu ófært og á Austur-
landi eru allir vegir ófærir. Þó
mun ekki eins mikil ófærð á
Suðausturland. Er t.d. fært frá
Hornafirði að Lónsheiði og einnig
frá Djúpavogi að Lónsheiði.
í gær var mikil snjókoma á
Austurlandi, en annars staðar
á landinu var ekki úrkoma að
ráði.
Þar var einnig skrifstofa hrepps-
ins.
Sveitarstjórinn var einn í hús-
inu, því konan hans og börn
voru nýfarin með flugvél til
Reykjavíkur. Smáhvolp hafði
Guðjón hjá sér uppi á lofti, þar
sem hann svaf. Hvolpurinn vakn-
aði við reyk af eldinum og gelti
svo ákaft, að jafnvel fólk vakn-
aði í næsta húsi, svo og Guðjón.
Hann smeygði sér í buxur og
henti hvolpinum og smákettlingi
út um glugga í næsta herbergi.
Ætlaði Guðjón svo að reyna að
bjarga einhverju úr svefn-
herberginu, en varð strax frá að
hverfa vegna reyks og hita.
Guðjón varð að stökkva út
um glugga þarna á annarri hæð
og komu þá snjóskaflarnir í góð-
ar þarfir.
Guðjón gerði viðvart í gegnum
símstöðina og var slökkviliðið
komið á staðinn áður en hálf-
tími var liðinn, en ekkert varð
við eldinn ráðið og brann húsið
svo að ónýtt er en stendur þó
uppi.
Allt innbú sveitarstjóra brann
og mikill hluti skjala og reikn-
inga hreppsins, ennfremur nokk-
uð af peningaseðlum, sem
geymdir voru í peningakassa á
Framh. á bls. 31