Morgunblaðið - 09.11.1967, Síða 4

Morgunblaðið - 09.11.1967, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, f iMMTUDAGUR 9. NÖV. 1967 \ * Hverfisgötu 103. Sími eftir iokun 31160. LITLA BÍLALEIGAN Ingólfsstræti 11. Hagstætt leigugjald Sími 14970 Eftir lokun 14970 eða 81748 Sigurður Jónsson BÍLALEIGAM - VAKUR - Sundaugaveg 12 . Sími 35135. Eftir lokun 34936 og 36217. ♦ '/-=*a/lA.l£/G/U* HAUÐARARSTÍG 31 SÍMI 22022 Riiskinnshreinsun Hreinsum rúskinnskápur, jakka og vesti. Sérstök meðhöndlun. Efnalaugin Björg, Háaleitisbr. 58—65, sími 31380, útibú Barmahlíð 6, sími 23337. AU-ÐVITA0 ALLTAF Erlendir ferðamenn á íslandi Allar þjóðir keppast um að laða sem flesta ferðamenn til landa sinna. Bæði er þar um beinharðar gjaldeyristekjur að ræða, og svo er álitið, að „hinn óbeini ávinningur“ sé mjög mikils virði. Þar er átt við, að eftir kynni erlendra ferða- manna af landi og þjóð flytji þeir heim með sér hlýjan hug til gestgjafanna, sem geti svo haft ótfyrirsjáanleg áhrif á af- stöðu annarra ríkja til lands gestgjafanna. Við íslendingar vorum nokk uð seinir til þátttöku í kapp- hlaupinu um „túristana“, en nú er markvisst unnið að því, bæði á vegum hins opinbera og annarra aðilja, að vinna upp tapaðan tíma. Þó eimir eitthvað eftir af einangrunar- hugsunarhætti hjá sumu fólki, að við eigum að una glaðir við okkar hlut. án þess að leyfa útlendingum svo mikið sem horfa á okkur og landið okk- ar. ★ Áhyggjur Dana f sumUm löndum em tekjur af erlendum ferðamönn um orðnar svo miklar, að bregði eitthvað út af með ferðamannastrauminn, skrifa blöðin þar, eins og við skrif- um um aflaleysi og verðhrun afurða. Þess vegna veldur það Dönum núna geysilegum áhyggjum, að fyrirsjáanlegt er, að feðamannastraumurinn til Danmerkur í ár verður mun minni en undanfarin ár, a.m.k. frá Bandaríkjunum, en Bandaríkjamenn hatfa verið einna beztir viðskiptavinir Dana að þessu leyti, enda stendur dollarinn alltaf fyrir sínu. Nokkrir helztu áróðursstjór- ar SAS oru fyri skömmu á fundi í Los Angeles með full- trúum tíu helztu ferðaskrif- stofna í Kalifomíu. Fulltrúam ir tíu tilkynntu SAS-mönnum, að engar ferðir yrðu skipulagð ar frá Kalifomíu til Dammerk ur á árinu 1968, þ.e. engar hóp ferðir yrðu skipulagðar af ferðaskrifstotfum. Dönum féll þetta að vonum mjög þungt, og ekki bætti það úr skák, þeg- ar flestar stærstu ferðaskrif- stotfurnar í Chicago, Warfiingt- on og New York tilkynntu, að engar hópferðir yrðu auglýst- ar á þeirra vegum á næsta ári. Hótelskortur aðal- ástæðan Bandaríkjamenn sögðu, að höfuðástæða þess, að Dan- mörk væri ekki jafn-vinsælt túristaland í augum banda- rísks almennings og áður, væri gistihúsavandræðin í Kaup- mannahöfn. Fólk vildi ekki þurfa að bíða lengi eftir svari við því, hvort það gæti feng- ið góða gistingu miðsvæðis í Kaupmannahöfn frá og með ákveðnum degi eða jafnvel ein hvern tíma á vikutímabili. Þessi hótelskortur fældi fólk frá þegar í byrjun, svo að það leitaði heldixr annað. Önnur ástæða var gefin upp sem óheppileg verðlagisþróun í Danmörku. Landið, og þá sér- staklega Kaupmannahöfn, væri aðverða alltotf „dýrt“ fyr- miðað væri við önnur lönd og ir venjulega ferðamenn, þegar aðrar borgir í Evrópu. Reisa Bandaríkja- menn hótel í Dan- mörku? Nú hafa ýmis bandarísk fyrirtæki sýnt áhuga á því að byggja gistihús í Danmörku, og hafa Danir tekið því fegins hendi (nema auðvitað SF- kommúnistarnir, sem stjórnar- meirihluti danskra sósíaldemó- krata byggist á, og þó hafa jafnvel sumir SF-menn lýst sig hlynnta hugmyndinni). Eink- um er rætt um stórfyrirtækið „Holiday Inns“, sem hefur hug á að reisa fullkomið gisti hús með a.m.k. þúsund gisti- herbergjum. Danski ferðamála stjórinn og yfirborgarstjórinn í Kaupmannahöfn hafa mikinn áhuga á málinu, en þykir verst, að Bandaríkjamennirnir telja síg þurfa heilt ár til þess að byggja húsið. Það finnst Dön- um langur tími! SAS hefur leiguflug í Skandinavíu Um þessar mundir er að hefjast mjög hörð samkeppni í leiguflugi í Skandinavíu. Hún hefur svo sem verið tal- in nógu hörð til þessa, en nú er SAS (eða réttara sagt dótt- urfyrirtæki þess, Scanair) að hefja leiguflug með DC-8 flug vélum, sem taka 165 farþega. Er hér um að rœða stærstu flugvélar, sem gerðar eru út frá Skandinavíu. Fyrsta vélin er sjö ára gömul vél í eigu SAS, sem ber nafnið „Óttar víkingur." Hún hafði rúm fyr- ir 139 farþega, en var breytt fyrir eina og háltfa milljón danskra króna (um 9,3 millj. ísl. kr.). Fyrsta farrými er af- numið og eldhúsið minnkað, svo hægt væri að bæta við 26 farþegasætum. Tapað — fundið Velvakandi hefur ein- staka sinnum skýrt frá því, að hjólhestar (einkum barnahjól) hafi horfið, og hefur hann gert það vegna óska bréfritara. Vel vakandi man í svipinn eftir þremur dæmum þess, að börn hafi fengið hjólin sín aftur, eftir að þeim hafði verið lýst í þessum dálkum. Slíkt er mjög ánægjulegt, og hetfur Vel vakandi auðvitað haft gaman af því að geta orðið börnun- um að liði. En öllu má nú ofgera. Nú virðast sumir halda, að þessir dálkar séu einhvers konar „Tapað-fund- ið“-auglýsingadálkar. Vill Vel vakandi því taka það fram, að hann getur ekki tekið að sér að auglýsa eftir týndum mun- um; slíkt má gera í auglýs- ingum blaðsins og stundum með klausu í Dagbók, einkum ef um börn er að ræða. Því hættir Velvakandi hér með að birta slík bréf, en segir þó IJrval nýrra eyðublaða frá Eyðublaðatækni ★ Sérstakiega viljum við vekja athygli á nýju vinnulaunakerfi fyrir atvinnurekendur. ★ Margar gerðir geymslna fyrir eyðublöð, nýjar möppur, plastskuffur, möppustoðir o.fl. ★ Munið: Hentug eyðublöð spara vinnu og lækka skrifstofukostnað. ★ Kynnið ykkur helztu nýjungarnar. HVERFISGÖTU 37, KEYKJAVÍK. SÍMI 18994. ekkl, að hann mundi ekki gera eina undantekningu eftir mála vöxtum, sérstaklega ef um börn er að ræða, sem einihver vondur strákur hefur rænt hjólinu. Það þekkir hann sjálf ur af eigin raun, að er voða- lega sárt. Hér skal þó að lokum birt bón frá konu, sem týndi pen- ingaveski við Osta- og smjör- söluna á Snorrabraut mánudag inn 30. okt. Sá hún einhvern taka veskið upp, en náði ekki til manneiskjurmar. Veskið seg ir hún að sé greinilega merkt með nafni, síma og heimilis- fangi. Vegna einka-skilríkja í veskinu biður hún finnandann að senda sér veskið í pósti með öllu í, en tíunda hluta fjár- upphæðarinnar megi hann reikna sér í fundarlaun. (Vel- vakanda minnir nú, að fundar laun séu þriðjungur). Sameinuðu þjóð- irnar „Guðmundur S.“ skrif- ar: „Kæri Velvakandi! Ég er einn þeirra, sem bundu miklar vonir við stofn- un Sameinuðu þjóðanna í upp- hafi. Ýmis víxlspor tel ég, að þær hafi stigið á umliðnum ár- um, en þrátt fyrir allt hafa þaar miklu góðu til leiðar kom ið, einkumn undirstofnanir þeirra. Hins vegar er allsherj- arvettvangur þeirra meira og meira að verða að áróðurs- kenndur, þar sem einsýnir menn flytja hatursprédikanir hver gegn öðrum, og er ég viss um, að sumar samþykkt- ir í seinni tíð hafa bókstaflega stuðlað að úlfúð og ófriðL En nú þykir mér þó keyra um þverbak, þegar samþykkt eru á þingi hinna Sameinuðu þjóða „tilmæli til Breta um að hætta samningaumleitunum þegar í stað við Ródesíustjórn" og „hvatning um að beita vopnavaldi tafarlaust.“ Við skulum alveg láta liggja milli hluta, hverja skoð- un við höfum á stjórninni í Ródesíu. En er þetta sá andi friðar og sáttfýsi, sem við von- uðum og trúðum, að rnundi alla tíð stjórna gerðum Sam- einuðu þjóðanna? Byggjast þær ekki einmitt á því, að deil ur skuli leystar með samning- um en ekki með vopnavaldi? Hafi ég misskilið þetta, þætti mér vænt um. ef einhver mér fróðari vildi þá leiðrétta mig. Guðmundu S.“ Suðurnesjavegnr eða Reykjanes- braut? „Suðurnesjamaður" skrif ar: „Kæri Velvakandi! Hvernig ætli standi á því, að opinberir aðilar, eins og t.d. Ríkisútvarpið og Hafnarfjarð- arlögreglan, tala alltaf um Reykjanesbraut, þegar átt er við Suðurnesjaveg? Nú vita allir, að Reykjanes er ekki nema smáskagi út úr Reykja- nesskaga, sem farið er að kalla svo (og gjarnan má), og kem- ur umtalaður vegur hvergi nærri því. Hins vegar heitir þessi vegur fra aldaöðli Suð- urnesjavegur, enda ligguir hann um Suðurnes. Skil ég ekki, af hverju sumir finna þörf hjá sér til þess að breyta því. Vegurinn liggur ekki út á Reykjanes, og braut er ósköp tilgerðarlegt. Suðurnesjamaður." t

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.