Morgunblaðið - 24.02.1968, Qupperneq 1
32 SiÐUR
47. tbl. 55. árg. LAUGAKDAGUR 24. FEBRÚAR 1968 Prentsmiðja MorgUnblaðsins.
Plága í
Indónesíu?
Waghington, 23. febr. — AP —
ÓTTAZT er að plága, svipuð
Svarta dauða hafi brotizt út á
þéttbyggðum landsvæðum á eyj
unni Jövu í Indónesíu. Hefur
Bandaríkjastjórn sent þangað
sérfræðinga til að aðstoða yfir-
völdin við að stemma stigu fyr-
ir frekari útbreiðslu plágunnar. |
Plága þessi berst með flóm
á rottum og er bráð-smitandi og
banvæn.
Stjórn Indónesíu fór þess a j
leit við bandarísku stjórnina, að
hún send. sérfræöinga til að
kanna hvort þarna sé í raun og
veru um að ræða farsótt, sem
nefnist „bubonic plague“ og or- !
sakast af sama sýkli og Svarti
dauði. EUefu manns hafa látið
lífið á Mið-Jövu af sóttinni, og
75 aðrir eru grunaðir um að
hafa tekið pest na.
Friður mikil-
væguri en
stjórnoriyrir-
komulng í
Vietnom?
London, 23. febr. (NTB)
MEIRIHLUTI kjósenda í Bret-
landi telur þýðingarmeira að
binda enda á styrjöldina í Víet-
nam en að tryggja að áðrir en
kommúnistar fari þar með völd.
Kemur þetta fram í niður-
stöðum skoðanakönnunar á veg-
um Gallupstofnunarinnar, sem
birtar voru í dag í blaðinu Lon-
don Evening Standard. — 55%
aðspurðra segja æskilegra að
stríðinu verði lokið, en 34% telja
nauðsynlegra að tryggja ,að
kommúnistar nái ekki völdum í
landinu. 11% taka enga afstöðu,
og telja sig ekki geta ákvéðið
hvort málið sé þýðingarmeira.
Mennirnir voru ekki þeir einu sem spókuðu um í góða veðrinu í fyrradag. Gæsirnar við Reykj avíkurtjörn vöppuðu makinda-
lega um Háskólalóðina og sóluðu sig í veðurblíðunni. Flestar gæsirnar munu vera afkomendur 6 gæsa, sem voru settar á
Tjörnina 1955, en ættbálkurinn telur eitthvað um 100 í dag. Gæsirnar halda venjulega hópinn við Tjörnina, en þær verpa
í grennd við Reykjavík og leita til sjávar í kuldum. — Ljósm. Árni Johnsen .
FlugslysiB á Grœnlandsjökli:
Litlar líkur til að flug-
maðurinn sé enn á lífi
— FEugvéEin á hvolfi og virtist mikið skemmd
LITLAR líkur munu til þess að
kanadíski flugmaðurinn Dennis
Bannock, sem kom Aero Comm-
ander flugvélinni á loft af Græn-
landsjökli á dögunum, sé ennþá
á lifi.
Eftir því, sem Mbl. hefur kom
izt næst, komst björgunarleið-
„Stríðshetjan" Boris Pasternak
angur að flugvélarflakinu í gær
og reyndist það þá mikið skemmt
og ekkert lífsmark þar að sjá.
Flugmaðurinn var ekki fundinn,
þegar síðast fréttist, en vélin var
opin, þegar að henni var komið
og því hugsanlegt, að hann hafi
komizt lifandi út úr henni. —
Eins líklegt var þó talið, að vél-
in hefði opnazt við fallið og flug
maðurinn þá ef til vili hrokkið
út úr henni og jafnvel lent undir
henni einhvers staðar.
Samkvæmt þeim upplýsing-
um ,sem borizt höfðu flugjþjón-
ustunni í Svðra Sraumsfirði,
benti ýmislegt til þess, að flug-
vélin hefði komið niður á nef-
ið, er hún hrapaði. Virtist hún
hafa liðazt mjög sundur, væng-
ir virtust að nokkru leyti af
henni og vélin að öðru leyti mik
ið skemmd. Veður mun hafa ver
ið slæmt á þessum slóðum eftir
að vélin hrapaði, hríð og skaf-
renningur, þvi að snjóskaflar
voru utan með flakinu. Matar-
b rgðir fundust í vélinni og ýms-
ir persónulegir munir flugmanns
ins, — en ekkert benti til þess
að hann hefði verið þar á ferli
eftir slysið.
Eins og frá hefur ver'ð sagt, í
Mbl. fannst vélin á miðviku-
dagskvöld. Flugu flugvél-
ar þar yfir og sáu þá,
Framthald á bls. 31
Herþjónustu Pasternaks minnst á
50 ára afmœli Rauða hersins
Moskvu, 23. febr.
(AP-NTB).
í TILEFNI fimmtíu ára af-
mælis Rauða hersins í dag,
er rithöfundarins Boris Past-
ernaks minnzt í tveimur blöð
um. vikuritinu „Nedelya“ og
dagblaðinu „Literaturnaya
Rossia".
í vikuritinu eru birt þrjú
Ijóð eftir Pasternak, „Dauði
hermanns“, „Eftirförin" og
„Sumardagur“ ásamt mynd
af höfundinum klæddum ein-
kennisbúningi sovézka hers-
ins frá dögum heimsstyrjald-
arinnar síðari. Ekki minnist
vikuritið á frægasta verk
Pasternaks „Zhivago læknir“,
sem bannað er í Sovétríkjun-
um.
í Literaturnaya Rossia er
Pastexnaks getið sem stríðs-
hetju, og honum líkt við Leo
Tolstoy. Kemur þetta fram í
langri grein í blaðinu eftir
Semyon Tregub. Segir höf und
ur að Pasternak hafi lengi
óskað eftir þvi að ganga í her
þjónustu í heimsstyrjöldinni
síðari, en þrátt fyrir loforð
um að verða tekinn í herinn,
hafi efndir dregist mjög. Það
Framlhald á bls. 31
Verður stórskotaárás
á keisarahöllina í Hue?
— Foringjum bandaríska hersins er það
þvert um geð. Hlé á sókninni. Mannfall
N-Vietmanna mikið
Saigon, Hue, 23. febr. NTB—AP
HERMENN Norður-Vietnam og
Viet Cong verjast enn af hörku
innan virkisveggja keisarahall-
arinnar gömlu í Hue, þar sem
bardagar hafa nú staðið í 24
daga. Mannfall þeirra hefur ver
ið mikið síðustu daga og síðasta
tilraun til að koma til þeirra
liðsauka mistókst.
Bandarísku hermennirnir sóttu
Framíhald á bls. 31