Morgunblaðið - 24.02.1968, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 1968
23
Ingólfur A. Þorkelsson:
Kref jast verður þess að
kennarar búi sig undir starf
sitt með sérstöku námi
í FYRRI grein minni ræddi ég
einkum kennaraskortinn og
benti á ófremdarástand það, sem
nú ríkir á gagnfræðastigi í þessu
efni. Ég gagnrýndi núgildandi
lagaákvæði um menntun kennara
og sýndi fram á, hversu ófull-
komin og ófullnægjandi þau
eru. Eigi vil ég láta staðar num-
ið við gagnrýni og aðfinnslur
einar saman, heldur bera fram
tillögur til úrbótar. Og skal nú
gengið beint til verks.
Tillögurnar.
Ég leyfi mér að leggja til,
að í stað 37. gr. laga um gagn-
fræðanám nr. 48.1946 (nánar til-
tekið í stað þeirra ákvæða um-
ræddrar greinar, sem fjalla um
bóknámskennara) komi eftirfar-
andi ákvæði:
1. mgr. Engan má setja eða
skipa kennara í bóknámsgrein-
um við skóla gagnfræðastigsins,
nema hann fullnægji eftirtöld-
um skilyrðum (sbr. þó 2. mgr.):
1. Hafa tekið lokapróf í minnst
einni kennslugrem, a. frá Há-
skóla íslands (B.A.—, cand.
mag.— eða mag.art.— próf, eða
annað það lokapróf, er fræðslu
málastjóri kann, í samráði við
Háskóla íslands, að telja full-
nægjandi að menntunarkröf-
um) eða b. frá erlendum há-
skóla, enda telji fræðslumála-
stjóri það jafngilda prófi skv.
a—lið hér á undan, að fengnu
áliti kennara í viðkomandi grein
um við Háskóla íslands.
2. Hafa tekið lokapróf í upp-
eldisfræðum a, frá Háskóla ís-
lands eða b. frá erlendum há-
skóla, er sé miðað við kennara-
réttindi á hliðstæðu skólastigi í
viðkomandi landi, enda telji
fræðslumálastjóri það jafngilda
prófi skv. a—lið þessa töluliðar,
að fengnu áliti kennara í sömu
greinum við Háskóla íslands.
3. Hafa lokið kennsluæfingum
og tekið kennslupróf: a. á veg-
um Háskóla íslands við skóla
gagnfræðastigsins eða b. á veg-
um erlends háskóla við skóla á
hliðstæðu fræðslustigi, enda telji
fræðslumálastjóri, að um sé að
ræða jafngildi æfinga og prófs
skv. a—lið þessa töluliðar, að
fengnu áliti kennara í sömu
greinum við Háskóla íslands.
2. mgr. Nú sækir enginn, sem
fullnægir öllum skilyrðum 1.
mgr. um lausa kennarastöðu, og
skal þá heimilt að setja mann,
sem stundað hefur nám:
a. minnst eitt ár við háskóla,
enda sýni hann skilríki fyrir
árangri námsins, eða b. við
kennaraháskóla, enda sýni hann
skilríki fyrir árangri námsins.
Ekki má skipa neinn þann, sem
settur er samkvæmt þessu, nema
að fullnægðum skilyrðum 1. mgr.
1. — 3. tölul.
3. mgr. Setning eða skipun
kennara í bóknámsgreinum við
skóla gagnfræðastigsins skv. 1.
mgr. skal hverju sinni bundin
við þær kennslugreinar, er við-
komandi kennari ' hefur tekið
próf í skv. 1. tl. 1. mgr., enda
öðlast hann ekki kennslurétt-
indi í öðrum bóknámsgreinum,
nema með því að ljúka í þeim
prófi skv. nefndu ákvæði. Setn-
ing kennara skv. 2. mgr. skal
bundin við þá grein eða greinar,
sem hann hefur lagt stund á í
háskóla eða kennaraháskóla.
Nú er óhjákvæmilegt, að kenn-
ari kenni aðrar greinar en hann
er settur eða skipaður til skv.
SÍÐARI GREIIM
< —»♦ ■>—
framansögðu, og skal það þá
heimilt, meðan nauðsyn krefur.
4. mgr. Við fámennar ungl-
ingadeildir, sem starfa í sam-
bandi við barnaskóla, þar sem
erfitt kann að reynast að fá
kennara, er uppfylli skilyrði 1.
mgr., skal heimilt að láta menn
með almennu kennaraprófi frá
Kennaraskóla fslands gegna
þeim störfum um stundarsakir,
en ekki öðlast þeir kennslurétt-
indi á gagnfræðastigi, nema á-
kvæðum 1. mgr., 1. — 3. tölul. sé
fullnægt.
II.
1. mgr. 1. Til þess að verða
settúr eða skipaður skólastjóri
við skóla gagnfræðastigsins skal
umsækjandi fullnægja þeim kröf
um, sem gerðar eru til mennV
unar kennara á því skóiastigi.
Sá umsækjandi gangi fyrir, sem
meiri menntun hefur.
2. Auk þess skal umsækjandi
hafa starfað a.m.k. 5 ár sem fast-
ur kennari á gagnfræðastiginu.
Mun ég nú í stuttu máli gera
grein fyrir tillögum þessum. Þær
eru ekki alveg nýjar af nálinni.
9. þing LSFK (Landsamb. fram-
haldsskólakennara) mótaði þá
stefnu, sem mörkuð er í tillög-
unum. Síðan skipaði stjórn
sambandsins nefnd til að vinna
úr samþykktum þingsins um
breytingar á lögum um menntun
og réttindi kennara á gagn-
fræðastigi. f nefndinni voru þess-
ir kennarar: Ingólfur A. Þor-
kelsson, form., ívar Björnsson,
ritari, Heimir Áskelsson, Óskar
Halldórsson og Jónas Eysteins-
son. Hún lauk störfum í janúar
1963. Umræddar tillögur eru á-
vöxturinn af starfi nefndarinnar.
Nú vinnur stjórn FHK (Fél.
háskólam. kennara) að fram-
gangi þeirra.
í 1. mgr. tillagnanna er fjall-
að um menntunarkröfur og þjálf
un undir kennslustarfið. Skipt-
ist hún í 3 greinar. Fyrsta gr.
kveður á um námsferil kennara-
efnis, sem skal, eins og fyrr
segir, Ijúka með háskólaprófi.
— Önnur gr. kveður á um próf
í uppeldisfræðum. í þriðju gr.
er svo gert ráð fyrir, að kennara-
efni ljúki kennsluæfingum, og
taki kennslupróf á vegum Há-
Framhald á bls. 24
ÞETTA GERDIST
ALÞINGI
Fundir Alþingis hefjast eftir jóla-
leytfi (17).
Stjórnarfrumvarp um hollustu-
hætti og heilhrigðisetftirlit lagt fram
á ALþingi (17).
Stjórnartfrunwarp um tollheimtu
og tolleftirlit lagt fram (17).
Upplýst á Alþingi að unnið sé að
85% lánveitingu til skipasimíða inn-
anlandís (18).
Stjórnarfrumavrp um breytingu á
lögum um Iðnlánasjóð (24).
Breytingartillaga um kosningalög-
in lögð fram á Alþingi. Gert er ráð
fyrir að ekki megi bjóða fram nema
einn lista hvers stjórnmálatflokks í
hverju kjördæmi (24).
Harðar umræður á Alþingi urn hús
næðismál. 150 millj. kr. komnar í
Breiðhioltsframlkvæmdir (27).
VEÐUR OG FÆRÐ
Töluvert íshröngl undan NorðUr-
landi (3).
Þungtfært á götum Heykjavíkur
(3).
Miikið frost um allt land, 30,4 stig
á Hveravðllum (3).
Frosthörkur um land allt (4).
Ófært um Norðurland (4).
Meginísinn ískyggilega nærri Vest-
fjörðum (5).
Enginn ís sjáanlegur frá Horn-
bjargsvita (7).
Færð sæmileg víðast á landinu (17).
Mikil ófærð 1 nágrenni Reykjavík-
ur (18).
Mikil ótfærð vestur um til Austur-
lands (28).
Il'lviðri á Akureyri (28).
ÚTGERÐIN
Heildarfiskafli landsmanna 1987 var
901 þús. lestir, en var árið áður 1240
þús. íestir (3).
38 bátar byrjaðir róðra á Vestfjörð-
um (9).
Mikið síldarmagn austur atf landinu,
en stendur djúpt (9).
20-30 bátar gerðir út frá Grindavík
1 vetur (10).
Vertíðarbátar hefja róðra (16).
Nokikrir íslenzkir síldarbátar að
veiðum á Norðursjó (18).
A'fli Akureyrartogara ytfir 11 þús.
lestir 1967 (20).
Nokkrir síldveiðibátar selja í Þýzka
landi (23).
Fiákmóttöku hætt hjá hraðfrysti-
húsum innan SH (23).
Saltað og ísað en nær ekkert fryst
(24.)
Stórkiostleg undirboð Norðmanna á
saltsíld í Póllandi (26).
Lágmargsverð á fiskúrgangi til mjöl
vinnslu ákveðið (26).
Norðursjávarsíld illseljanl'eg í Þýzíka
landi (26).
Miklar ógæftir hjá línubátum (28).
SH og SÍS afléttu vinnslubanni
frystihúsanna (30).
Gæftaleysi og rýr afli hjá bátum á
Suðurnesjum (30).
FRAMKVÆMDIR
Tunnuverksmiðjan í Siglufirði tekin
til startfa (3).
Stálvík semur um smíði 130 lesta
skips (5).
Selfossshreppur kaupir hitaveitu
kauptúnsins (6).
Rannsóknarstöð Hjartaverndar form
lega tekin í notkun (9).
Viðhald þjóðvega nemur 145 millj.
kr. á þessu ári (9).
Heitavatnsholan í Blesugrótf virkjuð
þegar í stað (9).
97,6 millj. kr. tilboði vestur-þýzka
fyrirtækisins Brown Boveri, Mann-
heim, tekið í sambandi við ýmiskonar
framkvæmdir við Búrtfellsvirkjun (11).
Hagkauip hyggst reisa stórhýsi í
Garðahreppi (11).
806 íbúðir tfullgerðar í Reykjavík sl.
ár (13).
Rafmagn frá Grímsárvirkjun til
Borgarfjarðar eystra (17).
Nýr barnaskóli tekinn í notkun í
Táliknafirði (18).
Gólf sett yfir sundlaugina á Siglu-
firði og húsið notað sem íþróttahús
hálft árið (19).
Bræðurnir Ormsson hf. taka 50-60
mil'lj. kr. verk í Straumsvík ásamt
dönsku tfyrirtæki (24).
Rannsóknarstöð landbúnaðarins að
flytja í nýja húsið á Keldnaho<lti (30).
Austfirðingar hafa hug á að kaupa
þyrlu (30).
MENN OG MÁLEFNI
Forseti íslands, hr. Ásgeir Ásgeirs-
son, lýsti því ytfir í nýársboðskap sin
um, að hann myndi ek-ki gefa kost
á sér til endurkjörs við forsetakosn-
ingarnar á komandi sumri (3).
Helgi Hálfdánarson og Björn J.
Blöndal hljóta styrki úr rithöfunda-
sjóði Ríikisútvarpsins og Magnús Bl.
Jóhannsson úr Tónskáldasjóði (3).
Dr. Páll isólfsson lætur af störfum
sem dómorganisti eftir 27 ár (3).
Freysteinn Þorbergsson skákmeist-
ari Norðurlands 1968 (5).
Leifur Þorsteinsson heldur sýningu
á myndum úr Reykjavík (6).
Vil'hjálmur Þ. Gíslason kjörinn for-
maður Menntamálaráðs (9).
Jónatan Hallvarðsson kosinn forseti
Hæstaréttar (9).
Ashikenazy kaupir hús í Reykjavík
(10).
Ragnar Björnsson ráðinn dómorgan-
is.ti í Reykjavík (11).
Froskmannasveit stofnsett innan
Slökkviliðsins (11).
„Þetta er útrás á barbarískum hug-
mynd'um", segir Halldór Laxness um
diómana ytfir rússnesku rithötfundun-
um (13).
Dr. Steingrímur J. Þorsteinsson for
maður dómnefndar um bókmennta-
verðl'aun Norðurlandaráðs (13).
Eiríkur Hreinn Finnbogason tekur
við kennslu við heimspekideild Há-
skólans (14).
Guðjón ILlugason, skipstjóri, kenn-
ir Afríkumönnum veiðar á Viktoríu-
vatni (16).
Kvikmyndaleikarinn Charlton Hest-
on hefur viðdvöl hér á landi (16).
80 Færeyingar væntanlegir til ís-
land® til startfa við sjávarútveginn
(19).
Hópur manna úr ýmsum stjórnmála
flokkum skora á Gunnar Thoroddsen,
sendiherra, 1 framboð til forseta-
kjörs (20).
Guðmundur Magnússon, fil. lic.
skipaður prófessor við Viðskiptadeild
Háskóla íslands.
Sænskir ökukennarar leiðbeina ís-
lenzkum vegna breytingar'í H-uiHtferð
(24).
Guðbergur Bergsson hlýtur Silfur-
hest bókmenntagagnrýnenda dagblað-
anna tfyrir bók sína ,,Ástir samlyndra
hjóna“. (25).
Kristján Bersi Ólafsson ráðinn rit-
stjóri Alþýðublaðsins (30).
Bandaríkjamaður leitar hælis á ís-
landi sem pólitískur flóttamaður
(30, 31).
íslenzkur maður, Magn-ús Andrésson,
fær einkaleyfi í fjórum löndum á að
ferð til nýtingar fiskimjöls til mann-
eldis (31).
Arthur S. Maxwell, kunnur .barna-
bókahöfundur, heimsækir ísland (31).
FÉLAGSMÁL
Kerfisbundin verkkennsla iðnnema
að hetfjast (10).
Sigurður Magnússon, kaupmaður,
formaður Óháða safnaðarins (10).
Umtferðarskóli tfyrir börn undir
skólaðkyldualdri settur á stofn (10).
Óvissa um framhald samningavið-
ræðna útgerðarmanna og sjómanna
(11).
Matvöru- og kjötkaupmenn ákveða
að loka verzlunum sínum milli kl.
12,30 og 14 (13).
Félag frímerkjasafnara stofnað á
Selfossi (13).
10. norræni byggingardagurinn verð
ur haldinn í Reykjavíik í ágúst (18).
Lagt til í borgarstjórn, að nemendur
á skyldunámsstigi verði slysatryggðir
gegn varanlegri örorku (19).
Landssamiband málmiðnaðarfyrir-
tæíkja stofnað, formaður Björn Guð-
mund'sson, Reykjavík (20).
Skagtfirðingar stotfna útgerðarfélag
og vilja kaupa fiskiskip (23).
Verktfall hjá frystihúsi í Ólafsvík
vegna vangoldinna vinnulauna (25).
Verkleg kennsla hefst í Iðnskólan-
um á Akureyri (25).
5000 börn undir skólaskyldualdri í
Umtferðarskólanum (26).
Sjávarútvegssýning verður í Reykja
vík í maí-júní (27).
Fiskiþing hefst í Reykjavík (30).
Framhaldsaðalfundur 30. þings ASÍ
hefst (30).
BÓKMENNTIR OG LISTIR
Leikflokkur Litla sviðsins sýnir
„Billy lygara“, eftir Keith Water-
house (9).
„Fjölmæli", doktorsritgerð Gunn-
IJANÚAR 1968
ars Thoroddsen komin út (10).
Vísindafélag íslendinga getfur út
þrjár merkar vísindabækur (12).
Frúla, söng- og dansflokkur fná
Júgóslavíu, sýnir 1 Þjóðleikhúsinu
(16).
Verið að æfa nýtt sjónvarpsleikrit
eftir Jökul Jakobsson, „Romm
handa Rósalind” (18).
Ljóð 19 ára pilts gefin út að hon-
um látnum, „Það vorar“, eftir Guð-
bjart Ólafsson (20).
Karlakórinn Vísir á Siglufirði fer
á tónlistarhátíð í Cannes í Frakk-
landi (20).
Ungverski píanóleikarinn Balint
Vavsonyi leikur með Sinfóníuhljóm-
sveitinni (24).
Leiikfélag M. A. sýnir gamanleik-
inn „Halló DoIlý“, eftir Thornton
Wilder (25).
Halldór Laxness vinnur að nýju
leikriti (27).
Studio des fruhen Musik heldur
tónleika í Reykjavík (27).
Svavar Guðnason sýnir í Char-
lottenborg (28).
SLYSFARIR OG SKAÐAR
Nokkuð brunatjón 1 gömlu slökkvi
stöðinni í Reykjavfk (3).
Einsmanns flugvéi nauðlenti á þjóð
vegi á Fellsströnd (4).
Bryggjur ökemmdust á Siglufirði
atf völdum íss (5).
AlHr ofnar í Landakotsskóla
sprungu í frostum (5).
Flestir H-umtferðarstaurar á leið-
inni Selfoss—Reykjavík sagaðir nið-
ur (7).
íbúð í Aðalstræti 23 á Patreks-
firði skemmdist í eldi (7).
Húsið nr. 66 við Suðurlandsbraut
eyðileggst í eldi (9).
Milljónatjón, er frystihúsið á Rauf
arhöfn brennur (12).
íslenzkur maður, Markús F. Sig-
urjónsson, skipstjóri, myrtur í New
Orleans í USA (14).
Bærinn Garðar á Álftanesi stór-
ökemmist í eldi (14).
Skemmdir á „Brimnesi“, er eldur
kom upp í bátnum í skipasmíðastöð
í Njarðvík (16).
Vélbáturinn Stígandi HU 9 strand
ar við Skagaströnd, en næst aftur
á fk>t (19, 20).
Gunnar Tryggvason, leigubílstjóri,
skotinn til bana í Reykjavík. Morð
inginn ófundinn (19, 31).
Brezki togarinn Safe FD 155 fær á
sig brotsjó út af Malarrifi og
skemmdist nokikuð (20).
Talsverðar skemmdir á Húna II
af völdum elds (23).
18 ára stúlka stingur móður sam-
býlismanns síns með hnífi (23).
Ung kona, Baldrún Pálmadóttir,
brennur inni á Akureyri ásamt
tveimur ungum börnum sfnum (25).
17 lesta flutningablll lendir í
sjóinn í Straumsvík (25).
Togarinn St. Romanus ferst með
allri áhöfn á Atlantshafi (26, 27).
Skemmdir af eld^ í Gagnfræða-
skólanum við Lindargötu (27).
Ver KE 45 sekkur út atf Vestfjörð
um. Varðskipið Albert bjargar áhöfn
inni (27).
Vélbáturinn Hildur frá Reykjavfk
strandar við Ingól/fshöfða, en kemst
aftur á flot (27).
Þúsundir fugla drepast 1 olíu á
Axarfirði (30).
Arnfinnur Guðmundsson frá
Hrafnabjörgum, 28 ára, bíður bana,
er vegþjappa fer út af veginum 1
Hvaltfirði (30,31).
Mikið tjón af eldi í verksmiðju
K. J. & Co á Akureyri (30).
Enski togarinn Kingston Peridot
H 591 ferst fyrir Norðurlandi (31).
AFMÆLI
Knattspyrnufélag Akureyrar 4D
ára (9).
Slysavarnarfélag íslands 40 á ra
(28).
ÍÞRÓTTIR
Guðmundur Hermannsson, KR,
kosinn „íþróttamaður ársins“ fyrir
afrek sín 1 kúluvarpi (6).
Pólska handknattleiksliðið Sponja
í heimsókn hér (9).
Akureyrir gersigraði Reykvíikinga
í íshokki, 9:2 (9).
GREINAR
Nýjársávarp forseta íslands (3).
Áramótaávarp forsætisráðherra
(3) .
Samtal við Bjarne Eidskrem, stjóm
armeðlim í íslendingafélaginu 1 Osló
(4) .
Rætt við fjóra fulltrúa á SUS-
þingi (4).
Minkafrurrwarpið á Alþingi nú, eft
ir Þorbjörn Björnsson, Geitaskarði
(4) .
Á að auka minkapláguna?, etftir
Jón N. Jónasson, Selnesi á Skaga
(5) .
Svíiþjóðarbréf frá Magnúsi Gísla-
syni (5).
Bezt mögulegt að láta, eftir Guð-
rúnu Jónsdóttur frá Prestsbakka (5).
Rætt við Guðmund Hjaltason um
kreistingu á laxi og starfrækslu
klakstöðvarinnar við Elliðaár — og
Athugasemd frá Axel Aspelund, for-
manni SVFR (6).
Skýrsla samgöngumálaráðherra um
framkvæmd vegaáætlunar 1967 (6).
Hafísinn getur enn lagzt að land-
inu (7).
Háskólinn og Happdrættið: Raun-
vísindastofnunin (7).
Sjötíu skipa síldveiðifloti austur í
hafi (7).
Rætt við Aðalstein Júlíusson, vita-
og hatfnarmálastjóra (9).
Slutt samtal við Aðalstein Davíðs
son, sendikennarar (9).
Opið bréf til Ríkisútgáfu náms-
bóka, eftir Finn Torfa Hjörleirfsson
og Hörð Bergmann (9).
Ferðamannaland, eftir Bjarna Guð